FH

FH og HK skoruðu fjögur í öruggum sigrum
Tveimur af þremur leikjum kvöldsins í Lengjubikar karla í fótbolta er nú lokið. FH og HK skoruðu bæði fjögur mörk er liðin unnu örugga sigra.

Einar Bragi búinn að semja við FH
Einar Bragi Aðalsteinsson, sem skotist hefur upp á stjörnuhimininn í Olís-deild karla í handbolta í vetur, fer í sumar frá HK til FH.

Stjarnan í átta liða úrslit eftir öruggan sigur
Stjarnan vann öruggan tíu marka sigur gegn FH sem leikur í Grill66 deild kvenna er liðin mætturs í 16-liða úrslitum Coca Cola bikarsins í kvöld, 28-18.

Þórdís og Ísak Íslandsmeistarar í fjölþraut innanhúss í ár
Þórdís Eva Steinsdóttir og Ísak Óli Traustason urðu Íslandsmeistarar í karla- og kvennaflokki um helgina þegar fór fram Meistaramót Íslands í fjölþrautum í Kaplakrika.

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - FH 26-29 | Seiglusigur hjá FH
FH vann sigur úr býtum í æsispennandi leik er þeir mættu botnliði Víkings í Víkinni fyrr í kvöld. Víkingur var með yfirhöndina í fyrri hálfleik en í þeim síðari snéru FH-ingar blaðinu við og unnu þriggja marka sigur, 26-29.

FH-ingar hófu Lengjubikarinn á sigri | Tíu leikmenn KV héldu út
Fimm leikir voru á dagskrá í Lengjubikar karla í fótbolta í dag. FH-ingar unnu góðan 2-0 sigur gegn Selfyssingum í riðli fjögur og KV vann góðan 1-0 útisigur á Fjölni í riðli tvö, þrátt fyrir að spila allan seinni hálfleikinn manni færri.

FH vill fá hægri bakvörð Keflavíkur
FH vantar hægri bakvörð eftir að Hörður Ingi Gunnarsson var seldur til Sogndal í Noregi. Hafnfirðingar horfa til Keflavíkur í leit að leikmanni til að fylla skarð Harðar Inga.

Daði Freyr í leyfi frá FH vegna ásakana um áreiti
Daði Freyr Arnarsson, markvörður FH, er farinn í leyfi frá félaginu vegna ásakana um áreiti.

„Það er númer eitt, tvö og þrjú að vinna“
Sigursteinn Arndal, þjálfari FH-inga, var sáttur með 9 marka sigur er liðið tók á móti HK í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. FH-ingar voru númeri of stórir fyrir HK og sigruðu 33-24.

Umfjöllun og viðtöl: FH - HK 33-24 | FH-ingar ekki í vandræðum með botnliðið
FH er í harðri baráttu um efsta sæti Olís-deildar karla í handbolta og tók á móti botnliði HK í kvöld. HK tókst ekki að vinna leik fyrir áramót og tókst það heldur ekki í kvöld, lokatölur 33-24 heimamönnum í vil.

Finnur Orri aftur til FH
Finnur Orri Margeirsson er genginn í raðir FH frá Breiðabliki sem hann lék með á síðasta tímabili.

Hörður Ingi til Sogndal
Hörður Ingi Gunnarsson er genginn í raðir norska B-deildarliðsins Sogndal frá FH. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Sogndal.

„Líður eins og íþróttamanni aftur“
Eftir þriggja ára þrautagöngu vegna meiðsla er hlaupakonan Aníta Hinriksdóttir, einn nýjasti liðsmaður FH, vongóð um bjartari tíma. Þessi fyrrverandi heims- og Evrópumeistari ungmenna í 800 metrahlaupi þarf þó að sneiða framhjá ýmsum æfingum vegna meiðslanna.

FH fær liðsstyrk úr Breiðholti
Knattspyrnumaðurinn Máni Austmann Hilmarsson er genginn í raðir FH frá Leikni R. og hefur skrifað undir samning við Hafnarfjarðarfélagið sem gildir til næstu tveggja ára.

Íslandsmeistarar Víkings byrja titilvörnina á móti Óla Jóh
Opnunarleikur efstu deildar karla í knattspyrnu í ár verður spilaður á heimavelli Íslandsmeistarana í Víkinni á öðrum í páskum.

Matti vill ekki til Noregs þrátt fyrir spennandi tilboð
Matthías Vilhjálmsson, leikmaður knattspyrnuliðs FH, hefur hafnað starfstilboði í Noregi þar sem hann vill ekki leggja skóna á hilluna alveg strax.

Umfjöllun og viðtöl: Grótta - FH 21-25| FH hafði betur í spennuleik
FH vann síðasta handboltaleik ársins og verður á toppnum næstu átta vikurnar hið minnsta. FH gerði fimm mörk gegn einu á lokakaflanum og vann leikinn með fjórum mörkum 21-25.

Mikilvægt að vera á toppnum þrátt fyrir að það sé desember
FH vann Gróttu í spennuleik. Gestirnir frá Hafnarfirði voru sterkari á endasprettinum þar sem þeir gerðu fimm mörk gegn einu. Sigursteinn Arndal var ánægður með sigur kvöldsins.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Selfoss 28-28 | Allt á suðupunkti í Krikanum
FH og Selfoss skildu jöfn 28-28 þegar liðin mættust í Kaplakrika í Olísdeild karla í handbolta . FH jafnaði metin á lokasekúndunni og allt gjörsamlega á suðupunkti í Krikanum. Ragnar Jóhannsson skoraði 8 mörk fyrir Selfoss en besti maður FH var Einar Örn Sindrason, einnig með 8 mörk.

Davíð Þór verður yfirmaður knattspyrnumála hjá FH
Davíð Þór Viðarsson verður tilkynntur sem yfirmaður knattspyrnumála hjá FH áður en langt um líður. Hann þekkir hvern krók og kima í Kaplakrika eftir að hafa leikið með liðinu sem og að hafa verið aðstoðarþjálfari þess á síðustu leiktíð.

Döhler dró tennurnar úr Haukunum í leiknum og tók síðan viðtalið á íslensku
Phil Döhler átti mjög flottan leik í marki FH í gær þegar liðið vann 28-24 sigur á nágrönnum sínum í Haukum. Seinni bylgjan ræddi um og ræddi við þýska markvörðinn eftir leik. Hann veitti viðtalið á íslensku.

Sigursteinn Arndal: Vilja ekki allir hvít jól?
Sigursteinn Arndal, þjálfari FH í handbolta var ánægður með sigur og að taka fyrsta sætið af nágrönnum sínum í Haukum er liðin mættust í 11. umferð Olís-deildar karla í kvöld, lokatölur 28-24. „Mér líður frábærlega, vilja ekki allir hvít jól?“, sagði Sigursteinn eftir leikinn.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Haukar 28-24 | Heimamenn eiga montréttinn og toppsætið
Nágrannarnir FH og Haukar mættust í Kaplakrika í kvöld í leik sem réði því hvort jólin yrðu hvít eða rauð í Hafnafirði þar sem toppsæti Olís-deildar karla var í boði. FH-ingar unnu öruggan fjögurra marka sigur og tylltu sér þar með á topp deildarinnar.

Bara eitt mark eða minna á milli liðanna í sex af síðustu átta Hafnarfjarðarslögum
Það er von á spennuleik í kvöld þegar FH-ingar taka á móti nágrönnum sínum í Haukum í elleftu umferð Olís deildar karla í handbolta.

Áhorfendur geta mætt á Hafnarfjarðarslaginn
Það ræðst á morgun hvort það verða hvít eða rauð jól í Hafnarfirði, þegar FH og Haukar mætast í sannkölluðum toppslag í Olís-deild karla í handbolta. Áhorfendur geta mætt framvísi þeir neikvæðri niðurstöðu úr hraðprófi.

Egill og Ási höfðu þetta bara eins og þeir vildu
Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, var ekki í vafa um hvað hefði skilað FH sigri í Mosfellsbæ í kvöld, í Olís-deild karla í handbolta. Egill Magnússon og Ásbjörn Friðriksson fóru illa með heimamenn og skoruðu samtals 22 mörk í 31-26 sigri FH-inga.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - FH 26-31 | Rjúkandi heitir FH-ingar
FH hefur unnið sex af síðustu sjö leikjum sínum og kom sér enn nær toppnum með sigri á Aftureldingu í Mosfellsbænum, í Olís-deild karla í handbolta.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Fram 30-27 | FH-ingar upp í 2. sætið
FH komst upp í 2. sæti Olís-deildar karla með sigri á Fram, 30-27, í Kaplakrika í kvöld. Þetta var fimmti sigur FH-inga í síðustu sex leikjum. Fram, sem hefur tapað þremur leikjum í röð, er áfram í 7. sæti deildarinnar.

„Hefur þú ekki bara verið breytingin á liðinu?“
FH-ingurinn Leonharð Þorgeir Harðarson var í viðtali í beinni útsendingu í Seinni bylgjunni í gærkvöldi en Leonharð átti mjög góðan leik í sigri á Stjörnunni í Mýrinni.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - FH 26-33 | Öruggur sigur FH-inga
FH-ingar unnu í kvöld öruggan sjö marka sigur er liðið heimsótti Stjörnuna í Olís-deild karla, 26-33. Fimleikafélagið lyfti sér upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum.