
Sony

Hægja á framleiðslu PS5 vegna skorts
Forsvarsmenn Sony hafa neyðst til að taka þá ákvörðun að hægja á framleiðslu PlaystStation 5 leikjatölvunnar. Það er vegna heimslægs skorts á hálfleiðurum og vandræða við flutninga.

Vampírur bætast við söguheim Marvel
Sony birti í dag nýja stiklu kvikmyndarinnar Morbius. Hún fjallar um lækni sem glímir við alvarleg veikindi og stendur í umfangsmikilli leit að lækningu. Sú leit endar í stuttu máli á því að Dr. Michael Morbius verður að vampíru.

Sony birtir fyrstu stiklu Uncharted
Sony birti í dag fyrstu stiklu kvikmyndarinnar Uncharted með þeim Tom Holland, Mark Wahlberg, Titu Gabrielle og Antonio Banderas í aðalhlutverkum. Myndin byggir á og ber sama nafn og hin gífurlega vinsæla tölvuleikjasería eftir Naughty Dog.

Allt það helsta sem Sony sýndi í gær
Sony hélt PlayStation kynningu í gær þar sem fjölmargir leikir sem verið er að framleiða voru kynntir og opinberaðir. Viðburðurinn kallast PlayStation Showcase 2021 og þar voru kynntir nýir leikir og þó nokkrar endurgerðir.

Methagnaður hjá Sony
Sony hagnaðist um 2,57 milljarða dala á síðasta ársfjórðungi sem er aukning um 26 prósent milli ára og hæsti hagnaður fyrirtækisins á þessum ársfjórðungi. Velgengni fyrirtækisins er að miklu leyti rakin til faralds nýju kórónuveirunnar og útgáfu PlayStation 5 leikjatölvanna.

Sony greiddi milljónir í sekt vegna hegðunar Quarashi í Tókýó
„Ég hef verið í tónlist frá því ég var ellefu ára og gerði lag fyrir kvikmyndina Veggfóður þegar ég var fjórtán ára,“ segir Steinar Fjeldsted, sem margir þekkja best sem Steina úr Quarashi. Hann fékk tónlistaráhugann snemma og byrjaði níu ára að hlusta á rapp.

Sony sýndi langt sýnishorn af ævintýrum Aloy
Framleiðendur tveggja væntanlegra tölvuleikja sýndu í gær ítarleg sýnishorn af leikjum þeirra. Sony og Guerrilla Games sýndu í gær langt myndband af spilun leiksins Horizon Forbidden West og þá sýndi Techland sömuleiðis myndband af leiknum Dying Light 2.

Búast ekki við að anna eftirspurn út 2022
Forsvarsmenn Sony vöruðu nýverið hóp greinenda við því að fyrirtækið myndi ekki anna eftirspurn eftir PlayStation 5 út árið 2022. Vandræðin má bæði rekja til mikillar eftirspurnar og skorts, meðal annars á hálfleiðurum.

Eyddi hundrað klukkustundum í að smíða stærstu Playstation 5 tölvu heims
YouTube-stjarnan ZHC gerði sér lítið fyrir og smíðaði stærstu Playstation 5 tölvu heims. Tölvan var á endanum þriggja metra há og 227 kíló.

Eydís Evensen fyrsti listamaður Sony merkisins XXIM Records og gefur út lag og myndband
Tónskáldið Eydís Helena Evensen gaf út lagið Brotin á miðnætti og samhliða því sendi hún frá sér sitt fyrsta tónlistarmyndband. Smáskífan Brotin er fyrsta útgefna efnið frá nýstofnuðu útgáfufyrirtæki undir tónlistarrisanum Sony, sem kallast XXIM Records.

Braskarar komust yfir þúsundir PS5-tölva
Einhverjir braskarar komust yfir tugi tækja, sem þeir reyndu svo að selja strax aftur. Mikil eftirspurn er eftir tækjunum.

Fyrstu PS5 tölvurnar afhentar á miðnætti í gær
Vodafone hóf á miðnætti afhendingar á PlayStation 5 tölvum til viðskiptavina sinna en vélin seldist upp á örfáum klukkustundum þegar forsala hófst þann 17. september síðastliðinn.

Playstation 5: Stórt stökk fram á við í grafík og hraða
Það er langt síðan mér hefur liðið jafn mikið eins og krakka aftur

Nýjar fjarstýringar PS5 opna ýmsa möguleika
Hverri Playstation 5 leikjatölvu fylgir lítill leikur um vélmennið Astro og leikherbergi hans. Astro's Playroom. Þeim leikr er ætlað að kynna notendum möguleika nýju fjarstýringa leikjatövunnar, DualSense.

Allt sem Sony kynnti varðandi PS5 í gær
Sony opinberaði nýja leiki fyrir Playstation 5 í gær, auk þess sem fyrirtækið staðfesti að sala leikjatölvunnar hefst þann 12. nóvember í nokkrum ríkjum en þann 19. hér á landi.

Bein útsending: Sony kynnir PS5 leiki
Sony heldur í kvöld kynningu varðandi nýjustu leikjatölvu fyrirtækisins, Playstation 5. Vonir eru bundnar við að fyrirtækið muni gefa út hvenær tölvurnar munu sjást í hillum verslana og hvað þær muni kosta.

Draga úr framleiðslu PS5 vegna vandræða
Forsvarsmenn fyrirtækisins Sony er sagðir hafa neyðst til þess að draga úr framleiðslu Playstation 5 leikjatölvunnar vegna framleiðsluörðugleika.

Fyrstu viðbrögðin við Playstation 5
Fyrir viku birti Sony útlit nýrrar leikjatölvu, PlayStation 5, sem verður komin á markað síðla þessa árs.

Allar helstu stiklur PS5 kynningarinnar
Sony kynnti í gær nýja leikjatölvu fyrirtækisins, PlayStation 5, sem kemur á markað seinna á þessu ári. Þar að auki kynnti fyrirtækið fjölda leikja sem verða gefnir út fyrir leikjatölvuna og þar af margir sem verða eingöngu gefnir út fyrir PS5.

Glefsur úr Gran Turismo 7 sáust í kynningu á Playstation 5
Tíðindin eru líkleg til að gleðja margt bílaáhugafólk og sérstaklega bílaáhugafólk sem spilar tölvuleiki. Gran Turismo 7 er væntanlegur.

PlayStation 5 kemur á markað í ár
Sony birti í dag útlit nýrrar leikjatölvu, PlayStation 5, sem verður komin á markað síðla þessa árs. Útlit tölvunnar var afhjúpað í kynningu sem Sony streymdi í beinni útsendingu þar sem nýir leikir voru kynntir sem gerðir eru sérstaklega fyrir tölvuna.

Sony lætur R. Kelly gossa
Fyrirtækið vill hafa lágt um ákvörðunina og ætlar ekki að senda frá sér sérstaka yfirlýsingu vegna málsins.