Fótbolti á Norðurlöndum

Átta töp í röð hjá Kristianstad
Íslendingaliðið Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu tapaði áttunda leiknum sínum í röð í dag þegar það lá 2-1 fyrir Sunnana.

Danska sambandið leyfir Morten Olsen ekki að taka við Ajax
Hollenska liðið Ajax er að leita sér að nýjum þjálfara eftir að Marco Van Basten sagði starfi sínu lausu hjá liðinu fyrir skömmu. Þeir geta hinsvegar gleymt því að þeir geti nælt í Morten Olsen, landsliðsþjálfara Dana.

Þóra hélt marki Kolbotn hreinu þriðja leikinn í röð
Landsliðsmarkvörðurinn Þóra Björg Helgadóttir er að standa sig vel með Kolbotn í norsku úrvalsdeildinni en hún og félagar hennar eru í öðru sæti eftir 2-0 sigur á Sandviken í gær.

Sænski boltinn: IFK Göteborg á toppinn
IFK Göteborg komst á toppinn í sænska boltanum í dag er liðið lagði GAIS að velli, 0-1. Hjálmar Jónsson og Ragnar Sigurðsson voru báðir í byrjunarliði IFK.

Norski boltinn: Garðar skoraði tvö mörk
Garðar Jóhannsson var sjóðheitur í liði Fredrikstad í dag. Garðar skoraði tvö mörk gegn Brann en það dugði ekki til þar sem Brann skoraði fjögur mörk.

Hannes lagði upp mark í sigri Sundsvall
Hannes Þ. Sigurðsson var í byrjunarliði GIF Sundsvall sem vann 2-0 sigur á Vasalund í sænsku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Það hefur ekkert gengið hjá Djurgården án Guðbjargar
Sænska úrvalsdeildarliðið Djurgården byrjaði tímabilið frábærlega en hefur síðan fallið niður töfluna og situr nú í 8. sætið. Liðið er búið að tapa fjórum leikjum í röð síðan að íslenski landsliðsmarkvörðurinn, Guðbjörg Gunnarsdóttir, meiddist.

Stefán missir af lokaspretti tímabilsins
Stefán Gíslason hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann fyrir að traðka á andstæðingi í leik með Bröndby um helgina.

Sandfjord náði jafntefli gegn Rosenborg
Nýliðar Sandefjord gerðu í kvöld 2-2 jafntefli við topplið Rosenborg í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Enn tapar Kristianstad
Kristianstad, lið Elísabetar Gunnarsdóttur í sænsku úrvalsdeildinni, tapaði í dag sjöunda leik sínum í röð þegar það lá 3-2 fyrir Örebro.

Norski boltinn: Pálmi skoraði í sigri Stabæk
Stabæk vann langþráðan sigur í norska boltanum í dag og lyfti sér með sigrinum upp af fallsvæði deildarinnar. Þá lagði liðið Sandefjord, 4-1.

Sölvi Geir bjargaði stigi fyrir SönderjyskE
Sölvi Geir Ottesen var hetja SönderjyskE í dag þegar hann skoraði jöfnunarmark liðsins gegn Odense á lokamínútu leiksins.

Stórsigur hjá Helga Val og félögum
Helgi Valur Daníelsson og félagar hans í sænska liðinu Elfsborg halda áfram að gera það gott í sænsku úrvalsdeildinni.

Bröndby komst aftur á toppinn með sigri á Randers
Stefán Gíslason og félagar hans í Bröndby er aftur kominn á toppinn í dönsku úrvalsdeildinni eftir 3-0 sigur á Randers á heimavelli í kvöld. Esbjerg tapaði á sama tíma á móti AGF.

Ragnar og Hannes skoruðu báðir í bikarnum
Ragnar Sigurðsson og Hannes Þ. Sigurðsson skoruðu báðir fyrir sín lið í sænska bikarnum í kvöld en þá fóru fram leikir í sextán liða úrslitum keppninnar.

Ármann Smári skoraði mark í stórsigri Brann
Ármann Smári Björnsson skoraði eitt af sex mörkum Brann sem vann 6-0 sigur á 3. deildarliðinu Höyang í norska bikarnum í kvöld.

Dóra Stefánsdóttir og félagar aftur á toppinn
Dóra Stefánsdóttir og félagar í LdB FC Malmö unnu 4-0 stórsigur á Guðrúnu Sóley Gunnarsdóttur og félögum í Djurgården í sænsku kvennadeildinni í fótbolta í kvöld.

Sjötta tapið í röð hjá liði Elísabetar
Það gengur ekkert hjá Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni en Elísabet Gunnarsdóttir tók við þjálfun liðsins fyrir tímabilið. Kristianstad tapaði sjötta leiknum í röð í kvöld.

Edda skoraði sigurmark Örebro
Edda Garðarsdóttir var hetja Örebro í sænsku úrvalsdeildinni í dag þegar hún skoraði sigurmark liðsins í 1-0 sigri á Pitea. Markið kom úr vítaspyrnu undir lok leiksins. Ólína Viðarsdóttir var einnig í byrjunarliði sænska liðsins í leiknum. Örebro er í þriðja sæti deildarinnar.

Árni Gautur varði frá Ólafi Erni í tvígang
Kristján Örn Sigurðsson lék sinn 100. leik með Brann í dag er liðið tapaði fyrir Odd Grenland, 3-1, á útivelli í norsku úrvalsdeildinni.

Mikilvægur sigur hjá Viborg
Viborg vann mikilvægan 1-0 sigur á Lyngby í dönsku B-deildinni í dag. Sigurmarkið kom í uppbótartíma.

Edda fær ekki hornspyrnumarkið skráð á sig
Markið sem Edda Garðarsdóttir „skoraði“ fyrir KIF Örebro DFF beint úr hornspyrnu á móti Hammarby IF DFF á dögunum verður skráð sem sjálfsmark.

Ólafur Ingi af stað á nýjan leik
Ólafur Ingi Skúlason byrjar að spila knattspyrnu í næstu viku eftir sjö mánaða hlé vegna meiðsla.

Ragnar enn á skotskónum
Varnarmaðurinn Ragnar Sigurðsson heldur áfram að fara á kostum í sænska boltanum. Ávallt traustur í vörninni og hann er þess utan farinn að skora grimmt fyrir félag sitt IFK Göteborg.

Norski boltinn: Lyn náði jafntefli gegn Rosenborg
Íslendingaliðið Lyn náði góðu jafntefli, 1-1, gegn toppliði Rosenborg í kvöld. Rosenborg enn á toppnum þrátt fyrir jafnteflið einum tveim stigum á undan Molde.

SönderjyskE úr fallsæti
SönderjyskE vann um helgina mikilvægan 2-0 sigur á Horsens í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta og lyfti sér þar með úr fallsæti.

Frábær markvarsla hjá Þóru tryggði Kolbotn öll stigin
Þóra Björg Helgadóttir, markvörður íslenska kvennalandsliðsins, tryggði norska liðinu Kolbotn þrjú stig út úr leik sínum á móti Team Strømmen í norsku úrvalsdeildinni í dag.

Lilleström enn án sigurs
Brann vann Lilleström, 3-1, í norsku úrvalsdeildinni í kvöld en síðarnefnda liðið er enn án sigurs eftir fyrstu sjö leiki sína í deildinni.

Jafntefli hjá GAIS
Fjórir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdseildinni í knattspyrnu í kvöld. Íslendingaliðið GAIS gerði 2-2 jafntefli við Hammarby á heimavelli sínum.

Bröndby úr leik í bikarnum
Bröndby er úr leik í dönsku bikarkeppninni eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli við Danmerkurmeistara Álaborgar í síðari viðureign liðanna í undanúrslitum keppninnar.