Öryggis- og varnarmál

Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi
Svokallaðir ógnarhópar sem þekktir eru fyrir njósnir og sagðir eru hafa tengsl við kínversk stjórnvöld hafa athafnað sig hér á landi, að því er fram kemur í nýrri árskýrslu netöryggissveitarinnar CERT-IS. Sviðsstjóri segir um raunverulega ógn að ræða en alþjóðlegt samstarf skipti sköpum í að takast á við hana.

Hafnar tillögu um að verja fimm prósentum í varnamál
Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, hefur hafnað tillögu NATO um að framlög aðildarríkja til varnarmála verði hækkuð í fimm prósent af vergri landsframleiðslu. Hann segist vilja sveigjanlegri formúlu og að slík markmið séu ekki aðeins ósanngjörn heldur hafi þau einnig þveröfug áhrif.

„Mikilvægt skref“ að veita Bandaríkjunum aðgang að dönskum herstöðvum
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir Dani hafa stigið mikilvægt og jákvætt skref fyrir Atlantshafsbandalagið með því að lögleiða samning við Bandaríkin sem veitir þeim nær óhindraðan aðgang að dönskum herstöðvum.

Bandarískar herstöðvar verða reistar í Danmörku
Stór meirihluti á danska þinginu samþykkti í gær að rýmka rétt Bandaríkjanna til hernaðarlegrar viðveru í Danmörku. Bandaríkjamenn munu fara með lögsögu yfir hermönnum sínum í Danmörku og hafa aðgang að þremur flugherstöðvum á Jótlandi.

Danskar herþotur verða staðsettar á Grænlandi
Grænlenska landsstjórnin og danska ríkisstjórnin hafa kynnt ákvörðun um að viðvera danska hersins á Grænlandi verði efld á næstu mánuðum. Tilgangurinn er bæði að styrkja varnarmátt danska hersins á norðurslóðum og að treysta öryggis- og björgunarviðbúnað gagnvart íbúum Grænlands.

Krefst fimm prósenta til varnarmála: „Allir þurfa að leggja hönd á plóg“
Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins verða að verja fimm prósentum af vergri landsframleiðslu til varnarmála. Þá verður Evrópa og Kanada að hætta að reiða sig á hermátt Bandaríkjanna og standa á eigin fótum.

Sigríður svarar gagnrýni á störf lögreglunnar á Suðurnesjum
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri svaraði gagnrýni Úlfars Lúðvíkssonar, fyrrverandi lögreglustjóra, í tölvupósti til starfsmanna embættisins á þriðjudag. Þar sagði hún Úlfar ekki hafa sinnt sameiginlegu verkefni lögreglunnar og tollsins um farþegaeftirlit og því hafi samstarfinu verið rift.

Skortir fólk til framleiðslu hergagna í Evrópu
Skortur á starfsfólki hefur komið niður á viðleitni forsvarsmanna hergagnaframleiðenda Evrópu til að auka framleiðslu. Fjármagnið og pantanirnar eru í mörgum tilfellum til staðar en fleiri hendur vantar til að framleiða sprengikúlurnar, skriðdrekana og annarskonar hergögn.

Bein útsending: Norðurslóðir í breyttum heimi
Varðberg, Norðurslóðanet Íslands, Háskólinn á Akureyri og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar standa að opnum fundi um öryggismál á norðurslóðum milli klukkan 15 og 17 í dag. „Norðurslóðir í breyttum heimi“ er yfirskrift málstofunnar en hægt verður að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan.

Ísland verði að hafa skoðun á vörnum NATO við landið
Forsætisráðherra segir Atlantshafsbandalagið þurfa að beina sjónum sínum í auknum mæli til Norðurslóða, þangað sem alþjóðleg spenna er að færast. Ísland þurfi að byggja upp innviði, á borð við flugvelli og hafnir, til að leggja sitt af mörkum til bandalagsins.

Norðurlöndin standi saman vörð um alþjóðalög
Forsætisráðherrar Norðurlandanna, auk leiðtoga Álandseyja, Færeyja Grænlands, komu saman í Finnlandi i dag. Þar var farið yfir öryggis- og varnarmál á Norðurlöndum, málefni Grænlands og ásælni forseta Bandaríkjanna í eyjuna, efnahagsmál auk ýmissa annarra mála.

EES-ríkin þrjú efla samstarf við ESB á sviði öryggismála
Ísland, Noregur og Liechtenstein, EFTA-ríkin innan EES, og Evrópusambandið hafa sammælst um að efla samstarf sitt á sviði utanríkis- og öryggismála.

Hvetja stjórnvöld í Ísrael til að breyta stefnu sinni tafarlaust
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra undirritaði í dag yfirlýsingu með leiðtogum sex annarra ríkja þar sem þeir lýsa því yfir að tafarlausra aðgerða sé þörf til að koma í veg fyrir frekari hörmungar á Gasa. Ísland átti frumkvæði að gerð yfirlýsingarinnar samkvæmt tilkynningu stjórnarráðsins og veitti því forystu ásamt Spáni að hópurinn náði saman.

Undirbúa að verja mun meira til varnarmála
Ráðherra Atlantshafsbandalagsins komu saman á óformlegum fundi í Tyrklandi. Þar ræddu þeir meðal annars væntanlega mikla aukningu í framlögum til varnarmála, sem Bandaríkjamenn hafa farið fram á, og undirbúning fyrir leiðtogafund NATO sem haldinn verður í Haag í sumar.

Yfirmaður herafla NATO á Íslandi
Christopher Cavoli, yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu og yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins (SACEUR), heimsótti Ísland í vikunni. Hér fundaði hann meðal annars með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra.

Bein útsending: Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri
Félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst stendur fyrir ráðstefnu um málefni Norðurslóða milli klukkan 9 g 16 í dag. Ráðstefnan verður haldin í Norræna húsinu og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan.

Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir mikilvægt að Norður-Atlantshafsþjóðirnar sýni sterka forystu. Allir sem horfi á sjónvarp horfi upp á breytta heimsmynd. Mikilvægt sé að viðhalda og bæta samstarf Íslands og Færeyja.

„Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag
Danska konungsríkið; Danmörk, Grænland og Færeyjar, taka í dag við formennsku í Norðurskautsráðinu. Vivian Motzfeldt, utanríkisráðherra Grænlands, fer með formennsku í ráðinu næstu tvö árin fyrir hönd ríkissambandsins en þetta er í fyrsta sinn sem Grænlendingar mun leiða ráðið.

Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi
Fjórar verktakasamsteypur hafa verið samþykktar í forvali til að bjóða í gerð skipaganga í Noregi. Tveimur verktökum frá Kína var hins vegar hafnað. Norskir sérfræðingar í öryggis- og varnarmálum höfðu áður varað við því að kínverskum verktökum yrði leyft að taka þátt í útboðinu.

Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar
Nýskipaður þjóðaröryggisráðgjafi sænsku ríkisstjórnarinnar steig til hliðar sama dag og hann var skipaður eftir að gamlar nektarmyndir af honum af stefnumótasíðu skutu upp kollinum. Forsætisráðherrann segir málið alvarlegt.

Kristrún ræddi við Trump og Selenskíj á fundi JEF-ríkja
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er stödd í Osló á fundi um varnarmál með fulltrúum Norðurlanda, Eystrasaltsríkja og fleiri ríkja sem tilheyra JEF-ríkjunum.

Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök
Ógn gegn Noregi hefur aldrei verið meiri en nú. Stjórnvöld þar í landi kynntu í dag sérstaka þjóðaröryggisstefnu og hvetur forsætisráðherrann landa sína til að vera viðbúna átökum.

Aldrei fleiri stríð í heiminum síðan í síðari heimsstyrjöld
Aldrei síðan í fyrri heimsstyrjöldinni hafa jafn mörg stríð geysað í heiminum og nú. Bæði hefur fjöldi stríða og átaka farið vaxandi á heimsvísu og þá er að eiga sér stað aukin hervæðing samkvæmt nýrri rannsókn.

„Þetta eru bara krakkar sem eru í þessu fyrir peningana“
Hakkarahópurinn Scattered spider hefur síðustu daga herjað á stór smásölufyrirtæki í Bretlandi. Það eru Harrods, Marks & Spencer og Co-op. Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis, segir árásirnar alvarlegri en þær eru látnar líta út í fjölmiðlum. Syndis vaktar íslenska netverslun sérstaklega vegna árásanna.

Glittir í að Trump beiti loksins Rússa þrýstingi – eða snýr hann baki við Úkraínu?
Með Trump varð sú grundvallarbreyting á stefnu Bandaríkjanna að upp kom óvissa um hvort Úkraína nyti yfir höfuð stuðnings þeirra gegn Rússum. Einnig varð til óvissa um afstöðu Bandaríkjanna til Rússlands og Pútín-stjórnarinnar. Markmiðið virtist allt að því vera að vingast við Pútín á kostnað Úkraínu. Standa með andstæðingi NATO á örlagatímum í Evrópu.

Danakonungur til Grænlands í annað sinn á skömmum tíma
Friðrik Danakonungur er kominn í þriggja daga heimsókn til Grænlands. Konungi var tekið fagnandi af íbúum Nuuk sem fjölmenntu á skipulagða viðburði til að heilsa upp á þjóðhöfðingja sinn.

Hljóð og mynd íslenskra varna
Íslendingar ákváðu að endurreisa lýðveldið 17. Júní 1944. Ég hygg að það sé meirihluti Íslendinga sem vilja efla, varðveita og styrkja lýðveldi Íslands fyrir komandi kynslóðir, börn okkar og barnabörn. Á þeim tíma sem stríð geysar í Evrópu sem ógnar okkur öllum erum við föst í þeirri hugsun og tíma sem var.

Mikilvægt að vita hvar og hvernig réttar upplýsingar fást í krísuástandi
Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstöðumaður netöryggissveitarinnar CERT-IS, segir Ísland standa ágætlega gagnvart því að sæstrengur rofni eða hér verði allsherjar rafmagnsleysi. Mikilvægt sé fyrir almenning að vita, við slíkar aðstæður, hvar þau fái réttar upplýsingar og hvernig þau fái þær. Mælt er með að eiga útvarp með FM sendi.

Örlög Úkraínu varða frið og öryggi á Íslandi
Í dag er ár liðið frá því Alþingi samþykkti með þverpólitískri samstöðu þingsályktun um stefnu um stuðning Íslands við Úkraínu til ársins 2028. Í þingsályktuninni segir að innrásarstríð Rússlands í Úkraínu sé alvarlegasta öryggisógn sem steðjað hefur að Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar og skýr atlaga að alþjóðakerfinu sem byggist á virðingu fyrir alþjóðalögum, friðhelgi landamæra og landhelgi ríkja. Með stuðningi við öryggi og sjálfstæði Úkraínu standi stjórnvöld vörð um beina öryggishagsmuni Íslands, alþjóðakerfið og alþjóðalög sem fullveldi Íslands byggist á.

Mikilvægt að vera betri í bakgarðinum en óvelkomnir gestir
Kafbátaleitaræfing á vegum Atlantshafsbandalagsins (NATO) og Landhelgisgæslunnar hófst í dag og mun standa yfir í tvær vikur. Um er að ræða umfangsmikla æfingu þar sem herskip frá Evrópuþjóðum, þyrlur og kafbátar koma við sögu.