Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)

Segir biðtíma eftir plássi á hjúkrunarheimilum hafa styst
Heilbrigðisráðherra segir biðtíma eftir plássi á hjúkrunarheimilum hafa styst þrátt fyrir að aldrei hafi fleiri beðið eftir plássi á höfuðborgarsvæðinu. Mikil uppbygging hafi verið á hjúkrunarrýmum um land allt en borgarfulltrúi segir upbbygingu annars staðar ekki minnka þörf á uppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu.

Stórnotendur leigubíla hlynntir Uber-þjónustu: „Leigubílakerfið komið til ára sinna“
Samkvæmt nýrri könnun eru stórnotendur leigubíla hvað hlynntastir því að heimila akstursþjónustu á borð við Uber hér á landi. Lögfræðingur hjá Viðskiptaráði segir ljóst að leigubílakerfið sé komið til ára sinna.

Harma ómannúðlega og vanvirðandi meðferð á hælisleitendum
Íslandsdeild mannréttindasamtakanna Amnesty International fordæmir brottvísun íslenskra stjórnvalda á hælisleitendum í vikunni. Harmar hún „ómannúðlega og vanvirðandi“ meðferð á viðkvæmum hópi sem var vísað úr landi í vikunni.

Fordæma brottvísun á ungmenni sem kom sem fylgdarlaust barn
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi fordæmir að íslensk stjórnvöld hafi vísað úr landi ungmenni sem til landsins sem fylgdarlaust barn rétt eftir að það varð sjálfráða á fimmtudag. Samtökin ítreka áköll sín um að íslensk stjórnvöld hætti að senda hælisleitendur til Grikklands.

Farið hefur fé betra: Bless ríkisstjórn
Hvert er ákallið í samfélaginu? Ef einhver dæmdi samfélagið okkar eftir verkum ríkisstjórnarinnar myndi viðkomandi álykta að hér væri hávært ákall um viðvarandi skuldasöfnun hins opinbera á meðan grunnstoðirnar eru skildar eftir.

Háttsemi Isavia feli í sér atlögu að störfum blaðamanna
Blaðamannafélag Íslands krefur ríkislögreglustjóra og Isavia svara vegna aðgerða starfsmanna Isavia við brottflutning hælisleitenda fyrr í vikunni. Flóðljósum var beitt gegn blaðamönnum til að hindra fréttaflutning af málinu.

Læknir, túlkur og sérþjálfaður eftirlitsaðili tóku þátt í brottvísuninni
Við brottflutning fimmtán hælisleitenda í vikunni voru, auk lögreglu, læknir, túlkur og sérþjálfaður eftirlitsaðili. Leiguflugvél var fengin undir fólkið. Stjórnarráðið segir að lögum hafi verið fylgt út í ystu æsar.

Lögin ekki vandamálið heldur framkvæmdin
Þingmaður Pírata segir ekkert í Útlendingalögum skikka stjórnvöld til að framkvæma brottflutning með jafn mikilli hörku og gert var í vikunni. Það veki furðu að ríkisstjórnin ýti eftir nýrri útlendingalöggjöf þegar forsætisráðherra telur mikla sátt ríkja um núgildandi lög.

Forsætisráðherra hættir við þátttöku á glæpasagnahátíðinni
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun ekki koma fram á bókmenntahátíðinni Iceland Noir.

Heyrist vera almenn samstaða um lögin þó framkvæmdin sé iðulega gagnrýnd
Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra heyrist að almenn samstaða sé um útlendingalögin þó að framkvæmdin við brottflutning hælisleitenda sé iðulega gagnrýnd.

Spyr hvort önnur framkvæmd sé nokkuð í boði
Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, segir að farið hafi verið að lögum þegar hælisleitendum var vísað úr landi í fyrrinótt. Hann spyr hvort að önnur framkvæmd en sú að lögregla leiti uppi og vísi þeim frá landi með valdi synjað hefur verið um dvöl hér á landi en neita að fara. Forsætisráðherra minnir á að lög um útlendinga hafi verið samþykkt í breiðri sátt árið 2016.

Ekkert bendi til að föður Sigríðar hafi verið hlíft af lögreglunni
Dómsmálaráðherra segir ekkert benda til að föður ríkislögreglustjóra hafi verið hlíft af lögreglu eftir að hann var sakaður um að hafa selt ólögleg skotvopn. Samkvæmt dómsgögnum voru vopnin hvorki skoðuð né upprunavottorð afhent lögreglu þegar hún skráði vopnin á sínum tíma.

„Afætur“
Fólk ætti að hlusta á Magnús Ingvason, skólameistara FÁ, i viðtali á RÚV í gær. Hann talar um Írösku systurnar Yasameen og Zahraa sem stunduðu nám við skólann í eitt og hálft og stóðu sig afburða vel. Lögðu sig fram um að læra íslensku og voru góðir námsmenn, enda ekki sjálfgefið að það tækifæri fáist í Grikklandi, hvað þá Írak.

Ungliðahreyfing VG gagnrýnir þingmenn sína
Framkvæmdastjórn Ungra vinstri grænna fordæmir brottflutning hælisleitenda sem framkvæmdur var aðfaranótt fimmtudags. Stjórnin spyr hvort þingmönnum flokksins finnist vinnubrögð í málinu vera viðunandi.

„Mér eru mikil vonbrigði að ég skuli búa í svona landi“
„Mér eru mikil vonbrigði að ég skuli búa í svona landi þar sem einhver lög leyfa að svona gjörningar fari fram; að fólk sé vakið upp um miðja nótt, tekið af lögreglunni út í bíl og keyrt upp á flugvöll og flogið til útlanda.“

Eðlilegt að fólk reiðist þegar það sjái valdbeitingu
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að í málum þeirra fimmtán hælisleitenda sem sendir hafi verið úr landi í gær hafi legið fyrir stjórnvaldsákvörðun, þótt einhverjir hafi óskað eftir endurupptöku eða leitað til dómstóla.

Katrín fari með rangt mál í málefnum hælisleitenda
Lögmaður þeirra hælisleitenda sem sendir voru úr landi í nótt segir Katrínu Jakobsdóttur hafa farið með rangt mál þegar hún tjáði sig um málefni þeirra í morgun. Lögmaður fjölskyldunnar, sem var send úr landi í nótt, segir þau hafa beðið eftir niðurstöðu í máli sínu fyrir héraðsdómi.

Svandís ávarpar aðildarríkjafund í Egyptalandi
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra verður fulltrúi Íslands á tuttugasta og sjöunda aðildarríkjafundi Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP27). Fundurinn stendur nú yfir í Sharm El Sheikh í Egyptalandi.

Mótmæla brottvísunum á Austurvelli
Boðað hefur verið til mótmæla á Austurvelli klukkan 17:15 í dag á Austurvelli vegna brottflutnings hælisleitenda.

Sjón dregur sig út úr glæpasagnahátíð vegna þátttöku Katrínar
Rithöfundurinn Sjón hefur gefið út yfirlýsingu þess efnis að hann muni ekki taka þátt í bókmenntahátíðinni Iceland Noir 2022 vegna aðgerða ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur í málefnum hælisleitenda.

„Mörgum spurningum ósvarað“ um brottflutning hælisleitenda
Þingmaður Vinstri grænna segir mörgum spurningum ósvarað um brottflutning hælisleitenda sem ríkislögreglustjóri framkvæmdi í gærkvöldi og morgun. Til stóð að flytja 28 manns úr landi en 13 einstaklingar fundust ekki þegar þeirra var leitað. Fimmtán fóru með flugvél úr landi í morgun, þar á meðal fatlaður hælisleitandi frá Írak.

Katrín: Ekki mitt að skipta mér af formannskjöri annarra flokka
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að það sé ekki hennar sem formanns í einum stjórnmálaflokki að tjá sig um hvernig aðrir flokkar velji sér formann. Ekki væri hægt að gefa sér neitt um möguleg áhrif á stjórnarsamstarfið næði Guðlaugur Þór Þórðarson kjöri sem formaður Sjálfstæðisflokksins.

Gildi færir niður íbúðabréfin um fimmtán milljarða
Gildi lífeyrissjóður hefur fært niður virði skuldabréfa, útgefnum af gamla Íbúðalánasjóðnum, um samtals 14,7 milljarða króna vegna áforma fjármálaráðherra um að slíta ÍL-sjóði með sérstakri lagasetningu, náist ekki samkomulagi við kröfuhafa. Niðurfærslan hefur þegar haft áhrif á greiðslur úr séreignardeild Gildis.

Bjarni segir Guðrúnu á leið í dómsmálaráðuneytið og Jón úr ríkisstjórn
„Ég var skýr með það frá upphafi og hef aldrei skipt um skoðun á því,“ svaraði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, spurður að því í gær hvort það væri alveg á hreinu að Jón Gunnarsson væri á leið úr dómsmálaráðuneytinu í vetur og að Guðrún Hafsteinsdóttir tæki við af honum.

Félagslegar áherslur Norðurlanda verða að fylgja loftslagsaðgerðum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir Norðurlöndin deila gildismati og framtíðarsýn og styðji öll Úkraínu eftir innrás Rússa.

Boðar aðgerðir í netöryggismálum
Ísland stendur sig mun verr en hin Norðurlöndin þegar kemur að netöryggi sem gerir þjóðina að skotmarki erlendra netárásahópa. Nýsköpunarráðherra segir okkur skorta sérhæfðan mannauð í málaflokknum og boðar aðgerðir.

„Alræðisöfl virðast vera að eflast“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók þátt í leiðtogaumræðum á þingi Norðurlandaráðs í dag. Umræðuefnið var framtíð norræns samstarfs og hlutverk Norðurlanda í umheiminum. Þingið sem er hið 74. í röðinni stendur fram á fimmtudag.

Kosið um miklu meira en bara formann Sjálfstæðisflokksins
Stjórnarþingmenn telja ólíklegt að hægt verði að halda stjórnarsamstarfinu áfram verði Guðlaugur Þór kjörinn nýr formaður Sjálfstæðisflokksins næstu helgi. Stjórnmálaskýrandi segir formannsslaginn hreinlega snúast um hvort blása eigi til þingkosninga í ár.

Guðlaugur segist ekki hafa hótað Bjarna
Guðlaugur Þór Þórðarson orkumálaráðherra segir allsendis ósatt að hann hafi verið reiðubúinn að falla frá áformum sínum um formannsframboð gegn því að Bjarni myndi eftirláta honum að taka við sem fjármála- og efnahagsráðherra.

Guðlaugur vildi verða fjármálaráðherra gegn því að falla frá framboði
Guðlaugur Þór Þórðarson, orku- og loftlagsráðherra, var reiðubúinn að falla frá áformum sínum um að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins gegn því að Bjarni Benediktsson, núverandi formaður flokksins, myndi eftirláta honum að taka við sem fjármála- og efnahagsráðherra.