
Besta deild karla

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur Ó. - Valur 0-1 | Bikarmeistararnir áfram eftir skallatennis í Ólafsvík
Valur varð síðasta liðið til að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Borgunarbikars karla með 0-1 útisigri á Víkingi Ó. í kvöld.

Fjölnismenn lentu í basli á Grenivík
Fjölnir þurfti að hafa mikið fyrir því að vinna Magna á Grenivíkurvelli í 32-liða úrslitum Borgunarbikars karla í kvöld. Lokatölur 1-2, Fjölnismönnum í vil.

Auðvelt hjá FH-ingum
FH átti greiða leið í 16-liða úrslit Borgunarbikars karla en í kvöld tóku Íslandsmeistararnir á móti Sindra og unnu 6-1 sigur.

Schiötharar brutu silfurskeiðina og ætla að brjóta fleiri
Schiötharar, stuðningsmannasveit KA-manna, í fótboltanum hafa eins og lið þeirra sett mikinn svip á fyrstu umferðir Pepsi-deildar karla í fótbolta.

Formaður knd. Breiðabliks: Kannski mistök að vera ekki tilbúin með nýjan þjálfara
Ólafur Hrafn Ólafsson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, segir menn í Kópavogi ætla að taka sér tíma að finna nýjan þjálfara.

Garðar stakk upp í Hjörvar
Framherja ÍA, Garðari Gunnlaugssyni, leiddist ekki að svara gagnrýni Hjörvars Hafliðasonar í Pepsimörkunum. Það gerði Garðar inn á vellinum í gær og svo á Twitter.

Skagamenn komnir áfram eftir ótrúlegan endasprett | Öll úrslit kvöldsins
Garðar Gunnlaugsson skoraði þrennu þegar ÍA vann ævintýralegan sigur á Fram, 4-3, í 32-liða úrslitum Borgunarbikars karla í kvöld.

ÍR-ingar gerðu góða ferð norður og slógu KA-menn úr leik
ÍR, sem er í næstneðsta sæti Inkasso-deildarinnar, gerði sér lítið fyrir og sló KA úr leik í 32-liða úrslitum Borgunarbikars karla í kvöld. Lokatölur 1-3, ÍR í vil.

Hlíðarendapiltar héldu í við Eyjamenn í klukkutíma
Hinn 18 ára Breki Ómarsson skoraði tvívegis þegar ÍBV vann 4-1 sigur á KH í 32-liða úrslitum Borgunarbikars karla á Hásteinsvelli í kvöld.

Dönsku KR-ingarnir sáu um Leiknismenn
KR er komið áfram í 16-liða úrslit Borgunarbikars karla eftir 1-4 sigur á Leikni F. fyrir austan í kvöld.

Stjörnuliðin hafa skorað mest í Pepsi-deildunum í sumar
Aðeins tvö lið hafa náð að komast yfir tíu marka múrinn í fyrstu leikjum Pepsi-deilda karla og kvenna og þau hafa bæði aðsetur á Samsung vellinum í Garðabænum.

Þórsarar úr leik eftir tap fyrir Ægismönnum
Matraðarbyrjun Þórsara á tímabilinu heldur áfram en í kvöld féll liðið úr leik fyrir 3. deildarliði Ægis á heimavelli í 32-liða úrslitum Borgunarbikars karla.

Hjörvar: Að reka Arnar eftir tvo leiki hefur ekkert með fótbolta að gera
Málefni Arnars Grétarssonar voru eðlilega rædd í Pepsimörkunum í gær en Arnar var rekinn frá Blikunum eftir aðeins tvo leiki.

Óskar Hrafn: Má koma fjórum Hummerum fyrir á milli miðju og varnar hjá ÍA
Tímabilið hefur ekki farið vel af stað hjá Skagamönnum sem eru án stiga eftir þrjá leiki.

Devon Már brotnaði í samstuðinu við Castillion
Eyjamaðurinn verður ekki meira með liði ÍBV þetta tímabilið.

Uppbótartíminn: Þrjú lið með jafnmörg stig á toppnum | Myndbönd
Vísir gerir upp þriðju umferð Pepsi-deildar karla í máli og myndum.

Eiður Aron orðinn leikmaður Vals
Varnarmaðurinn Eiður Aron Sigurbjörnsson er búinn að fá leikheimild frá KSÍ og því orðinn leikmaður Vals.

Heimir: Ellefu einstaklingar inn á vellinum í fyrri hálfleik
Heimir Guðjónsson. þjálfari FH, var ekki ánægður með frammistöðu síns liðs í fyrri hálfleik í leik Vals og FH í Pepsi-deild karla í fótbolta á Hlíðarenda í kvöld

Umfjöllun, einkunnir og viðtöl: Valur - FH 1-1 | Jafntefli í kaflaskiptum leik
Valur og FH gerðu 1-1 jafntefli í lokaleik 3. umferðar Pepsi-deildar karla í kvöld.

Atli aftur í Vesturbæinn
Atli Sigurjónsson er genginn í raðir KR á nýjan leik.

Víkingar búnir að semja við serbneskan framherja
Víkingur R. hefur samið við serbneska framherjann Ivica Jovanovic um að leika með liðinu í Pepsi-deild karla í sumar. Jovanovic getur einnig spilað á kantinum.

Formaður dómaranefndar: Almarr mun fara í bann
Ansi sérstök mistök áttu sér stað á Akureyrarvelli í gær þar sem dómari leiks KA og Fjölnis gleymdi að gefa leikmanni KA rautt spjald er hann fékk sitt annað gula spjald í leiknum.

Sigurður áfram með Breiðablik
Mun stýra liði Blika næstu tvo leiki hið minnsta.

Andri Rafn: Mikil vonbrigði að fá ekkert úr þessum leik
Miðjumaður Blika var vonsvikinn í viðtölum eftir 1-3 tap gegn Stjörnunni í kvöld en Blikar eru stigalausir eftir þrjár umferðir og sitja ásamt ÍA á botni deildarinnar.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - Stjarnan 1-3 | Fyrsti sigur Stjörnunnar í Kópavogi í 23 ár
Stjarnan komst upp á topp Pepsi-deildar karla eftir 1-3 sigur á Breiðabliki á Kópavogsvelli í kvöld. Þetta var fyrsti sigur Garðbæinga í Kópavogi síðan 1994.

Almarr fékk tvö gul en ekki rautt
Furðulegt atvik kom upp í leik KA og Fjölnis í 3. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld.

Milos: Erum að fá kantmann/framherja
Milos Milojevic, þjálfari Víkings, var svekktur með tapið fyrir ÍBV en sáttur með frammistöðuna.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍBV - Víkingur R. 1-0 | Eyjamenn komnir á sigurbraut | Sjáðu markið
Alvaro Montejo skoraði sigurmarkið fyrir ÍBV í rokleik í Vestmannaeyjum.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - ÍA 2-1 | Annar 2-1 sigur KR í röð | Sjáðu mörkin
KR vann sinn annan sigur í röð í Pepsi-deild karla þegar liðið bar sigurorð af ÍA, 2-1, á Alvogen-vellinum í dag.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KA - Fjölnir 2-0 | Frábær byrjun KA heldur áfram
KA er í öðru sæti Pepsi-deildar karla með sjö stig eftir þrjár umferðir en liðið lagði Fjölni að velli í dag.