
Akureyri

Kynjahlutföllum snúið við í flugturninum á Akureyri
Konur hafa tekið yfir flugturninn á Akureyri. Karlar eru þar orðinn minnihlutahópur og telja aðeins þriðjung flugumferðarstjóra fyrir norðan.

Hefur kennt sundleikfimi í sjálfboðavinnu í ellefu ár á Akureyri
Það er mikið fjör og góð stemming í sundlauginni á Akureyri alla morgna virka daga klukkan 10:30 því þá er ókeypis sundleikfimi fyrir bæjarbúa og gesti laugarinnar.

Framleiðandi hreinsiefna tekur yfir lífdísilframleiðslu
Gefn hefur fest kaup á öllu hlutafé í fyrirtækinu Orkey á Akureyri. Félagið var áður að fullu í eigu orkufyrirtækisins Norðurorku og hefur framleitt lífdísil og íblöndunarefni úr úrgangi frá árinu 2011, einkum notaðri steikingarolíu.

Er metanvæðingin óttalegt prump?
Undanfarin misseri hafa borist okkur vægast sagt misvísandi skilaboð af ástandi metan-mála á Íslandi. Sorpa hamast við að framleiða meira metan en áður og áformar aðgerðir til að mæta aukinni eftirspurn. Tölfræði um eldsneytissölu á metani á Akureyri sýnir einnig glöggt að salan hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár, svo eftirspurn eftir metani sem eldsneyti á ökutæki virðist ekki vera vandamál.

Saga mótorhjólsins varðveitt á Akureyri
Eitt glæsilegasta mótorhjólasafn heims er staðsett á Akureyri. Þar er saga mótorhjólsins á Íslandi varðveitt og má þar finna mörg af merkilegustu hjólum landsins.

„Gaman og gefandi að keyra löglegan kappakstur“
Í fyrsta sinn í fimm ár er hægt að fara í GoKart á Íslandi. Eigandi leigunnar segir það afar gefandi að geta boðið fólki upp á löglegan kappakstur.

Sjáðu N1-mótið á Akureyri: „Maður getur ekki alltaf unnið“
N1-mótið á Akureyri fór fram um síðustu helgi. Mótið hefur fyrir löngu skapað sér sess sem eitt stærsta sumarmótið á hverju ári og tóku um 2000 drengir þátt á mótinu í ár. Stefán Árni Pálsson mætti á mótið og fór yfir allt það helsta í nýjasta þætti Sumarmótanna á Stöð 2 Sport.

„Við eigum eftir að státa okkur af einhverri flottustu knattspyrnuaðstöðu á landinu“
KA menn segjast verða komnir með eitt allra flottasta knattspyrnusvæði landsins á næstu árum.

Göngugatan þurfi ekki alltaf að vera göngugata
Lokunartími göngugötunnar á Akureyri hefur aukist síðustu ár. Forseti bæjarstjórnar segir það ekki nauðsynlegt að loka fyrir umferð allan ársins hring enda séu gangandi vegfarendur í fullum rétti allan ársins hring.

Leigan mun tvöfaldast eftir viðgerðir
Geðræktarstöðin Grófin á Akureyri er í erfiðri stöðu í húsnæðismálum. Gera þarf framkvæmdir á húsnæðinu sem verða þó ekki gerðar nema með 110 prósenta hækkun leiguverðs.

Aðsóknin sprakk við komu besta verks aldarinnar
Á Listasafninu á Akureyri er um þessar mundir sýnt eitt besta verk 21. aldar. Verkið er eftir Ragnar Kjartansson og segist safnstjórinn aðsóknina hafa sprungið í kjölfar þess að sýningar á verkinu hófust.

Lyklamaðurinn handtekinn með fjölda bíla á samviskunni
Karlmaður búsettur á Akureyri hefur verið handtekinn og kærður fyrir að hafa skemmt fjölda bíla um helgina. Fjölmargir gestir í höfuðstað Norðurlands um helgina sitja uppi með töluvert tjón.

„Þú þarft ekki að skilja þetta en þú þarft að virða þetta“
Fjölskylda sautján ára trans stráks segir það hafa tekið á þegar sonur þeirra kom út úr skápnum. Fólk þurfi ekki endilega að skilja heldur sé það mikilvægast að virða annað fólk.

Vestmanneyingar velkomnir í Grímsey að redda sér lunda
Grímseyingar segja skýr merki þess að lunda hafi fjölgað í eynni. Svo mikið er þar af lunda að von er á hópum Vestmanneyinga norður til að redda eigin lundaballi.

Hrina skemmdarverka hrjáir gesti á Akureyri
Tilkynnt hefur verið um fjölda skemmdarverka á Akureyri þar sem óprúttnir aðilar hafa rispað bifreiðar að utan. Hafa tólf slík mál komið inn á borð lögreglu en talið er að öll skemmdarverkin hafi átt sér stað í gær á svipuðu svæði nálægt miðbæ Akureyrar.

Akureyringar ósáttir við reykmengun: „Fólk er komið með nóg“
Grár reykur sem blæs út frá skemmtiferðaskipi sem staðsett er í höfn Akureyrar og myndar að sögn íbúa blágráa slikju yfir bæinn hefur vakið talsverða athygli meðal íbúa Akureyrar. Íbúi segir fólk hafa fengið nóg af ástandinu.

Enn við höfn nokkrum mánuðum eftir að hafa strandað
Flutningaskipið Wilson Skaw sem strandaði á Húnaflóa í apríl er enn í höfn við Akureyri. Skipið verður dregið úr landi á næstu dögum en ekki verður gert að fullu við skipið fyrr en það er komið úr landi.

Akureyri og Egilsstaðir vænlegri landnámskostir moskítóflugna
„Moskítófluga“ sem fannst í Laugardal í Reykjavík reyndist ekki vera moskítófluga heldur forarmý. Skordýrafræðingur segir tegundina algenga um allt land. Moskító þurfi menn til að komast til landsins og þar eru Akureyri og Egilsstaðir vænlegri landnámskostir en Keflavík.

Spá samdrætti í komu nýrra íbúða á markaðinn
Vænta má þess að að samdráttur verði í nýjum fullbúnum íbúðum hér á landi á næstu árum, samkvæmt nýrri spá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Framkvæmdir eru hafnar við byggingu á 8.971 íbúð á landsvísu sem er fjölgun milli mælinga.

Vel hægt að fá ferðamenn út í Grímsey að vetrarlagi
Lundinn, fuglalífið og heimskautsbaugurinn eru það sem helst dregur ferðamenn út í Grímsey. Gistihússeigandi segist hafa fulla trú á því að hægt sé laða ferðamenn út í eyna einnig að vetrarlagi.

Nýjar kirkjutröppur á Akureyri tilbúnar í október
Vinsælustu kirkjutröppum landsins hefur verið lokað en það eru tröppurnar við Akureyrarkirkju. Ástæðan er sú að það á að útbúa nýjar tröppur með snjóbræðslu í öllum þrepum og pöllum. Kostnaður við verkið er um tvö hundruð milljónir króna.

Hótaði að ræna sjoppuna þegar hann væri búinn með samlokuna
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í þrjátíu daga fangelsi fyrir hótanir í garð afgreiðslukonu í sjoppu á Akureyri í apríl 2022. Í dómi kemur fram að hann hafi meðal annars hótað að drepa konuna.

Landsbankinn hefur fundið ný heimkynni á Akureyri
Landsbankinn á Akureyri mun flytja sig yfir í Hofsbót 2-4 á Akureyri fyrir árslok 2024, samkvæmt langtímaleigusamningi sem gerður hefur verið við eigendur húsanna.

Skoða perlur Íslands með því að hoppa út úr flugvél
Ferðamenn velja sér mismunandi ferðamáta til að skoða Ísland. Einn sá óvenjulegasti er að sjá landið svífandi í fallhlíf.

Komu tómhent heim af fæðingardeildinni
„Eitt af því sem yfirlæknirinn á vökudeildinni sagði við okkur á sínum tíma var að það væri bara tvennt í stöðunni hjá okkur: annað hvort myndi þetta verða of erfitt fyrir okkur og við myndum hætta saman eða við ættum eftir að koma sterkari saman út úr þessu,“ segir Friðrik Svavarsson en hann og sambýliskona hans Steinunn Erla Davíðsdóttir hafa undanfarið ár gengið í gegnum langt og erfitt sorgarferli.

Heimaþjónusta skert á Akureyri: „Það eru ekki umsækjendur um störfin“
Erfiðlega gengur að fá fólk til starfa hjá Velferðarsviði Akureyrarbæjar. Forstöðumaður segir stöðuna það versta sem hún hafi séð. Skerða þarf þjónustu við íbúa vegna þessa en skerðingin felur meðal annars í sér að heimilisþrif verða ekki lengur í boði.

Grímseyingar þoka smíði kirkjunnar af stað að nýju
Grímseyingar vonast til að góður stuðningur velgjörðarmanna verði til þess að þeir geti haldið áfram smíði nýrrar kirkju í stað þeirrar sem brann en verkið hefur legið niðri vegna fjárskorts. Stefnt er að hjónavígslu í næsta mánuði.

Besti veiðitíminn framundan en súrt að stutt geti verið í stoppið
Strandveiðar í Grímsey eru fyrst núna að hefjast fyrir alvöru, sjö vikum eftir að strandveiðitímabilið hófst. Trillusjómaður segir þorskinn yfirleitt ekki ganga á Grímseyjarmið fyrr en um miðjan júnímánuð.

Malbika nýtt flughlað á Akureyrarflugvelli
Malbikun nýs flughlaðs á Akureyrarflugvelli hófst núna síðdegis og er búist við verkið standi yfir næstu þrjár vikur. Flugvallarstjórinn segir að það muni gjörbreyta aðstöðunni.

Fangageymslur fullar eftir nótt skemmtana á Akureyri
Mikill erill var hjá lögreglunni á Akureyri þar sem margt var um manninn á ýmsum skemmtunum í gærkvöldi og nótt. Þrátt fyrir að fangageymslur hafi verið fullar í morgun komu engin alvarleg mál upp, að sögn aðalvarðstjóra hjá lögreglunni. Maður sem var handtekinn með öxi í gær er enn í haldi.