Viðskipti
77 78 79 80 81 82 83 84 85 … 223 ›
Velta á markaði sambærileg við síðasta ár Undirliggjandi velta á innlendum hlutabréfamarkaði það sem af er árs er sambærileg og í fyrra. Veltan var lítið minni í janúar og mars en mun meiri í febrúar. Greiningardeild Glitnis segir ástæðuna fyrir aukningunni í febrúar tilfærslu eignarhluta í ár og að markaðurinn snéri við í fremur lítilli veltu eftir hraða hækkun um miðjan febrúar á síðasta ári. Viðskipti innlent 18.4.2007 12:03
Niðurskurðarhnífnum beitt hjá Sony Japanski hátækniframleiðandinn Sony hefur látið í veðri vaka að hann ætli að fækka í starfsliði sínu í Evrópu. Verði það raunin getur svo farið að 160 manns verði sagt upp störfum. Forsvarsmenn Sony segja hagræðingu í Evrópuhluta fyrirtækisins ekki tengjast dræmri sölu á PlayStation 3, nýjustu leikjatölvunni frá fyrirtækinu, sem kom út í enda síðasta mánaðar. Leikjavísir 18.4.2007 08:57
Hollenskir bjórframleiðendur sektaðir Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur dæmt hollensku bjórframleiðendurna Heineken, Grolsch og Bavaria til að greiða um 273,7 milljónir evra, jafnvirði rúmra 24 milljarða íslenskra króna, í sektir vegna ólögmæts verðsamráðs fyrirtækjanna og aðrar samkeppnishamlandi aðgerðir. Viðskipti erlent 18.4.2007 09:29
Aflaverðmæti skipa nam 5,7 milljörðum í janúar Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 5,7 milljörðum króna í janúar á þessu ári samanborið við 3,6 milljarða í janúar 2006 og jókst því um 2,1 milljarð eða 58,8 prósent á milli ára, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um tæp 230 prósent á milli ára. Mestu munar um verðmæti loðnu. Mestu munar um að aflaverðmæti í janúar í fyrra var með minna móti en fyrri ár. Viðskipti innlent 18.4.2007 08:57
Samdráttur hjá Yahoo Hagnaður bandaríska netfyrirtækisins Yahoo nam 142 milljónum bandaríkjadala, rúmlega 9,2 milljörðum íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi þessa árs. Þetta er 11 prósenta samdráttur frá sama tíma í fyrra. Afkoman er undir væntingum greinenda. Fyrirtækið barist hart á netmarkaðnum við risann Google. Viðskipti erlent 17.4.2007 21:47
Hagnaður IBM jókst um 8 prósent milli ára Bandaríski tölvurisinn IBM skilaði hagnaði upp á 1,8 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði 117,4 milljarða íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er átta prósenta aukning frá sama tíma í fyrra. Mesti vöxturinn var í þjónustuhluta fyrirtækisins og yfirtökum á öðrum fyrirtækjum. Viðskipti erlent 17.4.2007 21:07
Glitnir býður upp á ný húsnæðislán á morgun Glitnir ætlar frá og með morgundeginum að bjóða upp á nýja tegund húsnæðislána þar sem helmingur lánsins er verðtryggður í íslenskri mynt en hinn helmingurinn óverðtryggt lán í lágvaxtamyntunum jenum og svissneskum frönkum. Vextir eru 4,5 prósent miðað við hámarksveðsetningarhlutfallið 80 prósent, sem er sama hlutfall og á verðtryggðum lánum. Viðskipti innlent 17.4.2007 21:19
Norrænir markaðir í hæstu hæðum Norrænir hlutabréfamarkaðir hafa hækkað mikið og nálgast nýjar hæðir, ekki síst sá norski sem er nálægt sínu hæsta sögulega gildi. Sænska vísitalan sló met í gær auk þess sem Dow Jones Nordic 30 vísitalan fór í hæsta gildi frá upphafi. Úrvalsvísitalan hefur sömuleiðis staðið í sögulegum hæðum í vikunni en lækkaði í dag. Viðskipti innlent 17.4.2007 16:10
Afkoma Coca Cola yfir væntingum Bandaríski gosdrykkjaframleiðandinn Coca Cola skilaði hagnaði upp á 1,26 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði 82,4 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi ársins. Til samanburðar nam hagnaðurinn 1,11 milljörðum dala, jafnvirði 72,6 milljörðum króna, á sama tíma í fyrra. Þetta er 14 prósenta aukning á milli ára. Viðskipti erlent 17.4.2007 15:18
Actavis á meðal líklegustu kaupenda á Merck Mestar líkur eru á að lyfjafyrirtækin Actavis og indverska félagið Torrent Pharmaceuticals muni berjast um samheitalyfjahluta þýska lyfjarisans Merck. Þetta segir bandaríska viðskiptatímaritið Forbes sem telur að kaupverð geti numið allt að sex milljörðum dala, jafnvirði rúmra 392 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 17.4.2007 13:54
Landsbankinn sagður bjóða í Bridgewell Landsbankinn er sagður vera á meðal þeirra sem hafa lagt fram yfirtökutilboð í breska verðbréfafyrirtækið Bridgewell Group. Á meðal annarra bjóðenda er hollenski fjárfestingabankinn Fortis, sem rekur starfsemi víða um Evrópu. Stjórnendur Bridgewell eru sagðir hafa komið hingað til lands í gær til fundar við Landsbankamenn. Viðskipti innlent 17.4.2007 10:30
Verðbólga mælist 3,1 prósent í Bretlandi Nýjustu hagtölur bresku hagstofunnar benda til að verðbólga hafi mælst 3,1 prósent í Bretlandi í síðasta mánuði. Þetta er þvert á væntingar enda hefur verðbólga ekki verið hærri í áratug. Þetta þykir sömuleiðis nokkur skellur fyrir Englandsbanka sem ákvað fyrir tæpum hálfum mánuði að halda stýrivöxtum óbreyttum í 5,25 prósentum. Viðskipti erlent 17.4.2007 08:56
Smásöluverslun jókst um 0,7 prósent í Bandaríkjunum Smásöluverslun jókst um 0,7 prósent á milli mánaða í mars í Bandaríkjunum, samkvæmt nýjustu upplýsingum viðskiptaráðuneytis Bandaríkjanna. Greinendur segja þetta koma efnahagslífinu til góða og vega upp á móti samdrætti í iðnaði og á húsnæðismarkaði vestanhafs. Viðskipti erlent 16.4.2007 19:47
Verðbólga í Zimbabve nálægt 2.000 prósentum Stjórnvöld í Afríkuríkinu Zimbabve hafa ákveðið að fresta birtingu verðbólgutalna um eina viku. Breska ríkisútvarpið segir að þetta athæfi bendi til þess að ríkisstjórn Roberts Mugabe vilji ekki horfast í augu við að verðbólga hafi farið úr böndunum og liggi nú nálægt 2.000 prósentum. Því er spáð að staða efnahagsmála muni hríðversna á árinu og verðbólga rjúka enn frekar upp. Viðskipti erlent 16.4.2007 18:46
Síminn kaupir Sensa Síminn hefur gengið frá kaupum á öllum hlutabréfum í þjónustufyrirtækinu Sensa ehf, sem er með sérfræðiþekkingu á sviði IP samskiptalausna. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins en kaupverð er trúnaðarmál. Viðskipti innlent 16.4.2007 17:24
Fyrsta varan frá DeCode væntanleg DeCode Genetics ætlar að hefja sölu á fyrsta genaprófinu til að greina sykursýki II í Bandaríkjunum á næstunni. Prófið heitir DeCode T2. Prófinu er ætlað að greina genabreytingu sem tvöfaldar líkurnar á því að viðkomandi verði sykursjúkur. Þetta er fyrsta varan sem DeCode setur á markað. Viðskipti innlent 16.4.2007 16:29
Hagnaður Philips fimmfaldaðist Hollenski raftækjaframleiðandinn Philips skilaði hagnaði upp á 875 milljónir evra, jafnvirði tæpra 78 milljarða íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er fimmfalt meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra og skrifast að mestu á sölu dótturfyrirtækis Philips á Taívan. Viðskipti erlent 16.4.2007 14:42
Yfirtökutilraunir Nasdaq settu skarð í afkomuna Áætlaður hagnaður bandaríska hlutabréfamarkaðarins á fyrsta fjórðungi þessa árs nemur 18,3 milljónum dala, jafnvirði tæpra 1,2 milljarða íslenskra króna. Stjórn Nasdaq segir að tilraunir markaðarins til að gera yfirtöku á bresku kauphöllinni í Lundúnum (LSE) á síðasta ári hafi sett skarð sitt í afkomuna. Viðskipti erlent 16.4.2007 11:09
Yfirtökutilboð væntanlegt í Vinnslustöðina Tólf hluthafar í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum sem fara með meirihluta er skylt að gera öðrum hluthöfum Vinnslustöðvarinnar yfirtökutilboð í fyrirtækið á næstu fjórum vikum. Að yfirtökunni afstaðinni verður Vinnslustöðin afskráð úr Kauphöllinni. Þetta verður síðasta sjávarútvegsfélagið til að hverfa af Aðallista Kauphallarinnar. Viðskipti innlent 16.4.2007 09:46
Verðbólga mælist 5,3 prósent Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,6 prósentustig á milli mánaða í apríl og jafngildir það því að verðbólga síðastliðna 12 mánuði mælist 5,3 prósent, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Greiningardeildir viðskiptabankanna höfðu spáð því að vísitalan myndi mælast 5,1 til 5,3 prósent. Viðskipti innlent 15.4.2007 09:49
Tesco skilar metári Áætlaður hagnaður Tesco fyrir síðasta ár nemur rúmum 2,5 milljörðum punda, jafnvirði 325 milljörðum íslenskra króna. Gangi þetta eftir jafngildir það að félagið hafi hagnast um 624 þúsund krónur á hverri einustu mínútu á öllu síðasta ári. Þá er þetta methagnaður í sögu þessarar stærstu verslanakeðju Bretlands. Viðskipti erlent 16.4.2007 00:51
Buffett ekki lengur næstríkastur Mexíkóski auðmaðurinn Carlos Slim hefur skellt bandaríska auðkýfingnum Warren Buffett úr sæti sem annar ríkasti maður heims. Buffett, sem nú er þriðji ríkasti maður í heimi, hefur vermt annað sætið á eftir Bill Gates, stofnanda og stjórnarformanni Microsoft, í áraraðir. Viðskipti erlent 14.4.2007 22:41
Hráolíuverðið lækkaði í vikunni Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði lítillega við lokun markaða í Bandaríkjunum í gær eftir hækkanir í nokkra daga á undan. Markaðsaðilar telja líkur á að olíuverð haldist hátt á næstunni vegna samdráttar í olíuframleiðslu og minni olíubirgða í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 14.4.2007 12:38
Úrvalsvísitalan á ný í methæðum Úrvalsvísitalan sló enn eitt metið í dag þegar hún hækkaði um 0,92 prósentustig og endaði í 7.739 stigum. Þetta er þriðji dagurinn í röð sem Úrvalsvísitalan fer í methæðir við lokun markaðarins. Viðskipti innlent 13.4.2007 16:17
Sony hættir sölu á 20 GB Playstation 3 Japanski hátækniframleiðandinn Sony ætlar að hætta að flytja inn og selja ódýrari gerðir PlayStation 3 leikjatölvunnar í Bandaríkjunum. Ástæðan er sú að neytendur hafa meiri áhuga á dýrari gerðum sem eru með stærri harðan disk og meiri aukabúnað. Leikjavísir 13.4.2007 15:00
Viðskiptahalli Bandaríkjanna minnkar Viðskiptahalli Bandaríkjanna dróst saman um 0,7 prósent í febrúar og nam 58,4 milljörðum dala, jafnvirði 3.857 milljörðum íslenskra króna, í mánuðinum. Viðskiptahallinn hefur ekki verið minni síðan í nóvember í fyrra. Mestu munar um minni innflutning frá Kína og lágt olíuverð í mánuðinum. Viðskipti erlent 13.4.2007 14:32
Spá sexföldum hagnaði hjá Sony Gengi hlutabréfa í japanska hátækniframleiðandanum Sony hækkaði talsvert í dag og hefur ekki verið hærra í fimm ár. Ástæðan fyrir hækkuninni er spá japanska viðskiptablaðsins Nikkei að hagnaður Sony muni sexfaldast á árinu. Mikil kostnaður við gerð og markaðssetningu á PlayStation 3 leikjatölvunni setti skarð í afkomutölur Sony á síðasta ári. Leikjavísir 13.4.2007 12:14
Orðrómur um yfirtöku á Barclays Gengi hlutabréfa í breska bankanum Barclays hafa hækkað nokkuð á markaði í dag eftir að orðrómur barst þess efnis að bandaríski fjárfestingabankinn JP Morgan Chase hafi í hyggju að gera yfirtökutilboð í hann. Barclays vinnur að yfirtöku á hollenska bankanum ABN Amro. Bitinn er hins vegar sagður stór fyrir breska bankann. Viðskipti erlent 13.4.2007 11:36
Íhaldið í FL Group Morgan Stanley gaf út skýrslu um áhættuálag á skuldabréf Glitnis í kjölfar breytinga á eignarhaldi bankans. Greinandinn telur breytingarnar ekki til marks um stefnubreytingu og færir rök máli sínu til stuðnings þess efnis að FL Group sem stærsti hluthafinn hafi haft næg tækifæri til að hafa áhrif á stefnu bankans fyrir eignabreytingar. FL hafi stutt íhaldssama stefnu bankans og ekki sé að vænta breytinga þar á. Viðskipti innlent 13.4.2007 09:40
Ekki bara croissant og ilmvötn Frakkland er fullt viðskiptatækifæra sem bíða þess að verða gripin. Þetta var rauði þráðurinn í máli flestra þeirra er tóku til máls á ráðstefnu tileinkaðri viðskiptum milli Íslands og Frakklands sem fram fór á Hótel Nordica í gær. Hún var liður í menningarhátíðinni „Pourquoi Pas? Franskt vor á Íslandi“ sem nú stendur sem hæst. Viðskipti innlent 13.4.2007 09:34