Valur

Náði góðum myndum af rauða spjaldi Guðmundar Andra
Valsmenn misstu mann af velli í stöðunni 1-0 á móti KA í Bestu deildinni í gær og enduðu á því að fara bara með eitt stig suður til Reykjavíkur.

Umfjöllun og viðtöl: KA-Valur 1-1 | KA og Valur skiptu stigunum á milli sín
KA og Valur gerðu 1-1 jafntefli á Greifavellinum nú í kvöld þegar liðin mættust í 11. umferð Bestu deildar karla.

Heimir um markmannsstöðuna: Það má ekki nota orðið samkeppni í dag
KA og Valur skildu jöfn, 1-1, á Greifavellinum á Akureyri nú í kvöld. Heimi Guðjónssyni, þjálfara Vals, fannst jafntefli vera sanngjörn niðurstaða .

Fram kaupir Almar frá Val
Fram hefur keypt Almar Ormarsson frá Val. Hann snýr því aftur til liðsins sem hann lék með á árunum 2008-13. Almarr skrifaði undir tveggja ára samning við Fram.

Callum Lawson að yfirgefa Íslandsmeistarana
Körfuknattleiksmaðurinn Callum Lawson er að yfirgefa Íslandsmeistara Vals og halda til Frakklands þar sem hann mun leika með Jav CM í Pro B deildinni.

Frederik í Val og spilar í fyrsta sinn með íslensku félagsliði
Markvörðurinn Frederik Schram hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Vals sem gildir til ársins 2024.

Valskonur og Blikar höfðu heppnina með sér
Íslandsmeistarar Vals og silfurlið Breiðabliks leika bæði í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna. Þar leika einnig nokkur Íslendingalið. Nú er verið að draga í riðla.

Breiðablik í flokki með risum á morgun og Valur einnig í efri flokki
Íslandsmeistarar Vals og silfurlið Breiðabliks verða í efri styrkleikaflokkum þegar dregið verður í fyrri umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna á morgun.

Valur hefur rætt við umboðsmann Frederik Schram
Bestu deildarlið Vals hefur rætt við umboðsmanns markvarðarins Frederik August Albrecht Schram sem er í dag samningsbundinn danska úrvalsdeildarliðinu Lyngby. Frá þessu er greint á vef 433.is.

„Hef ekki náð hátindi míns ferils“
Handknattleiksmaðurinn Aron Dagur Pálsson skrifaði undir samning við Íslands-, bikar- og deildarmeistara Vals í vikunni, en hann kemur til liðsins frá Noregsmeisturum Elverum. Aron segir nokkur tilboð hafa legið á borðinu, en honum hafi þótt Valur vera með mest spennandi verkefnið í gangi.

Umfjöllun og viðtöl: Valur-Leiknir 2-1 | Heimamenn fylgdu eftir góðum sigri í síðasta leik
Valur tekur á móti Leikni R. í Bestu deild karla í fótbolta. Með góðum sigri geta Valsarar farið upp í 2. sæti deildarinnar á meðan Leiknir R. gæti komist úr fallsæti takist þeim að næla í stigin þrjú. Leikurinn hefst klukkan 19.15.

Aron Dagur semur við Val
Stórar fréttir voru að berast frá Hlíðarenda fyrir skömmu þegar Valsarar tilkynntu nýjasta liðsstyrkinn fyrir komandi leiktímabil, Aron Dag Pálsson.

Allir spenntir en fáir átt von á að hún stimplaði sig svona rækilega inn
Katla Tryggvadóttir og Ásdís Karen Halldórsdóttir skoruðu báðar í leik Þróttar og Vals í Bestu deildinni í gær og fengu mikið hrós í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport.

Umfjöllun,viðtöl og myndir: Þróttur - Valur 1-2| Fjórði sigur Vals í röð
Valur fór í Laugardalinn og vann 1-2 sigur á Þrótti. Ásdís Karen Halldórsdóttir kom Val yfir í fyrri hálfleik. Síðari hálfleikur byrjaði með látum þar sem Katla Tryggvadóttir jafnaði leikinn en tæplega tveimur mínútum síðar gerði Cyera Makenzie Hintzen annað mark Vals sem reyndist vera sigurmark leiksins.

Pétur Pétursson: Cyera átti frábæran leik
Valur vann 1-2 útisigur á Þrótti. Þetta var fjórði sigur Vals í röð og var Pétur Pétursson, þjálfari Vals, var afar ánægður með frammistöðu Cyeru Makenzie Hintzen eftir leik.

Umfjöllun og viðtöl: Valur-Breiðablik 3-2 | Valsmenn fyrstir til að vinna Blika
Valsmenn urðu í kvöld fyrsta liðið til að taka stig af Breiðablik er liðið vann dramatískan 3-2 sigur á Hlíðarenda í 9. umferð Bestu-deildar karla í fótbolta. Patrick Pedersen tryggði Valsmönnum stigin þrjú með marki í uppbótartíma.

Hetjan Hjálmar framlengir á Hlíðarenda
Hjálmar Stefánsson verður áfram á mála hjá Íslandsmeisturum Vals í körfubolta. Hann framlengdi samning sitt við félagið til tveggja ára. Frá þessu var greint á samfélagsmiðlum Vals.

Heimir enn við stjórnvölin en enginn Ísak Snær: Mjög forvitnilegur leikur á Hlíðarenda í kvöld
Breiðablik heimsækir Val í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Gestirnir eru líkt og alþjóð veit með fullt hús stiga á toppi deildarinnar á meðan Valsmenn hafa átt erfitt uppdráttar í sumar. Markahæsti leikmaður deildarinnar, Ísak Snær Þorvaldsson, verður ekki með Blikum í kvöld en hann tekur út leikbann.

Ræddu meiðsli Elínar: Gott að það var högg
Landsliðsframherjinn Elín Metta Jensen þurfti að fara meidd af velli eftir um klukkustundarleik er lið hennar, Valur, vann Selfoss 1-0 í Bestu deild kvenna í gær. Rætt var um atvikið í Bestu mörkunum.

Elín Metta fór meidd af velli og EM mögulega í hættu
Elín Metta Jensen, framherji Íslandsmeistara Vals og íslenska landsliðsins, meiddist er Valur heimsótti Selfoss í Bestu deild kvenna á þriðjudag. Gestirnir frá Hlíðarenda unnu 1-0 útisigur en Elín Metta þurfti að fara meidd af velli eftir rúmlega klukkustundarleik.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss-Valur 0-1| Anna Rakel hetja Vals
Valur gerði góða ferð á Suðurlandið og vann 0-1 sigur á Selfossi. Anna Rakel Pétursdóttir kom Val yfir á 19. mínútu og reyndist það vera sigurmark leiksins.

„Loksins hitti Anna Rakel helvítis boltann með vinstri“
Valur vann 0-1 útisigur á Selfossi þar sem Anna Rakel Pétursdóttir gerði sigurmarkið. Pétur Pétursson, þjálfari Vals, var ánægður með leik kvöldsins.

„Fyrsta skipti í langan tíma sem þú sérð ekki Val og Breiðablik tróna tvö á toppnum“
Mikil spenna ríkir fyrir 9. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Ásamt því að fara yfir komandi umferð ræddi Helena Ólafsdóttir, þáttastjórnandi, aðeins íslenska kvenna landsliðið en gestir hennar að þessu sinni eiga samtals að baki 217 A-landsleiki.

Öruggur sigur skaut Valskonum í undanúrslit
Valur er á leið í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna eftir öruggan 3-0 sigur gegn KR í kvöld.

„Ef hann vill spila þá er hann meira en velkominn“
Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals í Subway-deild karla í körfubolta, býst ekki við því að Pavel Ermolinskij muni leika með liðinu á næstu leiktíð. Finnur Freyr tekur þó fram að Pavel, sem var aðstoðarþjálfari liðsins í vetur, sé velkomið að halda áfram óski hans þess.

Kiana snýr aftur á Hlíðarenda
Kiana Johnson mun leika með Val í Subway-deild kvenna í körfubolta á komandi leiktíð. Hún lék með liðinu við góðan orðstír frá 2019 til 2021.

Lilja heim í Val en Ásdís áfram úti
Handboltakonan Lilja Ágústsdóttir er komin heim til Vals frá Lugi í Lundi í Svíþjóð eftir stutt stopp. Hún fór út til Svíþjóðar í janúar.

Pétur Pétursson: Við ætluðum að halda áfram að gera það sem við höfum verið að gera
Pétur Pétursson, þjálfari Vals, var sáttur eftir leikinn gegn Aftureldingu í kvöld. Valskonur mættu ákveðnar til leiks og unnu fimm marka sigur, 6-1.

Umfjöllun og viðtöl: Valur-Afturelding 6-1 | Meistararnir ekki í vandræðum með botnliðið
Íslandsmeistarar Vals fengu nýliða og botnlið Aftureldingar í heimsókn á Hlíðarenda í Bestu deild kvenna. Valskonur mættu töluvert ákveðnari til leiks og unnu leikinn með fimm marka mun, 6-1.

Elín Sóley aftur til liðs við Val
Valskonur hafa fengið liðsstyrk fyrir komandi tímabil í Subway-deild kvenna í körfubolta. Eín Sóley Hrafnkelsdóttir mun leika með liðinu næstu tvö ár. Frá þessu greindi félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag.