Auglýsinga- og markaðsmál

Ósátt við að Ísland sé auglýst með peysum sem ekki eru prjónaðar hér á landi
Handprjónasambandinu þykir þetta skjóta skökku við.

Bein útsending: Markaðsverkefnið Ísland – saman í sókn
Íslandsstofa stendur fyrir kynningar- og vinnufundar fyrir hagaðila og aðra áhugasama um markaðsverkefnið Ísland – saman í sókn í dag, milli klukkan 13 og 15.

Mörg lið líkleg til afreka í Lengjudeild: „Slys ef að Eyjamenn færu ekki upp“
„Þessi samningur skiptir félögin í deildinni gríðarlega miklu máli,“ segir Haraldur Haraldsson, formaður Íslensks toppfótbolta, eftir undirritun samninga við Íslenskar getraunir um að 1. deildir karla og kvenna heiti Lengjudeildir í sumar.

Ívar nýr aðstoðarframkvæmdastjóri Birtingahússins
Ívar Gestsson hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Birtingahússins.

FÍT-verðlaunin 2020: Auglýsingar
Í flokknum Auglýsingar voru veitt gull- og silfurverðlaun í nokkrum undirflokkum. Þeir eru Auglýsingaherferðir, Umhverfisgrafík, Opinn flokkur og Stakar auglýsingar fyrir prentmiðla.

Segir rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla aldrei hafa verið fjandsamlegra
Auglýsingatekjur innlendra miðla árið 2018 voru ríflega fjórðungi lægri en þær voru árið 2007. Páll Magnússon, formaður allsherjar og menntamálanefndar Alþingis, segir rekstrarumhverfi einkarekna fjölmiðla á Íslandi aldrei hafa verið fjandsamlegra síðan ljósvakamiðlar voru gefnir frjálsir. Ekki verði lengur hægt að líta fram hjá fyrirferð Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði.

,,Það er einhver núna að vinna í því að ræna kúnnunum af þér“
Dr. Valdimar Sigurðsson prófessor við HR og forstöðumaður Rannsóknarseturs í markaðsfræði og neytendasálfræði segir að fyrirtæki sem ekki huga að markaðsmálum nú, gætu stofnað framtíðarsölumöguleikum í hættu.

Fimm milljarðar króna í auglýsingakaup til Google, Facebook og erlendra miðla
Ætla má að íslenskir auglýsendur hafi greitt Google, Facebook og öðrum útlenskum miðlum 5,2 milljarða fyrir birtingu auglýsinga árið 2018 samkvæmt varfærnu mati Hagstofunnar.

Auglýsingabirtingar á krepputímum og innlendir og erlendir valkostir
Samfélagsmiðlar og Google njóta góðs af því að vera ekki skattlagðir á Íslandi en umræða um hvort ríki og sveitarfélög eigi að auglýsa þar, getur ýtt undir að frekar er auglýst á innlendum miðlum.

Auglýsendurnir í kjölfar bankahruns og markaðsstarfið framundan
Það reyndist mörgum auglýsendum vel að halda úti markaðsstarfi í kjölfar bankahruns en hvað segja forsvarsmenn helstu auglýsingastofa nú um stöðuna í dag og horfurnar framundan?

Karlarnir í aðalhlutverkum í helstu markaðsherferð Íslandsbanka
Steindi Jr. er andlit Reykjavíkurmaraþonsins í ár sem kennt er við aðalstyrktaraðilann Íslandsbanka.

Að velja það besta
Íslendingar standa frammi fyrir risavöxnu verkefni, það er öllum ljóst. Uppbygging ferðaþjónustu hefur á undanförnum áratug styrkt stoðir efnahags Íslands, fjölgað störfum og skapað mikil verðmæti.

Ríkiskaup leitast við að leiðrétta rangfærslur um útboð á kynningarherferð
Ríkiskaup hafa sent frá sér tilkynningu þar sem því er haldið fram að fjölmiðlaumfjöllun um nýafstaðið útboð kynningarherferðarinnar „Ísland – saman í sókn“ feli í sér rangfærslur sem tilefni sé til að leiðrétta.

Telja dómara sem dæmdi á skjön við alla hina tengjast bresku auglýsingastofunni
Ekkert hefur þó fengist staðfest í þeim efnum en Vísir hefur sent Ríkiskaupum og Íslandsstofu, sem fara fyrir markaðsátakinu, fyrirspurn vegna málsins.

Pipar kærir Ríkiskaup og krefst þess að eigin tillaga verði valin
Auglýsingastofan Pipar/TBWA hefur kært Ríkiskaup vegna þeirrar ákvörðunar að velja tilboð bresku auglýsingastofunnar M&C Saatchi í markaðsátakinu „Ísland – saman í sókn“.

Erum við saman í sókn?
Hvernig sem á það er litið þá er niðurstaða útboðsins á markaðsátakinu „Saman í sókn“ sem M&C Saatchi stofan var valin til að leiða dapurleg og í ljósi aðstæðna pínleg fyrir skapandi greinar á Íslandi.

M&C Saatchi stolt af því að hafa orðið fyrir valinu
Auglýsingastofan M&C Saatchi er stolt að hafa orðið fyrir valinu í útboði vegna nýrrar markaðsherferðar fyrir íslenska ferðaþjónustu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stofunni.

Ekki greint frá rannsókn fjármálaeftirlits í gögnum frá M&C Saatchi
Allar tillögurnar sem sendar voru inn vegna útboð markaðsverkefnisins „Ísland - Saman í sókn“ áttu það sameiginlegt að vera samstarf innlendra og erlendra aðila en ekkert kom fram um rannsókn breska fjármálaeftirlitsins í gögnum sem auglýsingastofan M&C Saatchi sendi inn en stofan í samvinnu við íslensku stofuna Peel varð fyrir valinu.

300 milljónirnar verði ekki algjörlega sendar úr landi
Þrjú hundruð milljón krónurnar sem Íslandsstofa hyggst verja í nýja auglýsingaherferð, sem féll í skaut bresku auglýsingastofunnar M&C Saatchio og hinnar íslensku Peel, hverfa ekki með öllu úr hagkerfinu að sögn fulltrúa auglýsingastofanna.

Leiðinlegt að stærsta verkefnið á markaðnum fari til Bretlands í ójafnri keppni
Valgeir Magnússon, stjórnarformaður íslensku auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, segir það leiðinlegt, og skjóta skökku við, að stærsta verkefni á Íslandsmarkaði hafi fallið í skaut breskrar auglýsingastofu, einkum í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi á íslenskum vinnumarkaði.

Orðstír fæst ekki keyptur og oft veltir lítil þúfa þungu hlassi
Orðsporskrísur hafa alltaf afleiðingar segir Andrés Jónsson en Elísabet Sveinsdóttir telur að þessar afleiðingar mættu vera meiri því fólk sé of fljótt að gleyma.

Einn og hálfur milljarður í markaðsátak erlendis
Ríkið mun verja einum og hálfum milljarði í markaðsátak erlendis til að kynna Ísland sem áfangastað fyrir ferðamenn.

Segir rauða litinn víkjandi í merki VG
Logi Einarsson hannaði fyrsta merki Vinstri grænna.

Bannað að birta mynd af Bubba með sígó á gafli Borgó
Bubbi Morthens segir að lögin meini Borgarleikhúsinu að birta mynd af sér með sígarettu í munnvikinu.

Hvernig velur hið opinbera íslenskt í dag?
Nokkuð hefur verið fjallað um undanfarið að Ferðamálastofa kjósi að nýta sér samfélagsmiðla til að hvetja landsmenn til að ferðast innanlands í sumar.

Áhrif falsfrétta á auglýsendur á netinu
Niðurstöður nýlegrar rannsóknar sýna að falsfrétt getur haft þau áhrif að markmið auglýsingabirtingarinnar snýst í andhverfu sína þar sem neikvæð upplifun af falsfrétt yfirfærist á vörumerki auglýsandans.

Sér fyrir endann á tærri snilld Google og Facebook?
Gangi þróunin eftir, sem þegar er hafin í Evrópu og víðar, má vona að misgengið, sem varð á markaði með fréttir á síðustu tveimur áratugum, gangi til baka. Eðlilegt ástand verður þegar útgefendur fá sanngjarnan hlut af þeim tekjum sem Google og Facebook fá núna fyrir lestur, áhorf og hlustun á fréttir.

Búbót fyrir félögin ef áfengis- og veðmálaauglýsingar yrðu leyfðar á íþróttaviðburðum
Möguleikum íslenskra íþróttafélaga til að sækja sér styrki myndi fjölga ef áfengis- og veðmálaauglýsingar yrðu heimilar á íslenskum íþróttaviðburðum.

Veðmálafyrirtæki vildu kaupa nafnið á Valsvellinum
Þegar Valur var að leita að styrktaraðila til að kaupa nafnið á heimavelli félagsins bönkuðu tvö veðmálafyrirtæki upp á. Slíkum fyrirtækjum er óheimilt að auglýsa á íþróttaviðburðum á Íslandi.

Auglýsendur sem náðu forskoti í kreppum
Á samdráttartímum geta auglýsendur náð forskoti á markaði sem síðan verður undirstaða frekari velgengni um langa hríð. Hér eru nokkur dæmi.