
Valur

Umfjöllun og viðtal: Njarðvík - Valur 74-77 | Valur vann tólfta sigurinn í röð með herkjum
Njarðvík og Valur mættust fyrr í kvöld í tuttugustu og fyrstu umferð Subway deildar kvenna í körfubolta á heimavelli Njarðvíkinga í Ljónagryfjunni og það var hart barist í leiknum.

Valsmenn með markahæsta liðið í sínum riðli í Evrópudeildinni
Valur tryggði sér í gærkvöldi sæti í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar með frábærum níu marka sigri á franska félaginu Pays d'Aix.

Vídeó á djamminu skilaði Bergi í besta lið landsins
Segja má að óvæntur senuþjófur kvöldsins á Hlíðarenda í gærkvöld, í einum fræknasta sigri íslensks handboltaliðs á þessari öld, hafi verið hornamaðurinn Bergur Elí Rúnarsson. Það virðist hafa borgað sig fyrir hann og Val að Bergur skyldi kíkja á djamm með Agnari Smára Jónssyni síðasta sumar.

Björgvin Páll með flest varin skot í Evrópudeildinni
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson átti sannkallaðan stórleik á Hlíðarenda í gærkvöldi þegar Valsmenn tryggðu sér sæti í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar.

Meistararnir mæta Haukum
Dregið var í undanúrslit Powerade-bikars karla og kvenna í handbolta í dag en úrslitin í keppninni ráðast með bikarveislu í Laugardalshöll 15.-18. mars.

„Þykir vænt um Val og á erfitt með að lýsa því hversu stoltur ég er“
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var orðlaus yfir frammistöðu Vals og þeirri staðreynd að Valur er komið áfram í 16-liða úrslit.

„Mig dreymdi alltaf um 16-liða úrslitin“
Landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson átti frábæran leik í marki Vals er liðið vann sannfærandi níu marka sigur gegn franska liðinu PAUC í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Björgvin varði 21 skot í leiknum og endaði með 41 prósent hlutfallsmarkvörslu.

Umfjöllun og myndir: Valur - PAUC 40-31 | Frábær frammistaða skilaði Val í 16-liða úrslit
Valur tryggði sér í kvöld sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handbolta er liðið vann öruggan níu marka sigur gegn franska liðinu PAUC í Origo-höllinni í kvöld, 40-31.

„Það hefur verið mikill sómi af þessu“
Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Japans, er Valsari í húð og hár og hann ræddi við Vísi um stórleikinn í kvöld þegar Valur mætir franska liðinu PAUC, á Hlíðarenda í Evrópudeildinni í handbolta.

„Við munum mæta mjög orkumiklir“
Aron Dagur Pálsson segir að Valsmenn mæti dýrvitlausir til leiks í kvöld í hálfgerðan úrslitaleik á Hlíðarenda gegn franska liðinu PAUC, í baráttunni um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handbolta.

Snorri Steinn um stórleikinn að Hlíðarenda: „Allt meira og stærra“
Valur mætir franska liðinu PAUC í eiginlegum úrslitaleik um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildar karla í handbolta. Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, segir sína menn orðna nokkuð sjóaða í leikjum sem þessum.

„Þetta eru akkúrat þeir þrír sem ég ætlaði að nefna“
„Framlengingin“ var á sínum stað í síðasta þætti Körfuboltakvölds. Farið var yfir hverjir væru þrír bestu leikmennirnir í Subway deild karla í körfubolta og fleira skemmtilegt. Að þessu sinni voru þeir Sævar Sævarsson og Örvar Þór Kristjánsson ásamt Kjartani Atla Kjartanssyni þáttastjórnanda.

Stefnir í að Donni verði með gegn Val annað kvöld
Donni, Kristján Örn Kristjánsson, verður að öllum líkindum með franska liðinu PAUC þegar það heimsækir Val í Evrópudeildinni í handbolta annað kvöld. Stutt er síðan Donni fékk leyfi frá störfum þar sem hann glímdi við kulnun.

Sá besti vill fleiri titla: „Á erfitt með að leyfa litla frænda að vinna í skák“
„Það er bara heiður að vera yfir höfuð á þessum lista með þessum mögnuðu leikmönnum,“ segir Róbert Aron Hostert eftir að hafa verið valinn besti leikmaður efstu deildar í handbolta á 21. öldinni.

Ásdís rifjar upp krossbandsslitin: „Ég bara grét og grét og grét“
Sigurlaug Rúnarsdóttir fór af stað með Kvennakastið í seinustu viku þar sem fjallað verður um Olís-deild kvenna í handbolta. Systurnar Ásdís Þóra og Lilja Ágústsdætur voru gestir hennar í fyrsta þætti og þar ræddu þær meðal annars um það þegar Ásdís sleit krossband.

Valskonur mörðu Fjölni og Blikar gerðu góða ferð í Breiðholtið
Valskonur unnu nauman fimm stiga sigur er liðið tók á móti Fjölni í Subway-deild kvenna í kvöld, 109-104, og í Breiðholtinu vann Breiðablik öruggan 15 stiga sigur gegn heimakonum í ÍR, 64-79.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Fram 24-22 | Valssigur í rislitlum leik
Valur sigraði Fram, 24-22, í fyrsta leik dagsins í Olís-deild kvenna. Valskonur eru á toppi deildarinnar en Framkonur í 4. sætinu.

„Haldið að við eigum að vinna alla leiki með þrjátíu mörkum, það er alveg merkilegt með ykkur á Stöð 2“
Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, var temmilega sáttur eftir leikinn gegn Fram sem vannst, 24-22. Hann nýtti tækifærið og skaut aðeins á kröfuharða sérfræðinga Stöðvar 2 Sports.

Valsmenn með fullt hús eftir sigur á Skaganum
Valur vann góðan 2-0 sigur er liðið sótti ÍA heim í riðli 1 í A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í dag.

Ætlaði út en þjálfarinn stöðvaði hann: „Þú ert ekki að fara neitt“
Þorgils Jón Svölu Baldursson, leikmaður Íslandsmeistara Vals, var nálægt því að yfirgefa liðið áður en yfirstandandi tímabil hófst. Hann leitaði sér þá að liði í Danmörku nálægt kærustu sinni, Lovísu Thompson, sem var á leið til Ringkøbing Håndbold.

„Sagði það sjálfur að ég ætlaði að vinna þennan leik“
Sigurður Dan Óskarsson, markmaður Stjörnunar í handbolta, átti hreint út sagt fullkomna innkomu í frábærum handboltaleik í TM Höllinni í Garðabæ í kvöld þegar að Stjarnan og Valur áttust við í 8-liða úrslitum Powerade-bikarsins.

Umfjöllun og myndir: Stjarnan - Valur 30-29 | Dramatískur endurkomusigur sló meistarana úr leik
Stjarnan varð í kvöld seinasta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Powerade-bikarsins í handbolta er liðið vann dramatískan eins marks sigur gegn ríkjandi bikarmeisturum Vals, 30-29. Það var Gunnar Steinn Jónsson sem reyndist hetja Stjörnumanna þegar hann tryggði sigurinn þegar um þrjár sekúndur voru til leiksloka.

Kristófer: Sýndum svægi í seinni hálfleik
Kristófer Acox, fyrirliði Vals, leiddi sína menn til sigurs á gömlu félögum sínum með stórleik þegar Valur vann KR 90-71 í 17. umferð Subway deildarinnar í körfuknattleik karla. Kappinn skilaði af sér 24 stigum og átta fráköstum og samtals 34 framlagspunktum.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - KR 90-71 | Valsmenn sýndu gæði sín í seinni hálfleik og juku á eymd KR
Valur vann granna sína í KR sannfærandi í kvöld í 17. umferð Subway deildar karla í körfuknattleik. Leikar enduðu 90-71 en KR byrjaði leikinn af miklum krafti en höfðu ekki eldsneytið til að keyra af sama krafti allan tímann. Valsmenn komust á skrið sem var ekki stöðvað og komu sér í efsta sæti Subway deildar karla.

Tryggvi Garðar frá í nokkrar vikur vegna meiðsla
Tryggvi Garðar Jónsson leikmaður Íslandsmeistara Vals í handbolta verður frá keppni í nokkrar vikur vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik gegn Flensburg í síðustu viku.

Fimm mismunandi Valsmenn markahæstir í Evrópuleikjum liðsins í vetur
Valsmenn unnu í gær sinn þriðja sigur í Evrópudeildinni á þessu tímabili og eiga enn góða möguleika á því að komast áfram í sextán liða úrslitin.

Andri Rúnar til Vals: Tilfinningin eins og þú sért úti í atvinnumennsku
Valsmenn eru komnir með markametshafa í framlínuna fyrir komandi tímabil í Bestu deild eftir að hafa gert samning við Andra Rúnar Bjarnason.

„Stemmningin var engu lík og þetta var úrslitaleikur sem við þrífumst á“
Valur vann sex marka sigur á Benidorm 35-29. Með sigrinum tók Valur ansi stórt skref í átt að sextán liða úrslitum. Finnur Ingi Stefánsson, leikmaður Vals, fimm mörk í kvöld og var ánægður með sigurinn.

Björgvin Páll: Stuðningurinn hélt okkur á tánum og gerði útslagið
Björgvin Páll Gústavsson, markmaður Vals, var frábær í stórkostlegum sex marka sigri Vals 35-29. Björgvin Páll fékk skurð á hendina í síðasta leik en það kom ekki niður á hans leik þar sem hann varði 13 skot og skoraði 2 mörk.

„Þetta eru fáránleg forréttindi“
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var eðlilega stoltur af sínu liði eftir öruggan sex marka sigur gegn Benidorm í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Með sigrinum lyftu Valsmenn sér upp í þriðja sæti B-riðils og eiga enn góðan möguleika á sæti í 16-liða úrslitum.