

Vindhviðum allt að 36 metrum á sekúndu er spáð.
Lögin verða þó ekki felld úr gildi þar sem skammt gæti verið þar til þungunarrof og samkynjahjónabönd verða lögleidd náist ekki að mynda heimastjórn á Norður-Írlandi.
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, mun á næstu dögum kynna nýjar Brexit-tillögur stjórnar sinnar fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Rory McIlroy var valinn kylfingur ársins á PGA mótaröðinni í þriðja skipti á ferlinum.
Þúsundir komu saman fyrir utan þinghúsið í Bretlandi í dag, þar sem ákvörðun Boris Johnson forsætisráðherra um að fresta þingfundum fram í október var mótmælt.
Norður-Írinn Rory McIlroy bar sigur úr býtum á lokamóti tímabilsins á PGA-mótaröðinni um helgina sem tryggði honum fimmtán milljóna dollara vinningsfé. Fyrir utan risamótin fjögur hefur Rory verið óstöðvandi á tímabilinu eins og sé
Fundir með Merkel og Macron gerðu lítið til þess að slá á áhyggjur af samningslausu Brexit. Landamæri Írlands og Norður-Írlands eru enn stærsta hindrunin.
Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, fundaði í dag með forsætisráðherra Bretlands, Boris Johnson í París.
Boris Johnson forsætisráðherra Breta segir í bréfi til Evrópusambandsins að írska baktryggingin, einn helsti ásteitingarsteinninn í útgöngusamningum Breta og ESB vegna Brexit, sé andlýðræðisleg og alls ófær. Því verði Evrópusambandið að falla frá þeirri kröfu.
Breska þingið gæti tekið fram fyrir hendurnar á Norður-Írum ef þeir klambra ekki saman heimastjórn fyrir lok október. Engin heimastjórn hefur verið þar frá því árið 2017.
Lögreglan í höfuðborg Norður-Írlands, Belfast, hefur staðfest að grunsamlegur hlutur sem fannst undir bíl lögregluþjóns þar í borg sé sprengja ætluð til þess að ráða lögregluþjóninn af dögum.
Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn tapa sætum í sveitarstjórnum en Frjálslyndir demókratar bæta við sig.
Leiðtogar írskra þjóðernissinna á Norður-Írlandi eru ánægðir með að Brexit hafi sett skiptingu Írlands aftur á dagskrána.
Kona á sextugsaldri hefur verið handtekin í tengslum við drápið á norðurírsku blaðakonunni Lyru McKee.
Nýi írski lýðveldisherinn hefur tekið ábyrgðina á drápinu á blaðakonunni Lyru McKee sem var skotin í höfuðið á fimmtudaginn var þegar hún var að fylgjast með óeirðum í hverfi í norður-írsku borginni Londonderry.
Slökkviliðsmenn á Írlandi hafa náð tökum á skógareldum sem brunnu í Mourne fjöllunum í Down héraði í Írlandi í nótt.
Yfirmaður rannsóknarinnar á morði blaðakonunnar Lyra McKee segir nýja tegund hryðjuverkamanna vera að spretta upp í Norður-Írlandi. Tveir karlmenn á tvítugsaldri hafa verið handteknir í tengslum við morðið.
Tveir unglingspiltar hafa verið handteknir í tengslum við morðið á blaðamanninum Lyru McKee, sem skotin var til bana í mótmælum í Londonderry á fimmtudag.
Lögreglan í Norður-Írlandi hefur birt myndband af morðingja blaðakonunnar Lyra McKee sem skotin var til bana þegar óeirðir áttu sér stað í borginni Londonderry í gær.
Norður-Írskur blaðamaður, Lyra McKee, var í gærkvöld skotin til bana í Londonderry þar sem hún fjallaði um óeirðir sem geisuðu í Creggan-hverfi borgarinnar í gærkvöld. Lögregla rannsakar morðið sem hryðjuverk. McKee varð fyrir skoti sem grímuklædds byssumanns er hún stóð nærri lögreglunni í Londonderry.
Talið er að unglingarnir hafi látið lífi í troðningi fyrir utan hótel þar sem samkvæmi í tilefni dags heilags Patreks var haldið.
Hermaðurinn er talinn hafa myrt tvo mótmælendur og reynt að drepa fjóra aðra í blóðbaði í Derry á Norður-Írlandi árið 1972.
Skoðanakönnun leiðir í ljós að tveir af hverjum þremur Norður-Írum vilja að Bretland verði áfram hluti af innri markaði ESB og tollabandalagi frekar en að sett verði upp landamæraeftirlit á Írlandi.
Hópur simpansa flúði frá svæði sínu í dýragarðinum í Belfast í Norður-Írlandi. Einn simpansanna komst heldur nálægt fjölskyldu einni sem er ekki á eitt sátt.
Brexit-hópur Evrópuþingsins sagði að þingið myndi ekki samþykkja útgöngusamning ríkisstjórnar Bretlands við ESB ef umdeilt ákvæði um varúðarráðstöfun fyrir fyrirkomulag landamæra Írlands og Norður-Írlands verður fjarlægt.
Lögregla á Norður-Írlandi hefur handtekið tvo karlmenn á þrítugsaldri vegna gruns um að bera ábyrgð á bílsprengju sem sprakk í miðbæ Londonderry í gærkvöldi.
Bretland verður tímabundið áfram hluti tollabandalags Evrópu. Frumundan eru frekari samningaviðræður.
Landamæri Írlands og Norður-Írlands eru stærsta málið sem enn er óleyst.