Viðskipti Áhugi Marels á Stork Food Systems vekur athygli. Viðskipti innlent 10.10.2006 09:15 FL Group eykur stuðning sinn við íslenskt tónlistarlíf Viðskipti innlent 10.10.2006 09:15
Stjórnendur selja í Mosaic Fashions Viðskipti innlent 6.10.2006 00:50 Þriðji dagur Dow Jones í methæðum Bandaríska hlutabréfavísitalan Dow Jones sló enn eitt metið við lokun markaða vestanhafs í dag. Vísitalan hækkaði um 16,08 punkta eða 0,14 prósent í viðskiptum dagsins og endaði í 11.866,69 stigum. Þetta er þriðji dagurinn í röð sem vísitalan nær sögulegu hámarki. Viðskipti erlent 5.10.2006 21:42 Nýjum íbúðalánum bankanna fækkar Útlán bankanna til íbúðakaupa í september námu tæpum 3,2 milljörðum króna en það er svipað og síðastliðna tvo mánuði. Sé miðað við sama tíma á síðasta ári er samdrátturinn hins vegar mikill en þá námu íbúðalán bankanna 14,9 milljörðum króna. Greiningardeild Landsbankans spáir 2-3 prósenta lækkun á fasteignaverði á árunum 2006 til 2007. Viðskipti innlent 5.10.2006 17:06 Spá sterkri krónu fram yfir áramót Gengisvísitala krónunnar styrktist um 1,1 prósent í dag og stóð vísitala hennar í 118,7 stigum við lokun markaða. Greiningardeild Kaupþings gerir ráð fyrir að krónan haldist tiltölulega sterk fram yfir áramót. Viðskipti innlent 5.10.2006 17:00 Seðlabanki Danmerkur hækkar stýrivexti Seðlabanki Danmerkur ákvað í dag að feta í fótspor evrópska seðlabankans og hækka stýrivexti um 25 punkta í 3,5 prósent. Viðskipti erlent 5.10.2006 15:03 Olía hækkar í verði Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur hækkað nokkuð á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar þess að forseti samtaka olíuútflutningsríkja, OPEC, sagði samtökin vera að íhuga að draga úr olíuframleiðslu til að sporna gegn frekari lækkunum á olíu. Viðskipti erlent 5.10.2006 14:51 Evrópski seðlabankinn hækkar stýrivexti Seðlabanki Evrópu ákvað í dag að hækka stýrivexti á evrusvæðinu um 25 punkta í 3,25 prósent. Fjármálasérfræðingar töldu margir líkur á þessari ákvörðun bankastjórnarinnar. Viðskipti erlent 5.10.2006 11:50 Bernanke segir verðbólguna of háa Ben Bernanke, bankastjóri Seðlabanka Bandaríkjanna, varaði í gær við of mikilli verðbólgu vestanhafs. Hann gaf þó ekkert í skyn hvort bankinn muni hækka stýrivexti vegna þessa á næstunni. Viðskipti erlent 5.10.2006 11:32 « ‹ 117 118 119 120 121 122 123 124 125 … 223 ›
Forstjóri Airbus segir upp Christian Streiff, forstjóri flugvélaframleiðandans Airbus, er sagður ætla að segja starfi sínu lausu síðar í dag. Louis Gallois, aðstoðarforstjóri EADS, móðurfélags Airbus mun taka við sæti hans. Viðskipti erlent 9.10.2006 15:42
Nýr álrisi verður til Stjórnendur rússnesku álfyrirtækjanna Rusal og Sual og forstjóri svissneska álfyrirtækisins Glencore greindu frá því í Moskvu í Rússlandi í dag að fyrirtækin hefðu ákveðið að sameinast um álframleiðslu. Með sameiningunni hefur Alcoa verið velt úr sessi sem stærsti álframleiðandi í heimi. Viðskipti erlent 9.10.2006 14:12
Olíuverð yfir 60 dali á tunnu Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði nokkuð á helstu fjármálamörkuðum í dag vegna áætlana samtaka olíuútflutningsríkja, OPEC, um að minnka olíuframleiðslu um 4 prósent til að draga úr umframbirgðum á hráolíu og sporna gegn frekari verðlækkunum. Viðskipti erlent 9.10.2006 11:43
Villepin varði forstjóra Airbus Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, kom til varnar Christian Streiff, forstjóra Airbus, í sjónvarpsviðtali í gær og sagði enga ástæðu fyrir hann að segja upp. Viðskipti erlent 9.10.2006 10:39
Lækkanir í Evrópu og Asíu Gengi hlutabréfa og gjaldmiðla hefur lækkað nokkuð á mörkuðum í Evrópu og Asíu í dag í kjölfar tilraunasprengingar Norður-Kóreumanna í nótt. Viðskipti erlent 9.10.2006 09:45
Engar formlegar viðræður milli Marel og Stork Marel hefur sent frá sér tilkynningu vegna fjölmiðlaumfjöllunar Fréttablaðsins í dag um hugsanlega sameiningu Marel og Stork Food System í Hollandi. Marel vill koma því á framfæri að félögin hafa átt í óformlegum viðræðum um hugsanlega nánara samstarf þeirra. Engar formlegar viðræður séu í gangi um sameiningu Marels og Stork Food System. Viðskipti innlent 9.10.2006 09:35
Marel verður stærst í heimi með Stork Stjórn og hluthafar fyrirtækjasamstæðunnar Stork N.V. í Hollandi takast á um stefnumál. Marel horfir til þess að verða stærsta matvælavinnslukerfafyrirtæki í heimi með yfirtöku á Stork Food Systems. Viðskipti innlent 8.10.2006 22:02
Forstjóri Airbus hótar uppsögn Christian Streiff, forstjóri evrópska flugvélaframleiðandans Airbus, hefur hótað að segja upp gefi stjórn móðurfélagsins honum ekki heimild til að endurskipuleggja í rekstri fyrirtækisins. Viðskipti erlent 8.10.2006 14:36
Nýherji styrkir sig á Austurlandi Nýherji hefur keypt allt hlutafé í Tölvusmiðjunni ehf. á Austurlandi. Í fréttatilkynningu segir að Nýherji hafi að undanförnu starfað að ýmsum verkefnum á Austurlandi og oft í samstarfi við Tölvusmiðjuna. Kaupin séu liður í að styrkja betur við þá starfsemi og skapa forsendur til að bjóða lausnir Nýherja til viðskiptavina á Austurlandi. Viðskipti innlent 6.10.2006 18:22
Nýsir kaupir 69% í Operon Dótturfélag Nýsis í Bretlandi hefur eignast 69 prósenta hlut í breska fasteignastjórnunarfélaginu Operon og styrkir þar með stöðu sína í einkaframkvæmd og fasteignastjórnun á breska markaðnum. Viðskipti innlent 6.10.2006 18:22
Hnupl kostar níu þúsund á mann Hver landsmaður greiðir um níu þúsund krónur á ári vegna þjófnaða og mistaka. Samkvæmt frétt frá Rannsóknarsetri verslunarinnar fara árlega fara 2,8 milljarðar króna í vaskinn hér á landi vegna rýrnunar af þessum sökum. Er þá miðað við meðaltalstölur frá 24 Evrópulöndum. Ætla má að stærstan hluta þessarar rýrnunar megi rekja til þjófnaða, eða um 2,4 milljarða, og restina vegna mistaka. Í 48,8 prósenta tilvika eru það viðskiptavinir sem stela en í næst stærstum hluta tilvika eru það starfsmenn. Viðskipti innlent 6.10.2006 18:22
Glitnir lýkur við kaup á NPØ Kaupum norska bankans BNbank, sem er í eigu Glitnis, á 45 prósenta hlut í Norsk Privatøkonomi eftir að norska fjármálaeftirlitið lagði blessun sína yfir kaupin. NPØ er fjármálaþjónustufyrirtæki sem starfar um allan Noreg. Viðskipti innlent 6.10.2006 18:22
Prófanir á hjartalyfi tefjast Morgan Stanley mælir með langtímafjárfestingu í DeCode Viðskipti innlent 6.10.2006 18:22
Kerkorian hættur við kaup í GM Bandaríski auðkýfingurinn Kirk Kerkorian, sem er einn stærsti hluthafinn í bandaríska bílaframleiðandanum General Motors (GM), er hættur við að auka við hlut sinn í fyrirtækinu eins og til stóð. Ástæðan er sögð óánægja hans með að samstarfsviðræðum GM við Nissan og Renault var slitið fyrr í vikunni. Viðskipti erlent 6.10.2006 22:47
Google hugleiðir kaup á YouTube Bandaríska netleitarfyrirtækið Google er sagt eiga í viðræðum um kaup á myndskráavefnum YouTube. Kaupverð er talið nema 1,6 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði 109 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 6.10.2006 18:14
Olíuverð lækkaði lítillega Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði lítillega og fór niður fyrir 60 dali á tunnu á helstu fjármálamörkuðum í dag þrátt fyrir að OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, hafi áætlanir um að draga úr olíuframleiðslu til að sporna gegn verðlækkunum á hráolíu. Viðskipti erlent 6.10.2006 11:02
Dótturfélag Nýsis kaupir í Bretlandi Nysir UK Limited, dótturfélag Nýsis hf., hefur keypt 69 prósent hlutafjár í breska fasteignastjórnunarfélaginu Operon, sem er með samninga um fasteignastjórnun á byggingum víða um Bretland. Kaupverð er trúnaðarmál. Viðskipti innlent 6.10.2006 10:33
Aer Lingus segir tilboð Ryanair of lágt Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur aukið við hlut sinn í írska flugfélaginu Aer Lingus og á nú 19,2 prósenta hlut í félaginu. Fyrir átti Ryanair 16 prósent. Ryanair gerði í alla hluti Aer Lingus í gær en stjórn félagsins segir tilboðið vanmat á virði þess. Viðskipti erlent 6.10.2006 09:44
Hitachi innkallar rafhlöður frá Sony Japanski tækniframleiðandinn Hitachi hefur ákveðið að innkalla 16.000 rafhlöður, sem fylgdu með fartölvum undir merkjum fyrirtækisins. Sony framleiddi rafhlöðurnar. Með þessu bætist Hitachi í hóp nokkurra fyrirtækja sem hafa innkallað ríflega 7 milljónir rafhlaða frá Sony. Viðskipti erlent 6.10.2006 09:25
Verð símtala í útlöndum lækkar í kjölfar samnings Og Vodafone heitir eftirleiðis Vodafone á Íslandi. Í gær var skrifað undir samning við Vodafone Group um notkun vörumerkisins. Hann er sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum og markar upphaf nánara samstarfs fyrirtækjanna. Viðskipti innlent 6.10.2006 00:50
Þriðji dagur Dow Jones í methæðum Bandaríska hlutabréfavísitalan Dow Jones sló enn eitt metið við lokun markaða vestanhafs í dag. Vísitalan hækkaði um 16,08 punkta eða 0,14 prósent í viðskiptum dagsins og endaði í 11.866,69 stigum. Þetta er þriðji dagurinn í röð sem vísitalan nær sögulegu hámarki. Viðskipti erlent 5.10.2006 21:42
Nýjum íbúðalánum bankanna fækkar Útlán bankanna til íbúðakaupa í september námu tæpum 3,2 milljörðum króna en það er svipað og síðastliðna tvo mánuði. Sé miðað við sama tíma á síðasta ári er samdrátturinn hins vegar mikill en þá námu íbúðalán bankanna 14,9 milljörðum króna. Greiningardeild Landsbankans spáir 2-3 prósenta lækkun á fasteignaverði á árunum 2006 til 2007. Viðskipti innlent 5.10.2006 17:06
Spá sterkri krónu fram yfir áramót Gengisvísitala krónunnar styrktist um 1,1 prósent í dag og stóð vísitala hennar í 118,7 stigum við lokun markaða. Greiningardeild Kaupþings gerir ráð fyrir að krónan haldist tiltölulega sterk fram yfir áramót. Viðskipti innlent 5.10.2006 17:00
Seðlabanki Danmerkur hækkar stýrivexti Seðlabanki Danmerkur ákvað í dag að feta í fótspor evrópska seðlabankans og hækka stýrivexti um 25 punkta í 3,5 prósent. Viðskipti erlent 5.10.2006 15:03
Olía hækkar í verði Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur hækkað nokkuð á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar þess að forseti samtaka olíuútflutningsríkja, OPEC, sagði samtökin vera að íhuga að draga úr olíuframleiðslu til að sporna gegn frekari lækkunum á olíu. Viðskipti erlent 5.10.2006 14:51
Evrópski seðlabankinn hækkar stýrivexti Seðlabanki Evrópu ákvað í dag að hækka stýrivexti á evrusvæðinu um 25 punkta í 3,25 prósent. Fjármálasérfræðingar töldu margir líkur á þessari ákvörðun bankastjórnarinnar. Viðskipti erlent 5.10.2006 11:50
Bernanke segir verðbólguna of háa Ben Bernanke, bankastjóri Seðlabanka Bandaríkjanna, varaði í gær við of mikilli verðbólgu vestanhafs. Hann gaf þó ekkert í skyn hvort bankinn muni hækka stýrivexti vegna þessa á næstunni. Viðskipti erlent 5.10.2006 11:32