Spænski boltinn

Zidane mögulega tilkynntur sem næsti þjálfari Real Madrid í dag
Fréttir frá Spáni herma að Zinedine Zidane verði seinna í dag tilkynntur sem næsti þjálfari liðsins.

VAR enginn dómari mættur í myndbandadómaraherbergið?
Leikmenn Real Valladolid hafa eflaust ekki mikinn húmor fyrir VAR-sjánni eftir að hafa misst tvö mörk í tapleiknum á móti Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Í öðru VAR atvikinu gerðist þó eitt mjög skrýtið.

Segja að Zinedine Zidane geti nú valið á milli fjögurra risaklúbba
Zinedine Zidane þarf ekki að kvarta mikið yfir skorti á fýsilegum atvinnutilboðum þessa dagana. Fjögur af stærstu knattspyrnuliðum heims vilja nefnilega ráða kappann fyrir næsta tímabil samkvæmt frétt í einu stærsta íþróttablaði Evrópu.

„Fótbolti er ekki fyrir stelpur“ í nýrri herferð Barcelona
Leikmenn kvennaliðs Barcelona sendu frá sér myndband í tilefni af Alþjóðlegum baráttudegi kvenna á dögunum en Lionel Messi og félagar eru ekki eina fótboltalið FC Barcelona.

Real svaraði niðurlægingunni í Meistaradeildinni með þriggja marka sigri á Valladolid
Real Madrid var niðurlægt af Ajax í Meistardeildinni í vikunni en þeir komu til baka og unnu Valladolid í kvöld.

Getafe stefnir hraðbyri á Meistaradeildina
Flest bendir til þess að Getafe leiki í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.

Sjö stiga forskot Börsunga
Barcelona lenti undir gegn Rayo Vallecano en kom til baka og vann góðan sigur.

Ramos öskraði á forsetann og sagðist vera til í að hætta
Það varð allt vitlaust í búningsklefa Real Madrid í vikunni eftir að liðið hafði fallið úr leik í Meistaradeildinni. Fyrirliði liðsins, Sergio Ramos, reifst þá heiftarlega við forseta félagsins, Florentino Perez.

Lengi getur vont versnað hjá Real Madrid
Síðustu misseri hafa verið erfið hjá Real Madrid og til þess að bæta gráu ofan á svart þá verður ungstirni liðsins, Vinicius Junior, lengi frá.

Stoltur að stuðningsmenn Real syngi nafn hans
Jose Mourinho segist vera stoltur af því að stuðningsmenn Real Madrid kyrji nafn hans og kalli eftir því að hann snúi aftur til spænsku höfuðborgarinnar.

Real Madrid búið að tala við Jose Mourinho
Jose Mourinho er efstur á óskalista Real Madrid sem næsti knattspyrnustjóri liðsins ef marka má orð fyrrum forseti spænska félagsins.

Mourinho hungraður í titla og gefur Real Madrid undir fótinn
Mourinho makar nú krókinn af því að ræða menn og málefni sem sérfræðingur hjá beIN Sports sjónvarpsstöðinni.

Tvenna Morata tryggði Atletico sigur á Sociedad
Alvaro Morata reyndist hetja Atletico Madrid þegar liðið sótti Real Sociedad heim í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Ramos: Messi tók þessu illa
Stuðningsmenn Barcelona vildu margir sjá Sergio Ramos fjúka út af í leik Barcelona og Real Madrid í gærkvöld fyrir að slá Lionel Messi í andlitið.

Rakitic tryggði Barcelona sigur
Aðeins eitt mark var skorað í El Clasico slagnum í kvöld þar sem stórveldin tvö Real Madrid og Barcelona mættust á Santiago Bernabeu.

Hægt að kaupa upp nýja samninginn fyrir 68 milljarða
Barcelona var í gær að ganga frá nýjum langtímasamningi við spænska bakvörðinn Jordi Alba.

Luis Suarez bauð upp á smá „hefnd“ fyrir Liverpool á Bernabéu í gær
Luis Suarez er fyrrum hetja Liverpool liðsins og Real Madrid fyrirliðinn Sergio Ramos er meðal óvinsælustu leikmanna mótherja Liverpool eftir meðferð hans á Mohamed Salah í úrslitaleik Meistaradeildarinnar síðasta vor.

„Bale má fagna mörkunum sínum eins og hann vill“
Gareth Bale tryggði Real Madrid 2-1 sigur á Levante í spænsku deildinni í gær. Það voru hins vegar fagnaðarlæti Bale sem stálu senunni.

Tvær vítaspyrnur tryggðu Real sigur gegn Levante
Karim Benzema og Gareth Bale voru á skotskónum í dag.

Messi var hetjan er Barca tók tíu stiga forystu
Lionel Messi skoraði sína fimmtugust þrennu í sigri Barcelona á Sevilla í spænsku La Liga deildinni í dag.

Valverde: Þurfum að sýna Suarez þolinmæði
Ernesto Valverde hefur ekki áhyggjur af markaþurrð Luis Suarez og segir liðsmenn Barcelona sýna framherjanum þolinmæði.

Adrien Rabiot rak mömmu sína
Móðir Adrien Rabiot vildi líklega bara halda honum hjá sér í París en það kostaði hana væntanlega starfið.

Simeone: Hreðjafagnið kom beint frá hjartanu
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, móðgaði margra með því hvernig hann fagnaði fyrsta marki liðsins í sigrinum á Juventus í gærkvöldi.

Meistarakeppnin á Spáni verður hér eftir á flakki um heiminn og með fleiri liðum
Meistarakeppnin í spænska fótboltanum mun taka breytingum á næstunni en bæði munu fleiri félög taka þátt sem og að keppnin verður hér eftir spiluð utan Spánar.

Bale ætlar að gifta sig á pínulítilli eyju
Undirbúningur fyrir brúðkaup Gareth Bale, leikmanns Real Madrid, og Emmu Rhys-Jones er á lokametrunum og parið hefur loksins ákveðið hvar þau ætla að gifta sig.

Enginn fengið rautt oftar en Ramos
Sergio Ramos náði sér í miður skemmtilegt met í dag þegar hann fékk að líta rauða spjaldið í leik Real Madrid og Girona í La Liga deildinni.

Rændur á meðan hann þreytti frumraun sína með Barcelona
Innbrotsþjófar á kreiki á meðan stórstjörnur Barcelona eru uppteknir við að vinna fótboltaleiki.

Ótrúleg endurkoma Girona á Bernabeu og Ramos sá rautt
Real Madrid beið lægri hlut fyrir Girona á Santiago Bernabeu í dag, 1-2, eftir að hafa komist í forystu snemma leiks.

Simeone framlengdi við Atletico
Diego Simeone hefur stýrt Atletico Madrid frá árinu 2011 og hefur nú undirritað nýjan samning sem nær til ársins 2022

Messi tryggði Börsungum sigur
Barcelona er með sex stiga forystu á Real Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar og getur aukið hana enn frekar í kvöld.