
Barnalán

Garðar Gunnlaugs og Fanney nefna soninn
Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Garðar Gunnlaugsson og Fanney Sandra Albertsdóttir, fegurðardrottning, flugfreyja og förðunarfræðingur, nefndu son sinn við hátíðlega athöfn um helgina. Drengurinn fékk nafnið Adrían Nóel Bergmann Garðarsson.

Allt er þegar þrennt er hjá Fríðu Rún og Alfreð
Alfreð Finnbogason knattspyrnumaður og Fríða Rún Einarsdóttir eiga von á sínu þriðja barni. Fríða Rún greinir frá þessu á samfélagsmiðlum sínum.

Ari Freyr og Vigdís Perla vænta sumarglaðnings
Leikarinn Ari Freyr Ísfeld Óskarsson leikari og Vigdís Perla Maack, sýningarstjóri í Þjóðleikhúsinu og verkefnastjóri, eiga vona á sínu öðru barni á sumarmánuðum.

Egill og Íris Freyja eiga von á barni
Íris Freyja Salguero fyrirsæta og Egill Halldórsson, eigandi Górilla vöruhúss og Wake up Reykjavík, eiga von á sínu fyrsta barni. Parið greindi frá gleðitíðindunum í sameiginlegri færslu á Instagram.

Theodóra Mjöll fann ástina og er ólétt
Theodóra Mjöll Skúladóttir, hárgreiðslukona og vöruhönnuður, hefur fundið ástina í örmum Þórs Steinars Ólafs knattspyrnuþjálfara. Parið á auk þess von á sínu fyrsta barni saman á sumarmánuðum.

Frægir fjölguðu sér árið 2023
Það er ávallt mikið gleðiefni þegar börn koma í heiminn. Hér að neðan má sjá yfirferð yfir nokkur kríli þjóðþekktra landsmanna sem komu í heiminn á árinu 2023 og Vísir greindi frá.

Elísabet og Áki tilkynna kynið: „Ég er svo stressuð“
Hjónin og eigendur heilsustaðarins Maikai, Elísabet Metta Ásgeirsdóttir og Ágúst Freyr Hallsson, betur þekktur sem Áki, eiga von á stúlku í byrjun næsta árs.

Berglind Björg og Kristján eignuðust dreng
Landsliðsframherjinn Berglind Björg Þorvaldsdóttir, leikmaður París Saint-Germain í Frakklandi, og kærasti hennar, Kristján Sigurðsson slökkviliðsmaður eignuðust frumburð sinn 8. desember síðastliðinn.

Dóttir Kolbrúnar og Ísaks Óla komin með nafn
Fimleikadrottningin Kolbrún Þöll Þorradóttir og Ísak Óli Helgason, gáfu dóttur sinni nafn við hátíðlega athöfn um helgina. Stúlkan fékk nafnið Aþena Eik.

Öllu til tjaldað í steypiboði Birgittu Lífar
Birgitta Líf Björnsdóttir og Enok Jónsson héldu í gær steypiboð eða það sem kallað er á ensku „baby shower“ og var öllu tjaldað til. Parið greindi frá því að þau ættu von á barni í ágúst.

Siggi Þór og Sonja orðin foreldrar
Leikarinn Sigurður Þór Óskarsson, eða Siggi Þór eins og hann er kallaður, og unnusta hans Sonja Jónsdóttir vefhönnuður eignuðust dreng 14. nóvember síðastliðinn.

Elliði Snær og Sóldís Eva eignuðust stúlku
Handbolta-og landsliðsmaðurinn Elliði Snær Viðarsson og Sóldís Eva Gylfadóttir styrktarþjálfari eignuðust frumburð sinn 5. desember síðastliðinn. Parið deildi gleðifregnunum í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum.

Ari Bragi og Dóróthea eiga von á dreng
Tónlistarmaðurinn Ari Bragi Kárason og unnusta hans Dóróthea Jóhannesdóttir eiga von á sínu öðru barni í apríl næstkomandi. Parið tilkynnti á Instgram í gær að von sé á dreng.

Getnaður hjá vinum hleypur á tugþúsundum
Tíð veisluhöld til að fagna komu barns í heiminn stinga í stúf við gamla hjátrú um barnsburð. Veisluhöldum, til að fagnafæðingu barns, hefur farið fjölgandi.

Ár mikilla tímamóta hjá Berglindi og Daníel
Berglind Ósk Guðmundsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi og Daníel Matthíasson verkefnastjóri giftu sig á föstudaginn á Akureyri. Þau greina frá tíðindunum á samfélagsmiðlum.

Birnir og Vaka gáfu dótturinni nafn
Tónlistarmaðurinn Birnir Sigurðarson og kærasta hans Vaka Njálsdóttir skírðu frumburðinn við hátíðlega athöfn í heimahúsi á dögunum. Stúlkunni var gefið nafnið Gróa.

„Þrjú verða fjögur“
Atvinnu- og landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Jón Daði Böðvarsson og unnusta hans, María Ósk Skúladóttir, viðskiptafræðingur eiga von á sínu öðru barni í apríl næstkomandi. Parið deilir gleðitíðindunum í sameiginlegri færslu á Instagram.

Kjartan Henry og Helga eignuðust stúlku
Kjartan Henry Finnbogason, knattspyrnumaður og sérfræðingur hjá Stöð 2 Sport, og Helga Björnsdóttir lögfræðingur eignuðust sitt þriðja barn 29. nóvember síðastliðinn. Gleðitíðindunum deilir Helga á Instagram með fallegri mynd af hvítvoðungnum.

„Búin að bíða spennt eftir þessum degi“
Birgitta Líf Björnsdóttir, athafnakona og áhrifavaldur, og Enok Jónsson sjómaður, fóru í þrívíddarsónar í gær þar sem þau fengu að sjá skýrari mynd af ófæddum syni þeirra.

Benni og Eva eiga von á sjötta barninu
Benedikt Brynleifsson trommuleikari og Eva Brink fjármálastjóri eiga von á sínu fyrsta barni saman. Parið deildi gleðifregnunum í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum.

Birnir og Vaka eignuðust stúlku
Tónlistarmaðurinn Birnir Sigurðarson og kærasta hans Vaka Njálsdóttir eignuðust frumburð sinn 2. nóvember síðastliðinn. Vaka deildi gleðitíðindunum í færslu á Instagram í gær.

Eva Laufey og Haddi eiga von á þriðja barninu
Hjónin Eva Laufey Kjaran, markaðs-og upplifunarstjóri Hagkaups, og Haraldur Haraldsson eiga von á þriðja barni sínu. Fyrir eiga þau tvær dætur. Eva Laufey deildi gleðifregnunum í færslu á Instagram.

Garðar Gunnlaugs og Fanney eignuðust dreng
Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Garðar Gunnlaugsson og Fanney Sandra Albertsdóttir, fegurðardrottning, flugfreyja og förðunarfræðingur, eignuðust dreng í vikunni. Parið birti deildi gleðifregnunum sameiginlegri færslu á Instagram í gær.

„Dagurinn sem heimurinn okkar og hjörtu stækkuðu þúsundfalt“
Sindri Snær Jensson athafnamaður og kærasta hans Alexía Mist Baldursdóttir eignuðust frumburð sinn 14. nóvember síðastliðinn.

Barnalán hjá Arnari Gunnlaugs og Maríu
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, og kærasta hans, María Builien Jónsdóttir, líffræðingur og tölvunarfræðingur, eiga von á barni í byrjun næsta árs. María tilkynnti óléttuna á samfélagsmiðlum og að þau ættu von á stúlku.

Ólafía Þórunn á von á sínu öðru barni
Fyrrverandi atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir á von á sínu öðru barni með eiginmanni sínum, Thomasi Bojanowski.

Fjölskyldan í Kaupmannahöfn stækkar
Tónlistarmaðurinn Ari Bragi Kárason og unnusta hans Dóróthea Jóhannesdóttir eiga von á sínu öðru barni. Parið tilkynnti gleðifregnirnar í sameiginlegri færslu á Instagram.

„Byrjuðum saman sem börn og höfum síðan þá þroskast svo fallega saman“
Elísabet Gunnarsdóttir, áhrifavaldur og tískudrottning, og eiginmaður hennar Gunnar Steinn Jónsson handboltakappi, fögnuðu tuttugu ára sambandsafmæli í Kaupmannahöfn um helgina.

Arna Ýr og Vignir eiga von á stúlku
Arna Ýr Jónsdóttir fegurðardrottning og hjúkrunarfræðinemi á von á sínu þriðja barni með eiginmanni sínum, Vigni Þór Bollasyni, kírópraktor. Parið tilkynnti á samfélagsmiðlum í gær að von sé á stúlku.

Sonur Birgis Steins og Rakelar kominn með nafn
Sonur Birgis Steins Stefánssonar, tónlistarmanns og flugþjóns, og unnustu hans Rakelar Sigurðardóttur var skírður um helgina. Drengurinn fékk nafnið Emanúel Dagur.