Ástin á götunni

Ekki verra að kveðja Kötu með sigri
Freyr Alexandersson, nýráðinn þjálfari kvennalandsliðsins, valdi Katrínu Jónsdóttur í fyrsta landsliðshópinn sinn sem var tilkynntur í dag en það bjuggust kannski flestir við því að Kata væri búin að spila sinn síðasta landsleik.

Freyr vill hafa sína leikmenn fríska - bara ein æfing á dag
Freyr Alexandersson, nýráðinn þjálfari kvennalandsliðsins, tilkynnti í dag sinn fyrsta landsliðshóp en hann á blaðamannafundinum lagði hann mikla áherslu á það að stelpurnar muni ekki æfa oftar en einu sinni á dag.

Þjálfarateymi Freys tilbúið - Elísabet er nýr njósnari liðsins
Freyr Alexandersson, nýráðinn þjálfari kvennalandsliðsins, er búinn að setja saman teymið sitt sem mun vera með honum í verkefnum kvennalandsliðsins. Heimir Hallgrímsson mun verða aðstoðarþjálfari hans í fyrsta leik og sú eina sem heldur "sæti" sínu frá þjálfarateymi Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar er liðstjórinn Margrét Ákadóttir.

Katrín verður með gegn Sviss - sex Stjörnustelpur í landsliðinu
Freyr Alexandersson, nýráðinn þjálfari kvennalandsliðsins, tilkynnti í dag sinn fyrsta hóp en Freyr valdi þá 21 leikmann sem munu taka þátt í fyrsta leik liðsins í undankeppni HM 2015.

Enes hættir með Aftureldingu
Enes Cogic hættir sem aðalþjálfari Aftureldingar og mun hann hætta með liðið að tímabilinu loknu.

Framkvæmdarstjóri Leiknis hvetur Völsung til að gefa lokaleikinn
Ótrúleg staða er kominn upp í 1. deild karla í knattspyrnu og spennan í toppbaráttunni er með ólíkindum.

Myndasyrpa frá sigri Fjölnis á Selfossi
Fjölnir vann gríðarlega mikilvægan 3-0 sigur á Selfossi í 21. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í dag.

Stjarnan/Skínandi Íslandsmeistari eftir grannaslag | Myndir
Sameiginlegt lið Stjörnunnar og Skínanda varð í dag Íslandsmeistari í 2. flokki karla í knattspyrnu eftir 4-2 sigur á sameiginlegu liði Breiðabliks og Augnabliks.

HK upp í 1. deild | Grannar berjast um 2. sætið
HK úr Kópavogi tryggði sér í dag sæti í næstefstu deild karla í knattspyrnu eftir 4-1 sigur á Aftureldingu í Fagralundi.

Ísland í 53. sæti heimslistans | Upp um sautján sæti
Íslenska í knattspyrnu fer upp um sautján sæti á heimslista FIFA sem gefinn var út í morgun. Liðið er nú í 53. sæti listans en var síðast í 70. sæti í ágúst á þessu ári.

Aron Einar: Ég var kominn með svima á tímabili
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, fór fyrir íslenska liðinu í 2-1 sigri á Albönum á Laugardalsvellinum í kvöld en með þessum sigri komst liðið upp í annað sætið í riðlinum.

Hannes: Þvílík hamingja þegar hann flautaði leikinn af
Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins, var kátur eftir 2-1 sigur á Albaníu á Laugardalsvellinum í kvöld en þessi þrjú stig skila íslenska liðinu upp í annað sætið í undankeppni HM í Brasilíu.

Gylfi: Við vorum miklu betri
Gylfi Þór Sigurðsson átti frábæran leik á miðju íslenska liðsins í kvöld í 2-1 sigri á Albönum í undankeppni HM. Hann var líka sáttur í leikslok.

Nýtt gervigras lagt í Fífunni
Undanfarnar vikur hafa iðnaðarmenn unnið hörðum höndum að því að koma nýju gervigrasi á knattspyrnuvöllinn í Fífunni sem staðsettur er innandyra á æfingasvæði Breiðabliks.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Ísland U-21 - Kasakstan U-21 2-0
Íslenska ungmennalandsliðið er sem fyrr á sigurbraut en liðið vann sinn fjórða leik í röð í undankeppni EM í dag. Þá skelltu strákarnir liði Kasakstan.

Kominn tími á tvö góð úrslit í röð
Það hafa svo sannarlega skipst á skin og skúrir hjá íslenska karlalandsliðinu í fótbolta í undankeppni HM í fótbolta. Strákarnir þurfa að brjóta hefðina til þess að halda HM-draumnum á lífi annað kvöld.

Utan vallar: Mætum og styðjum
Flestir muna væntanlega hvar þeir voru föstudagskvöldið 6. september. Þeir sömu munu muna það eftir fimm ár, tíu ár og líklega allt þar til þeir yfirgefa þennan heim.

Eiður Smári: Það magnaðasta sem ég hef upplifað með landsliðinu
Eiður Smári Guðjohnsen átti enn eina flotta innkomu af bekknum þegar hann spilaði seinni hálfleikinn í endurkomusigrinum í Sviss.

Alfreð: Ég var ekkert meiddur þegar ég spretti á móti honum
"Ég reyni mitt besta til að vera klár því þetta er gríðarlega mikilvægur leikur og ég vil fá að vera hluti af þessu. Ég ætla samt ekki að taka neina heimskulega sjensa,“ sagði Alfreð Finnbogason í gær en hann var ekki með íslenska liðinu í 4-4 jafntefli á móti Sviss.

Jóhann Berg nýtti sér hægri kantinn eins og Arjen Robben
Frammistaða Jóhanns Berg Guðmundssonar á móti Sviss var svo sannarlega á milli tannanna á fólki um helgina enda engin venjuleg þrenna á ferðinni – þrjú stórglæsileg mörk á útivelli á móti einu sterkasta landsliði Evrópu í dag.

Annar af tveimur eftirminnilegustu leikjum Lagerbäck
Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, var spurður út í það á blaðamannafundi í gær hvort að endurkoman á móti Sviss væri sú eftirminnilegasta á þjálfaraferlinum.

Heimir: Við viljum fylla Laugardalsvöllinn
Heimir Hallgrímsson, aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins, fór yfir lið Albaníu á fundi með íslenskum blaðamönnum í dag en íslenska karlalandsliðið mætir Albönum í undankeppni HM í Brasilíu á þriðjudaginn kemur.

Gylfi hefur komið að helmingi marka íslenska liðsins
Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp tvö marka Jóhanns Berg Guðmundssonar í 4-4 jafnteflinu á móti Sviss á föstudagskvöldið. Gylfi hefur nú komið með beinum hætti að sex af tólf mörkum íslenska liðins í undankeppni HM.

Einkunnagjöf íslensku strákanna í leiknum á móti Sviss í Bern í gærkvöldi
Íslenska landsliðið í knattspyrnu náði ótrúlegu jafntefli í Bern í gær eftir að hafa lent 1-4 undir í leiknum. Strákarnir sýndu mikinn karakter og skoruðu þrjú mörk á síðustu 34 mínútum leiksins. Jóhann Berg Guðmundsson var besti maður í íslenska liðsins en ekki sá eini til að fá 9 í einkunn.

Alfreð á bekknum á móti Sviss - Gylfi fyrir aftan Kolbein
Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur tilkynnt byrjunarliðið sitt, fyrir leikinn á móti Sviss í Bern í kvöld en liðið er komið inn á heimsíðu KSÍ.

Flottur sigur 19 ára liðsins á Skotum
Drengjalandslið Íslands skipað leikmönnum 19 ára og yngri vann öruggan 3-0 sigur á Skotum í æfingaleik ytra í morgun.

Fylkir og ÍA upp í Pepsi-deild kvenna
Fylkir og ÍA eru komin upp í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu eftir leiki kvöldsins í umspili um laus sæti í deildinni.

Auðvitað koma upp öðruvísi mál hjá stelpunum
Freyr Alexandersson var í gær ráðinn landsliðsþjálfari kvenna til tveggja ára. Hann tekur við liðinu af Sigurði Ragnari Eyjólfssyni sem náði mögnuðum árangri með liðið. Freyr segir að það sé lítill munur á því að þjálfa stráka og stelpur en hann þjálfar karlallið Leiknis í 1. deild karla.

Óbreytt landslið gegn Kasökum
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn sem mætir Kasakstan 10. september í undankeppni EM 2015 á Kópavogsvelli.

Freyr tekur við kvennalandsliðinu
Freyr Alexandersson hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi karlalandsins í dag.