Fótbolti á Norðurlöndum

Liðsfélagi Haraldar hjá Sarpsborg barinn í spað
Alvaro Baigorri, liðsfélagi Haraldar Björnssonar hjá norska félaginu Sarpsborg 08, varð fyrir fólskulegri árás í miðbæ Sarpsborg um helgina. Baigorri er allur blár og marinn eftir árásina en slapp þó ótrúlega vel. Sarpsborg Arbeiderblad sagði frá þessu.

Veigar Páll: Finnst ég eigi að spila hvern einasta leik hérna
Veigar Páll Gunnarsson hefur átt erfitt uppdráttar hjá liðinu sínu, Vålerenga, á tímabilinu. Hann hefur aðeins tekið þátt í sex af þrettán leikjum liðsins og er ekki enn kominn á blað.

Davíð Þór og félagar með tíu stiga forskot | Heiðar Geir skoraði
Davíð Þór Viðarsson spilaði allan leikinn með Öster þegar liðið vann 4-1 heimasigur á Falkenberg í sænsku b-deildinni í fótbolta í kvöld og náði í kjölfarið tíu stiga forskoti á toppi deildarinnar.

Björn Bergmann skoraði og klúðraði víti | Sex Íslendingalið áfram
Björn Bergmann Sigurðarson skoraði eitt marka Lilleström í 3-0 sigri á Ullensaker/Kisa í norsku bikarkeppninni í kvöld. Sex Íslendingalið komust áfram í 4. umferð en þrjú lið skipuð íslenskum leikmönnum duttu úr keppni.

Lilleström vill halda Birni Bergmann til 13. júlí - búnir að semja við Wolves
Lilleström tilkynnti það á heimasíðu sinni í kvöld að félagið væri búið að taka tilboði Úlfanna í íslenska landsliðsframherjann Björn Bergmann Sigurðarson. Björn Bergmann á þó enn eftir að ganga frá samningi við enska félagið.

Djurgården saknaði Guðbjargar - tapaði 11-0 á móti Linköping
Guðbjörg Gunnarsdóttir, fyrirliði og markvörður Djurgården, gat ekki spilað með liði sínu á móti Linköping í sænsku kvennadeildinni í fótbolta í dag og varamarkvörður hennar, Tove Endblom, þurfti að sækja boltann átta sinnum í markið.

Edda með tvær stoðsendingar en Þóra og Sara unnu
Þóra Björg Helgadóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir höfðu betur í Íslendingaslag á móti Eddu Garðarsdóttur í sænsku kvennadeildinni í fótbolta í dag en LdB FC Malmö vann þá 4-3 útisigur á KIF Örebro.

Guðjón skoraði í þriðja leiknum í röð - kominn með sjö mörk
Guðjón Baldvinsson skoraði annað marka Halmstad í 3-1 heimasigri á Varbergs BoIS FC í sænsku b-deildinni í dag og er þar með búinn að skora sjö mörk í fyrstu tíu leikjum sínum á tímabilinu.

Kristín Ýr og Hólmfríður tryggðu Avaldsnes öll þrjú stigin
Kristín Ýr Bjarnadóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir voru báðar á skotskónum þegar Avaldsnes vann 3-2 útisigur á Åsane í norsku b-deildinni í dag. Avaldsnes hefur unnið 8 af 9 leikjum sínum og er með fimm stiga forskot á toppnum.

Þjálfari Indriða er hættur
Åge Hareide er hættur hjá norska úrvalsdeildarliðinu Viking en hann og félagið gáfu í dag frá sér sameiginlega fréttatilkynningu þar sem kemur fram að Hareide verði ekki áfram með liðið. Norska deildin er í fríi á meðan EM stendur en næsti leikur Viking er á móti Rosenborg í lok júní.

Bikarinn á loft hjá Arnóri og félögum
Arnór Smárason og félagar í Esbjerg lögðu Fredericia 1-0 á útivelli í lokaumferð b-deildar danska fótboltans í kvöld. Leikmenn Esbjerg gátu fagnað frábæru tímabili í leikslok og bikarinn fór á loft.

Kristianstad og Malmö áfram í bikarnum
Sjö leikir fóru fram í 16-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í sænska boltanum í gær. Íslendingaliðin Kristianstad og LdB Malmö komust áfram í átta liða úrslit keppninnar. Kif Örebro og Djurgården féllu hins vegar úr leik.

Besti grasvöllur í Noregi eyðilagður
Matthías Vilhjálmsson hefur farið á kostum það sem af er tímabili með Start í Noregi. Matthías, sem er í láni hjá norska liðinu frá FH, hefur skorað sjö mörk í tíu leikjum Start sem situr í öðru sæti deildarinnar þegar fjögurra vikna frí er farið í hönd.

Indriði og félagar steinlágu í síðasta leiknum fyrir EM-frí
Indriði Sigurðsson og félagar hans í Viking steinlágu 3-0 í Fredrikstad í kvöld á móti næstneðsta liðinu í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Indriði spilaði allan leikinn í vörninni.

Leikir í norska boltanum | Íslendingaslagur í Stabæk
Það fóru fram þrír leikir í tólftu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í dag. Nokkrir Íslendingar voru að vanda að spila með liðum sínum, en létu þó óvenju lítið fyrir sér fara í leikjum dagsins.

Matthías með mark í sigri Start
Matthías Vilhjálmsson, leikmaður Start í Noregi, var á skotskónum þegar liðið vann góðan 3-0 sigur á Bodö/Glimt í norsku fyrstu deildinni í dag.

Everton í viðræðum við Lilleström um kaup á Birni Bergmann
Enska dagblaðið Liverpool Echo greinir frá því á heimasíðu sinni að Everton sé í viðræðum við Lilleström um kaup á íslenska landsliðsmanninum Birni Bergmann Sigurðarsyni.

Guðjón skoraði í 2-0 sigri Halmstad
Guðjón Baldvinsson er áfram á skotskónum með sænska b-deildarliðinu Halmstad en hann skoraði fyrra mark liðsins í 2-0 heimasigri á Brommapojkarna í kvöld. Halmstad er í 2. sæti deildarinnar á eftir Davíð Þór Viðarssyni og félögum í Östers IF.

Kristján Örn fékk rautt en Hönefoss tókst samt að jafna
Nýliðar Hönefoss gerðu 1-1 jafntefli á móti Haugesund í norsku úrvalsdeildinni í kvöld. Hönefoss lék 22 síðustu mínútur leiksins manni færri eftir að Kristján Örn Sigurðarson fékk rauða spjaldið á 69. mínútu.

FCK missti af titlinum | Eyjólfur skoraði fyrir SönderjyskE
Nordsjælland varð í kvöld danskur meistari í knattspyrnu en Íslendingaliðið FCK varð að sætta sig við silfur að þessu sinni.

Veigar og félagar gerðu jafntefli gegn Rosenborg
Veigar Páll Gunnarsson lék allan leikinn fyrir Vålerenga í kvöld er það gerði markalaust jafntefli gegn Rosenborg.

Birkir skoraði í góðum sigri Brann
Bakvörðurinn Birkir Már Sævarsson skoraði seinna mark Brann í kvöld er liðið vann fínan 2-0 heimasigur á Fredrikstad í norsku úrvalsdeildinni.

Hjálmar meiddist í jafnteflisleik
Hjörtur Logi Valgarðsson leysti meiddan Hjálmar Jónsson af hólmi eftir aðeins átta mínútur í kvöld. Þá gerði lið þeirra, IFK Göteborg, 1-1, jafntefli við GAIS.

Björn Bergmann: Ekki að hugsa um að fara
Björn Bergmann Sigurðarson er einn eftirsóttasti sóknarmaður Norðurlandanna um þessar mundir ef marka má fréttir í Englandi og Noregi.

Íslendingar í eldlínunni í Svíþjóð | Gunnar og Guðjón á skotskónum
Guðjón Baldvinsson og Kristinn Steindórsson voru í eldlínunni í sænsku Superettan-deildinni þegar lið þeirra Halmstad rústaði Umeå 4-0 á útivelli.

Björn Bergmann með sjöunda markið í fjórum leikjum - tryggði LSK 1-0 sigur
Björn Bergmann Sigurðsson tryggði Lilleström 1-0 sigur á Sogndal í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld en markið skoraði hann á 90. mínútu leiksins. Þetta var fyrsti heimasigur Lilleström síðan í ágúst í fyrra og aðeins annar sigur liðsins í fyrstu 10 umferðum tímabilsins.

Kristín Ýr og Hólmfríður áfram á skotskónum með Avaldsnes
Kristín Ýr Bjarnadóttir skoraði tvö mörk og Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði eitt mark þegar Avaldsnes vann 7-2 stórsigur á Fortuna Ålesund í norsku b-deildinni í fótbolta í gær.

Hönefoss vann Vålerenga - tveir risar lagðir á stuttum tíma
Kristján Örn Sigurðsson og Arnór Sveinn Aðalsteinsson spiluðu allan tímann í vörn Hönefoss þegar liðið vann 1-0 sigur á Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Sölvi og Ragnar bikarmeistarar í Danmörku
Sölvi Geir Ottesen og Ragnar Sigurðsson urðu í dag bikarmeistarar í knattspyrnu í Danmörku með liði þeirra, FC Kaupmannahöfn.

Davíð Þór innsiglaði sigurinn og Öster er eitt á toppnum
Davíð Þór Viðarsson og félagar í Östers IF unnu góðan 4-1 sigur á Brommapojkarna í sænsku b-deildinni í dag og eru í framhaldinu komnir með þriggja forystu á toppi deildinnar.