

Topp fimm listi gærkvöldsins í Seinni bylgjunni var um mikilvægustu leikmennina í Olís deild kvenna í handbolta í dag og hann er örugglega ekki óumdeildur.
Handboltakonan Birna Berg Haraldsdóttir segir að það kitli að taka takkaskóna af hillunni og byrja aftur í fótbolta.
Færeyingarnir Áki Egilsnes og Allan Nordberg eru búnir að vera í nokkur ár í herbúðum KA á Akureyri. Seinni bylgjan fékk þá í viðtal á dögunum.
Handboltaparið Ólafur Gústafsson og Rut Jónsdóttir snéru heim úr atvinnumennsku í sumar og ákváðu að skella sér norður og spila með KA og KA/Þór í Olís deildunum.
Ásgeir Örn Hallgrímsson – fyrrum landsliðsmaður Íslands og sérfræðingur Seinni bylgjunnar – sem valdi bestu fimm örvhentu leikmenn Olís deildar karla.
„Við eigum eftir að fara upp brekkur og niður þær en stigin munu koma, ég skal lofa því,“ segir Þorvaldur Sigurðsson, annar tveggja þjálfara handboltaliðs Þórs á Akureyri.
Aðalsteinn Ernir Bergþórsson hefur vakið athygli í vörn Þórsara í Olís deild karla í handbolta en hann á allt aðra sögu en flestir leikmenn deildarinnar.
Jóhann Gunnar Einarsson setti saman fróðlegan topp fimm lista undir dramatískum formerkjum í Seinni bylgjunni í gærkvöldi.
Martha Hermannsdóttir gengur vel að spila handbolta í Olís deildinni meðfram því að reka tannlæknastofu. Hún hefur verið á leiðinni að hætta í mörg ár en er samt enn að spila með liði KA/Þór.
Einn knattspyrnuleikur er í beinni útsendingu á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag en einnig verður fjallað um handbolta og rafíþróttir á skjánum í dag.
Litáíski markmaðurinn Vilius Rasimas hefur smollið vel inn í lið Selfoss í Olís-deildinni í handbolta. Hann ræddi við Henry Birgi Gunnarsson í Seinni bylgjunni.
Selfyssingurinn Magnús Öder var efstur á blaði sérfræðinga Seinni bylgjunnar þegar horft var til leikmanna sem gætu hugsað sér til hreyfings í Olís-deildinni í handbolta.
Theodór Ingi Pálmason valdi fimm framtíðar landsliðsmenn Íslands úr Olís-deild karla í Seinni bylgjunni.
Vonarstjarna íslenska handboltans meiddist á hné eftir aðeins nokkra mánuði í atvinnumennsku. Það er samt enginn uppgjafartónn í Hauki Þrastarsyni eins og Henry Birgir Gunnarsson komst að í Seinni bylgjunni.
„Þeir eru bara alveg eins,“ segir Rúnar Sigtryggsson um Þórólf Guðnason sóttvarnalækni og Guðmund Guðmundsson landsliðsþjálfara í handbolta.
Tveir þættir verða í beinni útsendingu á sportrásum Stöðvar 2 í dag.
Þeir Einar Andri Einarsson og Ágúst Jóhannsson völdu fimm bestu leikmenn Olís-deildar karla í Seinni bylgjunni.
Sérfræðingarnir í Seinni bylgjunni fengu smá heimaverkefni frá Henry Birgi Gunnarssyni fyrir þáttinn í vikunni. Þeir hentu í nokkra topp fimm lista og sá fyrsti var yfir bestu félagsskiptin.
Íslandsmótið í handbolta var nýhafið þegar það þurfti að gera tveggja vikna hlé og það hlé gæti lengst enn frekar.
Hafdís Renötudóttir ræddi óvænt félagsskipti sín til Svíþjóðar í viðtali við Seinni bylgjuna sem og hvernig gengur hjá henni í endurkomunni eftir höfuðmeiðslin.
Ofan á öll meiðslin sem herja á karlalið Aftureldingar í handbolta greindist leikmaður liðsins með kórónuveiruna.
Aldrei þessu vant verður rólegt um að litast á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag.
Jóhann Gunnar Einarsson var ekki í vafa um að Haukamaðurinn Þráinn Orri Jónsson hefði átt að fá rautt spjald gegn Val.
Er hægt að vera betri allan tímann en tapa leiknum? Seinni bylgjan ræddi viðtalið við þjálfara ÍR eftir tapleikinn á móti Fram.
Valsmaðurinn Magnús Óli Magnússon átti mjög flottan leik þegar Valsliðið sótti tvö stig á Ásvelli með því að vinna topplið Hauka 28-25. Magnús Óli fékk líka hrós frá sérfræðingum Seinni bylgjunnar.
Jóhann Gunnar Einarsson, sérfræðingur Seinni bylgjunnar sagði í síðasta þætti að hann teldi að FH myndi ekki enda í efstu fjórum sætum deildarinnar.
Rúnar Sigtryggsson flutti eldræðu í síðasta þætti Seinni bylgjunnar þar sem hann gagnrýndi íslensk lið fyrir ofnotkun á Kaíró-leikkerfinu, kerfi sem sé kallað „Ísland“ í þýska handboltanum.
Sérfræðingar Seinni bylgjunnar voru ekki sammála þjálfara FH að Britney Cots, markahæsti leikmaður liðsins, fengi ósanngjarna meðferð hjá dómurum landsins.
Sérfræðingar Seinni bylgjunnar hrósuðu Sunnu Jónsdóttur í hástert eftir framgöngu hennar í 23-22 sigri ÍBV gegn Val í Olís-deildinni.
Rúnar Sigtryggsson segir Rógva Dal Christiansen, færeyska línumanninn í liði Fram, ekki fá ósanngjarna meðferð hjá dómurum Olís-deildarinnar í handbolta. Framarar geti sjálfum sér um kennt.