Íslandsbanki
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 13 ›
Yfirgefa Íslandsbanka og vilja að stjórnendur greiði sekt úr eigin vasa Stjórn Neytendasamtakanna hefur tekið ákvörðun um að færa viðskipti félagsins frá Íslandsbanka vegna þeirra brota sem stjórnendur hans hafa gerst uppvísir að í tengslum við sölu hluta í bankanum. Viðskipti innlent 27.6.2023 23:50
Bjarni segir erfitt að spá fyrir um framtíð stjórnarsamstarfsins Nú ásama tíma og fylgi stjórnarflokkanna hefur aldrei mælst minna ríkir mikil óvissa um framtíð stjórnarsamstarfsins vegna deilna um tímabundið hvalveiðibann ofan á mjög ólíkar áherslur í málefnum útlendinga. Innlent 27.6.2023 20:01
Nefndarfundurinn verður opinn eftir allt saman Fundur efnahags-og viðskiptanefndar þingsins á morgun verður opinn og hefst klukkan eitt eftir hádegi. Fundað verður um brot Íslandsbanka við sölumeðferð á eignarhluta ríkisins í bankanum. Viðskipti innlent 27.6.2023 16:53
Brotin geti haft mikið að segja um orðspor Íslandsbanka Það að Íslandsbanki hafi hvorki greint hagsmunaárekstra með fullnægjandi hætti né tryggt að þeir sköðuðu ekki hagsmuni viðskiptavina þegar bankinn seldi hluti í sjálfum sér er ein af stærstu orðsporsáhættum bankans í sáttinni við fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Þetta segir Andri Fannar Bergþórsson, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, lögmaður hjá Advel lögmönnum og fyrrverandi nefndarmaður í fjármálaeftirlitsnefnd. Innherji 27.6.2023 12:11
Vilja að pólitísk ábyrgð í Íslandsbankamálinu sé skoðuð betur Þingflokkur Viðreisnar hefur farið fram á að Alþingi verði kallað saman sem fyrst vegna niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins um lögbrot við sölu Íslandsbanka. Forsætisráðherra segir ekkert tilefni fyrir þing til að koma saman. Innlent 27.6.2023 12:00
Bankastjórnendur rúnir trausti og þurfa að axla ábyrgð Stjórnendur Íslandsbanka gengu fram af vanvirðingu fyrir verkefninu sem þeim var treyst fyrir þegar hlutir ríkisins í bankanum voru seldir í fyrra, að sögn forsætisráðherra. Innviðaráðherra segir augljóst að þeir þurfi að axla ábyrgð og að fullkomið vantraust ríki í garð þeirra. Innlent 27.6.2023 09:19
Fegrunaraðgerð Íslandsbanka Það er dapurlegt að lesa um hvernig stjórnendur og starfsmenn Íslandsbanka virðast hafa aftengt sig þeirri staðreynd að þegar útboðið fór fram var bankinn í meirihlutaeigu ríkisins. Eignin sem verið var að selja var ríkiseign. Skýrsla fjármálaeftirlitsins er eins og lýsing á einhverjum subbubisness fyrir hrun og ekki skrítið að fólk sé slegið. Skoðun 27.6.2023 08:00
Stjórn Íslandsbanka boðar til hluthafafundar Stjórn Íslandsbanka ætlar að bjóða til hluthafafundar á næstu dögum. Á fundinum mun stjórn og stjórnendur bankans fjalla um framkvæmd bankans á útboði Bankasýslu ríkisins sem fram fór þann 22. mars árið 2022. Viðskipti innlent 26.6.2023 21:50
Sáttin öllu verri en Bankasýsla ríkisins átti von á Stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins segir sátt fjármálaeftirlits Seðlabankans og Íslandsbanka um sölu bankans á 22,5 prósenta hlut ríkisins í bankanum öllu verri heldur en þau hafi átt von á. Innlent 26.6.2023 18:59
„Hæfiskilyrði fyrir aðila í þessum stöðum eru ströng“ Varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands telur að fjármálaeftirlitið hafi sinnt hlutverki sínu vel í rannsókninni á seinna útboðinu á Íslandsbanka. Hún segir hæfiskilyrði stjórnenda Íslandsbanka vera ströng, það sé þó bankans að meta hverju sinni hvort þau séu uppfyllt. Viðskipti innlent 26.6.2023 18:04
Bankinn hafi brugðist trausti Fjármálaráðherra segir ljóst af sátt Íslandsbanka og Seðlabanka Íslands að Íslandsbanki hafi brugðist því trausti sem honum var sýnt þegar ákveðið var að hann myndi sjálfur sjá um útboð á hlut ríkisins í bankanum. Viðskipti innlent 26.6.2023 17:14
Efni skýrslunnar minni á lýsingar á „subbuskap fyrir hrun“ Tæplega hundrað blaðsíðna skýrsla um sáttina sem Fjármálaeftirlit Seðlabankans gerði við Íslandsbanka var birt í morgun en efni hennar hefur skotið mörgum skelk í bringu. Innlent 26.6.2023 16:42
Bankasýsla ríkisins lýsir yfir miklum vonbrigðum Í fréttatilkynningu segir að Bankasýsla ríkisins lýsi yfir miklum vonbrigðum með vinnubrögð Íslandsbanka við útboð á 22,5 prósent eignarhlut ríkisins í bankanum, í ljósi þess sem fram kemur í nýgerðri sátt bankans við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands. Boðað verður til hluthafafundar vegna málsins. Viðskipti innlent 26.6.2023 16:24
„Ábyrgðaraðilinn á sölunni hefur hvergi verið rannsakaður“ Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og nefndarmaður í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, segir skýrslu um sátt Íslandsbanka, sýna að bráðnauðsynlegt sé að sérstök rannsóknarnefnd Alþingis verði skipuð. Innlent 26.6.2023 15:21
Fullyrtu um tuttugu milljóna lágmark sem enginn fótur var fyrir Starfsmenn Íslandsbanka beindu útboði á hlut ríkisins að 99 almennum fjárfestum, þrátt fyrir að um útboð fyrir fagfjárfesta hafi verið að ræða. Í níu tilfellum, þar sem hljóðrituð símtöl liggja fyrir, kemur fram í símtölum starfsmanna bankans við almenna fjárfesta að lágmarksfjárhæð í útboðinu væri 20 milljónir króna. Þær fullyrðingar voru rangar. Viðskipti innlent 26.6.2023 15:03
Efnahags- og viðskiptanefnd fundar um Íslandsbanka Stefnt er að því að boða til fundar efnahags- og viðskiptanefndar klukkan 11 á miðvikudag. Umræðuefnið verður samkomulag Seðlabankans og Íslandsbanka um 1,2 milljarða króna sekt hins síðarnefnda. Innlent 26.6.2023 14:33
„Stjórnin á bankanum er óásættanleg að mínu mati“ Stjórnendur Íslandsbanka brugðust trausti þjóðarinnar algjörlega við sölu bankans á hlutum í eigu ríkisins og stjórn bankans er óáættanleg að mati viðskiptaráðherra. Alvarleg og kerfislæg brot Íslandsbanka við sölu bankans eru dregin fram í skýrslu Fjármálaeftirlits Seðlabankans um sátt sem gerð var á dögunum vegna sölunnar en birt var í morgun. Innlent 26.6.2023 12:22
Samþykktu allar beiðnir starfsmanna um að taka þátt í útboðinu Regluvarsla Íslandsbanka samþykkti allar beiðnir starfsmanna um þátttöku í útboði á hlut ríkisins í bankanum í fyrra þrátt fyrir að aðeins fjórir starfsmenn og einn tengdur aðili væri flokkaður sem fagfjárfestar þegar útboðið hófst. Fjármálaeftirlitið telur þátttöku starfsmanna hafa skapað fjölmarga hagsmunaárekstra. Viðskipti innlent 26.6.2023 11:45
Reglur um hljóðupptökur viðvarandi vandamál hjá Íslandsbanka Í sátt um greiðslu sektar Íslandsbanka vegna sölunnar á hlut ríkisins í bankanum kemur fram að bankinn hafi brotið ákvæði laga um markaði fyrir fjármálagerninga, með því að skrá ekki og varðveita símtalsupptökur vegna 162 símtala sem starfsmenn hans áttu í tengslum við útboðið. Viðskipti innlent 26.6.2023 11:39
Háttsemi ISB haft „skaðleg áhrif á traust og trúverðugleika“ fjármálamarkaða Stjórn og bankastjóri Íslandsbanka sýndi af sér „athafnaleysi vegna viðvarandi annmarka“ á skráningu og varðveislu símtala þegar hann seldi hluti ríkisins í sjálfum sér auk þess sem stjórnarhættir bankans bera „vott um skort á áhættuvitund,“ að mati fjármálaeftirlits Seðlabankans. Eftirlitið telur brot Íslandsbanka benda til „veikleika í innra eftirlitskerfi“ hans og að háttsemin sé til þess fallin að hafa „skaðleg áhrif á traust og trúverðugleika fjármálamarkaða.“ Innherji 26.6.2023 09:59
Segir það ekki Íslandsbanka að birta sáttina Birting sáttar sem Íslandsbanki gerði við Fjármálaeftirlitið strandar ekki á undirskrift stjórnenda bankans samkvæmt svörum frá samskiptastjóra. Skrifað var undir sáttina í gær og verður hún væntanlega gerð opinber á morgun. Þá skýrist meðal annars hvort kaup eiginmanns samskiptastjóra í bankanum hafi verið lögleg. Innlent 25.6.2023 14:47
Skorar á stjórnendur Íslandsbanka að birta sáttina í dag Menningar- og viðskiptaráðherra skorar á stjórnendur Íslandsbanka að birta sátt sem bankinn gerði við Fjármálaeftirlitið, ekki síðar en í dag. Hún segir framkomu stjórnenda bankans í garð almennings einkennast af virðingarleysi. Innlent 25.6.2023 12:03
Lærlingurinn í Íslandsbanka Fátt er göfugra en þegar fólk viðurkennir mistök sín og iðrast af hjartans einlægni. Nú hefur bankastjóri Íslandsbanka gengið þessa píslargöngu síðustu daga og viðurkennt að hafa gert mistök við sölu á eignarhlut ríkisins í bankanum og jafnvel brotið lög í því ferli. Skoðun 24.6.2023 19:01
„Menn geta ekki lagt á flótta þegar þeir þurfa að svara“ Formaður stjórnskipunar og eftirlitsnefndar segir svör bankastjóra Íslandsbanka varðandi sáttagreiðslu bankans við fjármálaeftirlitið í meira lagi loðin. Hún kallar eftir útskýringum fjármálaráðherra sem beri ábyrgð á málinu og segir ekki eðlilegt að menn leggi á flótta þegar svara er krafist. Bjarni Benediktsson hyggst ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Innlent 24.6.2023 11:42
„Það er enn fullt af spurningum ósvarað“ Kristrún Frostadóttir segir ljóst að ekki var vel staðið að sölu Íslandsbanka. Með niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins sé komin önnur rannsóknin sem sýni að pottur var verulega brotinn í ferlinu. Ríkisstjórnin þurfi að taka forystu í málinu og setja á fót rannsóknarnefnd. Innlent 23.6.2023 22:41
Bankasýslan hafði enga aðkomu að sátt Íslandsbanka og Fjármálaeftirlitsins Bankasýsla ríkisins segist ekki hafa haft neina aðkomu að sátt Íslandsbanka og Fjármálaeftirlitsins í tengslum við bankasöluna á síðasta ári. Bankasýslan segist ekki geta brugðist við fréttunum þar sem sáttin hefur ekki verið birt. Innlent 23.6.2023 17:40
Seðlabankinn hafi viljað gefa „ákveðin skilaboð“ út á markaðinn Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, telur að sektarfjárhæðin, 1.160 milljónir króna, sem bankinn hefur fallist á að greiða vegna brota á lögum og innri reglum félagsins við sölu á hlutum í sjálfum sér, endurspegli það að fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hafi viljað gefa „ákveðin skilaboð“ út á markaðinn. Innherji 23.6.2023 15:39
Enn þarf að bíða eftir að vaxtahækkanir hemji útlánavöxt bankanna Áfram er mikill þróttur í útlánum banka þrátt fyrir brattar stýrivaxtahækkanir að undanförnu. Hagfræðingur bendir á að tíminn frá því að ákveðið sé að fara af stað í fjárfestingarverkefni og þar til banki láni til þeirra geti verið nokkuð langur. Þess vegna þurfi að bíða aðeins lengur til að sjá hver áhrifin verði af nýlegum vaxtahækkunum. Innherji 23.6.2023 14:01
Bankastjóri íhugar ekki að segja af sér Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, íhugar ekki að segja af sér þrátt fyrir að bankinn hafi gerst sekur um alvarlegt lögbrot og verið gert að greiða 1,16 milljarða króna sekt. Þingmaður segir útskýringar stjórnar bankans tilraun til að afvegaleiða umræðuna. Innlent 23.6.2023 12:27
Sektin „töluvert hærri“ en markaðurinn gerði ráð fyrir Sú sektarfjárhæð sem Íslandsbanki hefur fallist á að greiða upp á 1.160 milljónir vegna brota á lögum og innri reglum félagsins við sölu á hlutum í sjálfum sér er fordæmalaus ef litið er til þeirra sekta sem hafa verið lagðar á eftirlitsskylda aðila þegar málum hefur lokið með sátt við fjármálaeftirlitið. Innherji 23.6.2023 12:19
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent