
Spænski boltinn

Barcelona með átta stiga forystu
Barcelona er með átta stiga forystu í spænsku úrvalsdeildinni eftir leiki helgarinnar. Liðið er með 58 stig í efsta sæti en erkifjendurnir Real Madrid í öðru sæti með 50. Sevilla er hins vegar í þriðja sæti með 42 stig eftir jafntefli við Racing Santander, 2-2.

Barcelona jók forskotið
Barcelona jók forskot sitt í átta stig í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Barcelona gerði jafntefli við botnlið Numancia, 1-1, en Real Madrid tapaði fyrir Deportivo í Coruna, 2-0. Barcelona hefur 58 stig í efsta sæti en Real Madrid er í 2. sæti með 50 stig.

Ranieri rekinn frá Valencia
Claudio Ranieri, knattspyrnustjóri spænska liðsins Valencia, var látinn taka poka sinn eftir aðeins 8 mánaða dvöl hjá liðinu.

Souness vill fá Owen
Michael Owen er sagður vera í sigtinu hjá Graeme Souness, knattspyrnustjóra Newcastle, og er talið að hann muni reyna allt hvað hann getur til að lokka Owen aftur til Englands.
Þjálfari Albacete rekinn
Jose Gonzales, þjálfari spænska knattspyrnuliðsins Albacete, var rekinn um helgina þegar liðið tapaði fyrir botnliði Numancia. Albacete er í þriðja neðsta sæti spænsku úrvalsdeildarinnar en fjögur neðstu liðin á Spáni hafa öll rekið þjálfara sína.

Barcelona með sjö stiga forystu
Barcelona hefur sjö stiga forystu á Real Madrid eftir leiki helgarinnar á Spáni. Barcelona er með 57 stig í fyrsta sæti en Real Madrid er í öðru sæti með 50 stig.

Cruz Beckham fæddur
Enski landsliðsfyrirliðinn í knattspyrnu David Beckham og kona hans Victoria eignuðust sitt þrðja barn í morgun og reyndist það vera drengur. Drengurinn fæddist í Madrid á Spáni kl. 9.40 að íslenskum tíma í morgun og hefur hlotið nafnið Cruz.

Woodgate ekki meira með
Ólíklegt er að varnarmaðurinn enski, Jonathan Woodgate, sem Real Madrid keypti á stórfé í sumar, geti leikið með liðinu á þessu tímabili. Woodgate hefur átt við þrálát meiðsli í vinstra læri að stríða og nýleg skoðun leiddi í ljós að nánast útilokað er að hann klæðist treyju Madríd á þessu tímabili.

Chelsea á eftir Joaquin
Jose Mourinho hefur staðfest að Chelsea hafa talað við Real Betis um hugsanleg kaup á Jouqin, og sagði að félagið myndi hugsanlega kaupa kantmanninn í sumar.

Ronaldo sektaður
Stjórn Real Madrid hefur sektað Ronaldo fyrir að mæta seint á æfingu á miðvikudaginn.

Owen leiðist á bekknum
Enski framherjinn Michael Owen er orðinn leiður á því að verma varamannabekkinn hjá spænska stórliðinu Real Madrid og segir það ekki vera uppbyggilegt fyrir heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi á næsta ári.

Barcelona náði sjö stiga forystu
Barcelona náði í gærkvöldi sjö stiga forystu í spænsku fyrstu deildinni í knattspyrnu þegar liðið sigraði Real Zaragosa, 4-1, á útivelli. Valencia, sem vermir þriðja sætið með 38 stig, fór illa að ráði sínu á heimavelli þegar liðið beið lægri hlut fyrir Deportivo, 2-1.
Tyrki á leið til CSKA Moskvu
Tyrkneski framherjinn Nihat Kahveci, sem leikur með spænska liðinu Real Sociedad gæti verið á leið til rússneska liðsins CSKA Moskvu en samkvæmt rússneskum fjölmiðlum á hann aðeins eftir að komast að samkomulagi við félagið um laun.

Henke byrjaður að æfa á ný
Sænski framherjinn Henrik Larsson, sem leikur með Barcelona, er byrjaður að æfa á nýjan leik eftir að hann sleit krossbönd á hné fyrir jól.

Rijkaard rólegur eftir tapið
Frank Rijkaard, knattspyrnustjóri Barcelona, hafði litlar áhyggjur þó svo að liðið tapaði gegn Atletico Madrid, 2-0, um helgina.

Forysta Barcelona minnkar
Forysta Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu minnkaði um þrjú stig þegar liðið tapaði óvænt fyrir Atletico Madrid, 2-0, í Madrid í gær.

Bjartsýni í herbúðum Real
Það er bjart yfir herbúðum Real Madrid á nýjan leik í spænska boltanum enda hefur hinum brasilíska þjálfara Vanderlei Luxemburgo tekist að fá stjörnum prýtt lið Real til að vinna saman og fyrir vikið eru kröfuharðir áhorfendur á Bernabeu farnir að styðja við bakið á því á nýjan leik.

Sjötti sigur Real Madrid í röð
Real Madrid heldur áfram sigurgöngu sinni á Spáni og skellti Espanyol 4-0 í gær en leikurinn var sýndur beint á Sýn. Þetta var sjötti sigur Madrídinga í röð. Raul skoraði tvívegis og Zinedine Zidane og Thomas Gravesen sitt markið hvor. Þá gerðu Real Sociedad og Valencia jafntefli 3-3.

Zidane hættir árið 2007
Franski snillingurinn Zinedine Zidane sagði í viðtali við Cana Plus sjónvarpstöðina í dag að hann myndi leggja skóna á hilluna sumarið 2007, þegar samningur hans við Real Madrid rennur út.

Ayala frá í mánuð
Fabian Ayala, argentínski varnarjaxlinn hjá Valencia, mun verða frá í einar fjórar vikur eftir að hafa brákað rifbein í leik gegn Athletic Bilbao á sunnudag. Ayala meiddist eftir samstuð við varamanninn Fernando Llorente í síðari hálfleik. Þetta var aðeins þriðji leikur Ayala eftir að hafa verið frá í sjö mánuði vegna hnémeiðsla.

Barcelona með tíu stiga forystu
Barcelona hefur tíu stiga forystu í spænsku fyrstu deildinni í knattspyrnu en liðið sigraði Sevilla á útivelli, 4-0, í gærkvöldi. Samuel Eto, Cesar Julio Baptista og Ludovic Giuly skoruðu mörkin. Þá vann Atletico Madrid Albacete, 3-1

Real sigraði Mallorca
Real Madrid sigraði Mallorca 3-1 í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Luis Figo, Walter Samuel og Santiago Solari skoruðu mörk Madrídinga sem eru sjö stigum á eftir toppliði Barcelona. Þá vann Roma Fiorentina 2-1 í ítölsku deildinni. Vincenzo Montella skoraði sigurmark Roma, 17. mark hans á leiktíðinni.

Real Madrid úr leik
Stórlið Real Madrid féll úr leik í spænska konungsbikarnum í knattspyrnu í gærkvöld. Michael Owen kom Real yfir í leiknum en Valladolid, sem leikur í annarri deild, jafnaði metin og komst áfram með marki skoruðu á útivelli en fyrri leiknum lyktaði með markalausu jafntefli.

Vill aðeins snúa aftur til United
David Beckham, leikmaður Real Madrid og fyrirliði enska landsliðsins, segir í viðtali við The Daily Mirror í dag að ef hann hætti hjá Real Madrid og fari aftur til Englands verði áfangastaður hans Old Trafford í Manchester. Hann vilji vinna með Sir Alex Ferguson. Beckham segist hins vegar ekki á förum frá Real Madrid alveg á næstunni.
Óvæntur sigur Malaga
Tveir leikir voru í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Getafe og Athletico Madrid gerðu 1-1 jafntefli og Malaga vann óvæntan sigur á Sevilla 1-0. Stórliðin Barcelona og Real Madrid verða í beinni útsendingu á Sýn í kvöld.

Gravesen til Real
Danski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Thomas Gravesen, gengur í raðir Real Madrid í dag eftir læknisskoðun. Everton er búið að samþykkja kauptilboð Madridinga í miðvallarleikmanninn sterka. Gravesen kostar 2,3 milljónir punda.

Portillo í stað Morientes
Real Madrid hefur kallað Javier Portillo til baka úr láni frá Fiorentina til að fylla skarð Fernando Morientes. Portillo, sem fór til ítalska liðsins í sumar, mun því fara í harða keppni við ekki ómerkari menn en Ronaldo Raul Gonzales og Michael Owen og byrjar samkeppnin strax því Real Maddrid leikur gegn Real Zaragoza á Santiago Bernabeu á sunnudaginn.

Bilbao og Betis áfram í bikarnum
Atletic Bilbao sigraði Lanzarote 3-1 í 16 liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í gær. Elche vann Numancia 1-0, Real Betis lagði Mirandes 3-1, Osasuna bar sigurorð af Getafe 2-0 og Atletico Madrid vann Lorca 3-1.

Eiður í byrjunarliðinu gegn Man U
Eiður Smári er í byrjunarliði Chelsea sem tekur á móti Man Utd í undanúrslitum ensku deildarbikarkeppninnar í knattspyrnu. Þá eru 4 leikir á dagskrá ítölsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld og er tveimur þeirra lokið.

Forysta Barcelona komin í sjö stig
Forysta Barcelona í spænsku fyrstu deildinni í fótbolta er komin niður í sjö stig eftir að liðið steinlá 3-0 gegn Villareal í gærkvöldi. Diego Forlan skoraði tvö mörk fyrir Villareal sem er í áttunda sæti. Real Madrid og Valencia eru í öðru sæti með 35 stig.