Valur

Sjáðu markasúpuna í Vesturbæ og fjögur mörk Framara
Tveir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöld. Í þeim voru skoruð tíu mörk.

Umfjöllun,viðtöl og myndir: KR 3-3 Valur | Stórskemmtun í fyrsta leik Óla Jó
KR og Valur áttust við í stórveldaslag í Vesturbænum í 14. umferð Bestu-deildar karla. Eftir rólegan fyrri hálfleik sprakk leikurinn út í þeim síðari og fjögur mörk voru skoruð á tíu mínútna kafla. Bæði lið gátu verið svekkt með jafnteflið en leikar enduðu með 3-3 jafntefli, í fyrsta leik Ólafs Jóhannessonar í endurkomu sinni til Vals.

„Í forgangi að laga varnarleikinn“
Valur gerði jafntefli gegn KR á Meistaravöllum í sex marka leik. Ný ráðinn þjálfari Vals, Ólafur Jóhannesson, taldi næstu skref sín sem þjálfari Vals vera að laga varnarleik liðsins.

Þorgils Jón hættir við að elta ástina og verður áfram hjá Íslandsmeisturum Vals
Þorgils Jón Svölu Baldursson hefur ákveðið að elta ekki ástina til Danmerkur og leika með Íslandsmeisturum Vals á komandi leiktíð. Frá þessu greindi félagið fyrr í dag.

Bergur Elí til liðs við Íslandsmeistara Vals
Bergur Elí Rúnarsson er genginn í raðir Íslandsmeistara Vals. Hann semur til tveggja ára.

Bertone framlengir við Íslandsmeistarana
Argentínski körfuboltamaðurinn Pablo Bertone hefur framlengt samningi sínum við Íslandsmeistara Vals. Bertone verður því áfram í herbúðum Valsmanna næstu tvö árin í það minnsta.

Sá mikilvægasti framlengir við Íslandsmeistarana
Kári Jónsson, mikilvægasti leikmaður úrslitakeppni Subway-deildar karla á seinasta tímabili, hefur framlengt samningi sínum við Íslandsmeistara Vals.

„Búin að vera skrýtin stemning“
Þorkell Máni Pétursson segir Valsmenn hafa valið besta kostinn í stöðunni með því að ráða Ólaf Jóhannesson sem þjálfara karlaliðs félagsins í fótbolta, eftir að ákveðið var að Heimir Guðjónsson myndi hætta.

Valur fer til Slóvakíu, KA/Þór til Norður-Makedóníu og ÍBV til Grikklands
Dregið var í fyrstu umferð Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik í morgun og voru þrjú íslensk lið í pottinum.

Valsmenn ráða Ólaf aftur til starfa
Ólafur Jóhannesson er orðinn þjálfari karlaliðs Vals í fótbolta á nýjan leik en hann var í dag ráðinn í stað Heimis Guðjónssonar.

Heimir hættur hjá Val
Heimir Guðjónsson er hættur sem þjálfari karlaliðs Vals í fótbolta. Þetta kom fram í tilkynningu frá Valsmönnum nú rétt í þessu.

Heimir: Vorum sjálfum okkur verstir
Valur beið lægri hlut fyrir botnliði ÍBV í Bestu deildinni í fótbolta þegar liðin áttust við í Vestmannaeyjum í dag.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV-Valur 3-2| Fyrsti sigur Eyjamanna í hús
ÍBV vann sinn fyrsta sigur í Bestu deild karla í fótbolta er liðið tók á móti Val. ÍBV kom sér yfir í fyrri hálfleik 1-0 og vann leikinn að lokum 3-2.

Sjáðu fagnaðarlæti Keflvíkinga inn í klefa á Hlíðarenda
Keflavík vann óvæntan 0-3 útisigur á Valsmönnum á Hlíðarenda í Bestu-deild karla á mánudagskvöld. Patrik Johannesen, Adam Ægir Pálsson og Rúnar Þór Sigurgeirsson skoruðu mörk Keflavíkur.

Valur fær sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar: „Hefði verið galið að sleppa þessu“
Valur hefur fengið úthlutað sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handbolta og mun því ekki þurfa að leika í undankeppni um laust sæti í riðlakeppninni.

Heimir um hugarfar Valsmanna: „Sá hlutur sem er að skaða okkur hvað mest“
Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, gat ekki leynt vonbrigðum sínum er hann ræddi við Gunnlaug Jónsson eftir 0-3 tap sinna manna á heimavelli gegn Keflavík í Bestu deild karla í fótbolta á mánudag. Hann sagði Valsmenn vera sjálfum sér verstir.

Umfjöllun og viðtal: Valur 0-3 Keflavík | Einum fleiri gengu Keflvíkingar á lagið
Keflavík vann gríðarlega mikilvægan sigur á Valsmönnum að Hlíðarenda í kvöld, 0-3. Keflavík komst yfir í fyrri hálfleik úr vítaspyrnu sem kostaði heimamenn rautt spjald að auki. Gestirnir lokuðu leiknum svo í síðari hálfleik eftir mikla orrahríð að marki Vals.

Valur bætir í flóruna af framherjum
Karlalið Vals í fótbolta hefur fengið nýjan framherja til liðs við sig. Um að ræða danska leikmanninn Frederik Ihler en hann kemur frá AGF sem leikur í dönsku úrvalsdeildinni.

Náði góðum myndum af rauða spjaldi Guðmundar Andra
Valsmenn misstu mann af velli í stöðunni 1-0 á móti KA í Bestu deildinni í gær og enduðu á því að fara bara með eitt stig suður til Reykjavíkur.

Umfjöllun og viðtöl: KA-Valur 1-1 | KA og Valur skiptu stigunum á milli sín
KA og Valur gerðu 1-1 jafntefli á Greifavellinum nú í kvöld þegar liðin mættust í 11. umferð Bestu deildar karla.

Heimir um markmannsstöðuna: Það má ekki nota orðið samkeppni í dag
KA og Valur skildu jöfn, 1-1, á Greifavellinum á Akureyri nú í kvöld. Heimi Guðjónssyni, þjálfara Vals, fannst jafntefli vera sanngjörn niðurstaða .

Fram kaupir Almar frá Val
Fram hefur keypt Almar Ormarsson frá Val. Hann snýr því aftur til liðsins sem hann lék með á árunum 2008-13. Almarr skrifaði undir tveggja ára samning við Fram.

Callum Lawson að yfirgefa Íslandsmeistarana
Körfuknattleiksmaðurinn Callum Lawson er að yfirgefa Íslandsmeistara Vals og halda til Frakklands þar sem hann mun leika með Jav CM í Pro B deildinni.

Frederik í Val og spilar í fyrsta sinn með íslensku félagsliði
Markvörðurinn Frederik Schram hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Vals sem gildir til ársins 2024.

Valskonur og Blikar höfðu heppnina með sér
Íslandsmeistarar Vals og silfurlið Breiðabliks leika bæði í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna. Þar leika einnig nokkur Íslendingalið. Nú er verið að draga í riðla.

Breiðablik í flokki með risum á morgun og Valur einnig í efri flokki
Íslandsmeistarar Vals og silfurlið Breiðabliks verða í efri styrkleikaflokkum þegar dregið verður í fyrri umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna á morgun.

Valur hefur rætt við umboðsmann Frederik Schram
Bestu deildarlið Vals hefur rætt við umboðsmanns markvarðarins Frederik August Albrecht Schram sem er í dag samningsbundinn danska úrvalsdeildarliðinu Lyngby. Frá þessu er greint á vef 433.is.

„Hef ekki náð hátindi míns ferils“
Handknattleiksmaðurinn Aron Dagur Pálsson skrifaði undir samning við Íslands-, bikar- og deildarmeistara Vals í vikunni, en hann kemur til liðsins frá Noregsmeisturum Elverum. Aron segir nokkur tilboð hafa legið á borðinu, en honum hafi þótt Valur vera með mest spennandi verkefnið í gangi.

Umfjöllun og viðtöl: Valur-Leiknir 2-1 | Heimamenn fylgdu eftir góðum sigri í síðasta leik
Valur tekur á móti Leikni R. í Bestu deild karla í fótbolta. Með góðum sigri geta Valsarar farið upp í 2. sæti deildarinnar á meðan Leiknir R. gæti komist úr fallsæti takist þeim að næla í stigin þrjú. Leikurinn hefst klukkan 19.15.

Aron Dagur semur við Val
Stórar fréttir voru að berast frá Hlíðarenda fyrir skömmu þegar Valsarar tilkynntu nýjasta liðsstyrkinn fyrir komandi leiktímabil, Aron Dag Pálsson.