Sænski boltinn

Glódís Perla mögulega á leið til Bayern München
Glódís Perla Viggósdóttir hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Rosengård í sænsku úrvalsdeildinni. Glódís var verðlaunuð fyrir góðan árangur eftir 5-0 sigur liðsins gegn Växjö í dag.

Hefur bara byrjað tvo leiki en er komin með fjögur mörk í sænsku úrvalsdeildinni
Íslenska knattspyrnukonan Diljá Ýr Zomers hefur heldur betur verið að gera frábæra hluti í sænsku úrvalsdeildinni á síðustu vikum.

Mikil sigling á Guðrúnu og félögum
Guðrún Arnardóttir var að venju í byrjunarliði Djurgården sem vann 2-0 sigur á Piteå í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Hlín Eiríksdóttir er enn frá vegna meiðsla hjá Piteå.

Diljá á skotskónum annan leikinn í röð
Diljá Ýr Zomers var á meðal markaskorara í 3-0 sigri Häcken á Linköping í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni í kvöld.

Féll á læknisskoðun og missti af samningi við sænskt lið
Ekkert verður að því að bakvörðurinn Rúnar Þór Sigurgeirsson hjá Keflavík fari út í atvinnumennsku til Svíþjóðar.

Kolbeinn spenntur fyrir komu hins þaulreynda Marcus Berg
Samherji Kolbeins Sigþórssonar hjá IFK Gautaborg segir hann einn besta framherja sænsku úrvalsdeildarinnar þegar hann er meiðslalaus. Sænski landsliðsframherjinn Marcus Berg mun ganga til liðs við félagið á næstunni og gæti sæti Kolbeins í byrjunarliðinu verið í hættu.

Cecilía Rán og Berglind Rós í liði umferðarinnar í Svíþjóð
Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Berglind Rós Ásgeirsdóttir eru báðar í liði vikunnar í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hjá sænska miðlinum Aftonbladet. Þær sáu til þess að Örebro náði óvæntu stigi gegn toppliði Rosengård.

Kolbeinn brjálaður út í markvörðinn sem hafði af honum dauðafæri
Hvorki gengur né rekur hjá Gautaborg, liði íslenska landsliðsmannsins Kolbeins Sigþórssonar, í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Liðið þurfti að þola 1-0 tap fyrir Elfsborg á heimavelli í kvöld þar sem Kolbeinn fékk gullið tækifæri til að jafna leikinn í lokin en markvörður Gautaborgar hafði það af honum.

Sjáðu heimsklassa markvörslur Cecilíu á móti toppliðinu um helgina
Hin sautján ára gamla Cecilía Rán Rúnarsdóttir fékk tækifærið með KIF Örebro í sænsku deildinni um helgina og sýndi heldur betur hvers hún er megnug.

Emil og félagar unnu toppliðið - Tap hjá Adam
Emil Pálsson og liðsfélagar hans í Sarpsborg unnu frækinn 1-0 sigur á Molde í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þrír Íslendingar voru í eldlínunni í Skandinavíu.

Viðar skoraði og lagði upp í sigri
Viðar Ari Jónsson átti frábæran leik í liði Sandefjord er liðið lagði Stabæk, 2-0, í norsku úrvalsdeildinni í dag.

Sjáðu glæsimarkið sem Ari skoraði eftir sendingu Ísaks
Ari Freyr Skúlason var á skotskónum er IFK Norrköping vann 3-2 sigur á sænsku meisturunum í Malmö í dag.

Diljá Ýr skoraði í stórsigri á Kristianstad
Tveir leikir voru á dagskrá í sænsku úrvalsdeildinni síðdegis. Fjórir Íslendingar voru í eldlínunni þar sem Häcken vann 6-2 sigur á Kristianstad en Växjö þoldi 2-0 tap fyrir Eskiltuna.

Félagar Hlínar sendu lið Hallberu í fallsæti
11. umferð úrvalsdeildar kvenna í fótbolta í Svíþjóð hófst í kvöld með einum leik. Piteå rúllaði yfir AIK 4-0 í fallslag.

Mark og tvær stoðsendingar hjá Sveindísi í stórsigri
Kristianstads er í þriðja sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 6-1 sigur á Piteå í dag.

Myndskeið: Íslendingaslagur stöðvaður eftir að eldingu laust niður
Merkilegt atvik átti sér stað undir lok leiks Örebro og Kristianstad á heimavelli þeirra fyrrnefndu í síðasta leik dagsins í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Eldingu laust niður á vellinum, eða í nánd við hann. Leikurinn var tímabundið flautaður af en Kristianstad vann að lokum 2-0 sigur.

Diljá Ýr skoraði í 10-0 sigri á liði Hallberu - Hlín enn meidd
Tveimur leikjum var að ljúka í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni en Diljá Ýr Zomers komst á blað í svakalegum sigri Häcken á AIK.

Markalaust í Íslendingaslagnum
Växjö og Djurgården gerðu markalaust jafntefli á Visma Arena, heimavelli Växjö, í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Bæði lið berjast við falldrauginn.

Samúel og Bjarni í tapliðum
Tveir Íslendingar voru í eldlínunni fyrri hluta dags í Skandinavíu. Báðir voru í tapliði.

Fyrirliði Svía setti Evrópumet
Caroline Seger, fyrirliði sænska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, setti í dag Evrópumet er Svíþjóð gerði markalaust jafntefli við Ástralíu í vináttulandsleik.

Milos nýr þjálfari Jóns Guðna
Knattspyrnuþjálfarinn Milos Milojevic hefur verið ráðinn sem þjálfari sænska úrvalsdeildarfélagsins Hammarby. Jón Guðni Fjóluson er í lykilhlutverki í vörn liðsins.

Milos þykir líklegur til að taka við liðinu hans Zlatans
Milos Milojevic, fyrrum þjálfari Víkinga og Breiðabliks, er sterklega orðaður við sænska úrvalsdeildarfélagið Hammarby.

Enn bætist í Íslendingaflóruna hjá Kristianstad
Þorsteinn Magnússon hefur verið ráðinn markmannsþjálfari sænska knattspyrnuliðsins. Kristianstad. Hann verður sjöundi Íslendingurinn sem er á mála hjá félaginu.

Hamrén hefur hafnað þremur félögum og einu landsliði
Erik Hamrén er ekki hættur að þjálfa. Þetta segir fyrrum íslenski landsliðsþjálfarinn í löngu viðtali við Expressen þar sem hann fer yfir stöðuna hjá sér.

Hallbera og stöllur hennar höfðu betur í Íslendingaslagnum
Fjölmargar íslenskar knattspyrnukonur leika í sænsku úrvalsdeildinni og voru í eldlínunni í dag.

Sigling á Vålerenga og mikilvægur sigur Guðrúnar
Ingibjörg Sigurðardóttir og stöllur hennar eru með fullt hús stiga í norska boltanum eftir 2-1 sigur á Kolbotn á útivelli.

Markalaust í Íslendingaslagnum í Svíþjóð
Kristianstad varð í kvöld fyrsta liðið til að ná stigi af Rosengard er Íslendingaliðin tvö öttu kappi í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Diljá og Hlín unnu Íslendingaslagina í Svíþjóð
Tveir Íslendingaslagir fóru fram í sænsku úrvasldeildinni í knattspyrnu í dag. Diljá Zomers skoraði þriðja mark Häcken í 3-0 sigri liðsins gegn Örebro og Hlín Eiríksdóttir spilaði seinustu tíu mínúturnar í 1-0 sigri Pitea gegn Djurgården.

Rosengård með fullt hús stiga á toppnum eftir stórsigur | Sveindís Jane sneri aftur í tapi
Þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni í sænsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í dag. Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Rosengård unnu stórsigur á meðan Sveindís Jane Jónsdóttir sneri aftur eftir meiðsli í tapi Kristianstad.

Rosengård með fullt hús | Jafnt í Íslendingaslag
Rosengård vann 1-0 sigur á Piteå í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þar sem Glódís Perla Viggósdóttir spilaði allan leikinn í vörn liðsins. Kristianstad og AIK skildu jöfn 1-1.