Hlaup í Skaftá

Reiknað með stærra hlaupi en 2018
Almannavarnir vara fólk við að vera á ferli við Skaftá en gert er ráð fyrir að hlaupvatn úr Eystri- Skaftárkatli nái að vatnshæðarmæli við Sveinstind síðdegis í dag. Íshellan á katlinum hefur nú þegar sigið um 25 metra. Veðurstofan útilokar ekki að að hlaupið fari yfir þjóðveg 1.

Reikna með hlaupvatni við Sveinstind á allra næstu tímum
Starfsmenn Veðurstofunnar gera ráð fyrir að hlaupvatns úr Eystri Skaftárkatli verði vart við Sveinstind á allra næstu klukkustundum. Þegar það gerist mun taka um átta tíma fyrir hlaupvatnið að ná niður að þjóðveginum við Eldvatn.

Sennilegt að Skaftárhlaup nái að þjóðveginum á morgun
Óttast er að vatnshæðin í Skaftá rísi verulega þegar hlaup úr eystri Skaftárkatli ratar niður ána á morgun. Vera kann að loka þurfi þjóðveginum við Eldhraun og bændur eru uggandi yfir langtímaafleiðingum ef til hamfarahlaups kemur.

Engin lífshætta nema fólk lendi í sérstökum aðstæðum
Gera má ráð fyrir að það taki upp undir sólarhring fyrir vatnið sem nú hleypur úr Eystri Skaftárkatli að ná að jökuljaðrinum. Hlaupið hófst seint í gærkvöldi. Jarðeðlisfræðingur segir hlaupið eiga að ná hámarki á einum til tveimur sólarhringum. Hann segir enga beina lífshættu stafa af hlaupinu.

Bændum í Skaftárhreppi stendur hreint ekki á sama um hlaupið
Bóndi á Ytri-Ásum í Skaftárhreppi segist hafa áhyggjur af hlaupinu sem nú er hafið úr Eystri-Skaftárkatli. Hann segir að ef hlaupinu myndi svipa til þess sem varð árið 2015 yrði það allt annað en gæfulegt.

Hlaup hafið í Eystri-Skaftárkatli
Hlaup er hafið úr Eystri-Skaftárkatli, að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands. Hlaupið kemur í kjölfar hlaups úr vestari katlinum, sem nú er sagt í rénun. Ef fram heldur sem horfir er útlit fyrir að hlaupvatn nái þjóðveginum annað kvöld.

Flogið yfir sigkatlana í Skaftárjökli
Rennsli virðist fara hægt minnkandi í Skaftá við Sveinstind. Rennslið náði hámarki á miðnætti aðfaranótt 2. september og var þá um 520 rúmmetrar á sekúndu.

Rennslið fer minnkandi í Skaftá
Rennsli hefur farið hægt minnkandi í Skaftá við Sveinstind síðustu klukkustundir. Rennslið 412 rúmmetrar á sekúndu klukkan 14.30 í dag. Rennslið náði hámarki á miðnætti aðfaranótt 2. september og var þá um 520 rúmmetrar á sekúndu.

Hafa litlar áhyggjur af Skaftá á meðan stóri ketill hleypur ekki
Hlaupið í Skaftá virðist hafa náð hámarki og veldur bændum í Skaftártungu litlum áhyggjum. Öðru máli gegnir um ef eystri sigketillinn í Skaftárjökli hleypur í kjölfarið.

Fyrsta Skaftárhlaup sem nýja brúin yfir Eldvatn fær á sig
Hlaupið sem hófst í Skaftá í gær er það fyrsta sem dynur á nýju brúnni yfir Eldvatn hjá Ásum, eftir að hún var opnuð umferð fyrir tæpum tveimur árum. Hún var reist í stað gömlu brúarinnar sem eyðilagðist í Skaftárhlaupi haustið 2015. Hlaupið núna er þó vart talið verða nema um fjórðungur af stærð hamfarahlaupsins fyrir sex árum.

Hlaupið gæti hafa náð hámarki sínu
Ekki er ólíklegt að hlaupið í Skaftá hafi náð hámarki sínu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni en þar segir að rennslið hafi verið nokkuð stöðugt síðustu klukkustundir og mælist nú um 520 rúmmetrar á sekúndu.

Almannavarnir lýsa yfir óvissustigi vegna Skaftárhlaups
Vísbendingar eru um að hlaup sé hafið í Skaftá. Rafleiðni í Skaftá hefur hækkað jafnt og þétt síðustu tvo sólarhringa og vatnshæð árinnar við Sveinstind aukist síðustu klukkustundir. Einnig hafa borist tilkynningar um brennisteinslykt í nágrenni Skaftár og Hverfisfljóts.

Skaftárhlaup sem hófst fyrir þremur dögum er enn í gangi þó lítið sé
Náttúruvársérfræðingur sagði að í samtölum sínum við landverði í Hólaskjóli hafi komið fram að Skaftá sé óvenjulega gruggug en hvort mikill aur hafi borist niður liggur ekki fyrir. Skaftárhlaup sem hóst fyrir þremur dögum er enn í gangi. Ekki er hægt að segja til um hvort hlaupið hafi náð hámarki sínu, en það sé mjög lítið.

Rafleiðni hækkað jafnt og þétt í Skaftá
Rafleiðni í Skaftá hefur hækkað jafnt og þétt síðan fyrir helgi en lítið hlaup er nú í gangi í ánni.

Vatnsrennsli og rafleiðni aukist lítillega
Böðvar Sveinsson, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að ástæðan fyrir því að hlaupið sé jafn lítið og raun ber vitni í ár sé sú að mikið hlaup kom úr báðum Skaftárkötlum í ágúst í fyrra.

Hlaupið í Skaftá nú mjög lítið
Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir hlaupið í Skaftá nú mjög lítið. Það sem sýni skýr merki hlaups sé hækkuð rafleiðini. Vatnsyfirborð hefur lítið vaxið.

Hlaup hafið í Skaftá
Hlaupið kemur úr Vestari-Skaftárkatli.

Nýja brúin yfir Eldvatn hjá Ásum senn opnuð umferð
Smíði nýrrar glæsibrúar yfir Eldvatn í Skaftárhreppi er núna á lokametrunum og vonast Vegagerðin til að hún verði opnuð umferð í október.

Vegagerðin gerir ráð fyrir 15% stærri flóðum en áður vegna loftslagsbreytinga
Vegagerðin gerir ráð fyrir að flóð verði um 15% stærri en áður vegna loftslagsbreytinga. Forstöðumaður hönnunardeildar stofnunarinnar segir að forsendur hönnunar vega og brúa séu aðrar en áður í þessu ljósi. Þannig verði brýr um 15% lengri en áður.

Stefnt að því að vígja brúna yfir Eldvatn í sumarlok
Vegagerðin stefnir á það að vígja nýju brúna yfir Eldvatn í sumarlok en góður gangur er í brúarsmíðinni að því er segir á vef Vegagerðarinnar.

Óvissustigi aflétt vegna Skaftárhlaups
Hlaupið hófst föstudaginn þriðja ágúst og er það næststærsta sem mælst hefur úr Skaftárkötlum.

Skaftárhlaupi að mestu lokið
Rennsli í Skaftá aftur komið í eðlilegt horf eftur hlaup síðustu daga.

Míla afléttir óvissustigi á Suðurlandi
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mílu.

Meta þarf flóðahættu eftir hvert hlaup í framtíðinni
Óvissustig almannavarna endurmetið á morgun.

Hlaupið nú eitthvert stærsta jökulhlaup í Skaftá frá upphafi mælinga
Rennsli árinnar við Sveinstind fer nú mjög minnkandi, og mælist nú um 180 rúmmetrar á sekúndu en var nærri 400 á hádegi í gær.

Opnað fyrir umferð um þjóðveginn í Eldhrauni
Veginum var lokað um helgina eftir að vatn úr Skaftárhlaupi hóf að flæða yfir hann.

Skaftárhlaup í rénun en vatnsmagn í Grenlæk og Tungulæk eyst
Rennsli Skaftár fer nú minnnkandi.

Bættist í rennsli yfir Suðurlandsveg í nótt
Suðurlandsvegur við Kirkjubæjarklaustur er ennþá lokaður en í nótt bættist í rennsli yfir veginn.

Næststærsta Skaftárhlaup sögunnar hefur truflað vegasamgöngur
„Þetta er næststærsta hlaup sem komið hefur úr Skaftárkötlum,“ segir Gunnar Sigurðsson, hópstjóri vatnamælikerfa hjá Veðurstofu Íslands.

Hafa áhyggjur af staðsetningu nýs brúarstæðis yfir Eldvatn
Brúin yfir Eldvatn hefur skemmst í Skaftárhlaupi nú og um tíma höfðu menn áhyggjur af því að hún stæðist ekki hlaupið.