
Umferð

Líta aksturinn alvarlegum augum
Eimskip líta glæfralegan framúrakstur bílstjóra á þjóðveginum alvarlegum augum. Myndband af löngum vörubíl Eimskipa í framúrakstri hefur vakið athygli og hneykslan. Rætt verður við bílstjórann í dag.

Olli stórhættu með glæfralegri framúrkeyrslu
Bílstjóri Eimskipa olli mikilli hættu á þjóðveginum við Skeiðarársand með glæfralegri framúrkeyrslu sem náðist á myndband. Stutt er síðan sambærilegt myndband náðist af flutningabíl Samskipa sem varð til þess að bílstjóranum var sagt upp störfum.

Rúta brann í Kömbunum
Eldur kviknaði í rútu sem var á leið niður Kambana skömmu eftir klukkan níu í kvöld. Töluverður reykur leggur frá rútunni sem er frá fyrirtækinu SBA Norðurleið.

Bilaður bíll og umferð hleypt í gegn til skiptis
Hvalfjarðargöngin voru lokuð í tvo og hálfan tíma í morgun vegna bilaðs bíls. Umferð er nú hleypt í gegnum göngin til skiptis.

Þolinmæði í umferðinni skipti miklu máli á degi sem þessum
Verslunarmannahelgin er nú yfirstaðin og ferðalangar keppast við að ná heim til sín. Þrátt fyrir þunga umferð að borginni hefur dagurinn gengið stórslysalaust fyrir sig og lítið hefur verið um óhöpp um helgina, samkvæmt varðstjóra hjá umferðardeild lögreglunnar.

Biluð rúta þveraði Suðurstrandarveg
Biluð rúta þveraði Suðurstrandarveg við Krýsuvíkurafleggjara og truflaði umferð um veginn á tímabili en búið er að fjarlægja rútuna.

Vonast til að geta skemmt sér eitthvað líka
Að venju leggja fjölmargir Íslendingar land undir fót þessa stærstu ferðahelgi ársins og hefur umferð í gegnum Selfoss borið þess merki. Töluverður fjöldi ökumanna fór yfir Ölfusárbrú á sjöunda tímanum í kvöld og hefur umferðin þar almennt gengið vel í dag.

Lögreglan hefur ekki yfir neinu að kvarta
Umferðin var heldur farin að þéttast út úr höfuðborginni nú síðdegis, en gengur vel að sögn Árna Friðleifssonar, aðalvarðstjóra umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Göngin opin aftur eftir óhapp
Hvalfjarðargöng voru lokuð í rúma klukkustund eftir umferðaróhapp sem varð þar á sjöunda tímanum í kvöld. Þau hafa nú verið opnuð aftur.

,,Vinkilkrókur“ við Blönduós – stytting hringvegar
Það vakti nokkra athygli mína að í nýrri samgönguáætlun sem legið hefur inn á samráðsgáttinni vef Stjórnarráðsins í sumar til kynningar að ekki er gert ráð fyrir framkvæmdum við Húnavallaleið í fyrirliggjandi áætlun til næstu 15 ára.

Bíll valt í Langadal
Lögreglan á Norðurlandi vestra lokaði þjóðvegi númer 1 um Langadal um stund í aðra áttina í kvöld vegna bílslyss. Búið er að opna veginn að nýju.

Bílvelta á Gullinbrú
Bíll valt á Gullinbrú skömmu fyrir klukkan 14 í dag. Einn hefur verið fluttur á bráðamóttöku.

Fæst dauðsföll á íslenskum vegum
Íslenska vegakerfið er það öruggasta í heimi þegar kemur að dauðsföllum. Hlutfallslega séð deyja átjánfalt fleiri árlega á vegunum í Sádi Arabíu.

Árekstur á Hafnarfjarðarvegi olli töfum
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á sautjánda tímanum í dag vegna olíuleka á Hafnarfjarðarvegi við Hamraborg í Kópavogi. Töluverðar tafir urðu á umferð til vesturs.

„Leysum við þetta ekki bara í góðu?“
Smiður skarst í leikinn á gatnamótum Túngötu og Suðurgötu í miðborg Reykjavíkur í gær í pattstöðu á milli rútubílstjóra og bílstjóra sendiferðabíls, en hvorugt vildi hleypa hinu áfram sína leið.

Einn látinn eftir umferðarslysið fyrir vestan
Einn farþegi var úrskurðaður látinn eftir alvarlegt umferðarslys á Snæfellsnesvegi norðan við Hítará í hádeginu í dag. Sex eru auk þess slasaðir.

„Lögreglan gerir ekkert til þess að framfylgja þessu“
Formaður Reiðhjólabænda, furðar sig á tvískinnungi lögreglu þegar kemur að rannsókn á umferðarbrotum þegar um bíla er að ræða annars vegar og hjól hins vegar. Sjálfsagt sé að nota myndefni þegar ofsaakstur vöruflutningabílstjóra á Vesturlandi sé rannsakaður en ekki þegar um brot gegn hjólreiðafólki sé að ræða.

Þjóðvegur eitt um Suðurland lokaður til morguns
Þjóðvegi eitt um Suðurland til vesturs hefur verið lokað til morguns vegna viðhalds.

Bílstjóri vörubíls hafi lagt fjölda fólks í hættu
Nokkur hætta var á ferðum þegar vörubílstjóri Samskipa reyndi að taka fram úr bílum á milli Borgarness og Munaðarness um klukkan fjögur í dag. Engum varð meint af en sjónarvottur gagnrýnir bílstjórann harðlega fyrir að taka slíka áhættu á þröngum vegi. Samskip segja málið litið mjög alvarlegum augum.

Þriggja bíla árekstur og Hvalfjarðargöng lokuð um tíma
Hvalfjarðargöng voru lokuð um óákveðinn tíma en þriggja bíla árekstur varð í göngunum. Þau hafa nú opnað aftur.

Árekstur við Hellu
Fólksbíll og flutningabíll skullu saman á Suðurlandsvegi við Hellu á þrettánda tímanum í dag. Veginum var lokað um stund á meðan hreinsunarstarf var unnið á vettvangi og nú er að greiðast úr töfum sem urðu vegna þesss.

Fólk megi búast við þungri umferð á Suðurlandi í dag
Aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurlandi segir líklegt að þung umferð verði í umdæminu í dag en um helgina fóru þar fram tvær stórar bæjarhátíðir, Kótelettan og Goslokahátíð. Hann mælir með því að fólk gefi sér góðan tíma.

Margra kílómetra bílaröð utan við Selfoss
Mikil umferðarteppa er núna á Suðurlandsvegi vestan við Selfoss og nær bílaröðin marga kílómetra út fyrir bæinn, að sögn lögreglu. Hvetur lögreglan á Suðurlandi ökumenn til að sýna þolinmæði og minnir fólk á að það geti einnig farið um Þrengslaveg þar sem umferðin er talsvert léttari.

„Þessi manneskja má vera mjög þakklát fyrir að hafa ekki drepið einhvern“
Kona í Vesturbænum segir það mikla lukku að ökumaður, sem ók á miklum hraða yfir á rauðu ljósi við gangbraut yfir Hringbraut, hafi ekki keyrt á dóttur hennar. Hún segir Hringbrautina dauðagildru og atvik sem þessi séu alltof algeng.

FÍB þjónustar vegaaðstoð Toyota, Lexus og BNB
Frá og með 1. júlí mun Toyota á Íslandi bjóða viðskiptavinum Toyota, Lexus og Betri notaðra Bíla vegaaðstoð í 12 mánuði.

2% ökumanna telja sig verri en meðalökumaðurinn
Júlí er umferðarþyngsti mánuðurinn á Ísland en þá leggja flestir land undir fót. Nær allar helgar eru hátíðir í bæjum og sveitum sem vel eru sóttar. Fólk fer í sumarbústaði og umferð erlendra ferðamanna er einnig mikil.

Hæg umferð í Hvalfjarðargöngum reynir á þolinmæði ökumanna
Mikil umferð hefur legið í gegnum Hvalfjarðargöngin á síðustu klukkustundum og náði löng bílaröð um tíma frá göngunum að Grundartanga.

Bjargað þar sem hún hékk á varadekki í Markarfljóti
Björgunarsveitir og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar komu konu til bjargar í Markarfljóti í morgun eftir að bíll hennar lenti í fljótinu.

Bakkaði bát niður Reykjanesbrautina
Bílstjóri flutningabíls með bát meðferðis olli töluverðum töfum á umferð á Reykjanesbrautinni í morgun. Bíllinn komst ekki undir brúna við gatnamót Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar og varð að bakka að Lindum í Kópavogi með aðstoð lögreglu.

Alvarlegt bílslys á Suðurlandsvegi
Alvarlegt bílslys varð á fimmta tímanum í dag, á Suðurlandsvegi milli Hveragerðis og Selfoss.