Innviðaráðherra skipaði starfshópinn til að greina atburðarrásina og kanna hvað hefði betur mátt fara þann nítjánda og tuttugasta desember, þegar óveðrið gekk yfir en Reykjanesbrautin var þá lokuð í rúman sólarhring. Lokunin hafði meðal annars gríðarleg áhrif á flugumferð og raskaði ferðum um 24 þúsund farþega.
Niðurstaða hópsins er að ekki hafi verið hægt að koma alfarið í veg fyrir að Reykjanesbrautinni var lokað þegar horft var til veðuraðstæðna og öryggi vegfarenda. Þó að Vegagerðin hafi fullnýtt mannskap og tæki til snjómoksturs hefði betur átt að standa að mokstri á brautinni.
„Með fleiri tiltækum snjómoksturstækjum og snarpara viðbragði við að fjarlægja bíla sem sátu fastir í snjó hefði mátt stytta þann tíma sem brautin var lokuð. Þá hefði jafnframt mátt stytta lokunartímann ef til staðar hefðu verið tæki sem henta betur í að ryðja vegamót á brautinni en þau tæki sem Vegagerðin hafði yfir að ráða í slíka vinnu,“ segir í skýrslu hópsins.
Þá hefði mögulega verið hægt að opna fyrr á mánudeginum ef auglýst hefði verið að leiðir til Grindavíkur og Voga væru ófærar. Öll áhersla hefði þá verið lögð tímabundið á að halda leiðinni til flugstöðvarinnar opinni og forgangsraða mokstri, jafnvel á kostnað annarra verkefna.
Vegagerðin tók þátt í vinnu starfshópsins og hefur atburðurinn samhliða verið rýndur innanhúss, að því er kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Þeirri vinnu verður haldið áfram næstu vikur og verklagi breytt eða skerpt á því eftir þörfum.
Mikið álag hafi verið á starfsemi vaktstöðvarinnar og veðurtengdar áskoranir ekki einungis á Reykjanesbrautinni. Upplýsingagjöf og samhæfing upplýsinga sé lykilviðfangsefni en skerpa þurfi á samráði og veghald þurfi að vera skýrt.
Skýrsla starfshópsins var birt á vef Stjórnarráðsins í dag en hópurinn leggur fram sex tillögur að úrbótum
„Tillögur starfshópsins eru gagnlegar og munu nýtast þegar í stað við að gera nauðsynlegar breytingar á viðbragðsáætlun og skipulagi samskipta,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra en hann hyggst sömuleiðis virkja heimild umferðarlaga sem veitir Vegagerðinni heimild til að færa ökutæki við snjómokstur, sem var eitt helsta vandamálið í desember.
Tillögur starfshópsins:
- Áætlun verði gerð um hvaða tækjabúnaður er nauðsynlegur við aðstæður sem þessar og um samnýtingu tækjabúnaðar ólíkra aðila á svæðinu.
-
- Vaktstöð Vegagerðarinnar fái heimild til nauðsynlegra framkvæmda innan fyrirfram skilgreinda marka þegar aðstæður eru illviðráðanlegar.
-
- Vegagerðin, í samráði við ríkislögreglustjóra, setji saman verkferla um ákvarðanatöku og framkvæmd lokunar og opnunar vega, við aðstæður þegar lögregla ákveður að beita heimildum til lokunar.
-
- Vegagerðin setji saman verkferla um miðlun upplýsinga til almennings, hagaðila og viðbragðsaðila, hvort sem samhæfingarstöð hefur verið virkjuð eða ekki.
-
- Ráðherra veiti Vegagerðinni skýra heimild til að fjarlægja ökutæki sem hindra snjómokstur, trufla umferð eða vinnu við veg.
-
- Gerðar verði tilteknar breytingar á viðbragðsáætlun Vegagerðarinnar vegna Reykjanesbrautar í ljósi reynslunnar í desember. Í skýrslunni eru tiltekin nokkur atriði, s.s. að endurmeta þurfi staðsetningu lokunarpósta, skilgreina eigi skilvirkara samstarf við lögreglu og kanna eigi hvort skilgreina þurfi varaleiðir til að halda opnum þrátt fyrir lokun Reykjanesbrautar.