
Kynferðisofbeldi

„Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“
Ofbeldi gegn konum verður ekki stöðvað með því að ýta undir kynþáttafordóma. Þetta segir palestínsk kona sem óttast að umræða um alvarleg ofbeldisbrot gegn löndu sinni á Íslandi ali á fordómum, frekar en að styðja þolendur og berjast gegn kynbundnu ofbeldi.

Dómur í máli Kolbeins á mánudag
Dómur verður kveðinn upp í máli knattspyrnumannsins Kolbeins Sigþórssonar í Héraðsdómi Reykjaness á mánudag. Hann er ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni.

Grunaður um kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barnungri stjúpdóttur sinni sem hann er sakaður um að hafa framið á heimili þeirra.

Albert Guðmundsson verður ákærður fyrir kynferðisbrot
Ríkissaksóknari hefur fellt ákvörðun héraðssaksóknara í máli Alberts Guðmundssonar, leikmanns Genóa í knattspyrnu, úr gildi og lagt fyrir héraðssaksóknara að höfða sakamál á hendur honum. Hann verður því ákærður fyrir kynferðisbrot.

Ákærður fyrir að nauðga barnungri hálfsystur sinni
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tvær nauðganir en önnur þeirra beindist gegn barnungri hálfsystur hans. Meint brot mannsins áttu sér stað árið 2021, annars vegar í maí og hins vegar í júní.

Mál Alberts sýni að skýra þurfi reglurnar
Horft var til eldra fordæmis þegar tekin var ákvörðun um að ekki væri heimilt að velja Albert Guðmundsson, leikmann Genóa í knattspyrnu, í næsta landsliðverkefni. Ríkissaksóknari á eftir að taka endanlega ákvörðun í máli hans. Ekki er deilt um túlkun reglna innan stjórnar en ljóst er að skýra verði reglurnar.

Sker úr um hvort sáðlát yfir andlit með valdi sé nauðgun
Hæstiréttur hefur veitt Gareese Joshua Gray, sem var sakfelldur fyrir nauðgun í Landsrétti, áfrýjunarleyfi. Að mati Hæstaréttar er ekki útilokað að hann komist að annarri niðurstöðu en Landsréttur um hvort það teljist nauðgun að hafa sáðlát yfir andlit með valdi.

Beint streymi: Kynferðisofbeldi og önnur áföll á Íslandi
Sálfræðideild Háskólans í Reykjavík stendur fyrir málþingi um niðurstöður nýrra rannsókna á áhrifum og afleiðingum kynferðisofbeldis og annarra áfalla á líf fólks á Íslandi.

Kona sem sendi nektarmyndir í bræði fær grænt ljós
Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni konu um að taka mál hennar fyrir, en það varðar sendingar hennar af nektarmyndum sem sýndu eiginmann hennar og aðra konu.

Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur
Bergvin Oddsson, fyrrverandi formaður Blindrafélags Íslands, hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir kynferðislega áreitni gegn þremur konum. Hann fær sjö mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, vegna brotanna.

„Mig langaði bara að drepa þennan mann“
Hörður Þór Rúnarsson var sjö ára gamall þegar hann varð fyrir kynferðislegri misnotkun af hálfu eldri manns. Maðurinn varð uppvís að því að hafa einnig brotið á tveimur öðrum drengjum. Þar sem maðurinn var frá upphafi talinn andlega vanheill og þar með ósakhæfur fór málið aldrei fyrir dóm.

Viðhorf breytist ekki við það bara að klæða sig í lögreglubúning
Sérfræðingar frá UN Women vinna nú að því að taka út lögreglufræðikennslu á Íslandi og inntökuprófið í til dæmis sérsveitina út frá kynjajafnrétti. Verkefninu stýra þau Jane Townsley og Gerry Campbell sem bæði störfuðu áður sem lögreglumenn en vinna nú að samþættingu kynjajafnréttis innan lögreglu um allan heim. Bæði voru þau á landinu í vikunni.

Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið
Karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru um nauðgun af Héraðsdómi Austurlands. Segir í dómnum að ekki hafi verið færð nógu sannfærandi rök fyrir því að manninum hafi verið ljóst að hann gengi gegn vilja konunnar. Enginn vafi sé þó hjá dómnum að konan telji að á sér hafi verið brotið.

Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista
Frosti Logason hlaðvarpsstjóri segir baráttuna gegn ofbeldi hafa snúist upp í ranghverfu sína. Hópar sem hafa látið sig þessi mál varða, netakvívistar á borð við þá sem ráða á för í hópum á borð við „Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu“ stundi það að veitast að viðmælendum hans.

Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað
Ákæran sem Kolbeinn Sigþórsson sætir er fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barnungri stúlku. Hann er sagður hafa nýtt sér yfirburði sína yfir stúlkunni og dregið niður nærbuxur hennar og strokið kynfæri hennar fram og til baka mörgum sinnum.

Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans
Karlmaður hefur hlotið þrjátíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna líkamsárásar sem átti sér stað í íbúð í Reykjavík í maí 2022.

Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku
Kolbeinn Sigþórsson hefur verið ákærður fyrir alvarlegt kynferðisbrot gegn barnungri stúlku. Kolbeinn neitar sök, en meint brot á að hafa verið framið í júní fyrir tveimur árum.

Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár
Rúmlega ellefu þúsund hafa leitað til Stígamóta frá upphafi starfsemi þeirra fyrir 34 árum. Körlum sem leituðu til Stígamóta fjölgaði milli ára en biðlisti eftir fyrsta viðtali styttist í fyrsta sinn í þrjú ár. Talskona Stígamóta segir mikið ánægjuefni.

Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu
Þúsundir Ástrala gengu til mótmæla í dag vegna ofbeldisbylgju sem riðið hefur yfir landið á síðustu mánuðum. Forsætisráðherra segir að um þjóðarkrísu ræðir og heitir aðgerðum.

Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd
Ingi Valur Davíðsson, Ólafsfirðingur á fertugsaldri, hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir að nauðga sextán ára stjúpdóttur æskuvinar síns.

Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak
Leikkonan Ashley Judd, sem var meðal þeirra fyrstu sem stigu fram og greindu frá því að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein, segir það áfall að dóminum yfir honum hafi verið snúið.

Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans
Karlmaður hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að nauðga pilti undir lögaldri. Pilturinn hafði ætlað að koma upp um barnaníðing eftir að hafa horft á fréttaskýringaþáttinn Kompás, þar sem barnaníðingar voru veiddir með notkun tálbeita.

Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun
Um helgina voru tveir leikmenn úr sama félaginu í ensku úrvalsdeildinni handteknir vegna gruns um nauðgun. Leikmennirnir eru báðir nítján ára.

Myndaði annan mann í sturtuklefanum
Karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að taka ljósmyndir af öðrum manni í sturtuklefa.

Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang
Tæplega sextugur karlmaður hlaut í vikunni þriggja og hálfs árs fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tvær nauðganir og fyrir að taka þær upp. Maðurinn heitir Elmar Örn Sigurðsson, en brotin áttu sér stað í janúar og september 2017.

Mál kvenna vegna líkamsleitar í kjölfar barnsfundar fellt niður
Alríkisdómstóll í Ástralíu hefur komist að þeirri niðurstöðu að fella niður mál fimm kvenna gegn Qatar Airways, vegna líkamsleitar sem þær voru látnar sæta.

Svona lítur meðvirkni út
Í lok mars hleyptu Stígamót, í samstarfi við stjórnvöld, af stað sínu árlega forvarnarátaki „Sjúkást“ þar sem jafnvægi í samskiptum eru til skoðunar út frá mismunandi einkennum, samfélagsstöðu og eiginleikum fólks.

Þarf að bera vitni fyrir framan meintan káfara: Vottorð listmeðferðarfræðings ekki nóg
Ung kona þarf að bera vitni fyrir framan mann sem er ákærður fyrir að hafa strokið yfir rass hennar utanklæða á veitingastað þar sem hún var við vinnu. Í staðfestum úrskurði héraðsdóms segir að vottorð listmeðferðarfræðings gefi ekki tilefni til að víkja frá meginreglu um að sakaðar maður fái að hlýða á vitnisburð brotaþola.

Ákærður fyrir að nauðga konu, taka það upp og setja myndefnið í póstkassa hennar
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tvö kynferðisbrot gegn konu og fyrir að útbúa myndskeið af báðum nauðgunum og setja minnislykil með upptökunum í póstkassa konunnar.

Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir brot gegn kynferðislegri friðhelgi með því að taka myndir af öðrum manni þar sem hann baðaði sig nakinn í sturtuklefa Ylstrandarinnar í Nauthólsvík.