

Umfjöllun um Ljósleiðaradeildina og rafíþróttir á Íslandi.
Alda Karen Hjaltalín Lopez, athafnakona og fyrirlesari, keppir næstu sex vikur í deildarkeppni í Formúlu 1-hermiakstri í New Jersey í Bandaríkjunum.
Stafræn aksturskeppni Formúlu 4 hefst í kvöld þar sem bestu ökuþórar landsins í aksturshermum leiða saman hesta sína. Landsliðsmaður í hermiakstri vill auka tengingu við raunverulegan akstur og stefnir sjálfur langt.
Norðurlandamótið í hermiakstri fer fram hér á landi um helgina. Fjórir Íslendingar taka þátt í mótinu og landsliðsmaður stefnir á gullverðlaunin.
Þórsarar eru enn taplausir í Tölvulistadeildinni í Overwatch og halda toppsætinu, með 18 stig, eftir 3-1 sigur á Tröll-Loop í 6. umferð.
Sjötta umferð Míludeiladarinnar í Valorant fór fram á föstudagskvöld og að henni lokinni er ljóst að þrjú efstu liðin, Klutz, Jötunn Valkyrjur og Venus, hafa tryggt sér sæti í útsláttarkeppninni.
„Hvað vorum við að horfa á hérna?“ spurði Einar Ragnarsson, hristur og hrærður, eftir beina lýsingu hans og Tómasar Jóhannssonar á æsispennandi, þríframlengdum leik Sögu og Veca í 6. umferð Ljósleiðradeildarinnar í Counter Strike í gær.
Fjórða umferð GR Verk Deildarinnar í Rocket League fór fram í gærkvöld og þar bar einna helst til tíðinda að lið Rafíþróttadeildar Keflavíkur, Rafík, keyrði sig upp af botni deildarinnar með öruggum 3-0 sigri á Quick sem situr eftir í neðsta sæti með 0 stig.
Stálin stinn mættust þegar fjandvinaliðin Dusty og Ármann tókust á í eina leik 6. umferðar Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike í gærkvöld.
Kristófer Tristan vann seinni leikinn í ELKO-Deildinni í Fortnite á mánudagskvöld og komst þannig í 1. sæti deildarinnar með 11 stiga forskot á aðal keppinautinn, Denas Kazulis.
Heldur betur hitnaði í kolunum á Íslandsmeistaramótinu í Netskák í seinni umferð gærkvöldsins. Eftir óvenju auðvelda 6-0 afgreiðslu Guðmundar Kjartanssonar á Símoni Þórhallssyni tók við háspennu einvígi Hilmis Freys Heimissonar og Aleksandr Domalchuk-Jonasson, sem stóð ekki uppi sem sigurvegari fyrr en að loknum fyrsta bráðabana mótsins.
Lið Kidda Karrí og Mímklúbbsins Breiðnefs skildu jöfn, 1-1, í viðureign sinni í 2. riðli fimmtu umferðar Litlu Kraftvéladeildarinnar í Dota 2 á sunnudaginn.
Lið Þórs frá Akureyri er enn taplaust í Tölvulistadeildinni í Overwatch eftir 2-1 sigur á Selunum frá Selfossi í 5. umferð þar sem liðin voru jöfn að stigum þegar þau hófu baráttuna um fyrsta sætið á laugardaginn.
Fimmta umferð Míludeiladarinnar í Valorant fór fram á föstudagskvöld og að henni lokinni heldur Venus efsta sætinu með 2-13 sigri á Guardian Grýlanna sem eru því enn á botni deildarinnar.
Fimmta umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike hélt áfram á fimmtudagskvöld með tveimur leikjum þar sem Rafík sigraði Sögu 2-0 og Þór afgreiddi Kano, einnig 2-0.
„Það var smá feimni í gangi en aldrei að vita nema einhver vinasambönd hafi myndast,“ segir rafíþróttaþjálfarinn Daníel Sigurvinsson um heimsókn um 30 grænlenskra grunnskólabarna í Arena þar sem látið var á það reyna hvort hægt væri að nota tölvuleiki til þess að tengja þau við íslenska krakka sem þar æfa.
Þriðja umferð GR Verk Deildarinnar í Rocket League fór fram í gærkvöld og skemmst frá því að segja að úrslit leikja höfðu lítil áhrif á stigatöfluna, fyrir utan það helst að ríkjandi meistarar Þórs og OGV eru nú hnífjöfn á toppnum.
Míludeildin í Valorant er í fullum gangi og óhætt að fullyrða að áhuginn á henni hafi aldrei verið meiri en nú þegar 50 konur eru skráðar til leiks og átta lið takast á í einu kvennadeild landsins í rafíþróttum.
Fimmta umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike hófst í gærkvöld með tveimur leikjum þar sem Höttur sigraði Ármann 2-0 og ÍA tapaði í botnbaráttuleik fyrir Venus 1-2.
Fjórða umferð ELKO-Deildarinnar í Fortnite fór fram mánudagskvöldið 30. september og segja má að tveir efstu keppendurnir í deildinni hafi boðið upp á endurtekið efni úr síðustu umferð þegar þeir festu sig enn betur í sessi á toppnum.
„TÍK hafa starfað opinberlega sem félagasamtök núna í tvær vikur og hafa nú þegar fengið boð frá forsetanum á Bessastaði,“ skrifar Melína Kolka, stofnandi Tölvuleikjasamfélags íslenzkra kvenna, á Facebook þegar hún segir frá heimsókn grænlenskra grunnskólabarna til Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, þar sem „TÍK-in“ Eva Margrét Guðnadóttir var með í för.
Ungmennafélagið Fjölnir varð 26. aðildarfélagið að Rafíþróttasambandi Íslands í liðinni viku þegar stjórn sambandsins samþykkti aðildarumsókn nýstofnaðrar rafíþróttadeildar Fjölnis.
Viðureign liðanna TDE jr og Leifarnar í 4. umferð Litlu Kraftvéladeildarinnar í Dota 2 lauk með kærkomnum og góðum 2-0 sigri sem skilaði TDE sínum fyrstu tveimur stigum.
Þrír leikir fóru fram í 4. umferð Tölvulistadeildarinnar í Overwatch á laugardaginn og að henni lokinni er lið Þórs enn í efsta sæti eftir 3-0 sigur á Jötni í „svakalegum leik“ eins og Óskar og Guðný Stefanía orðuðu það í beinni útsendingu frá umferðinni.
Fjórða umferð Míludeiladarinnar í Valorant fór fram á föstudagskvöld og ljóst var á leikjum kvöldsins að farið er að hitna í kolunum og baráttan á toppi deildarinnar að harðna, bæði um toppsætið að tryggja sig áfram í fjögurra liða úrslit.