Íþróttir
146 147 148 149 150 151 152 153 154 … 334 ›
Schumacher fljótastur á æfingum Michael Schumacher hafði í dag gríðarlega yfirburði aðalökuþóra á æfingum fyrir Ítalíukappaksturinn sem fram fer á Monza brautinni á sunnudag, en hann var með 1,7 sekúndum betri tíma en keppinautur sinn Fernando Alonso. Ferrari bílarnir komu mjög vel út úr æfingunum í dag og því er ljóst að þeir verða illsigraðir á heimavelli sínum um helgina ef að líkum lætur. Formúla 1 8.9.2006 13:33
Henchoz aftur til Blackburn Enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn hefur samið við svissneska varnarmanninn Stephane Henchoz út leiktíðina, en hann var með lausa samninga eftir að hafa verið látinn fara frá Wigan. Henchoz er 32 ára gamall og spilaði með Blackburn í tvö ár frá árinu 1997. Hann hefur þar fyrir utan spilað með Liverpool og Celtic í Skotlandi. Sport 8.9.2006 13:28
Dæmdur í eins leiks bann Steve Staunton hefur verið dæmdur í eins leiks bann fyrir að missa stjórn á skapi sínu í fyrsta alvöru leik sínum með írska landsliðsins á dögunum, en dómarinn rak hann upp í stúku á leik Íra og Þjóðverja. Staunton þarf því að sitja meðal áhorfenda þegar Írar mæta Kýpur í undankeppni EM í október. Sport 8.9.2006 13:39
Framlengir við Milan til 2011 Ítalski landsliðsmaðurinn Andrea Pirlo hjá AC Milan hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2011. Gamli samningurinn hans náði til ársins 2008, en greinilegt er að félagið vill ekki missa þennan öfluga miðjumann úr röðum sínum. Þá framlengdi Georgíumaðurinn Kakha Kaladze einnig samning sinn við Milan á dögunum og hefur hann sömuleiðis bundið sig til ársins 2011. Fótbolti 8.9.2006 13:16
Liverpool fær grænt ljós á nýjan leikvang Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur nú fengið grænt ljós frá borgaryfirvöldum til að byggja nýjan knattspyrnuleikvang sem taka mun 60.000 manns í sæti. Félagið hefur gert 999 ára leigusamning á lóð við Stanley Park, sem er steinsnar frá Anfield Road þar sem núverandi leikvangur félagsins er staðsettur. Sport 8.9.2006 13:05
Rooney lenti í ryskingum við leikmann Blackburn Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að skaphundurinn Wayne Rooney hjá Manchester United hafi lent í ryskingum við Michael Gray, leikmann Blackburn, á veitingastað í Manchester um helgina. Sport 8.9.2006 12:51
Ekki dæma mig á mörkunum Frank Lampard, leikmaður Chelsea og enska landsliðsins, segist vera orðinn leiður á því að frammistaða sín með enska landsliðinu sé endalaust dæmd á því hve mörg mörk hann skori. Sport 7.9.2006 17:39
Schumacher verður með fulla einbeitingu Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault segir að Michael Schumacher verði með 100% einbeitingu í Ítalíukappakstrinum á Monza á sunnudaginn, þó tilkynnt verði eftir keppnina hverjir ökumenn Ferrari verði á næsta keppnistímabili - en þá kemur formlega í ljós hvort hinn sigursæli Þjóðverji leggur stýrið á hilluna eða heldur áfram að keppa á næsta tímabili. Formúla 1 7.9.2006 17:32
Auglýsingar á búningi Barcelona í fyrsta sinn Spænska knattspyrnustórveldið Barcelona mun í fyrsta skipti í sögunni bera auglýsingar framan á búningum sínum á þriðjudagskvöldið þegar liðið mætir Levski Sofia í meistaradeildinni. Hér er þó ekki um hefðbundna auglýsingu að ræða, heldur ber liðið merki barnahjálpar sameinuðuþjóðanna. Forseti Barcelona mun á morgun undirrita sérstakan styrktarsamning við samtökin og talið er að spænska félagið muni láta um 1,5 milljónir evra af hendi rakna til styrktar þessu góða málefni. Fótbolti 7.9.2006 17:19
Sanchez heldur vonandi áfram Forseti írska knattspyrnusambandsins segist vonast til þess að Lawrie Sanchez verði áfram landsliðsþjálfari Norður-Íra, en margt þykir benda til þess að hann hafi sagt starfi sínu lausu eftir sigurinn á Spánverjum í gær. Í kvöld verður sérstakur fundur haldinn hjá sambandinu þar sem endanlega kemur í ljós hvort Sanchez heldur áfram eða ekki. Sport 7.9.2006 17:01
Spánverjar gerðu sig að fíflum Spænskir fjölmiðlar fóru ekki fögrum orðum um landsliðsþjálfarann Luis Aragones eftir tapið í Belfast í gær frekar en búast mátti við og segja fjölmiðlar að hann hafi orðið landi og þjóð til skammar með því að tapa leiknum og ætti að sjá sóma sinn í því að segja af sér tafarlaust. Sport 7.9.2006 17:10
Klitschko mætir Calvin Brock í nóvember IBF heimsmeistarinn í þungavigt, Wladimir Klitschko, mun mæta Bandaríkjamanninum Calvin Brock í titilbardaga þann 11. nóvember næstkomandi. Brock þessi er 31 árs gamall og hefur keppt 29 sinnum á ferlinum. Hann hefur unnið 22 þeirra á rothöggi og þetta er í fyrsta skipti sem hann fær að berjast um titil. Klitschko hefur unnið 46 sigra í 49 bardögum. Sport 7.9.2006 16:47
Elísabet framlengir við Val Knattspyrnudeild Vals gekk í gærkvöld frá nýjum þriggja ára samningi við Elísabetu Gunnarsdóttur, þjálfara kvennaliðs félagsins sem tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á dögunum. Elísabet mun einnig gegna starfi yfirþjálfara hjá yngri kvennaflokkum félagsins. Þetta kemur fram á heimasíðu Vals í dag. Sport 7.9.2006 16:35
Tevez vill feta í fótspor landa sinna Argentínski framherjinn Carlos Tevez, sem nýverið gekk í raðir West Ham, segist ólmur vilja feta í fótspor landa sinna Ossie Ardiles og Ricardo Villa sem gerðu garðinn frægan með liði Tottenham fyrir um 30 árum síðan og ruddu leiðina fyrir útlendinga í ensku knattspyrnunni. Sport 7.9.2006 16:13
Ætlar að ljúka ferlinum með Ciudad Landsliðsmaðurinn Ólafur Stefánsson hefur gert munnlegt samkomulag við spænska stórliðið Ciudad Real um að framlengja samning sinn um tvö ár við félagið og ætlar því væntanlega að ljúka atvinnumannsferli sínum með liðinu. Ólafur er 33 ára gamall og er almennt álitinn sterkasta örvhenta skytta heimsins í dag. Sport 7.9.2006 16:26
Ætlar að gefa Essien hárlokk Ítalski framherjinn Bernardo Corradi hjá Manchester City segist ætla að gefa Michael Essien hjá Chelsea lokk úr hárinu á sér þegar liðin mætast í úrvalsdeildinni á ný eftir áramótin. Corradi var rekinn af leikvelli í sínum fyrsta leik með City í tapi gegn Chelsea og þá greip Essien í hárið á honum þegar hann gekk af velli. Ítalinn ætlar því að gefa Essien hárlokk og símanúmerið hjá rakaranum sínum þegar þeir mætast á ný. Sport 7.9.2006 16:02
Gary Payton framlengir við Miami Leikstjórnandinn Gary Payton hefur efnt loforð sitt frá því í vor og hefur nú framlengt samning sinn við NBA meistara Miami Heat um eitt ár. Payton fær aðeins rúma milljón dollara í árslaun fyrir samninginn og segist vilja vinna annan titil með liðinu áður en hann leggur skóna á hilluna. Körfubolti 7.9.2006 14:53
Marion Jones sleppur við bann Bandaríska frjálsíþróttakonan Marion Jones sleppur við keppnisbann eftir að í ljós koma að B-sýnið úr lyfjaprófi hennar frá bandaríska meistaramótinu í sumar reyndist neikvætt. A-sýni hennar innihélt lyfið EPO og átti hún því yfir höfði sér langt keppnisbann. Sport 7.9.2006 14:30
Yfirheyrður vegna annarar líkamsárásar Varnarmaðurinn Ben Thatcher hjá Manchester City á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir, en nú hefur lögregla hafið formlega rannsókn í kjölfar kæru ungs leikmanns úr röðum Blackburn, sem slasaðist illa í varaliðsleik eftir að hafa orðið fyrir alræmdum olnboga Thatcher, en frá þessu var greint í Fréttablaðinu á dögunum. Sport 7.9.2006 14:23
Helguera neitaði okkur á síðustu stundu "Stóri-Sam" Allardyce, stjóri Bolton, hefur viðurkennt að félagið hafi verið hársbreidd frá því að fá spænska varnarmanninn Ivan Helguera til liðs við sig frá Real Madrid á síðasta degi félagaskiptagluggans um mánaðamótin. Sport 7.9.2006 14:14
Sérstök hátíðarforsýning í kvöld Sérstök hátíðarforsýning á heimildarmyndinni "Þetta er ekkert mál" verður í Smárabíói klukkan 20 í kvöld, en hér er um að ræða kvikmynd um goðsögnina Jón Pál Sigmarsson sem er einhver dáðasti íþróttamaður Íslendinga fyrr og síðar. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, verður á meðal heiðursgesta á forsýningunni í kvöld, en almennar sýningar hefjast annað kvöld í kvikmyndahúsum um land allt. Sport 7.9.2006 14:06
Ég er tilbúinn að spila gegn Spurs Enski framherjinn Alan Smith hjá Manchester United segist vera tilbúinn að koma inn sem varamaður með liðinu þegar það tekur á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn, en Smith hefur verið frá keppni í sjö mánuði eftir að hafa fótbrotnað illa í leik gegn Liverpool á síðustu leiktíð. Sport 7.9.2006 13:59
Ferguson stakk mig í bakið Hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy hjá Real Madrid segir að Sir Alex Ferguson hjá Manchester United hafi stungið sig í bakið þegar hann ákvað að tefla honum ekki fram í úrslitaleik deildarbikarsins í vor. Fótbolti 7.9.2006 13:49
Frá í tvo mánuði eftir aðgerð Franski miðjumaðurinn Steed Malbranque, sem nýverið gekk í raðir Tottenham, verður frá keppni í að minnsta kosti tvo mánuði eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna kviðslits. Þá þykir ljóst að búlgarski framherjinn Dimitar Berbatov muni missa af leik Tottenham og Manchester United um helgina vegna nárameiðsla. Sport 7.9.2006 13:39
Sanchez hættur með Norður-Íra? Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að hugsanlega hafi Lawrie Sanches stýrt landsliði Norður-Íra í síðasta sinn í gær þegar liðið vann dramatískan sigur á Spánverjum á heimavelli sínum. Talið er að Sanchez hafi íhugað að segja af sér eftir tapið gegn Íslendingum um síðustu helgi, en hann talaði ekki við blaðamenn eftir leikinn í gær, heldur henti jakka sínum og bindi upp í áhorfendastæðin og yfirgaf svæðið. Sport 7.9.2006 13:21
Keisarinn er ekki bjartsýnn Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, er ekki bjartsýnn á að liðið nái góðum árangri í Meistaradeild Evrópu í vetur. Félagið hefur misst bæði Michael Ballack og Ze Roberto en fengið Mark van Bommel, Lukas Podolski og Daniel van Buyten til liðsins í þeirra stað. Fótbolti 6.9.2006 21:59
Við bara frusum eins og hvolpar Keppnismaðurinn Hlynur Bæringsson var afar ósáttur við tap íslenska landsliðsin í körfubolta gegn Finnum í B-deild Evrópukeppninnar í kvöld. Hann segir að þó vissulega sé finnska liðið sterkt, hafi íslenska liðið verið allt of lint í síðari hálfleiknum og því hafi Finnarnir gengið á lagið. Körfubolti 6.9.2006 23:30
Boxar fyrir smáaura upp í skuldir Fyrrum heimsmeistarinn í þungavigt, járnkarlinn Mike Tyson, er um þessar mundir að vinna hjá einu af spilavítunum í Las Vegas. Þar boxar Tyson við gesti og gangandi sem vilja fá að bera goðsögnina augum, en hann er nú að reyna sitt besta til að greiða skuldir sínar við skattayfirvöld í Bandaríkjunum. Sport 6.9.2006 16:08
Tap fyrir Finnum Íslenska landsliðið í körfubolta tapaði fyrir Finnum í kvöld 93-86 í leik liðanna í B-deild Evrópumótsins. Íslenska liðið hafði forystu framan af leik og var 11 stigum yfir í hálfleik, en sterkt lið Finna með Hanno Mottola í fararbroddi, náði að komasti yfir og vann að lokum nokkuð öruggan sigur. Körfubolti 6.9.2006 22:31
Frábær sigur hjá Gummersbach Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach eru enn taplausir í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik eftir frækinn útisigur á Kiel í kvöld 39-37, eftir að hafa verið undir 24-20 í hálfleik. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði átta mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson eitt, en þetta var fyrsta tap Kiel á heimavelli í nær þrjú ár. Sport 6.9.2006 22:10