Keflavíkurflugvöllur

Sló til starfsmanns við innritun og flaug beint í flugbann
Ónefndur farþegi sló til starfsmanns Icelandair á sunnudaginn og var umsvifalaust settur í flugbann um óákveðinn tíma, meðan málið er til rannsóknar.

Föst út í vél í yfir klukkutíma vegna veðurs
Vonskuveður hefur haft áhrif á flug Icelandair í dag og þurftu farþegar á leið frá Evrópu að bíða í rúman klukkutíma út í vél að lokinni lendingu vegna hvassviðris.

Bandaríkjamenn fjölmennasti hópur ferðamanna í október
Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 103 þúsund í nýliðnum októbermánuði samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia.

Isavia sýknað af bótakröfu vegna útboðs á verslunarrými
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í síðasta mánuði Isavia af bótakröfu fyrirtækisins Drífu ehf., sem fer með rekstur Icewear. Drífa krafðist bóta úr hendi Isavia vegna þess að fyrirtækinu var ekki úthlutað verslunarrými á Keflavíkurflugvelli í kjölfar útboðs árið 2014.

Óbreytt á landamærunum til 15. janúar
Sóttvarnaraðgerðir á landamærunum verða óbreyttar til 15. janúar. Heilbrigðisráðherra hefur tekið þá ákvörðun að framlengja reglugerðina um sóttvarnarráðstafanir þar vegna Covid-19 en ástæðan er sögð fjölgun smita innanlands að undanförnu.

Keflavíkurflugvöllur: Búið að grafa upp tæpa 50 þúsund rúmmetra fyrir viðbyggingu
Jarðvinna vegna viðbyggingar á Keflavíkurflugvelli gengur vel, en frá því að fyrsta skóflustungan var tekin í júní hefur verið grafið út fyrir 49.000 rúmmetra holu sem verður á endanum 55.000 rúmmetrar og 7,5 metrar að dýpt.

Opna Bæjarins beztu á Keflavíkurflugvelli: „Fyrsta skrefið í átt að útrás“
Bæjarins beztu pylsur opnuðu í morgun sölustað á Keflavíkurflugvelli og er um að ræða sjöunda staðinn á landinu.

Klemmdist á Keflavíkurflugvelli og fær sextán milljónir
Tryggingarfélagið Sjóvá þarf að greiða karlmanni sem starfaði hjá IGS á Keflavíkurflugvelli 16,3 milljónir, eftir vinnuslys sem varð í hvassviðri á flugvellinum. Maðurinn klemmdist á fæti við að ferma flugvél.

Viðbúnaður um helgina vegna bilunar í hreyfli breskrar herflugvélar
Gult óvissustig var sett í gang á Keflavíkurflugvelli um helgina þegar bresk herflugvél sendi neyðarboð vegna bilunar í hreyfli.

Myndasyrpa: Barnsgrátur og brunasár á flugslysaæfingu í Keflavík
Fyrsta flugslysæfingin var haldin á Íslandi í fimm ár. Þar var öllu tjaldað til, kveikt í ýmsu braki, sem átti að vera úr flugvél og 150 leikurum, sem léku slaða flugfarþega, komið fyrir víða á stóru svæði við Keflavíkurflugvöll.

Endurbótum á Kilo á Keflavíkurflugvelli lokið
Endurbótum á einni af meginakbrautunum í flugbrautakerfi Keflavíkurflugvallar, svokallaðri Kilo, sem hófust í sumar, er nú lokið.

Sprengjusérfræðingar frá fimmtán löndum æfa á Keflavíkurflugvelli
Hátt í þrjú hundruð sérfræðingar munu koma að Northern Challenge, árlegri alþjóðlegri æfingu sprengjusérfræðinga, sem hefst á Keflavíkurflugvelli í dag og stendur fram í næstu viku.

Höfðu áhyggjur af dýrustu herþotum heims í íslenska veðrinu
Stjórnendur í bandaríska flughernum sem fylgdu þremur Northrop B-2 Spirit sprengjuþotum bandaríska hersins hér til lands fyrr á árinu höfðu áhyggjur af því hvernig íslenska veðrið myndi fara með þessar dýrustu herþotur flugsögunnar.

Krafa um bann við notkun „fríhafnar“ náði ekki flugi
Neytendastofa hafnaði kröfu Sante ehf. og ST ehf. um að Fríhöfninni yrði bannað að nota heitin „Duty Free“ og „Fríhöfn“ í tengslum við auglýsingar og sölu á áfengi og tóbaki.

Yfir nífalt fleiri brottfarir í september
Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 108 þúsund í septembermánuði. Horfa þarf nokkur ár aftur í tímann til að sjá álíka fjölda brottfara erlendra farþega í september en um að ræða 969% aukningu milli ára.

Þjóðarbúið gæti orðið af tugmilljarða tekjum vegna sóttvarna á landamærum
Harðari sóttvarnareglur á landamærunum hér en í samkeppnislöndum gætu kostað þjóðarbúið tugi milljarða króna sem annars kæmu frá ferðaþjónustunni og seinkað stækkun flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli að mati Ísavía. Mikilvægt sé að hér gildi svipaðar reglur og annars staðar í samkeppni við önnur ríki um farþega.

Flugið geti skilað margfaldri loðnuvertíð í útflutningstekjum
Framkvæmdastjóri hjá Ísavia segir fyrirsjánleika varðandi sóttvarnaaðgerðir á landamærunum skipta sköpum varðandi tekjur ferðaþjónustunnar á næsta ári. Tekjur af ferðaþjónustunni geti gefið margfalda loðnuvertíð á næsta ári ef flugfélögin vissu af afléttingu aðgerða nú á haustmánuðum.

Farþegar gætu orðið fleiri árið 2024 en fyrir faraldur
Fleiri farþegar gætu farið um Keflavíkurflugvöll árið 2024 en 2019 ef bjartsýnasta spá Isavia gengur eftir. Samkvæmt henni verða þeir tæplega 7,9 milljónir talsins sem er meira en mældist árið fyrir heimsfaraldurinn.

Ekki hægt að hleypa farþegunum út vegna öryggisreglna í flugstöðinni
Ekki var hægt að hleypa farþegum úr flugvél Icelandair sem lent var á Keflavíkurflugvelli í gær vegna öryggiskrafna í flugstöðinni. Boeing 737 Max flugvél Icelandair frá Akureyri var beint til Keflavíkur eftir að ekki var hægt að lenda henni í Reykjavík vegna veðurs.

Flugvél Icelandair snúið við frá Reykjavíkurflugvelli: Farþegar biðu í tæpar tvær klukkustundir
Flugvél Icelandair á leið frá Akureyri til Reykjavíkur gat ekki lent á Reykjavíkurflugvelli sökum sviptivindar í kvöld. Vélinni var beint til Keflavíkur þar sem við tók glundroði og löng bið.

Rekstrarafkoma Isavia neikvæð um 5,1 milljarð á fyrri hluta árs
Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir fjármagnsliði og skatta á fyrri helmingi ársins var neikvæð um 5,1 milljarð króna samanborið við neikvæða rekstrarafkomu upp á 5,3 milljarða króna fyrir sama tímabili á síðasta ári.

Kemur frá Landsvirkjun og tekur við markaðsmálunum hjá Isavia
Jón Cleon hefur verið ráðinn nýr deildarstjóri markaðsmála og upplifunar hjá Isavia.

Rautt óvissustig á Keflavíkurflugvelli í morgun
Rautt óvissustig var á Keflavíkurflugvelli á áttunda tímanum í morgun þegar flugvél United Airlines kom inn til lendingar vegna bilunar í flöpsum.

Tengdir Íslandi þurfa ekki að framvísa neikvæðu Covid-19 prófi
Felld verður niður krafa um að einstaklingar með tengsl við Ísland þurfi að framvísa neikvæðu Covid prófi við komu til landsins. Farþegar í tengiflugi sem ekki fara út fyrir landamærastöð verða einnig undanþegnir framvísun slíks vottorðs. Breytingarnar taka gildi 1. október.

Tekinn með á annað hundruð Oxycontin-töflur
Karlmaður var stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar við komuna til landsins í gærkvöld þar sem í farangri hans fundust á annað hundrað Oxycontin-töflur.

Dregur úr vilja til ferðalaga til Íslands
Dregið hefur úr áhuga á ferðalögum til Íslands eftir að allir farþegar voru skyldaðir í lok júlí til að framvísa neikvæðu PCR eða hraðprófi á brottfararstað, hvort sem þeir eru bólusettir eða ekki. Mest munar um Bandaríkjamenn í fjölgun farþega í sumar sem leið.

Sprengjuþoturnar flognar frá Íslandi
Bandarísku sprengjuþoturnar þrjár, hinar torséðu B-2 Spirit, eru farnar frá Íslandi. Þetta var í fyrsta sinn sem Keflavíkurflugvöllur var nýttur sem bækistöð fyrir B-2 sprengjuþotur en áður hafði aðeins ein flugvél slíkrar gerðar komið til landsins til stuttrar eldsneytismillilendingar.

Keflavíkurflugvöllur skilgreindur sem framvarðarstöð B-2 til sprengjuárása
Tvær af þremur B-2 Spirit sprengjuþotum bandaríska flughersins, sem staðsettar eru á Keflavíkurflugvelli um þessar mundir, æfðu með norska flughernum yfir Norðursjó í vikunni. Samkvæmt frétt norska hersins fóru æfingarnar fram á mánudag og miðvikudag með þátttöku F-35 orustuþotna Norðmanna sem komu frá Evenes-flugvellinum í Norður Noregi.

Teknir með Oxycontin við komuna til landsins
Tollverðir á Keflavíkurflugvelli stóðu þrjá erlenda karlmenn að tilraun til smygls á hátt í þrjú þúsund Oxycontin-töflum við komu á Keflavíkurflugvöll í síðasta mánuði.

Úr 80 þúsund í ríflega 264 þúsund
Ríflega 264 þúsund farþegar flugu með Icelandair í ágúst, samanborið við tæplega 80 þúsund á sama tíma í fyrra. Þar af voru farþegar í millilandaflugi rúmlega 241 þúsund samanborið við um 67 þúsund í ágúst 2020 og 195 þúsund í júlí 2021.