Fótbolti
103 104 105 106 107 108 109 110 111 … 334 ›
Lögreglan hafði afskipti af Greenwood áður en hann var handtekinn Lögreglan hafði afskipti af Mason Greenwood, framherja Manchester United, áður en hann var handtekinn og sakaður um tilraun til nauðgunar, líkamsárás og stjórnandi hegðun. Allt gegn sömu konunni. Enski boltinn 27.3.2023 23:30
Stefnir í baráttu fram á síðustu mínútu um meistaratitilinn Toppbarátta úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu hefur sjaldan ef einhvern tímann verið jafn spennandi. Þegar sex til sjö umferðir eru til loka deildarinnar eru enn fjögur lið í baráttu um titilinn. Enski boltinn 27.3.2023 22:16
Annar sigur Serba og Svíar komnir á blað Gott gengi Serbíu í undankeppninni EM 2024 í knattspyrnu heldur áfram með 2-0 útisigri á Svartfjallalandi. Þá vann Svíþjóð góðan 5-0 sigur á Aserbaísjan. Fótbolti 27.3.2023 21:31
Óvænt hetja þegar Frakkar unnu nauman sigur í Dublin Frakkland vann 1-0 útisigur á Írlandi í undankeppni EM 2024 í kvöld. Sigurmarkið var glæsilegt þó leikurinn hafi verið leiðinlegur. Fótbolti 27.3.2023 20:45
Brasilíumaðurinn Emerson þarf að fara undir hnífinn Emerson Royal, hægri bakvörður enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham Hotspur og brasilíska landsliðsins, þarf að fara í aðgerð á hné og verður frá næstu vikurnar. Enski boltinn 27.3.2023 19:01
UEFA rannsakar meinta spillingu og mútugreiðslur Barcelona Knattspyrnusamband Evrópu hefur hafið rannsókn á meintri spillingu og mútugreiðslum knattspyrnufélagsins Barcelona. Félagið hefur verið ákært fyrir að hafa greitt valdamiklum dómara andvirði 1.000 milljóna íslenskra króna til að tryggja sér hagstæða dómgæslu á 17 ára tímabili. Fótbolti 25.3.2023 14:30
Håland mættur til Barcelona í meðhöndlun til að ná stórleiknum Erling Braut Håland, stjörnuframherji Manchester City, er tæpur fyrir leik liðsins gegn Liverpool þann 1. apríl næstkomandi. Hann er mættur til Katalóníu en þangað sendir Man City leikmenn sína er þeir glíma við meiðsli. Fótbolti 25.3.2023 08:01
Belgía fór létt með Svíþjóð en Zlatan stal fyrirsögnunum Öllum leikjum kvöldsins í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu er nú lokið. Færeyjar gerðu 1-1 jafntefli við Moldóvu á útivelli á meðan Belgía vann stórsigur í Svíþjóð. Zlatan Ibrahimović kom hins vegar inn af bekknum hjá Svíum og varð það með elsti leikmaður í sögu undankeppninnar. Fótbolti 24.3.2023 22:31
Frakkland kláraði Holland á tuttugu mínútum Frakkland og Holland mættust í áhugaverðasta leik kvöldsins í undankeppni EM 2024. Bæði lið fóru langt á HM í Katar en töpuðu gegn Argentínu sem stóð uppi sem heimsmeistari. Leikur kvöldsins var aldrei spennandi en Frakkar kláruðu dæmið strax í fyrri hluta fyrri hálfleiks. Fótbolti 24.3.2023 21:45
Stig gætu verið tekin af Everton Fjárhagsstaða enska knattspyrnufélagsins Everton er einkar slæm. Talið er að félagið hafi brotið reglur úrvalsdeildarinnar um fjárhagslega háttvísi. Verði það sannað gæti farið svo að stig verði tekin af liðinu. Enski boltinn 24.3.2023 20:45
Guðrún og stöllur náðu aðeins í stig í fyrsta leik Svíþjóðarmeistarar Rosengård gerðu aðeins jafntefli við Piteå þegar nýtt tímabil sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu hófst. Guðrún Arnardóttir spilaði allan leikinn í hjarta Rosengård. Fótbolti 24.3.2023 19:26
„Þar erum við með sextán bestu liðum í Evrópu“ „Þetta er áframhaldandi undirbúningur fyrir Þjóðadeildina í haust. Þurfum að halda áfram að vinna í hlutum sem við byrjuðum á í Pintar og halda áfram að skerpa á þeim,“ sagði Þorsteinn Halldórsson, þjálfari A-landsliðs kvenna í knattspyrnu, eftir að hann tilkynnti hópinn sem verður til taks í vináttuleikjum liðsins í næsta mánuði. Fótbolti 24.3.2023 19:01
Orðrómurinn um endurkomu Birkis háværari Það gæti farið svo að Birkir Bjarnason gæti gengið aftur í raðir Viking í Noregi en hann er að reyna fá samning sínum hjá tyrkneska liðinu Adana Demirspor rift. Viking gæti verið að selja leikmann sem myndi opna pláss fyrir Birki. Fótbolti 24.3.2023 18:15
Tuchel nýr þjálfari Bayern Thomas Tuchel er nýr þjálfari Þýskalandsmeistara Bayern München. Hann skrifar undir samning til sumarsins 2025. Fótbolti 24.3.2023 17:35
Þórður Guðjóns og Siggi Jóns fengu Gullmerki ÍA Tveir af aðalmönnunum úr mögulega besta íslenska félagsliði sögunnar voru heiðraðir á síðasta aðalfundi Knattspyrnufélags ÍA. Íslenski boltinn 23.3.2023 17:01
Fótboltadómari settur í bann fyrir að nota síma í vinnunni Egypski dómarinn Mohamed Farouk fær ekki að dæma leiki á næstunni í deildinni í heimalandinu. Fótbolti 22.3.2023 16:00
Munu bjóða í Man United á nýjan leik Talið er að Sheikh Jassim Bin Hamad Al Thani muni bjóða í enska knattspyrnufélagið Manchester United í annað sinn á miðvikudaginn. Sir Jim Ratcliffe mun gera slíkt hið sama. Frá þessu er greint á vef Sky Sports. Enski boltinn 20.3.2023 22:01
Vill að Mitrović og Fernandes fái tíu leikja bann Framherjinn fyrrverandi og sparkspekingurinn Chris Sutton situr sjaldan á skoðunum sínum. Hann segir að Aleksandar Mitrović, framherji Fulham, og Bruno Fernandes, miðjumaður Manchester United, eigi að fá 10 leikja bann fyrir framkomu þeirra í garð dómara. Enski boltinn 20.3.2023 21:15
Fyrirliðinn fyrrverandi segir leikmenn Man Utd þurfa spark í afturendann Þrátt fyrir 3-1 sigur Manchester United á Fulham í 8-liða úrslitum FA-bikarkeppninnar á sunnudag segir fyrirliðinn fyrrverandi Roy Keane að leikmenn liðsins þurfi spark í afturendann. Enski boltinn 20.3.2023 10:31
Átta spor, enginn heilahristingur og Sævar Atli er klár í landsleikina Sævar Atli Magnússon þurfti að fara af velli eftir þungt höfuðhögg í 1-1 jafntefli Lyngby og AC Horsens í dönsku úrvalsdeildinni. Hann var á dögunum valinn í íslenska A-landsliðið en talið var að hann myndi missa af komandi leikjum vegna meiðslanna. Svo verður ekki. Fótbolti 20.3.2023 08:00
„Tekur menn misjafnlega langan tíma að ná taktinum sem er hérna“ Íslandsmeistarar Breiðabliks fóru á kostum í Bestu deild karla í knattspyrnu síðasta sumar. Þeir hefja titilvörn sína þann 10. apríl. Lykilleikmenn hafa horfið á braut og ljóst að liðinu bíður vandasamt verkefni ætli það sér að endurtaka leikinn. Íslenski boltinn 20.3.2023 07:30
„Vorum klárlega betra liðið“ Marco Silva, þjálfari Fulham, sagði lið sitt hafa verið betra en Manchester United þegar liðin mættust í 8-liða úrslitum FA-bikarkeppninnar í gær, sunnudag. Silva, sem og tveir leikmenn Fulham, voru sendir í sturtu þegar Fulham var 1-0 yfir í leiknum. Gekk Man United á lagið eftir það og vann 3-1 sigur. Enski boltinn 20.3.2023 07:01
Undanúrslitin klár: Man City fær B-deildarlið og Man United mætir Brighton Búið er að draga í undanúrslit FA-bikarkeppninnar á Englandi. Mancester City mætir B-deildarliði Sheffield United á meðan Brighton & Hove Albion mætir Manchester United. Enski boltinn 19.3.2023 23:00
Stelpurnar okkar mæta Nýja-Sjálandi í Tyrklandi Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mun mæta Nýja-Sjálandi í vináttuleik þann 7. apríl. Leikið verður í Tyrklandi. Fótbolti 19.3.2023 22:31
Dramatískur sigur Barcelona sem er komið með níu fingur á titilinn Barcelona tók á móti Real Madríd í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Gestirnir urðu að vinna El Clásico ætluðu þeir sér að eiga möguleika á að verja meistaratitil sinn. Allt kom fyrir ekki þar sem Börsungar skoruðu sigurmarkið í uppbótartíma, lokatölur á Nývangi 2-1 og titillinn svo gott sem mættur til Katalóníu. Fótbolti 19.3.2023 19:30
Juventus heldur í vonina um Meistaradeildarsæti Þrátt fyrir að fimmtán stig hafi verið tekin af liðinu þá heldur Juventus enn í vonina um Meistaradeildarsæti að leiktíðinni lokinni. Liðið vann gríðarlega mikilvægan 1-0 útisigur á Inter Milan í kvöld. Fótbolti 19.3.2023 19:16
Lazio vann slaginn um Róm Lazio hafði betur gegn Roma í slagnum um Rómarborg í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Lokatölur í leik dagsins 1-0 Lazio í vil. Fótbolti 19.3.2023 19:06
Sjáðu mörkin: Ótrúlegur viðsnúningur Man United sem er komið í undanúrslit Manchester United er komið í undanúrslit FA-bikarkeppninnar eftir ótrúlegan 3-1 sigur á Fulham þar sem gestirnir frá Lundúnum fengu að líta þrjú rauð spjöld á aðeins nokkrum sekúndum er Man United sneri leiknum sér í hag. Enski boltinn 19.3.2023 16:01
PSG tapaði óvænt á heimavelli Frakklandsmeistarar París Saint-Germain töpuðu óvænt 0-2 á heimavelli fyrir Rennes í frönsku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 19.3.2023 18:16
Brighton þægilega í undanúrslitin Brighton & Hove Albion er komið í undanúrslit FA-bikarkeppninnar á Englandi eftir 5-0 sigur á D-deildarliði Grimsby Town í dag. Enski boltinn 19.3.2023 16:46