Tækni

Upplýsingar bætast við titilinn
Gunnlaugur Th. Einarsson hefur verið ráðinn upplýsingatæknistjóri Origo. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Tölvutek hættir rekstri og lokar verslunum sínum
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu þar sem segir að lokunina megi rekja til "óviðráðanlegra ástæðna“.

Hætta sölu DVD-diska
Frá opnun hefur ELKO selt tæpar tvær milljónir DVD-diska.

Áherslan ekki á skyndikynni í íslenska appinu The One
The One er nýtt íslenskt stefnumóta app þar sem konur ráða því hvaða karlmenn fá aðgang. Makamál hitti stofnendur The One og fengu að heyra meira um appið.

Brúðkaupsljósmyndari hertogahjónanna varð fyrir barðinu á tölvuþrjótum
Ljósmyndarinn Alexi Lubomirski varð fyrir tölvuárás nú á dögunum.

Lönduðu tugmilljóna samningi við danskt sveitarfélag
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið MainManager hefur gert samning við sveitarfélagið Árósa í Danmörku.

Samruni Advania og Wise úr sögunni
Advania hefur hætt við áður tilkynnt kaup á hugbúnaðarfyrirtækinu Wise lausnum vegna afstöðu Samkeppniseftirlitsins til kaupanna. Ekkert verður af samruna fyrirtækjanna tveggja.

Tvær tölvuárásir gerðar á heimasíðu Isavia í dag
Að sögn Guðjóns Helgasonar, upplýsingafulltrúa Isavia, er tímasetningin athyglisverð en um var að ræða svokallaða ddos árás.

Fjarskiptarisar veðja á afþreyingu
Fjarskiptafyrirtæki víða um heim hafa byggt afþreyingu ofan á innviði sína til að sporna við minnkandi vægi farsímaþjónustu. Yfirvöld í Bandaríkjunum og Evrópu nálgast markaðinn með ólíkum hætti.

iTunes kveður eftir átján ára samfylgd
Apple tilkynnti á mánudag að tónlistarforritinu iTunes yrði skipt út fyrir þrjú ný forrit.


Skáldað viðtal við Ólaf Jóhann leppur fyrir netsvindl
Óþekktir svikahrappar höfðu hundruð þúsunda króna af íslenskri konu, sem féll fyrir gerviútgáfu af íslenskri fréttasíðu.

Hollywood nýtir gervigreindina við leikaravalið
Bandarískir kvikmyndaframleiðendur í Hollywood nýtast nú í auknum mæli við gervigreind til þess að ákveða hvaða leikara skal fá í hvaða hlutverk.

Apple virðist vera að hanna samlokusíma
Apple hefur að undanförnu fengið fjölda einkaleyfa sem greinilega eru hugsuð fyrir samlokusíma.

Game Pass kemur á Windows
Microsoft tilkynnti í gær um að Xbox Game Pass, áskriftarþjónusta fyrirtækisins fyrir tölvuleiki, sé væntanlegt á Windows-tölvur.

Megn andstaða við hugmynd bresku leyniþjónustunnar
Google, Microsoft, rannsakendur og ýmis samtök standa saman gegn hugmynd um hulinn aðgang lögreglu og öryggisstofnana að dulkóðuðum samskiptum. Hugmyndin sögð geta reynst vopn fyrir ofbeldismenn.

Tæknirisinn Huawei fær að koma inn úr kuldanum
Þrjú stór samtök í tæknigeiranum sem skáru á tengsl við kínverska tæknifyrirtækið Huawei fyrr í mánuðinum hafa skipt um skoðun.

Facebook tekur falsað myndband af Pelosi ekki úr umferð og telur að notendur verði sjálfir að ákveða hverju þeir trúi
Kallað hefur verið eftir því að Facebook sýni ábyrgð og taki ekki þátt í því að dreifa fölsuðu myndbandi um einn valdamesta stjórnmálamann Bandaríkjanna.

Svört staða Huawei en ekki ómöguleg
Kínverski tæknirisinn getur ekki lengur stundað viðskipti við afar mikilvæga samstarfsaðila vegna banns Bandaríkjaforseta. Missir Android-stýrikerfið og mikilvæga örflöguhönnun. Forstjóri Huawei í Svíþjóð kveðst vongóður um að deilan verði leyst.

Vilja gera kynfræðslu notendavænni og aðgengilegri með nýju appi
Let‘s Talk About Sex heitir nýtt kynfræðsluvefapp sem fjórir nýútskrifaðir nemendur úr vefþróun frá Vefskólanum hönnuðu, forrituðu og settu á laggirnar sem lokaverkefni sitt við skólann.

Nýsköpun er drifkraftur sjálfbærra lausna
Við sem hér búum lifum við þau forréttindi að vera í nálægð ríkra náttúruauðlynda líkt og jarðvarma, hreinna vatnsbóla, gjöfulla fiskimiða og stórbrotinnar náttúru sem laðar til okkar ferðamenn.

Úrslitaleikirnir í ofurháskerpu á Stöð 2 Sport UHD
Úrslitaleikir Meistaradeildar Evrópu og Evrópudeildar UEFA verða sýndir í ofurháskerpu á nýrri rás, Stöð 2 Sport UHD.

Blóði drifnar blekkingar þeirrar sem sögð var næsti Steve Jobs
Saga Elizabeth Holmes er um margt ótrúleg. 19 ára stofnaði hún fyrirtæki sem metið var á níu milljarða dollara árið 2014 en í dag er hún alræmd í frumkvöðla- og tæknigeiranum enda sætir hún ákæru fyrir fjársvik.

Stelpur enn feimnari við tækni en strákar
Hátt í þúsund stelpur í 9. bekk heimsóttu Háskólann í Reykjavík og tæknifyrirtæki á viðburðinum Stelpur og tækni í gær. Þrjár stelpur úr Dalskóla settu saman tölvu.

Skjátími er ekki bara skjátími
Mikil umræða hefur átt sér stað undanfarið um notkun barna á skjátækjum.

Síminn vísar ásökunum um sérhagsmunagæslu á bug
Forsvarsmenn Símans vísa á bug ásökunum um að tillaga fjarskiptafélagsins til að útvíkka lagafrumvarp um uppbyggingu háhraða fjarskiptaneta – þannig að opinberum fyrirtækjum verði skylt að veita fjarskiptafélögum aðgang að svörtum ljósleiðara – sé í þeim eina tilgangi að bæta hag félagsins á kostnað annarra.

Snjallsímar í frjálsu falli
Þannig hafa Sundar Pichai, forstjóri Google, og greiningarfyrirtækið Canalys lýst stöðu snjallsímamarkaðarins nýverið.

Tvær kynslóðir af kulnun kveiktu á perunni
Persónuleg reynsla og sívaxandi vandi eru meðal ástæðna þess að hópur HR-inga hefur ákveðið að tefla fram nýstárlegri lausn við kulnun.

Hóta hefndum vegna Huawei-banns
Bandaríkjaforseti mun setja bann við viðskiptum við kínverska tæknirisann Huawei með nýrri forsetatilskipun. Utanríkisráðuneyti Kína kveðst undirbúa gagnaðgerðir.

Bandaríkjastjórn vildi ekki taka þátt í átaki gegn öfgahyggju
Ríkisstjórn Trump forseta vildi ekki taka þátt í átaki gegn hatri og öfgum á netinu undir forystu Nýja-Sjálands og Frakklands vegna tjáningarfrelsissjónarmiða.