Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Kjartan Kjartansson skrifar 22. september 2026 15:43 Mette Frederiksen (f.m.) tekur í spaðann á Donald Trump Bandaríkjaforseta við undirritun samningsins um Grænland í dag. Jens-Frederik Nielsen, forsætisráðherra Grænlands, klappar þeim lof í lófa. Vísir/EPA Samkomulag Bandaríkjanna og Danmerkur um Grænland gengur út á að halda sameiginlegum andstæðingum þeirra fjarri eyjunni. Leiðtogar þjóðanna skrifuðu undir samkomulagið í New York í dag.
Donald Trump Bandaríkjaforseti, Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Jens-Fredrik Nielsen, forsætisráðherra Grænlands, staðfestu samkomulagið með undirskrift sinni á hliðarlínum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Frederiksen sagði samkomulagið gott fyrir Bandaríkin, Danmörku og Grænland, NATO og þess vegna Evrópu í heild. Samningurinn væri betri og ítarlegri en eldri varnarsamningur þeirra frá 1951. „Þú hefur verið skýr um að þú viljir ekki að andstæðingar komi nærri. Ég er alveg sammála. Með þessum samningi gera þeir það ekki. Þeir fá ekki að koma nálægt eða komast til áhrifa á Grænlandi,“ sagði danski forsætisráðherrann. Með samkomulaginu væri sameiginlegt öryggi þjóðanna og fælingarmáttur efldur. Nielsen sagði nýja samkomulagið byggja ofan á varnarsamninginn sem verið hefur í gildi frá 1951 og færi hann inn í framtíðina. „Heimurinn hefur breyst mikið frá 1951, meðal annars að Grænland eigi sæti við borðið. Þetta er ekki bara um samningur um okkur heldur með okkur,“ sagði Nielsen sem fullyrti að samkomulagið tæki tillit til Grænlendinga og hagsmuna þeirra. Svaraði ekki spurningum um eignarhald Grænlands Trump sjálfur hafði fá orð um samkomulagið við undirritunina. Hann lofaði dönsku og grænlensku þjóðina og leiðtoga þeirra. Samningurinn væri frábær fyrir Evrópu, Bandaríkin og stórkostlegt fyrir Grænland. Forsetinn svaraði ekki spurningum blaðamanna sem spurðu hann hvers vegna hann væri ánægður með samninginn í ljósi þess að hann hefði mánuðum saman krafist eignarhalds yfir Grænlandi. Trump ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna rétt áður en hann skrifaði undir umtalað samkomulag við Dani um Grænland.Vísir/EPA Frederiksen sagði menn lifa erfiða tíma. Það væri greiði við óvinina ef bandamenn létu sundra sér. „Við gerum allt sem í okkar valdi stendur til að láta það ekki gerast,“ sagði hún. Í ávarpi sínu á allsherjarþinginu áður en samingurinn var undirritaður fullyrti Trump að samkomulagið gæfi Bandaríkjunum varanlega stjórn á öryggismálum og öllum öðrum þörfum Bandaríkjamanna á svæðinu. Bandaríkin þyrftu að samþykkja skriflega allar fjárfestingar í viðkvæmum geirum og enginn andstæðingur þeirra fengi að koma sér upp hernaðaraðstöðu á Grænlandi. „Við ætlum strax að byrja að undirbúa að koma upp miklum hernaðarviðbúnaði á viðeigandi stöðum. Við ætlum strax að byggja tvær mjög stórar herstöðvar,“ sagði bandaríski forsetinn. Trump claims the US now has "permanent control over security" in Greenland and says, "we will immediately begin the process of developing a large military presence in the appropriate locations. We'll be building two very major military bases."[image or embed]— Aaron Rupar (@atrupar.com) September 22, 2026 at 2:58 PM
Sameinuðu þjóðirnar Bandaríkin Grænland Danmörk Öryggis- og varnarmál Donald Trump Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira