
Leikskólar

Inntaka leikskólabarna í borginni – hvað er best fyrir börnin?
Í ljósi mikilla átaka um inntöku barna í leikskóla borgarinnar þá viljum við í Fyrstu fimm, hagsmunafélag foreldra og fagaðila um fyrstu ár í lífi barna, benda á mikilvægi þess að þarfir ungra barna séu alltaf settar í öndvegi í allri stefnumótun er þau varða.

Nemendur Ævintýraborgar þurfa að láta Öskjuhlíðina duga til að byrja með
Öskjuhlíðin verður fyrst um sinn vettvangur útivistar þeirra barna sem innritast í leikskólann Ævintýraborg við Nauthólsveg. Leikskólalóðin mun sitja á hakanum svo klára megi vinni við húsnæðið.

Eldræða Kristínar Tómasdóttur: „Þið eruð að pakka þessu inn í óskiljanlegar tölur“
Kristín Tómasdóttir, sem farið hefur fyrir hópi foreldra í mótmælum í ráðhúsi Reykjavíkur vegna neyðarástands sem skapast hefur í leikskólamálum, segir tillögur meirihlutans sem kynntar voru í dag ekki nægja. Þar sé engin svör að fá um hvenær börnin þeirra komist á leikskóla.

Stefnt á að opna Ævintýraborg strax í september
Meirihlutinn í borginni hefur kynnt tillögur sínar, sem voru samþykktar á borgarráðsfundi nú um hádegisbil, að bráðaaðgerðum í leikskólamálum. Tillögurnar eru sex, þar á meðal að opna Ævintýraborg í Öskjuhlíð strax í september.

Reiknar með áherslu á Ævintýraborgirnar
Ráðhús Reykjavíkur hefur frá því í morgun verið undirlagt foreldrum með börn á leikskólaaldri, sem mótmæla ástandi í leikskólamálum borgarinnar. Meirihlutinn mun kynna tillögur að bráðaaðgerðum að loknum borgarráðsfundi á eftir. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í ráðinu býst við áherslu á Ævintýraborgirnar.

Myndaveisla: Foreldrar og börn bíða aðgerða í leikskólamálum
Fjöldi fólks hefur safnast saman í ráðhúsinu í Reykjavík þar sem borgarráðsfundur fer nú fram. Leikskólamálin eru í brennidepli á fundinum og reiknar meirihlutinn með að kynna tillögur sínar að bráðaaðgerðum í leikskólamálum að loknum fundi.

Lýsandi hegðun: Leikskólalaust barn olli verulegum örðugleikum í fréttasetti
Leikskólamálin í Reykjavíkurborg hafa verið í brennidepli frá því að foreldrar hófu að mótmæla úrræðaleysinu í sjálfu Ráðhúsinu í síðustu viku. Á morgun er boðuð stofnun hústökuleikskóla í Ráðhúsinu meðan á borgarráðsfundi stendur.

Hrifinn af tillögum Sjálfstæðismanna
Oddvita Framsóknarflokksins í Reykjavík líst vel á bráðatillögur Sjálfstæðismanna í leikskólamálum. Ekkert sé því til dæmis til fyrirstöðu að koma á fót bakvarðarsveit til að tryggja mönnun leikskólanna. Meirihlutinn kynnir eigin tillögur á morgun - sem að sumu leyti muni svipa til tillagna Sjálfstæðismanna.

Raunhæfar lausnir fyrir börn og foreldra í Kópavogi
Leikskólar í hverju sveitarfélagi eru ein af grunnstoðunum samfélagsins. Ekki aðeins sem fyrsta skólastig heldur ekki síður sem þjónusta við börn og foreldra. Í Kópavogi eru um 550 börn sem fá inngöngu í leikskóla haustið 2022.

Haustboðinn ljúfi
Einhver sagði að það væru bara tveir hlutir sem ekki klikka í lífinu, dauðinn og skattarnir. Við sem búum í Reykjavík myndum mögulega bæta biðlistum reykvískra barna við þennan lista.

Hver þorir að eignast barn í Reykjavík?
Árið 1991 var mamma vinar míns að opna fyrirtæki þegar hún varð ólétt af honum. Hún gat leyft sér mánaðarfrí í kjölfar fæðingarinnar en síðan varð hún að taka barnið með í vinnuna þar til hann varð nógu gamall til að fara til dagforeldris. Börn byrjuðu þá yfirleitt ekki á leikskóla fyrr en um 2 ½ - 3 ára og einungis einstæðir foreldrar fengu leikskóladvöl í heilan dag. Fyrir foreldra í sambúð eða hjúskap bauðst bara hálfur dagur, sem segir sitt um þær væntingar sem gerðar voru til foreldra eða réttar sagt, mæðra.

Vilja stofna bakvarðasveit fyrir leikskólana
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu á morgun leggja fram fimm tillögur vegna stöðu leikskólamála í Reykjavík.

Skýjaborgir í boði Samfylkingarinnar
Samfylkingin, með borgarstjóra í fararbroddi, lofuðu fyrir borgarstjórnarkosningarnar vorið 2014 að börn sem náð hefðu 18 mánaða aldri fengju leikskólavistun. Það loforð var ekki efnt. Sama var upp á teningnum fyrir borgarstjórnarkosningarnar vorið 2018 nema þá laut svikna kosningaloforðið að dagvistunarplássum barna sem hefðu náð 12 til 18 mánaða aldri.

Dauðadæmt loforð um leikskólapláss
Loforð um leikskólapláss fyrir öll tólf mánaða börn í Reykjavík var dauðadæmt frá byrjun, að mati leikskólastjóra sem ekki hefur getað boðið neinu barni fæddu 2021 pláss. Það sé enn fremur ekki endilega börnunum fyrir bestu að byrja á leikskóla 12 mánaða.

Hvað er mikilvægast fyrstu tvö ár barna?
Við umræður um vöntun á leikskólaplássi fyrir yngstu börnin þ.e.a.s. 12 mánaða börnin okkar þá fæ ég á tilfinninguna að talað sé um dósir í dósaverksmiðju en ekki lifandi einstaklinga með tilfinningar og þrár eftir öryggi í fangi foreldra sinna.

Ójöfnuður í boði jafnaðarmanna
Samfylkingin hefur lofað lausn leikskólavandans í minnst 16 ár, án árangurs, þrátt fyrir að hafa allan þennan tíma verið í lófa lagið að taka á vandanum, en flokkurinn hefur verið í brúnni í borginni meira og minna öll þessi ár. Tæplega 800 börn eru á biðlistum og stendur þessu fjöldi í stað, þrátt fyrir gefin loforð. Framsókn, sem fyrir kosningar lofaði breytingum en endurreisti þess í stað margfallinn meirihluta, leiðir í dag skólamálin í borginni, en virðist ekki hafa gert handtak í sumar til að bregðast við hinum mjög svo fyrirséða vanda.

Hver er vandinn?
Leikskólamál voru kosningamál síðastliðið vor og flestir flokkar ætluðu sér að brúa bilið milli leikskóla og fæðingarorlofs. Fáir höfðu raunverulegar hugmyndir um það hvernig fara mætti að því og enn færri lögðu fram tillögur sem myndu ráðast að rót vandans, sem er að fjölga leikskólakennurum. Ef sá vandi er ekki leystur munu allar tilraunir til að stækka leikskólakerfið, til dæmis með því að taka inn yngri börn, draga úr gæðum leikskólastarfs og hafa alvarleg áhrif á starfsumhverfi leikskólakennara.

Stýrihópur um leikskólamál skilar minnisblaði fyrir fimmtudag
Stýrihópur sem heldur utan um uppbyggingu leikskóla í Reykjavík mun skila minnisblaði um stöðu mála fyrir fund borgarráðs á fimmtudag.

Borgin hafi dregið foreldra á asnaeyrunum
Borgin hefur dregið okkur á asnaeyrunum , segir faðir tæplega tveggja ára barns sem hefur enn ekki komist inn á leikskóla. Hann vill að foreldrar í sömu stöðu fái bætur, enda hafi margir nýtt sumarfrí næsta árs og tekið launalaust leyfi til að sjá um börnin.

Vilja biðlistabætur í borginni
Sjálfstæðismenn vilja koma á svokölluðum biðlistabótum í Reykjavík fyrir foreldra þeirra barna sem eru eldri en 12 mánaða en hafa ekki fengið pláss á leikskóla. Bæturnar myndu hljóða upp á 200 þúsund krónur á mánuði á hvert barn. Meirihlutinn tekur ekki illa í hugmyndirnar en segir megináhersluna þá að fjölga leikskólaplássum.

Leikskólamál í lamasessi
Ástandið í leikskólamálum borgarinnar er óásættanlegt. Enginn mótmælir því, ekki einu sinni meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur.

„Hústökuleikskóli“ í Ráðhúsinu
Móðir sautján mánaða gamals barns sem ekki fær leikskólapláss í borginni ætlar að setja upp hústökuleikskóla í Ráðhúsi Reykjavíkur í næstu viku. Hún segir algjört neyðarástand ríkja meðal foreldra barna á leikskólaaldri. Svör borgarinnar til foreldra séu kæruleysisleg.

Enginn biðlisti í leikskólann á Skagaströnd
Íbúum á Skagaströnd er að fjölga en það gerist hægt. Kona, sem flutti á staðinn fyrir þremur árum segir að staðurinn sé friðsæll og náttúran allt í kringum þorpið sé yndisleg. Börn eru tekin níu mánaða inn í leikskólann og þar er engin biðlisti.

Reiknað með leikskóla og neðansjávarveitingastað við Gufunesbryggju
Borgarráð hefur samþykkt að hefja viðræður við Þorpið-Vistfélag á grundvelli verðlaunatillögu um uppbyggingu við Gufunesbryggju, sem felur meðal annars í sér byggingu leikskóla og veitingastað sem verði að hluta til neðansjávar. Kanna á hvort raunhæft sé að staðsetja leikskóla á umræddu svæði.

Fjarskafögur fyrirheit
Enn einu sinni eru leikskólamálin í brennidepli. Fyrirheit borgarstjórnar um að öll 12 mánaða börn og eldri fái leikskólapláss í haust virðast ekki ætla að ganga eftir og foreldrar eru uggandi.

Dagforeldrastéttin sem brúar bilið
Í áratugi hafa dagforeldrar brúað bilið. Við fáum þó aldrei hrós fyrir það. Við höfum sparað borginni miljarða, en hvergi erum við nefnd. Það er eins og við séum ekki til, en við erum þarna og ávallt reiðubúin og höfum verið.

„Nei mér finnst það ekki boðlegt“
Foreldrar barna í Reykjavík sem ekki hafa fengið leikskólapláss söfnuðust saman í ráðhúsinu í morgun til þess að mótmæla stöðunni. Oddviti Framsóknar í Reykjavík segir stöðuna ekki boðlega.

„Þetta er algjör skrípaleikur“
Foreldrar barna í Reykjavík sem hafa ekki fengið leikskólapláss söfnuðust saman í ráðhúsinu í morgun til þess að mótmæla stöðunni.

Hefði ekki farið í sumarfrí og látið leikskólavandann liggja
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vandar meirihlutanum ekki kveðjurnar þegar kemur að leikskólamálum í Reykjavík. Hann segir fulltrúa meirihlutans hafa farið í sumarfrí þegar ljóst væri að ekki yrði unnt að standa við gefin loforð í málaflokknum án stórtækra aðgerða.

Meirihlutinn lost in space
Hvað hét hann aftur upplýsingaráðherra Saddam Hussein sem hélt blaðafundi um að íraski herinn væri að sigra stríðið þótt hægt væri að sjá Bagdad falla í bakgrunni?