UMF Njarðvík

Uppgjör og viðtöl: Valur - Njarðvík 67-82 | Íslandsmeistararnir í sumarfrí
Njarðvík er komið í undanúrslit Subway-deildar kvenna í körfubolta eftir þægilegan sigur á Val á Hlíðarenda. Tapið þýðir að Íslandsmeistarar Vals eru komnir í sumarfrí. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 107-110 | Þórsarar sigri frá undanúrslitum
Þór Þorlákshöfn er komið 2-1 yfir í einvígi sínu við Njarðvík í 8-liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta eftir magnaðan sigur í framlengdum leik í Ljónagryfjunni.

„Erum að spila á móti ríkjandi Íslandsmeisturum og þurfum að vera klárar“
Njarðvík kjöldróg Valsliðið í Ljónagryfjunni í kvöld 92-59 þegar liðin mættust í þriðja leik í 8-liða úrslitum Subway deildar kvenna í körfubolta.

„Náðum að keyra upp hraðann á réttum mómentum“
Njarðvík kjöldróg Valsliðið í Ljónagryfjunni í kvöld 92-59 þegar liðin mættust í þriðja leik í 8-liða úrslitum Subway deildar kvenna í körfubolta.

Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Valur 92-59 | Einstefna og grænar einum sigri frá undanúrslitum
Njarðvík vann Val með fádæma yfirburðum í þriðja leik liðanna í 8-liða úrslitum Subway-deildar kvenna í körfubolta. Staðan í einvíginu 2-1 Njarðvík í vil og þarf liðið aðeins einn sigur til að tryggja sér sæti í undanúrslitum.

Sjáðu magnaðan hetjuþrist Tómasar í Þorlákshöfn
Tómas Valur Þrastarson svo gott sem tryggði Þór Þorlákshöfn sigur gegn Njarðvík í gærkvöld með sannkölluðum hetjuþristi á ögurstundu, í 8-liða úrslitum Subway-deildarinnar í körfubolta.

„Menn þorðu ekki að taka af skarið“
Benedikt Guðmundsson var sáttur við sumt og ósáttur við annað þegar lið hans, Njarðvík, laut í lægra haldi gegn Þór Þorlákshöfn í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld.

Uppgjörið: Þór Þ. – Njarðvík 95-92 | Sirkusþristur hjá Tómasi Val tryggði sigurinn
Þór Þorlákshöfn jafnaði metin í 1-1 í einvígi sínu við Njarðvík í átta liða úrslitum Subway-deildar karla í körfubolta með 95-92 sigri sínum í dramatískum leik liðanna í Iceland Gacier-höllinni í Þorlákshöfn í kvöld.

„Vorum vitlausar sérstaklega á varnarhelmingnum“
Rúnar Erlingsson, þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur í körfubolta, sagði leikmenn sína hafa spilað illa lungann úr leiknum þegar lið hans laut í lægra haldi fyrir Val í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Subway-deildarinnar að Hlíðarenda í kvöld.

Uppgjörið: Valur - Njarðvík 80-77 | Allt annað Valslið sem mætti til leiks gegn Njarðvík í kvöld
Valur sýndi svo sannarlega klærnar þegar liðið fékk Njarðvík í heimsókn í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Subway-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Eftir spennutrylli náði Valur að innbyrða 80-77 sigur og jafna metin í 1-1 í einvígi liðanna.

„Veit að þetta er löng og ströng sería og við erum yfir eins og er“
Njarðvík lagði Þór Þ. af velli 87-73 í Ljónagryfjunni þegar liðin mættust í fyrsta leik úrslitaeinvígis liðana í 8-liða úrslitum í Subway deild karla.

Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 87-73 | Njarðvíkingar byrja af krafti
Njarðvík byrjar úrslitakeppni Subway-deildar karla í körfubolta af krafti. Liðið fór illa með Þór Þorlákshöfn í Ljónagryfjunni í Reykjanesbæ þegar liðin mættust í fyrsta leik átta liða úrslita deildarinnar. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Úrslitakeppni Subway deildar karla í körfubolta hefst í kvöld
Það eru liðnir 328 dagar frá oddaleiknum í fyrra en nú er biðin loksins á enda. Æsispennandi deildarkeppni gefur góð fyrirheit fyrir keppnina í ár.

Teitur til varnar Milka: Hefur pakkað mönnum saman en ekki fengið hrós
Dominykas Milka náði ekki að verða Íslandsmeistari með Keflavík en nú reynir hann að vinna titilinn með Njarðvíkurliðinu. Milka byrjar gegn liði sem hefur lítið ráðið við litháenska miðherjann í vetur.

Hjálpaðu Körfuboltakvöldi við að velja besta lið sögunnar
Subway Körfuboltakvöld hefur verið að leita að besta liði körfuboltasögunnar í allan vetur og nú er komið að úrslitum.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Valur 96-58 | Íslandsmeistararnir sáu aldrei til sólar
Njarðvík tók á móti ríkjandi Íslandsmeisturum Vals í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Subway deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Njarðvík endaði í þriðja sæti en Valskonur unnu B-deildina.

Svona lítur úrslitakeppni Subway deildar karla út
Lokaumferð deildarkeppni Subway deildar karla í körfubolta fór fram í kvöld og nú er orðið ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppni deildarinnar. Það eru Valsmenn sem standa uppi sem deildarmeistarar þetta tímabilið. Haldið ykkur fast, skemmtilegasti hluti tímabilsins er framundan.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Valur 106-114 | Kristinn Pálsson skaut Njarðvík í kaf
Njarðvíkingar tóku á móti löskuðum deildarmeisturum Vals í Ljónagryfjunni í kvöld. Valsmenn höfðu í raun ekki að neinu að keppa og gátu leyft sér að taka lífinu með temmilegri ró en Njarðvíkingar í hörku baráttu um 2. sætið og þurftu nauðsynlega á sigri að halda til að ná því.

Hér geta liðin endað eftir kvöldið: Spenna í lokaumferð Subway
Í kvöld kemur í ljós hvaða lið mætast í átta liða úrslitum Subway deildar karla í körfubolta en útreikningurinn í lok kvöld gæti orðið svolítið flókinn. Við ætlum að reyna einfalda aðeins þessa flóknu stöðu.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 70-69 | Ótrúlegur endir á deildarkeppninni
Deildarmeistarar Keflavíkur komu í veg fyrir að Njarðvík myndi tryggja sér 2. sæti A-deildar Subway-deild kvenna í körfubolta með eins stigs sigri í stórskemmtilegum leik.

„Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“
Keflavík vann þrettán stiga sigur gegn Njarðvík á heimavelli 127-114. Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur, var svekktur eftir leik.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir
Ótrúleg frammistaða Remy Martin í 4. leikhluta tryggði nýkrýndum bikarmeisturum Keflavíkur magnaðan sigur á nágrönnum sínum í Njarðvík í næstsíðustu umferð Subway-deildar karla í körfubolta.

„Ekkert leyndarmál að við ætlum að reyna við þann stóra“
Njarðvík lagði Hauka með þrettán stiga mun 84-71 þegar liðin mættust í Ljónagryfjunni í kvöld. Þjálfari sigurliðsins var að vonum ánægður.

Umfjöllun: Njarðvík-Haukar 84-71 | Sterkur sigur heimakvenna
Njarðvík vann öruggan þrettán stiga sigur á Haukum í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Keflavík - Njarðvík 86-72 | Keflavík í bikarúrslit annað árið í röð
Keflavík vann sannfærandi sigur gegn Njarðvík í undanúrslitum VÍS-bikarsins 86-72. Þetta verður annað árið í röð sem Keflavík verður í úrslitum VÍS-bikarsins.

„Get ímyndað mér að það sé erfitt fyrir andstæðingana að eiga við hann“
Njarðvík tyllti sér upp í 2. sæti Subway-deildar karla í körfubolta með því að kjöldraga fallna Blika 120-86. Um var að ræða leik sem var frestað vegna skorts á heitu vatni, í kjölfar eldgoss á Reykjanesskaga í síðasta mánuði.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Breiðablik 120-86 | Heimamenn flugu upp í 2. sætið
Njarðvík tyllti sér upp í 2. sæti Subway-deildar karla í körfubolta með því að kjöldraga fallna Blika 120-86. Um var að ræða leik sem var frestað vegna skorts á heitu vatni, í kjölfar eldgoss á Reykjanesskaga í síðasta mánuði.

„Viljum ekki bara tvö stig, viljum líka vera spila vel.“
Njarðvíkingar áttu ekki í miklum vandræðum með gestina frá Hveragerði í kvöld þegar Hamar leit við í Ljónagryfjuna í 20.umferð Subway deild karla. Heimamenn fóru með öruggan 31 stiga sigur 103-72.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Hamar 103-72 | Hamarsmenn í gini ljónsins
Fallnir Hamarsmenn áttu ekki mikla möguleika í Ljónagryfjunni í kvöld og á endanum unnu Njarðvíkingar 31 stigs sigur, 103-72.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Stjarnan 99-72 | Njarðvík aftur á sigurbraut
Fjögurra leikja taphrinu Njarðvíkur er lokið eftir 27 stiga sigur gegn Stjörnunni 99-72. Njarðvík vann þrjá af fjórum leikhlutum og vann verðskuldaðan sigur.