Breiðablik

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Valur 4-3 | Lygilegur uppbótartími og Breiðablik í úrslit
Breiðablik mætir Þrótti í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna eftir ótrúlega dramatík í Kópavogi.

Ásta Eir: Það má segja að um galdra hafi verið að ræða í sigurmarkinu
Breiðablik sló út Val í ótrúlegum leik og eru komnar í úrslit Mjólkurbikarsins þar sem þær mæta Þrótti. Ásta Eir Árnadóttir fyrirliði Breiðabliks var í skýjunum með ótrúlegar lokamínútur leiksins.

„Ekki oft sem það gerist hjá íslenskum liðum og sérstaklega ekki Breiðabliki“
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Blika, er ánægður með framgöngu lærisveina hans í fyrstu umferð Sambandsdeildar Evrópu en þeir unnu 2-0 sigur á síðari leiknum gegn Racing Union á Kópavogsvelli í gær.

„Agla María og Áslaug Munda gera útslagið“
„Maður hefur varla vitað við hverju mátti búast í neinum leik í sumar en ég held að þetta verði töluvert eðlilegri fótboltaleikur en síðasta viðureign þessara liða,“ segir Mist Rúnarsdóttir um stórleik Breiðabliks og Vals í kvöld.

Íslensk fótboltalið á vergangi ef þeim gengur vel
„Það er ljóst að ástandið er alvarlegt,“ segir Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, um þá staðreynd að ef að íslenskum fótboltaliðum vegnar vel í alþjóðlegri keppni hafa þau engan stað til að spila á í vetur.

Umfjöllun: Breiðablik - Racing 2-0 | Blikar fara til Vínarborgar
Breiðablik bar sigurorð af Racing í seinni leik liðanna í Sambandsdeildinni í kvöld en lokatölur voru 2-0. Með sigrinum er Breiðablik komið í næstu umferð.

Skoraði frábært mark í 100. leiknum sínum fyrir Breiðablik
Hildur Antonsdóttir skoraði fjórða mark Breiðabliks í þægilegum 4-0 sigri á Fylki í gær. Þetta var leikur númer 100 í treyju Breiðablisk hjá þessum öfluga miðjumanni sem er að koma til baka eftir að hafa slitið krossbönd á síðustu leiktíð.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-4 | Auðveldur sigur Blika í Árbænum
Breiðablik var ekki í vandræðum með Fylki í Pepsi Max deild kvenna í kvöld en lokatölur voru 4-0 þar sem Breiðablik skoraði meðal annars beint úr hornspyrnu.

Þórdís Hrönn til Kýpur
Knattspyrnukonan Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir er á leið til Apollon Limassol á láni frá Breiðabliki ef marka má heimildir Fótbolta.net.

Blikar komu til baka og eru í góðri stöðu í Sambandsdeildinni
Breiðablik heimsótti Racing Union frá Lúxemborg í Sambandsdeild Evrópu í dag. Þetta var fyrri leikur liðanna en Blikar snéru taflinu sér í vil undir lok leiksins og unnu sterkan 3-2 sigur.

Umfjöllun og viðtöl: Þróttur - Breiðablik 2-3 | Dramatískur endurkomusigur Blika
Þróttur R. tók á móti Breiðablik í Laugardalnum í kvöld. Dramatíkin var í hávegum höfð, svo ekki sé meira sagt. Lokatölur 3-2 Blikum í vil, en gestirnir skoruðu seinustu tvö mörkin á lokamínútunum.

Agla María: Ef við vinnum alla leiki þá er titillinn okkar
Agla María Albertsdóttir, landsliðskona og leikmaður Breiðabliks, var að vonum sátt eftir dramatískan 3-2 endurkomusigur síns liðs gegn Þrótti í Laugardalnum í kvöld.

Hægt að treysta á það að mörkunum rigni í leikjum Blika í sumar
Það hefur verið nóg af mörkum í leikjum Breiðabliks í Pepsi Max deild karla í sumar og á því varð engin breyting um helgina.

Sjáðu fjögur mörk Blika og markaveisluna í Garðabæ
Tveir leikir voru á dagskrá í Pepsi Max-deild karla í fótbolta í gær þar sem Breiðablik vann 4-0 sigur á Leikni R. í Kópavogi annars vegar, og Keflavík vann 3-2 sigur á Stjörnunni í Garðabæ hins vegar.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Leiknir 4-0 | Öruggur sigur Blika á Breiðhyltingum
Breiðablik vann 4-0 sigur á Leikni Reykjavík í Pepsi Max-deild karla í fótbolta í dag. Blikar sækja að toppliði Vals með sigrinum.

„Af hverju flautar hann ekki fyrr?“
Breiðablik vann 4-0 sigur á Leikni þegar að liðin mættust í dag. Breiðablik hafði algjöra yfirburði í leiknum og sóttu hart að Leiknismönnum. Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis, var að vonum ekki sá sáttasti í leikslok.

Stjörnuliðið gerði virkilega vel
Stjarnan vann sinn þriðja leik í röð í Pepsi Max deild kvenna er liðið lagði Íslandsmeistara Breiðabliks mjög óvænt 1-2 á Kópavogsvelli. Magnaður sigur Stjörnunnar var eðlilega til umræðu í Pepsi Max Mörkunum.

Sjáðu mörkin úr óvæntum sigri Stjörnunnar á Íslandsmeisturum Breiðabliks
Stjarnan vann einkar óvæntan 2-1 sigur á Íslandsmeisturum Breiðabliks í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu. Þá gerðu nýliðar Tindastóls og Selfoss markalaust jafntefli á Sauðárkróki.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 1-2 | Óvænt úrslit í Kópavogi
Stjarnan gerði sér lítið fyrir og sótti þrjú stig í Kópavog. Breiðablik mistókst því að komast á toppinn.

Þetta er ótrúlega sjarmerandi keppni
Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Vals, er spennt fyrir stórleiknum í undanúrslitum Mjólkurbikarsins þegar Valur heimsækir Íslandsmeistara Breiðabliks.

Valur mætir á Kópavogsvöll í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna
Það er sannkallaður stórleikur í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna þar sem Íslandsmeistarar Breiðabliks fá Val í heimsókn. Í hinum leiknum mætast svo Þróttur Reykjavík og FH.

Sjáðu mörkin úr dramatískum Kópavogsslag, varamennina redda Fylki stigi og tíu KA-menn ná jafntefli við FH
Breiðablik vann dramatískan sigur á HK í Kópavogsslagnum, Fylkir tryggði sér jafntefli við Val með afar snotru marki Arnórs Borg Guðjohnsen og tíu KA-menn skoruðu jöfnunarmark gegn FH í Krikanum. Mörkin öll má nú sjá á Vísi.

Umfjöllun og viðtöl: HK - Breiðablik 2-3 | Blikar komu til baka í Kópavogsslagnum
HK fékk nágranna sína úr Breiðabliki í heimsókn í kvöld. HK-ingar komust tvisvar yfir í leiknum, en tvö mörk á lokamínútunum sáu til þess að það voru Blikar sem tóku stigin þrjú með 3-2 sigri.

Thomas Mikkelsen: Ég átti bara að spila klukkutíma
Breiðablik unnu dramatískan sigur á nágrönnum sínum í HK í Kórnum í kvöld 2-3. Thomas Mikkelsen hefur verið frá vegna meiðsla og snéri aftur í Blika liðið í kvöld

Agla María: Þetta er skemmtilegasta keppnin
Agla María Albertsdóttir lék á alls oddi í 5-0 sigri Breiðabliks á Aftureldingu í Mjólkurbikar kvenna í kvöld en hún skoraði tvö mörk og lagði upp eitt.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Afturelding 5-0 | Auðvelt í Kópavogi
Breiðablik er komið í undanúrslit í Mjólkurbikarnum eftir sannfærandi sigur á Aftureldingu á Kópavogsvelli. Lokatölur 5-0.

Hefði aldrei gerst í efstu deild karla
Toppslagur Selfoss og Breiðabliks í Pepsi Max deild kvenna er færður milli leikvalla rétt fyrir leik, af aðalvellinum á Selfossi og yfir á gervigrasið.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Breiðablik 2-0 | Keflvíkingar slógu út Blika eftir framlengingu
Keflavík er komið í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir 2-0 sigur á Breiðablik í framlengdum leik í Keflavík.

Sigurður Ragnar: Stórkostleg úrslit hjá strákunum
„Þetta var frábært, ég er virkilega stoltur af strákunum. Við höldum hreinu og spilum frábæran varnarleik,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari Keflavíkur eftir að hans menn tryggðu sig áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins með sigri á Breiðablik.

Yfirlýsing Breiðabliks: Ekki þörf á sjúkrabíl í forgangsakstri
Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna atviksins þegar Jason Daði Svanþórsson féll til jarðar í leiknum gegn FH og umræðuna í tengslum við það.