
Vestmannaeyjar

Lýsa yfir vonbrigðum með ráðamenn og Hafró vegna loðnuveiða
Sveitarstjórnir fimm sveitarfélaga hafa lýst yfir miklum vonbrigðum með að sjávarútvegsráðherra, stjórnvöld og Hafrannsóknarstofnun skuli ekki hafa gefið út rannsóknarkvóta á loðnu nú þegar hrygning stofnsins hefst.

Þjálfari Stjörnunnar sagðist vera að fara mæta Leikfélagi Vestmannaeyja í bikarúrslitunum
Stjarnan er komið í bikarúrslitaleikinn í Coca Cola bikarnum í handbolta eftir sigur á Aftureldingu í undanúrslitunum í gær. Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Stjörnunnar, var ekki lengi að byrja sálfræðistríðið fyrir úrslitaleikinn á morgun.

Pólskur dagur í Vestmannaeyjum í dag
Um tvö hundruð og fimmtíu pólverjar búa í Vestmannaeyjum. Í dag, 22. febrúar 2020 er haldin þar Pólskur dagur með fjölbreyttri dagskrá.

Blátindur sekkur
Í óveðrinu 14. febrúar gerðist það meðal annars að í Vestmannaeyjum flaut hinn sögufrægi vélbátur Blátindur upp, slitnaði frá bryggju og sökk í höfninni.

Myndband sýnir björgun slasaðra skipverja frá upphafi til enda
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti tvo slasaða skipverja í erlent flutningaskip á laugardag sem statt var norður af Reykjanesi.

Hvítu riddararnir í gær: Við elskum mömmur okkar
Stuðningsmannasveit handboltaliðs Eyjamanna bauð aftur upp á mæðramyndir á hliðarlínunni í gær þegar ÍBV rúllaði upp toppliði Hauka. Þær voru hins vegar af allt öðrum toga en síðast.

Mikið tjón víða um land eftir lægðina
Gríðarlegt tjón varð víða þegar ein versta óveðurslægð síðustu ára gekk yfir landið. Maður slasaðist þegar þakplata fauk á hann. Bílar skemmdust, rúður brotnuðu og klæðningar á byggingum fuku. Þá sló rafmagni út þegar rafmagnsstaurar brotnuðu undan veðurhamnum.

Vélbáturinn Blátindur sökk við bryggju í Vestmannaeyjum
Fyrst losnaði báturinn frá bryggju og flaut út á höfnina. Að endingu tókst þó að draga hann aftur að bryggju og sökk hann þar. Göt voru gerð á bátinn til að koma í veg fyrir að hann losnaði frá bryggju. Það virðist þó ekki hafa dugað til.

Fjórtán útköll í Eyjum: Þak losnaði nánast í heilu lagi
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, segir lögregluna í Vestmannaeyjum hafa sinnt minnst fjórtán verkefnum vegna óveðursins í nótt.

Óveðrið gengið inn á Vestmannaeyjar
Það sem af lifir nætur hefur lögreglan í Vestmannaeyjum sinnt fimm óveðursútköllum en mikið hefur bætt í vind eftir miðnætti. Klukkan tvö var meðal vindur í 39 m/sek og 48 m/sek í sterkustu hviðunum.

Mokveiði og þorskur út um allt í byrjun vetrarvertíðar
Það er mokveiði og þorskur út um allt, segir skipstjórinn á litlum línubát sem landaði yfir tuttugu tonnum í Grindavíkurhöfn í morgun eftir sólarhring á sjó.

Flotinn í höfn meðan lætin ganga yfir
Óveðursspáin fyrir næstu daga setur strik í reikninginn hjá skipum Síldarvinnslunnar og Bergs-Hugins.

Lögregla vill að Eyjamenn taki óveðurspána alvarlega
Lögreglan í Vestmannaeyjum bendir að afar slæm veðurspá er fyrir landið og hefur veðurstofan sett á appelsínugula viðvörun fyrir landið allt. Veðrið verður verst á spásvæði Suðurlands og þar eru Vestmannaeyjar undir.

Sportpakkinn: „Viljum stemmningu, læti og gleði en að áhorfendur sýni háttvísi og séu ekki með óþverraskap“
Vankantar voru á framkvæmd leiks ÍBV og FH í Coca Cola-bikar karla í síðustu viku.

Hvítu riddararnir biðjast afsökunar: Mæðramyndirnar voru gott grín
Stuðningsmenn ÍBV hafa beðist afsökunar á framkomu sinni í leiknum gegn FH.

Mæðraskilaboð Eyjamanna og lætin fyrir utan klefa FH eru nú á borði hjá HSÍ
Ferð FH-inga til Vestmannaeyja í síðustu viku var ekki skemmtileg. Þeir töpuðu leiknum, duttu út úr bikarnum og máttu einnig þola mikil leiðindi að hálfu stuðningsmanna Eyjamanna.

Treystu sér ekki til að ala transbarn sitt upp í Eyjum
Bæjarstjóranum þykir leitt að heyra en virðir ákvörðun hjónanna.

Annar loðnuleiðangur Hafrannsóknarstofnunnar: Loðna á „stangli“ en ekkert magn sem heitir
„Það hefur nú lítið breyst. Við erum svona að byrja að þreifa á þessu og enn sem komið er að þá er búið að vera lítið að sjá. Það eru þrjú skip sem eru komin þarna fyrir austan land og eru að skanna bæði utan við landgrunnsbrúnina og uppá landgrunninum og þar er enn sem komið er lítið að sjá. Það er svona loðna á stangli en ekkert magn sem heitir,“ segir Birkir Bárðarson, leiðangursstjóri rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar.

Tapaðar launatekjur vegna loðnubrests í Eyjum milljarður króna
Þungt hljóð í Vestmannaeyingum vegna loðnubrests.

Fallbyssukúla fannst í kjallara í Eyjum
Tveir liðsmenn séraðgerðasveitar Landhelgisgæslunnar og sprengjusveitar Ríkislögreglustjóra fóru til Vestmannaeyja í dag eftir að fallbyssukúla fannst í kjallara Byggðasafnsins þar.

Hugsanleg lausn á vanda sandsöfnunar við og í Landeyjarhöfn
Tillaga mín byggir á þeim forsendum að vandinn stafi tvíþætt af sandi og ösku sem berst með Markarfljóti niður til sjávar þar sem annarsvegar sjávarföll og hins vegar hegðun sjávar bera þessi efni inn í höfnina.

Telur umfjöllun undir stjórn umdeilds ritstjóra „kúnstuga“
Bæjarstjóri vekur athygli á því að fyrirspurnum oddvita Sjálfstæðisflokksins, sem einnig er eiginkona ritstjóra blaðsins, hafi verið gert afar hátt undir höfði en lítið fjallað um aðkomu hennar og meirihlutans að fundinum.

Loðnuleiðangurinn nýtir glugga í dag til að kanna Vestfjarðamið
Loðnuleitarskipin þrjú undir forystu hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar héldu úr höfn á Ísafirði upp úr klukkan sex í morgun. Dagurinn verður notaður í kapphlaupi áður en næsta bræla skellur á.

Loðnutorfur loksins fundnar út af Hornströndum og Húnaflóa
Fyrstu loðnutorfur vetrarins eru fundnar á Íslandsmiðum, norður af Hornströndum og Húnaflóa. "Þetta er nú ekkert gríðarlegt magn sem við sáum í heildina,“ segir leiðangursstjórinn.

Loðnuleiðangurinn á hraðri siglingu í átt til Vestfjarða
Hléið sem loðnuleitarleiðangur Hafrannsóknastofnunar gerði á loðnuleitinni í gær vegna illviðris reyndist mun styttra en búist var við. Skipin þrjú lögðu öll úr höfn frá Akureyri á ný í kringum miðnætti.

Hundrað milljónir á dag í húfi í Vestmannaeyjum
Vestmannaeyjar gætu orðið af 5,8 milljarða króna útflutningstekjum, bregðist loðnuvertíð annað árið í röð. Þetta kemur fram í greiningu hagfræðideildar Landsbankans.

Leitin að loðnutorfunum teiknast upp á rauntíma
Fyrsta loðnan er fundin út af Austfjörðum í þeim umfangsmikla leitarleiðangri sem nú er hafinn. Leitarskipin reyna nú að kortleggja hvort þarna séu stærri loðnugöngur á ferðinni.

Fiskifræðingurinn segir mælingu loðnustofnsins afar mikilvæga
Leitarskipin, sem hefja loðnuleitina, gætu orðið fjögur og eru þau ýmist komin austur á firði eða á leið þangað. Leiðangursstjórinn Birkir Bárðarson segir afar þýðingarmikið að fá góða mælingu á loðnuna.

Daginn búið að lengja um sextíu mínútur í Reykjavík
Þremur vikum frá vetrarsólstöðum gætu landsmenn verið farnir að skynja lengingu birtutímans og kannski einhverjir farnir að láta sig dreyma um vorið, nú þegar aðeins rúmir þrír mánuðir eru í sumardaginn fyrsta.

Lundinn sækir sér prik til að klóra sér
Erpur Snær Hansen hjá Náttúrustofu Suðurlands og félagar hafa komist að því að lundinn virðist fær um að nota prik til að klóra sér.