Viðskipti
143 144 145 146 147 148 149 150 151 … 223 ›
Tilraunaskot skekur markaðinn Tilraunaskot Norður-Kóreumanna í gærkvöldi skók hlutabréfamarkaði í Suður-Kóreu, Japan og í Evrópu. Fjárfestar seldu hlutabréf sín og tryggðu fjármuni sína með kaupum á gulli með þeim afleiðingum að gengi hlutabréfa á mörkuðunum lækkaði nokkuð. Tilraunaskotið er sagt geta haft áhrif á ákvörðun seðlabanka landanna um hækkun stýrivaxta. Viðskipti erlent 5.7.2006 10:21
Fagnar samstarfi Renault, Nissan og GM Franski bílaframleiðandinn Renault og japanski keppinautur þess, Nissan, ætla að hefja formlegar viðræður við bandaríska bílarisann General Motors (GM) um samstarf. Francois Loos, iðnaðarráðherra Frakklands, fagnaði samstarfinu í dag en setti fyrirvara við það vegna þeirra gríðarmiklu fjárhagsörðugleika sem GM stendur frammi fyrir. Viðskipti erlent 4.7.2006 15:27
Aukin verðbólga innan OECD Verðbólga í aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, mældist 3,1 prósent í maí. Þetta er 0,4 prósentustiga hækkun frá apríl. Verðbólga hér á landi mældist 7,5 prósent í maí, samkvæmt OECD. Þetta er næstmesta verðbólgan innan aðildarríkja OECD en mest var hún í Tyrklandi. Viðskipti innlent 4.7.2006 11:47
Búast við mikilli eftirspurn eftir olíu Heimsmarkaðsverð á olíu fór yfir 73 Bandaríkjadali á tunnu í framvirkum samningum á markaði í Lundúnum í Bretlandi. Þjóðhátíðardagur Bandaríkjamanna er í dag, 4. júlí, og hafa aldrei jafn margir verið á faraldsfæti frá því fyrir helgi og nú. Í kvöld og á morgun fara menn til síns heima og eykst eftirspurn eftir eldsneyti mikið vegna þessa. Viðskipti erlent 4.7.2006 10:50
Glitnir kaupir sænskt verðbréfafyrirtæki Glitnir banki hefur lokið kaupum á öllu hlutafé í sænska verðbréfafyrirtækin Fisher Partners Fondkommission. Í tilkynningu Glitnis til Kauphallar Íslands segir að bæði fjármálaeftirlitið hér á landi og í Svíþjóð hafi formlega samþykkt kaupin. Viðskipti innlent 4.7.2006 10:16
Rætt um stýrivexti í Japan Japanskir ráðamenn ræddu um næstu skref japanska Seðlabankans á þinginu í dag. Kaoru Yosano, banka- og efnahagsmálaráðherra landsins, sagði markaðsaðstæður vera komnar á þann veg að Seðlabankinn geti hækkað stýrivexti um 25 punkta í næstu viku. Vextir hafa staðið óbreyttir í núlli síðastliðin fimm ár. Viðskipti erlent 4.7.2006 09:31
Norkom valið í glæpaviðbúnað Landsbanki Íslands, Glitnir og Sparisjóðirnir, ásamt Seðlabanka Íslands, hafa samið um not á sérhæfðum hugbúnaði Norkom Technologies til að bregðast við og verjast fjárplógsstarfsemi og peningaþvætti. Í tilkynningu sem Norkom sendi frá sér í gær segir að bankarnir séu með þessu einnig að bregðast við bæði lögbundnum ákvæðum og erlendum kröfum um ásættanlegar varnir. Viðskipti innlent 3.7.2006 20:18
Minni framleiðni í Bandaríkjunum Framleiðni í Bandaríkjunum jókst minna í síðasta mánuði en búist var við. Ástæðan er hátt eldsneytis- raforku- og hrávöruverð. Fjármálafræðingar segja að þrátt fyrir þetta séu væntingar góðar því ofhitnunar gætir ekki í bandarísku efnahagslífi. Viðskipti erlent 3.7.2006 19:45
Glitnir spáir 50 til 75 punkta stýrivaxtahækkun Greiningardeild Glitnis telur að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti sína um 0,50 til 0,75 prósentustig. Ef af hækkun verður munu stýrivextir Seðlabankans verða á bilinu 12,75 til 13,0 prósent en þeir hafa ekki verið jafn háir í meira en áratug. Viðskipti innlent 3.7.2006 11:07
Cyntellect hætt við skráningu á iSEC Bandaríska líftæknifyrirtækið Cyntellect, sem framleiðir tæki fyrir lyfja- og líftækniiðnaðinn, hefur hætt við skráningu á iSEC markað Kauphallar Íslands. ISEC markaður var opnaður í Kauphöll Íslands í dag, en hann á að veita litlum og meðalstórum fyrirtækjum tækifæri til vaxtar á hlutabréfamarkaði. Viðskipti innlent 3.7.2006 10:26
Virði hlutar BAE í Airbus rýr Fjárfestingarbankinn Rothschild metur 20 prósenta hlut breska hergagnaframleiðandans BAE Systems í flugvélaframleiðandanum Airbus á 2,75 milljarða evrur, jafnvirði 268,.5 milljarða íslenskra króna. BAE Systems hafði vonast til að mat hlutarins yrði tvöfalt hærra. Viðskipti erlent 3.7.2006 10:11
Forstjóri FL Group furðar sig á stjórn LV Hannes Smárason, forstjóri FL Group, furðar sig á vinnubrögðum stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LV) sem hefur opinberlega auglýst fimm prósenta hlut sinn til sölu. Ég fæ ekki með nokkru móti séð hvernig þetta þjónar hagsmunum hluthafa og hagsmunum sjóðsfélaga að senda tölvupóst út um allan bæ og bjóða hlutinn með þeim hætti. Að hans mati er aðferðin, sem beitt er við söluna, til þess fallin að setja þrýsting á aðra hluthafa og vekja upp deilur meðal þeirra. Viðskipti innlent 30.6.2006 18:00
Tuttugufaldast í virði á einu ári Avion Group selur að öllum líkindum yfir meirihluta hlutafjár í dótturfélaginu Avion Aircraft Trading á næstu dögum. Ef af sölunni verður er ljóst að gríðarlegur söluhagnaður fellur til, enda er allt félagið metið á 7,5 milljarða króna (100 milljarða dala) en bókfært verðmæti bara brot af matsvirði, eða 375 milljónir króna. Viðskipti innlent 30.6.2006 18:00
Nærri 4,8 milljarða tap á 2. ársfjórðungi hjá Avion Nærri 4,8 milljarða króna tap varð af rekstri Avion Group á öðrum ársfjórðungi fyrirtækisins, sem miðast við 1. febrúar til 30. apríl. Fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar að tapið megi að miklu leyti rekja til gengistaps af erlendum skuldum. Innlent 30.6.2006 20:20
Bréf Straums lækkuðu mest í dag Bréf Straums-Burðaráss lækkuðu mest allra bréfa í Kauphöllinni í dag. Lífeyrissjóður Verslunarmanna vill selja hlut sinn í bankanum. Innlent 30.6.2006 20:02
Íbúðalánasjóður hækkar vexti Íbúðalánasjóður hefur í kjölfarið útboðs á íbúðabréfum ákveðið að hækka útlánsvexti íbúðalána sjóðsins um 0,10 prósentustig og verða þeir 4,95 prósent. Lán með sérstöku uppgreiðsluálagi verða með 0,25 punkta lægri vöxtum eða 4,70 prósent. Viðskipti innlent 30.6.2006 17:41
Hluthafar styðja yfirtökutilboð Mittal Steel Rúmur helmingur hluthafa í evrópska stálframleiðandanum Arcelor var mótfallinn samruna við rússneska stálfyrirtækið Severstal á hluthafafundi fyrirtækisins í dag. Meirihluti hluthafa er hins vegar fylgjandi yfirtökutilboði Mittal Steel í fyrirtækið. Viðskipti erlent 30.6.2006 13:06
Bauð hæst í mat með Buffett Kvöldverðarboð með bandaríska auðkýfingnum Warren Buffett fór á 620.100 Bandaríkjadali, jafnvirði 47,6 milljónir íslenskra króna, á uppboðsvefnum e-bay í gær. Þetta er hæsta boð sem einstaklingur hefur greitt fyrir að snæða með „vitringnum frá Omaha“, sem á dögunum ákvað að láta 85 prósent af auðæfum sínum renna til góðgerðarmála. Viðskipti erlent 30.6.2006 12:18
Eimskip tapaði 1,37 milljörðum Eimskip tapaði rúmum 1,37 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma í fyrra nam hagnaður fyrirtækisins 496 milljónum króna. Afkoman er í takt við væntingar stjórnenda Eimskips. Starfsemi félagsins er háð árstíðasveiflum og myndast meirihluti af árshagnaði félagsins á síðari hluta rekstrarársins. Viðskipti innlent 30.6.2006 10:50
Stýrivextir hækka í Bandaríkjunum Gengi hlutabréfa á Wall Street í Bandaríkjunum hækkaði talsvert í kjölfar þess að Seðlabanki Bandaríkjanna hækkaði stýrivexti í gær um 25 punkta í 5,25 prósentur. Þetta er 17. stýrivaxtahækkunin í Bandaríkjunum en Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, gaf til kynna að hækkanaferlið væri brátt á enda. Viðskipti erlent 30.6.2006 10:10
Actavis flytur hluta framleiðslu til Króatíu verði Pliva keypt Lyfjafyrirtækið Actavis fyrirhugar að flytja hluta framleiðslu sinnar til Króatíu þar sem framleiðsukostnaður er lágur, ef því tekst að kaupa króatíska lyfjafyrirtækið Pliva. Stjórn Pliva mælti á mánudag með því við hluthafa að ganga til samninga við bandaríkst fyrirtæki um sölu á Pliva í stað Actavis. Innlent 30.6.2006 08:45
Loftleiðir kaupa lettneskt flugfélag Loftleiðir Icelandic, leiguflugfélag Icelandair Group, hefur gengið frá kaupum á 55 prósentum hlutafjár í lettneska leiguflugfélaginu Latcharter Airlines. Þá hafa Loftleiðir skuldbundið sig til að kaupa félagið að fullu innan ákveðins tíma. Viðskipti innlent 30.6.2006 08:51
World Class hyggur á landvinninga í Danmörku Eigendur líkamsræktarkeðjunnar World Class á Íslandi bætast nú í hóp útrásarmanna til Danmerkur því þeir hafa fest kaup á þrettán líkamsræktarstöðvum þar í landi. Þeir sjá mikil sóknarfæri í Danmörku og áforma að koma á fót tugum líkamsræktarstöðva í viðbót. Innlent 29.6.2006 23:04
Lánshæfismat Straums-Burðaráss staðfest Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfismat Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka í kjölfar tilkynningar um nýjan forstjóra og breytingar í hluthafahópi. Fyrirtækið staðfesti langtímaeinkunnina BBB- og segir horfur lánshæfiseinkunna stöðugar. Viðskipti innlent 29.6.2006 14:35
EADS kærir dagblaðið Le Monde EADS, móðurfélag evrópsku flugvélasmiðjanna Airbus, hefur lagt fram kvörtun vegna leka á upplýsingum til franska dagblaðsins Le Monde þess efnis að stjórn EADS hafi verið kunnugt um tafir á framleiðslu Airbus A380 risaþota mánuði áður en tafirnar voru formlega tilkynntar. Viðskipti erlent 29.6.2006 14:03
Ingimundur nýr bankastjóri Seðlabankans Forsætisráðherra skipaði í dag Ingimund Friðriksson, aðstoðarbankastjóra, í embætti bankastjóra í Seðlabanka Íslands til sjö ára frá 1. september næstkomandi. Viðskipti innlent 29.6.2006 13:40
Verðbólgan skapar óvissu Mervyn King, seðlabankastjóri Englands, sagði á fundi með breskum þingmönnum í Bretlandi í dag að hættan sem stafi af verðbólguhækkunum á heimsvísu hafi skapað óvissu í efnahagslífi margra þjóða. Viðskipti erlent 29.6.2006 11:53
Hlutabréfaverð hækkaði í morgun Gengi hlutabréfa hækkað á Norðurlöndunum í morgun eftir lækkanir í gær og nokkrar sveiflur undanfarnar vikur. Aðalvísitalan hækkaði um 1,2 prósent í Kauphöllinni í Kaupmannahöfn í Danmörku í morgun, um 1,4 prósent í Osló í Noregi og í Stokkhólmi í Svíþjóð og um 2,1 prósent í Kauphöllinni í Helsinki í Finnlandi. Viðskipti innlent 29.6.2006 10:45
Karen Millen vinsæl í Rússlandi Fáar breskar tískuvöruverslunarkeðjur skila jafn miklum hagnaði á erlendri grundu og Mosaic Fasions, að sögn Dereks Lovelock, forstjóra félagsins. Á síðasta rekstrarári jókst velta félagsins um 41 prósent erlendis. Einkum hafa verslanir undir merkjum Karen Millen og Oasis gengið vel í útrás til annarra landa og er viðbúið að verslunum fjölgi hratt á næstu árum. Viðskipti innlent 28.6.2006 19:46
Forstjóraskipti hjá Opnum kerfum Agnar Már Jónsson hefur að eigin ósk sagt upp störfum sem forstjóri Opinna kerfa. Gylfi Árnason, forstjóri móðurfélagsins Opinna kerfa Group, tekur tímabundið við störfum hans. Gylfi gegndi starfinu jafnframt á undan Agnari sem tók við starfinu í nóvember 2004. Viðskipti innlent 28.6.2006 19:46