Verðlag

Coca-Cola á Ísland fjárfesti fyrir 1,4 milljarða króna í nýrri framleiðslulínu
Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi (Coca-Cola á Íslandi) fjárfesti fyrir 1,4 milljarða króna í nýrri framleiðslulínu á árinu. Hún tryggir áframhaldandi framleiðslu óáfengra drykkjarvara á Íslandi og „umbylti framleiðsluferlinu okkar í öllu sem snýr að sjálfbærni,“ segir forstjóri félagsins.

Viðskiptafréttir ársins 2023: Sala áratugarins, vandræði Marel og heljarinnar gjaldþrot
Árið sem líður var, eins og nánast öll ár, viðburðaríkt hvað varðar viðskiptin. Árið einkenndist af ítrekuðum stýrivaxtahækkunum, síhækkandi verðalagi og mikilli lækkun hlutabréfaverðs en einnig stórum sigrum í atvinnulífinu.

Samningsaðilar samstíga eftir fyrsta fundinn
Fyrsti fundur nýrrar breiðfylkingar langflestra félaga ASÍ og Samtaka atvinnulífsins fór fram hjá ríkissáttasemjara í morgun. Samningsaðilar segja mikla samstöðu um að ná samningum, sem stuðla að hjöðnun verðbólgu, hratt og vel.

Söguleg breiðfylking stefnir að því að keyra niður vexti og verðbólgu
Ný breiðfylking með um 93 prósent félagsmanna Alþýðusambandsins hefur sameinast um kröfur og markmið í nýjum kjarasamningum til þriggja ára. Formaður Eflingar segir stefnt að hóflegum launahækkunum til að keyra niður vexti og verðbólgu hratt og örugglega. Ef allt gangi að óskum verði hægt að ganga frá tímamóta samningum snemma á næsta ári.

Gleðilegt að verðbólga virðist hjaðna fyrr en spáð var
Verðbólga er minni í desember en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir og mælist nú 7,7 prósent samkvæmt vísitölu Hagstofunnar. Hagfræðingur Landsbankans segir gleðiefni að verðbólgan virðist vera að hjaðna hraðar en spáð hafði verið.

Skanna strikamerki og sjá verðið í öðrum verslunum
Alþýðusamband Íslands hefur frá því síðsumars safnað miklu magni gagna um vöruverð í öllum mögulegum matvöruverslunum. Úr þessu hefur verið þróað app svo neytendur geti borið saman vöruverð með því einu að skanna strikamerki með símanum.

Verðbólgan minnkar um 0,3 prósentustig
Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í desember 2023, er 608,3 stig og hækkar um 0,41 prósent frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 497,9 stig og hækkar um 0,26 prósent frá nóvember 2023. Ársverðbólgan minnkar þó um 0,3 prósentustig milli mánaða.

Breiðfylking að myndast til að ná niður vöxtum og verðbólgu
Formaður VR er bjartsýnn á að breiðfylking stéttarfélaga nái að gera sögulega kjarasamninga í janúar sem stuðli að verðbólguhjöðnun og vaxtalækkunum. Það skipti meira máli en nokkrir þúsundkallar til eða frá í launahækkunum.

Ekki samstaða innan ASÍ um áherslur í komandi kjaraviðræðum
Ekki tókst að ná samstöðu um að landsambönd og félög innan Alþýðusambandsins fari sameiginlega fram í viðræðum við Samtök atvinnulífsins í komandi kjaraviðræðum. Forseti ASÍ segir samningaviðræður geta orðið flóknari fyrir vikið en vonar engu að síður að nýir samningar náist áður en núgildandi samningar renna út í lok janúar.

Drykkjarvörur og konfekt hækka mest
Dæmi eru um að verð á jólamatvörum hafi hækkað um tugi prósenta á milli ára. Samkvæmt nýrri verðkönnun ASÍ hefur jólamaturinn hækkað um allt að 17 prósent. Landsmenn finna misvel fyrir hækkuninni.

Regluleg heildarlaun voru hæst hjá ríkisstarfsmönnum
Á fyrri helmingi þessa árs dróst kaupmáttur ráðstöfunartekna saman um 2,7 prósent á milli ára en laun á mann hækkuðu um 8,6 prósent á fyrri helming 2023. Regluleg heildarlaun voru almennt hæst hjá ríkisstarfsmönnum í maí eða 880 þúsund krónur. Launin voru 29 þúsund krónum hærri en þegar litið er til heildarlauna allra hópa.

Viðhorfspistlar ársins 2023: Hænsn, hatur og allt þar á milli
Hvað var fólki efst í huga á árinu 2023? Hvar liggja átakalínurnar? Þessar raunverulegu. Hvað er umhugsunarinnar virði?

Kaupmáttur dróst saman á þriðja ársfjórðungi
Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann dróst saman um 2,7 prósent á þriðja ársfjórðungi. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Verðbólga byrji að hjaðna hratt á nýju ári
Hagfræðideild Íslandsbanka spáir því að verðbólga muni aukast í desember úr átta prósentum í 8,3 prósent. Eftir áramót muni hún hins vegar byrja að hjaðna og verði komin niður í sjö prósent í mars.

Kenna Sorpu um hærra matarverð
Matfugl, einn stærsti framleiðandi kjúklingaafurða hér á landi, hefur boðað 3,2 prósenta hækkun á öllum vörum fyrirtækisins. Forstjóri segir hækkanirnar skýrast af auknum kostnaði varðandi sláturúrgang, þá helst breytingum sem Sorpa boðaði í síðustu viku.

Seðlabankastjóri ánægður með tóninn í kjaraviðræðum
Seðlabankastjóri segir minnkandi einkaneyslu og fjárfestingar og versnandi fjármálaskilyrði sýna að aðgerðir bankans til að draga úr verðbólgu væru að virka. Mjög jákvæður tónn berist nú frá aðilum vinnumarkaðarins varðandi nýja kjarasamninga sem geti leitt til þess að hraðar dragi úr verðbólgu.

Afdrifaríkar átta vikur framundan
Það ræðst á næstu átta vikum hvort aðilum vinnumarkaðarins tekst að koma á nýjum langtíma kjarasamningum sem duga til að keyra niður verðbólguna. Ef ekki tekst að fá ríki, sveitarfélög og fyrirtæki til að sameinast um þetta markmið má reikna með að verðbólga verði áfram mikil og jafnvel aukist.

Þriðjudagstilboðið heldur áfram að hækka í verði
Þriðjudagstilboð Domino's á Íslandi hefur hækkað í verði úr 1200 krónum upp í 1300 krónum. Um er að ræða þriðju verðhækkunina á tilboðinu frá árinu 2021, sem áður hafði kostað þúsund krónur í ellefu ár. Síðasta verðhækkun var í janúar á þessu ári.

Gjaldskrárhækkanir í óþökk allra
Hafísinn, sem þjóðskáldið kallaði landsins forna fjanda, kemst ekki í hálfkvisti við þann þráláta og að því er virðist landlæga vanda sem verðbólgan er. Við henni eru til ýmsar aðgerðir, engar góðar eða skemmtilegar og má þar telja aðhald í öllum rekstri og stýrivaxtahækkanir sem hafa dunið á fólki undanfarin ár. Og nú hefur ný ókind bæst í hóp óskemmtilegra aðgerða

Íslendingar vinna einna minnst en þéna mest
Íslendingar vinna einna minnst en þéna mest á mánuði, talsvert meira borið saman við aðrar Norðurlandaþjóðir, samkvæmt gögnum frá OECD. „Við getum varðveitt þessa stöðu svo lengi sem verðmætasköpun stendur undir henni,“ segir aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

ASÍ kallar ríki og sveitarfélög til ábyrgðar í baráttu við verðbólgu
Verkalýðshreyfingin kallar ríki, sveitarfélög og fyrirtæki til ábyrgðar í baráttunni við verðbólguna. Engin merki væru á lofti um að þessir aðilar ætli að leggja sitt af mörkum, sem geti sett stórt strik í reikninginn fyrir komandi kjarasamninga.

Hægir verulega á hagvexti
Verulega hægir á hagvexti á þriðja ársfjórðungi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni.

Segir ríkisstjórnina skila auðu í baráttunni við verðbólguna
Formaður Viðreisnar gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag fyrir aðgerðarleysi í baráttunni við verðbólgu og háa vexti. Það eina sem ríkisstjórnin hyggðist gera til að draga úr útgjöldum ríkissjóðs væri flatur niðurskurður án allrar forgangsröðunar. Ekkert væri gert til að draga í raun úr útgjöldum ríkissjóðs.

Verðbólgan hækkar lítillega í átta prósent
Verðbólga hefur hækkað lítillega og í nóvember mældist hún átta prósent hér á landi, sé litið til síðastliðinna tólf mánaða.

Verkalýðshreyfingin vill stöðva kjaraviðræður vegna gjaldskrárhækkana
Formaður VR reiknar með að öllum viðræðum verkalýðshreyfingarinnar við stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins verði hætt fram yfir áramót vegna boðaðra gjaldskrárhækkana sveitarfélaga og aðgerðaleysis stjórnvalda. Verkalýðshreyfingin geti ekki ein staðið undir því að keyra niður verðbólguna.

Spá því að verðbólgan aukist
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólgan aukist um 0,2 prósent milli mánaða og verði 8,1 prósent. Þá muni hún hækka enn meira í desember og verða 8,3 prósent.

Erum einfaldlega saman á báti
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Undirliggjandi verðbólga hefur hjaðnað og áfram eru vísbendingar um að tekið sé að hægja á einkaneyslu og fjárfestingu. Því miður hafa verðbólguhorfur þó versnað, spennan í þjóðarbúinu reynist meiri og gengi krónunnar lækkað.

Biðleikur Seðlabanka gefur færi á víðtæku samstarfi
Meginvextir Seðlabankans verða óbreyttir fram yfir gildisíma núgildandi kjarasamninga í lok janúar. Seðlabankastjóri segir að líta megi á þessa ákvörðun sem biðleik en ef ekki fari að draga úr þrálátri verðbólgu væri peningastefnunefnd nauðugur sá kostur að hækka stýrivexti enn meira.

Hærri álagning fyrirtækja vegur ekki „þungt í þróun verðbólgu“
Miklar launahækkanir hafa verið „megin drifkraftur“ mikillar verðbólgu hérlendis, ekki aukinn hagnaður fyrirtækja. Aukinn hlutur hagnaðar fyrirtækja hefur verið nokkru minni en aukinn launakostnaður á undanförnum árum, sagði Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, á fundi þar sem vaxtaákvörðun var kynnt í morgun.

Þrálát verðbólga heldur vöxtum áfram háum
Verðbólga hefur verið og verður samkvæmt spá Seðlabankans þrálátari en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Þrátt fyrir það og vegna aukinnar óvissu í efnahagsmálum í tengslum við jarðhræringar á Reykjanesi ákvað peningastefnunefnd Seðlabankans að halda meginvöxtum óbreyttum í morgun.