
Fjölskyldumál

Segir ekki lengur hægt að sækja börnin til Íslands
Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingkona, segir þá lagalegu stöðu komna upp að ekki sé hægt að sækja börn Eddu Bjarkar Arnardóttur til landsins. Ástæðan fellst meðal annars í því að búið sé að flytja hana úr landi.

Skömm: „Í guðs bænum láttu ekki sjá hvað þú ert mikill aumingi“
Hvernig ert þú í stakk búin/n til að takast á við áföll? Hver er bakgrunnurinn þinn?

Edda Björk í gæsluvarðhaldi
Edda Björk Arnardóttir, sem var framseld til Noregs í gær, hefur verið úrskurðuð í þrjátíu daga gæsluvarðhald í Þelamerkurfangelsi. Þetta staðfestir Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður Eddu í samtali við fréttastofu.

Segir málið á ábyrgð dómsmálaráðuneytisins
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, segir að ráðuneytið sitt geti ekki blandað sér í mál Eddu Bjarkar Arnardóttur og barnanna hennar og segir málið alfarið vera á ábyrgð dómsmálaráðuneytisins.

Vissi síðast af Eddu Björk á flugvellinum í Kaupmannahöfn
Systir Eddu Bjarkar Arnardóttur, sem var framseld til Noregs í gær, hefur ekkert heyrt frá henni frá framsalinu. Hún segir mikilvægt að hlustað verði á syni Eddu í forræðisdeilu hennar við barnsföður sinn.

Eddu Björk hafi verið gert að tala norsku við börnin sín
Helga Vala Helgadóttir lögmaður og fyrrverandi þingkona Samfylkingarinnar segir ekki nóg hlustað á börnin í forsjármáli Eddu Bjarkar Arnardóttur sem framseld var til Noregs í dag. Hún gagnrýnir einnig framferði norskra yfirvalda í málum sem varða börn. Þetta og fleira ræddi hún í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag

Edda Björk farin úr landi
Edda Björk Arnardóttir var framseld til Noregs seinni partinn í dag. Hún hefur verið sökuð um að hafa flutt börn sín í leyfisleysi frá Noregi til Íslands á síðasta ári.

Ekki á færi sýslumanns að láta lýsa eftir börnunum
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu, Sigríður Kristinsdóttir, segir það ekki á dagskrá embættisins að óska þess að lögreglan lýsi eftir börnum Eddu Bjarkar Arnardóttur. Það sé ekki á valdi embættisins.

Segir allar ákvarðanir í máli Eddu Bjarkar samkvæmt lögum
Landsréttur hefur staðfest úrskurð um gæsluvarðhald Eddu Bjarkar Arnardóttur. Dómsmálaráðherra segir í yfirlýsingu að ráðherra og ráðuneyti hennar hafi enga að komu að málinu. Ríkissaksóknari hafi tekið allar ákvarðanir í málinu og að þær séu allar samkvæmt lögum.

Edda snúin niður og er á leið til Noregs
Edda Björk Arnardóttir hefur verið flutt úr fangelsinu á Hólmsheiði og verður flutt til Noregs.

Deilur skuli útkljáðar fyrir dómstólum, ekki á vegslóða við Hólmsheiði
Formaður Lögmannafélags Íslands segir að þó einhverjum kunni að mislíka niðurstaða norskra dómstóla um að faðir barna Eddu Bjarkar Arnardóttur skuli fara með forsjá þeirra, þýði það ekki að borgararnir eigi að taka lögin í sínar hendur.

Norskir lögreglumenn mættir til Keflavíkur
Það var embætti ríkissaksóknara sem krafðist þess að Edda Björk Arnardóttir yrði færð úr fangelsinu á Hólmsheiði og til Keflavíkur seint í gærkvöldi. Í Keflavík voru mættir lögreglumenn frá Noregi sem ætluðu að fylgja henni þangað.

Hnefarétturinn
Í morgun voru sagðar fréttir af því að hópur fólks hefði safnast saman við fangelsið á Hólmsheiði og ætlaði að sögn að koma í veg fyrir flutning konu til Noregs „með öllum tiltækum ráðum.“

Segir gróflega brotið á réttindum Eddu Bjarkar
Landsréttur hefur enn ekki skilað úrskurði sínum í máli Eddu Bjarkar Arnardóttur. Lögmaður hennar, Jóhannes Karl Sveinsson, kærði niðurstöðu héraðsdóms um gæsluvarðhald hennar til Landsréttar fyrr í vikunni.

„Höldum áfram í dag að berjast fyrir hennar málstað og barnanna“
Ragnheiður Arnardóttir, systir Eddu Bjarkar Arnardóttur, segir Eddu finna fyrir miklum meðbyr. Allt að tuttugu bílar stilltu sér upp við fangelsið að Hólmsheiði í nótt til að mótmæla brottför hennar til Noregs áður en úrskurður Landsréttar hvað varðar gæsluvarðhald hennar liggur fyrir.

„Það kemur ekki sá dagur að við hugsum ekki til hennar“
„Í þessu ferli er ég oft búin að vera við þolmörk, við það að gefast upp og geta ekki meira. Þá hugsa ég til hennar, hvað hefði gert hana stolta af mér. Ég minni mig á að ég er að gera þetta fyrir hana. Ég ætla að halda áfram fyrir hana,“ segir Viðar Pétur Styrkársson.

Segja gloppu í kerfinu
Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður Eddu Bjarkar Arnardóttur, skilaði í gærkvöldi greinargerð til Landsréttar en þangað áfrýjaði hann niðurstöðu héraðsdóms um gæsluvarðhald Eddu Bjarkar hér á landi. Staðfesti Landsréttur úrskurðinn verður hún flutt til Noregs innan fimm daga samkvæmt lögum.

Vill ekki vera framseld „í gæsluvarðhald í óskilgreindan tíma“
Edda Björk Arnardóttir segir að hún hafi ekki gefið sig fram til lögreglu svo hægt sé að framselja hana til Noregs vegna þess að ekki sé komin dagsetning á réttarhöld sem þar eiga að fara fram í máli hennar. Handtökuskipun var gefin út í máli hennar og lýst eftir henni í vikunni. Íslenskir dómstólar hafa samþykkt handtökuskipun og fallist á framsal.

Jólakvíði og stress: Mörgum líður mjög illa en segja ekkert endilega frá því
Nú þegar líður að jólunum eykst jólastressið hjá mörgum. Margt sem ætlunin er að gera og hjá mörgum er þetta líka álagstími í vinnunni. Hjá sumum geta vikurnar fyrir jólin þó einkennst af meiru en jólastressi, því sumt fólk upplifir þennan árstíma sem vanlíðunartíma í kvíða.

Þriðja vaktin margslungin segir framkvæmdastjórinn sem varð ástfangin af bróður vinkonu sinnar
„Ég myndi segja að verkaskiptingin okkar heima sé góð og maðurinn minn meira að segja oft að taka meira þegar að ég er að vinna svona mikið. En þriðja vaktin felur svo margt í sér,“ segir Arna Harðadóttir framkvæmdastjóri Helix.

„Það er svo skelfilegt að horfa upp á vinkonu sína í þessum aðstæðum“
Aníta Björt Berkeley upplifði verstu martröð allra foreldra þann 4.nóvember síðastliðinn. Dóttir hennar lést, einungis sex vikna og sex daga gömul.

Loksins getur öll fjölskyldan notið Skopp saman
Nýtt trampólínsvæði opnaði nýlega fyrir yngstu börnin í Skopp í Kópavogi þar sem öll fjölskyldan getur nú skoppað saman.

Þriðja vaktin er til og Jóhannes Haukur gengur hana
Jóhannes Haukur Jóhannsson stórleikari, eiginmaður og faðir segir þriðju vaktina svokölluðu vissulega til og en það sé hann sem gangi þá vakt.

Gætt hafi verið að börnunum í Grafarvogi
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir það vera hlutverk embættisins að framfylgja niðurstöðu dómstóla í þeim tilvikum sem henni er ekki hlýtt. Efst í huga allra sem komi að aðgerðum líkt og þeirri í Grafarvogi þann 25. október síðastliðnum séu börnin sem eigi í hlut.

„Þetta er mjög löng og ströng barátta sem er framundan“
Hin þriggja ára gamla Glódís Lea Ingólfsdóttir greindist með illvígt krabbamein í júlí síðastliðnum og í kjölfarið snerist líf hennar og fjölskyldunnar á hvolf. Undanfarna mánuði hefur Glódís þurft að gangast undir stranga lyfjameðferð til að vinna bug á meininu og baráttunni er enn ekki lokið.

Leita réttar síns vegna aðfarar sýslumanns í gær
Edda Björk Arnardóttir og sambýlismaður hennar ætla að leita réttar síns vegna aðgerða sýslumanns og lögreglu við heimili þeirra í gær. Þar fór fram aðfaraaðgerð á vegum sýslumanns en flytja átti þrjá drengi hennar í forsjá föður þeirra í Noregi. Aðgerðinni var frestað eftir um þrjár klukkustundir.

Kölluðu eftir liðsauka einkennisklæddra þegar mannfjölda dreif að
Talsmaður Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir að fjórir óeinkennisklæddir lögregluþjónar hafi verið sendir á vettvang þar sem sækja átti þrjá drengi, sem senda átti til Noregs, í gærkvöldi.

Aðgerðir í Foldahverfi virðist ekki í samræmi við lög
Lögregluaðgerðirnar í Foldahverfi í gær, þar sem flytja átti þrjá drengi úr umsjá móður þeirra, verða skoðaðar segir dómsmálaráðherra. Hún segir alvarlegt að einkennisklæddir lögreglumenn hafi verið á staðnum og að viðbúnaðurinn virðist hafa gengið gegn ákvæðum barnalaga.

Flutningi þriggja íslenskra drengja til Noregs frestað
Flytja átti þrjá íslenska drengi til föður síns í Noregi í kvöld. Hann fer með forsjá þeirra samkvæmt úrskurði íslenskra og norskra dómstóla. Fjölmennt lögreglulið var á vettvangi í kvöld á vegum sýslumanns og nokkuð umstang. Móðir drengjanna var handtekin en síðar sleppt og aðgerðinni frestað.

Misskilningur forystukvenna um jafnréttismál
Í morgun birtist grein á vísi.is „Hver á að sinna ólaunuðum störfum?” eftir hóp í framkvæmdastjórn kvennaverkfalls. Í greininni gætir misskilnings um getu feðra til að annast börnin sín ef foreldrar búa ekki saman. Ég vonast til að geta leiðrétt hann með nokkrum dæmum.