
Ástin á götunni

Kolbeinn bætti met Eiðs Smára um tvö ár og fimm mánuði
Kolbeinn Sigþórsson varð í gær áttundi leikmaðurinn sem nær því að skora tólf mörk fyrir íslenska A-landsliðið en hann skoraði fyrra mark Íslands í 2-0 sigri á Kýpur í leik þjóðanna í undankeppni HM 2014.

Fannar varði tíu skot en það dugði ekki gegn Belgum
Íslenska 19 ára landsliðið tapaði 0-2 á móti Belgíu í undankeppni EM en riðill íslenska landsliðsins fer einmitt fram í Belgíu. Íslenska liðið hefur þar með aðeins eitt stig eftir tvio fyrstu leiki sína en Belgarnir eru komnir áfram þegar einn leikur er eftir.

Tíu ár síðan Ísland vann tvo leiki í röð í undankeppni
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta vann í gær sinn annan leik í röð í undankeppni HM 2014 þegar íslensku strákarnir unnu sannfærandi 2-0 sigur á Kýpur á Laugardalsvellinum.

Sækjum til sigurs í Osló
Landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck fagnaði góðum úrslitum í gærkvöldi þótt frammistaðan hafi oft verið betri. Enginn fékk gult spjald svo allir ættu að vera klárir í slaginn í stærsta leik karlaliðsins frá upphafi í Osló.

Enn í okkar höndum
Eftir mikla þolinmæðisvinnu strákanna okkar lönduðu þeir 2-0 sigri gegn Kýpur á Laugardalsvelli í gær. Eurovision-umræða og tilheyrandi pressa hafði lítil áhrif.

Bendtner kláraði næstum því Ítala á Parken
Nicklas Bendtner snéri aftur í danska landsliðið og skoraði bæði mörk liðsins í 2-2 jafntefli á móti Ítölum á Parken í undankeppni HM 2014 í í kvöld. Sigur hefði komið Dönum upp í annað sæti riðilsins en Ítalir höfðu þegar tryggt sér efsta sætið og farseðil til Brasilíu næsta sumar.

Belgar komnir á HM - Lukaku með bæði mörkin
Belgía tryggði sér farseðilinn á HM í Brasilíu með því að vinna 2-1 útisigur á Króatíu í kvöld í uppgjöri tveggja efstu liðanna í A-riðli. Belgum nægði bara jafntefli en hafa nú átta stiga forskot á Króatíu þegar aðeins einn leikur er eftir.

Eiður Smári byrjar, Alfreð á bekknum - óbreytt byrjunarlið
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu, teflir fram sama byrjunarliði á móti Kýpur í kvöld og í sigurleiknum á móti Albaníu á dögunum.

Hver á að skora fyrir Norðmenn?
Norðmenn gera sér enn vonir um að ná 2. sætinu í E-riðli undankeppni HM. Það gera þeir vinni þeir báða leikina sem þeir eiga eftir. Norðmenn eru í fjórða sæti í E-riðlinum þegar tvær umferðir eru eftir, stigi á eftir Slóvenum og tveimur stigum á eftir Íslendingum.

Jafntefli í Slóveníu í kvöld eru bestu úrslitin fyrir Ísland
Næstsíðasta umferðin í riðli Íslands í undankeppni HM í Brasilíu 2014 fer fram í kvöld og eru öll sex liðin í riðli Íslands í eldlínunni.

Gunnlaugur mun ræða við Garðar um framtíð hans hjá ÍA
Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrr í þessum mánuði mun framtíð framherjans Garðars Bergmanns Gunnlaugssonar vera í óvissu eftir að knattspyrnudeild ÍA sagðist ekki hafa áhuga á að nýta hans krafta í framtíðinni.

Svona er staðan í Evrópuhluta undankeppni HM 2014
Ísland er ekki eina þjóðin sem er að berjast fyrir farseðli á HM í Brasilíu í kvöld því mikil spenna er í flestum riðlum í Evrópuhluta undankeppni HM 2014. Íslensku strákarnir mæta Kýpur á Laugardalsvellinum klukkan 18.45 og stíga skref í átt að sumarferð til Brasilíu með sigri.

Ekkert hatur á Laugardalsvellinum á morgun
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir á morgun Kýpur í undankeppni HM fyrir framan troðfullan Laugardalsvöll en það seldist upp á leikinn fyrir löngu. Íslenska liðið getur stigið skref í átt að því að komast á HM í Brasilíu með sigri.

Mögnuð endurkoma gegn Frökkum
Íslenska 19 ára landsliðið í fótbolta náði í stig á móti Frökkum í fyrsta leik sínum í undankeppni EM í dag þrátt fyrir að vera 0-2 undir þegar aðeins átta mínútur voru eftir af leiknum. Strákarnir skoruðu tvö mörk á lokamínútunum og tryggðu sér 2-2 jafntefli.

Gylfi verður að halda sig í treyjunni
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari íslenska landsliðsins, hélt blaðamannafund í dag fyrir leik Íslands og Kýpur sem fer fram á Laugardalsvellinum á morgun og þar kom hann inn á gulu spjöldin og hættu leikmanna liðsins að fara í bann í lokaleiknum út í Noregi.

Heimir: Mætið í bláu og búið til stemmningu
Heimir Halgrímsson og Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari íslenska landsliðsins, héldu saman blaðamannafund í dag fyrir leik Íslands og Kýpur sem fer fram á Laugardalsvellinum á morgun.

Ólafur Ingi úr leik gegn Kýpur
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu verður án krafta Ólafs Inga Skúlasonar í leiknum gegn Kýpur á morgun

Lagerbäck hrósaði Eiði Smára fyrir varnarleikinn
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari íslenska landsliðsins, hélt blaðamannafund í kvöld fyrir leik Íslands og Kýpur sem fer fram á Laugardalsvellinum á morgun.

Skagamenn hafa miklar væntingar til Gunnlaugs
Gunnlaugur Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari ÍA og mun hann taka strax við liðinu. ÍA féll í sumar úr Pepsi-deildinni og verður það verkefni Gunnlaugs að koma liðinu aftur upp í hóp þeirra bestu.

Gunnlaugur Jónsson að taka við ÍA
Gunnlaugur Jónsson verður ráðinn þjálfari ÍA síðar í dag en hefur íþróttadeild 365 eftir áreiðanlegum heimildum.

Bestu þjóðirnar mætast ekki í umspilinu
Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur gefið það út að það "bestu" þjóðirnar muni ekki mætast innbyrðis í umspilinu í undankeppni HM heldur verður þjóðunum raðað í efri og neðri styrkleikaflokk fyrir dráttinn.

Ólafur Jóhannesson hættur með Hauka
Ólafur Jóhannesson hefur ákveðið að hætta sem þjálfari Hauka en þetta kemur fram á vefsíðunni Fótbolta.net.

Sigurður Ragnar bíður svars í næstu viku
Sigurður Ragnar Eyjólfsson er kominn aftur til landsins eftir viðtal hjá Knattspyrnusambandi Englands í gær.

Hulda Hrund skoraði en draumurinn úti
Stelpurnar í U17 ára landsliði Íslands luku keppni í milliriðlum Evrópumótsins í dag.

Mikilvægt að halla dyrunum aðeins
Lars Lagerbäck tilkynnti í gær 23 manna hóp Íslands fyrir leikina gegn Kýpur og Noregi í undankeppni HM 2014. Sjö lykilmenn eru á gulu spjaldi en Svíinn segir að það muni ekki hafa áhrif á liðsvalið. Leggja þarf Kýpur að velli áður en hugsað er fram í tím

Hópur U-21 klár fyrir leikinn gegn Frökkum
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn sem mætir Frökkum í undankeppni EM en leikið verður á Laugardalsvelli, mánudaginn 14. október kl. 18:30.

Aron Elís á reynslu til AGF
Aron Elís Þrándarson, leikmaður Víkings, mun á næstu dögum fara til danska félagsins AGF á reynslu en þetta kemur fram á vefsíðunni 433.is dag.

Utan vallar: Bjart fram undan þótt nú sé skýjað
Tap íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu gegn Sviss á dögunum sveið sárt af mörgum ástæðum.

Sigurður Ragnar boðaður til Englands í viðtal
"Þetta væri algjört draumastarf,“ segir Sigurður Ragnar Eyjólfsson fyrrverandi þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu.

Hulda Ósk afgreiddi Rúmeníu
Hulda Ósk Jónsdóttir var hetja íslenska 17 ára landsliðsins í fótbolta í Rúmeníu í dag þegar hún skoraði bæði mörk í 2-1 sigri á heimastúlkum. Þetta var fyrsti leikur liðsins í undankeppni EM.