
Geðheilbrigði

Sálfræðingar felldu aftur kjarasamning
Sálfræðingar starfandi hjá ríkinu höfnuðu í atkvæðagreiðslu sem lauk nú á hádegi kjarasamningi við ríkið.

50+: Að festast ekki í leiðinlegri rútínu
Við kunnum oft ekki við að segja það upphátt ef okkur leiðist í einkalífinu. Því þá finnst okkur við hljóma eins og það sé eitthvað svo alvarlegt að.

„Hverskonar meðferð er þetta á fötluðu barninu mínu?“
Móðir fimmtán ára drengs með þroskaröskun óttast um líf hans en hún segir fjölskylduna allsstaðar koma að lokuðum dyrum. Hún segir son sinn hættulegan sjálfum sér og öðrum og óttast um öryggi hans sem og fjölskyldu sinnar.

Þjónusta hjálparsímans tryggð
Rekstur hjálparsíma Rauða krossins 1717 hefur verið tryggður með tuttugu og fimm milljóna króna styrk frá þremur ráðuneytum.

Mannauðsmál lögreglunnar: Ljótu málin taka á
„Það eru auðvitað þessi ofbeldismál og stóru erfiðu mál sem valda álagi, sérstaklega á lögreglumenn sem eru á vaktinni,“ segir Sigurveig Helga Jónsdóttir mannauðsstjóri Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu (LRH).

Öskrandi og ber að ofan við grunnskóla
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um konu sem var öskrandi fyrir utan grunnskóla í Reykjavík. Þegar lögregluþjóna bar að garði var konan ber að ofan en lögregluþjónar þekktu hana vegna fyrri afskipta. Kallað var á sjúkrabíl fyrir konuna, þar sem talið var að hún væri í geðrofi.

Ber fyrir sig minnisleysi á verknaðarstundu
Sigurður Fannar Þórsson, karlmaður á fimmtugsaldri sem sætir ákæru um að hafa ráðið tíu ára dóttur sinni bana í september í fyrra, ber fyrir sig minnisleysi á verknaðarstundu. Hann er metinn sakhæfur samkvæmt yfirmati geðlæknis. Aðalmeðferð fer fram í júní og verður þinghald lokað.

Fái einstaklingar sem eru hættulegir sjálfum sér ekki viðeigandi búsetuúrræði blasir við mikill harmleikur
Greinin hefur verið fjarlægð að beiðni höfundar.

Nærvera
Við lifum áhugaverða tíma. Tvær þversagnir í geðheilbrigðismálum blasa við. Önnur er sú að á sama tíma og við lofum fjölbreytileika fólks í samfélaginu, og þar með fjölbreytileika samfélagsins, þá virðumst við hafa afar ríka þörf fyrir að steypa fólk í, og skilgreina það út frá, tilteknum römmum.

Að vera manneskja
Geðhjálp stóð fyrir ráðstefnunni „Þörf fyrir samfélagsbreytingar: nýjar leiðir í geðheilbrigðismálum” nú fyrir helgi. Ráðstefnuna sóttu á þriðja hundrað þátttakendur sem vildu kynna sér önnur sjónarhorn en hafa verið ríkjandi geðheilbrigðismálum.

50+: „Það þykir ekki töff að segjast vera einmana“
„Þú getur verið nístandi einmana heima hjá þér með fjölskyldu þinni eða í vinahóp ef það eru ekki traust og kærleiksrík tengsl,“ segir Sigríður Hulda Jónsdóttir eigandi SHJ ráðgjafar.

„Það eru krakkar þarna núna sem eru bara í lífshættu”
Ingibjörg Isaksen, þingkona Framsóknarflokksins, segir ljóst að þjónusturof verði hjá þeim sem þegið hafa þjónustu hjá Janusi endurhæfingu síðustu misseri. Úrræðinu verður lokað í lok mánaðar. Alls þiggja 55 þjónustu hjá úrræðinu sem er þverfagleg geðræn endurhæfing.

Segir ríkið bera ábyrgð í máli mannsins á Hverfisgötu
Formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar segir ríkið draga lappirnar þegar kemur að því að bjóða andlega veikum einstaklingum viðeigandi úrræði. Á sama tíma sé mikilvægt að hlusta á áhyggjur íbúa sem segjast óttast nágranna sinn á Hverfisgötu.

Að nýta kvíðann sem styrkleika og okkur til framdráttar
Það er ekki ólíklegt að kvíði sé sú tegund vanlíðunar sem flest fólk þekkir á eigin skinni. Því það er enginn, nákvæmlega enginn í heiminum, sem getur sagt að hann/hún hafi aldrei upplifað kvíða yfir einhverju.

Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum
Ísland hefur alla burði til að geta orðið fyrirmyndaríki í heiminum með innleiðingu á áfallamiðaðri nálgun í fangelsismálum. Þetta segir framkvæmdastjóri Compassion Prison Project sem hefur heimsótt öll fjögur fangelsi landsins.

Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum
Leigusali á Hverfisgötu segist tala fyrir daufum eyrum lögreglu og Reykjavíkurborgar vegna íbúa í húsnæði á vegum borgarinnar sem haldi nágrönnum í heljargreipum. Leigusalinn hafi sjálfur titrað af hræðslu í samskiptum sínum við manninn.

Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs
Nemandi í HR sem glímir við geðræn veikindi kærði ákvörðun Háskólans í Reykjavík að hann þyrfti að sitja tvö sjúkrapróf samdægurs. Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema staðfesti ákvörðun háskólans og hafnaði kröfum nemandans.

Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur
Við þátttakendur í Janusi endurhæfingu erum mjög viðkvæmur hópur af einstaklingum með fjölþættan vanda og hefur verið fyrir utan vinnu, náms og virkni í lengri tíma. Margir hafa erfiðleika við það að koma sér úr rúminu hvað þá út í samfélagið eftir að hafa lokað sig af í mislangan tíma.

Metfjöldi sjálfsvígssímtala og hætt við þjónustuskerðingu
Símtölum frá fólki í sjálfsvígshugleiðingum til Rauða krossins hefur stórfjölgað á milli ára. Verkefnastjóri segir alvarlegar afleiðingar blasa við ef ekki næst að rétta af yfirvofandi hallarekstur á næstu mánuðum.

Heilsa, vellíðan, friður, réttlæti og jöfnuður mikilvægustu markmiðin
Íslendingar telja heilsu og vellíðan, frið og réttlæti, og jöfnuð mikilvægustu heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna til að fylgja eftir í íslensku samfélagi.

Hverju hef ég stjórn á?
Lífið færir mér ýmsar áskoranir og það væri óskandi að ég hefði stjórn á þeim öllum. Svo er víst ekki, það eina sem ég get stjórnað er ég sjálf, mín viðbrögð, mín hegðun og framkoma.

Háar hæðir og lágar lægðir Justins Bieber
Árið 2009 skaust ungur kanadískur tónlistarmaður upp á stjörnuhimininn með laginu One Time. Það sem fáir vissu kannski á þeim tíma var að hann ætti eftir að breyta gangi poppsögunnar og verða einhver stærsta stjarna okkar samtíma. Tónlistarmaðurinn heitir Justin Bieber.

Líflínan
Í þessari viku legg ég fram þingsályktunartillögu sem snýr að því að tryggja áframhaldandi starfsemi Janusar endurhæfingar eða tryggja sambærilega geðendurhæfingu fyrir ungmenni með fjölþættan vanda.

Álfurinn í landsliðsbúningi í ár
Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, afhenti Ölmu Möller heilbrigðisráðherra fyrsta álfinn í álfasölu SÁÁ þetta árið. Álfasalan hefst á morgun. Tekjum af sölunni er samkvæmt tilkynningu ætla að styðja við meðferðastarf SÁÁ.

Ekki talin yfirvofandi hætta en maðurinn geti orðið hættulegur
Landsréttur felldi í dag úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Sigurði Almari Sigurðssyni sem grunaður er um að hafa frelsissvipt erlendan ferðamann á Hverfisgötu aðfaranótt 1. maí. Eva Hauksdóttir, lögmaður hans, segir ekki yfirvofandi hættu en þó áhyggjuefni að hann gangi frjáls. Hann þurfi stöðuga umönnun og aðstoð.

Meistaragráða í lífsreynslu
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í lok árs 2006.

Yfirfull fangelsi, brostið kerfi
Í dag eru fangelsi landsins sprungin. Fangelsismálastofnun, Afstaða og félag fangavarða hafa ítrekað varað við því ástandi sem nú hefur skapast en nú er ekki pláss fyrir nýja fanga, hvorki í afplánun né í gæsluvarðhaldi.

„Ég fór úr sjötíu prósent þjáningu niður í tíu prósent“
Sylvía Rún Hálfdánardóttir fyrrverandi landsliðskona í körfubolta hefur glímt við þráhyggju- og árátturöskun (OCD) frá unglingsaldri. Hún hefur farið í gegnum ótal stundir þar sem hún hefur spurt sig, aftur og aftur, hvort hún gæti mögulega verið að ljúga að sjálfri sér, hvort hún hafi sagt eitthvað rangt, eða jafnvel hvort hún gæti, án þess að vilja það, skaðað einhvern.

Býður í hláturstund við gömlu þvottalaugarnar
Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari býður fólki að halda upp á alþjóðlegan hláturjógadag á morgun með hláturstund við gömlu þvottalaugarnar í Laugardalnum.

„Þetta er vítahringur sem endurtekur sig í sífellu!“
Íslenskur karlmaður var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í gær grunaður um hafa frelsissvipt erlendan ferðamann. Verjandi mannsins hefur kært úrskurðinn og segir manninn ekki hafa haft ásetning til að gera illt. Maðurinn glími við geðræn vandamál og eigi ekki heima í fangelsi.