
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna (COP)

Sjáum við hænuskref eða splitstökk á COP26?
Nú fyrir tveimur dögum var COP26 loftlagsráðstefnan í Glasgow formlega sett, ári á eftir áætlun eins og svo margir stórviðburðir sem fresta þurfti vegna COVID-19 samkomutakmarkana. Á ráðstefnunni munu fulltrúar þjóða víða um heim ræða stöðuna og næstu skref í baráttunni við loftlagsvána.

Fjögur hundruð einkaflugvélar til Skotlands vegna loftslagsráðstefnu
Fjögur hundruð einkaflugvélar flugu til Skotlands til að ferja þangað um þúsund gesti loftslagsráðstefnunnar COP26, sem fer fram í Glasgow. Loftslagsaðgerðasinnar hafa gagnrýnt gestina harðlega vegna loftslagsáhrifanna sem ferðamátinn hefur.

Katrín á COP26: Tíminn til að skapa framtíðina er núna
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vitnaði í rithöfundinn Andra Snæ Magnason er hún ávarpaði gesti á COP26-loftslagsráðstefnunni í Skotlandi í hádeginu í dag. Sagði hún tímann til að skapa framtíðina vera núna, auk þess sem hún lagði áherslu á að horft væri til kynjajafnréttis við ákvarðanatöku í loftslagsmálum.

Óljóst hvort loftslagsráðstefnan skili nægilegum árangri
Umhverfisráðherra segir óljóst hvort COP26 ráðstefnan muni skila nægilegum árangri í loftslagsmálum þrátt fyrir að einhver framfaraskref verði stigin. Forsætisráðherra kynnir stefnu íslenskra stjórnvalda í dag.

Bein útsending: Katrín ávarpar gesti á COP26 í Glasgow
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpar gesti á COP26-loftslagsráðstefnunni í Skotlandi í hádeginu í dag.

Ætla að setja 580 milljarða á níu árum í grænar fjárfestingar
Þrettán íslenskir lífeyrissjóðir hafa tilkynnt að þeir hyggist setja 580 milljarða í grænar fjárfestingar á næstu níu árum.

Biðjast afsökunar á að ekki sé fullt hjólastólaaðgengi á COP26
Breska ríkisstjórnin hefur beðið ísraelskan ráðherra afsökunar á því að hann hafi ekki getað mætt á COP26 ráðstefnuna í gær þar sem ekki var aðgengi fyrir fólk í hjólastól.

Brasilía á meðal þeirra ríkja sem heita því að stöðva skógareyðingu
Rúmlega hundrað þjóðarleiðtogar ætla að skrifa undir loforð um stöðvun skógareyðingar fyrir árið 2030 og uppgræðslu skóga. Þetta er fyrsti stóri samningurinn sem gerður er á COP26 loftslagsráðstefnunni sem nú fer fram í Glasgow.

Modi tilkynnti um kolefnishlutleysi Indlands árið 2070
Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, tilkynnti nokkuð óvænt um nýtt markmið þjóðar sinnar um kolefnishlutleysi fyrir árið 2070 á COP26-loftslagsráðstefnunni í Glasgow í dag. Eitt helsta markmið fundarins er að setja stefnuna á kolefnishlutleysi árið 2050 en ekki var búist við að Indverjar ætluðu að taka undir það.

Sér engan sjálfstæðan metnað frá íslenskum stjórnvöldum
Íslensk stjórnvöld hafa ekki sýnt neinn sjálfstæðan metnað um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, að mati formanns Ungra umhverfissinna sem er staddur á COP26-loftslagsráðstefnunni sem hófst í Skotlandi í dag.

Líkti heiminum við Bond bundinn við dómsdagstæki
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, varaði aðra þjóðarleiðtoga á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP26, við því að aðgerðarleysi myndi kosta þá. Hann byrjaði á því að segja heiminn fastan við „dómsdagstæki“ úr kvikmynd um James Bond og það þyrfti að finna leið til að aftengja það.

Framtíðin ræðst af aðgerðum
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Glasgow. COP-26, hófst í gær og stendur yfir til 11. nóvember. Því má búast við að orð eins og hamfarahlýnun, útblástur, kolefnisspor og orkuskipti verði ofarlega á blaði næstu daga og vikur.

Munu kolefnisjafna flugið tvöfalt og sæta ströngum reglum um sóttvarnir
Sendinefnd Íslands á loftslagsráðstefnunni í Glasgow mun telja í kringum 60 manns en þar af verða 26 á vegum íslenskra stjórnvalda. Gripið verður til víðtækra sóttvarnaráðstafana vegna ráðstefnunnar og þá munu þau ráðuneyti sem senda fulltrúa kolefnisjafna flugið tvöfalt, í samræmi við loftslagsstefnu stjórnarráðsins.

COP26 sett í Glasgow: „Okkar síðasta og besta von“
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP26, var sett í morgun. Setningin markar upphaf tveggja vikna fundarhalda og viðræðna þar sem fulltrúar næstum 200 ríkja freista þess að ná saman um aðgerðir til að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og stemma stigum við áhrifum af hnattrænni hlýnun.

G20 stefna að kolefnishlutleysi „um miðja þessa öld eða fyrr“
Leiðtogar G20-ríkjanna, helstu iðnvelda heims, náðu í morgun saman um að skuldbinda sig til að ná kolefnishlutleysi „um miðja þessa öld eða fyrr“. Þessi fyrirheit eru talin munu gefa tóninn fyrir Loftslagsrástefnu Sameinuðu þjóðanna, COP26, sem var sett í Glasgow í morgun.

Hvað er COP26?
Ríki heims þurfa að bretta upp ermarnar og auka metnað í aðgerðum sínum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda til að hægt verði að komast hjá verstu afleiðingum loftslagsbreytinga. Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna sem hefst um helgina getur varpað ljósi á hversu alvara þeim er með fögrum fyrirheitum um kolefnishlutleysi.

Við hverju má búast á COP26?
COP26 er gríðarlega mikilvæg stund fyrir Bretland og heiminn allan. Það eru margir sem trúa því að þetta sé síðasta raunverulega tækifærið okkar til að ná stjórn á loftslagsbreytingum og stöðva þau hrikalegu áhrif sem þær hafa nú þegar á plánetuna okkar í formi alvarlegra flóða, storma og skógarelda.

Ráðherra lagði áherslu á græna orku á ráðherrafundi um loftslagsmál
Ráðherra sagði frá áherslum og aðgerðum Íslands varðandi loftslagsmál og staðfesti að Ísland styður metnaðarfullar loftslagsaðgerðir.

Fimmtíu manna sendinefnd á leið á loftslagsráðstefnuna í Glasgow
Umhverfissamtök segja íslensk stjórnvöld þurfa að gera mun betur í loftslagsmálum og krefjast þess að atvinnugreinum verði sett skýr losunarmörk. Þetta kemur fram í afdráttarlausri áskorun þeirra í aðdraganda loftslagsráðstefnunnar COP26 í Glasgow.

Risaeðla varar þjóðir heims við útrýmingu
Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) gaf út í dag myndband í tengslum við herferð í tilefni af G20 leiðtogafundinum og loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.

Nýjar losunarskuldbindingar duga ekki til að ná markmiðum
Nýjar og endurskoðaðar skuldbindingar nægja ekki til þess að uppfylla ákvæði Paríssamningsins um loftslagsbreytingar. Þetta kemur fram kemur í nýrri skýrslu Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna, skýrslu sem Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir sláandi vakningu.

Meina þingmenn það sem þeir sögðu?
Ríki heims stefna á að vinna langtum meira jarðefnaeldsneyti en óhætt er, ætli þau að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins. Miðað við þau áform sem eru á teikniborðinu stefnir heimurinn í að framleiða rúmlega tvöfalt meira jarðefnaeldsneyti árið 2030 en þarf til að halda hlýnun Jarðar innan við 1,5°C

Sorphirðumenn Glasgow í verkfalli á meðan risafundurinn er
Sorphirðumenn Glasgow-borgar í Skotlandi hafa samþykkt að fara í vikuverkfall, á sama tíma og risaloftlagsráðstefnan COP26 verður haldin í borginni.

„Nú er síðasti séns, kæru vinir“
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Hringborðs norðurslóða Arctic Circle, segir að skilaboðin frá Hringborðinu fyrir mikilvæga loftlagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í næsta mánuði séu skýr, nú sé síðasti séns til þess að grípa til alvarlegra aðgerða vegna loftslagsmála.

Óttast útrýmingu eftir svarta loftslagsskýrslu
Fulltrúar fimmtíu þróunarríkja sem eru í einna mestri hættu vegna loftslagsbreytinga af völdum manna óttast að ríkin séu á barmi útrýmingar verði ekki gripið til aðgerða hratt. Í nýrri loftslagsskýrslu er gert ráð fyrir að markmið um takmörkun hlýnunar sem var sett til að vernda viðkvæm eyríki bresti líklega strax á næsta áratug.

Lýsir loftlagsskýrslu sem rauðri viðvörun fyrir mannkynið
Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að ný skýrslu loftslagsnefndar þeirra sé „rauð viðvörun“ fyrir mannkynið. Í skýrslunni kemur fram að metnaðarfyllra markmið Parísarsamkomulagsins gæti verið fyrir bí snemma á næsta áratug.

„Heilu vistkerfin að hverfa fyrir framan nefið á okkur“
Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir fjölbreytni lífríkisins að hruni komið. Ein milljón tegunda sé í útrýmingarhættu og heilu vistkerfin að hverfa.

Loftslagsráðstefnu SÞ frestað vegna kórónuveirunnar
Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna COP26 sem átti að hefjast í Glasgow 9. Nóvember hefur verið frestað til ársins 2021 vegna kórónuveirunnar.