Grindavík

Segja Landsnet þurfa að axla ábyrgð
Landvernd telur að tveggja stunda rafmagnsleysi á Suðurnesjum í gærkvöldi veki spurningar um getu Landsnets til að sinna hlutverki sínu.

Rafmagnsleysið sýni alvarleika þess að vera háð einni línu
Framkvæmdastjóri hjá Landsnet segir að rafmagnsleysið sem varð á Reykjanesi í gær sýni alvarleika þess að svæðið sé háð einni raforkulínu. Lagning annarrar línu á svæðið hefur strandað á sveitarfélaginu Vogum.

Rafmagnslaust á öllu Reykjanesi
Rafmagnslaust er á öllu Reykjanesi vegna bilunar á Suðurnesjalínu eitt. Útlit er fyrir að rafmagnslaust verði þar til á milli klukkan 18 og 19.

Enga myglu að finna þar sem hælisleitendur eru hýstir í Grindavík
Enga myglu er að finna í Festi í Grindavík, þar sem Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur. Forstjóri stofnunarinnar segir mikla áskorun bíða hennar á árinu vegna fjölda flóttamanna sem stefna hingað til lands. Gríðarlegur skortur sé á húsnæði.

Segir að samráð hefði mátt vera meira en flóttamennirnir verði áfram í Grindavík
Flóttafólk, sem Vinnumálastofnun hefur komið fyrir á hótelinu Festi í Grindavík, verður þar áfram. Bæjarstjórn Grindavíkur gagnrýndi stofnunina fyrir að koma fólkinu þar fyrir í gær og deildi á um hvort stofnunin hafi haft heimild til að koma fólkinu þar fyrir. Forstjóri Vinnumálastofnunar fundaði með Bæjarráði í morgun og segir hann hafa verið farsælan.

Vilja loka húsnæði sem hýsir hælisleitendur
Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur í Grindavík þrátt fyrir mótmæli bæjaryfirvalda. Bæjarráð hefur beint því til skipulags- og byggingarfulltrúa að kanna hvort bærinn geti lokað húsnæðinu.

Hjón fá þrjár milljónir frá Grindavíkurbæ eftir bílastæðadeilur
Grindavíkurbæ hefur verið gert að greiða hjónum í bænum 3,4 milljónir króna vegna þrifa á heimili þeirra og tjóns á bíl, í kjölfar sandfoks frá bílastæði við íþróttamiðstöðina Hópið. Hjónin fóru fram á tæplega 30 milljónir vegna málsins.

Hýsa hælisleitendur í Festi í óþökk bæjaryfirvalda
Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur í Festi í Grindavík í óþökk bæjaryfirvalda en hótelstarfsemi var stöðvuð í húsinu síðastliðið vor vegna myglu. Formaður bæjarráðs Grindavíkur segir engum verða úthýst en furðar sig á vinnubrögðum Vinnumálastofnunar.

Þorleifur: Mér fannst eiginlega galið hvað ég var ósáttur með mikið í hálfleik en við vorum samt að spila vel
Grindavík vann nokkuð öruggan sigur á Fjölni í Subway-deild kvenna í kvöld. Eftir frekar jafnan fyrri hálfleik keyrðu Grindvíkingar hreinlega yfir gestina og munurinn orðinn 30 stig þegar mest var. Þessi leikur var eiginlega bara búinn í þriðja leikhluta.

Öruggt hjá Haukum og Grindavík | Tímaspursmál hvenær ÍR fellur
Haukar og Grindavík unnu góða sigra í Subway deild kvenna í körfubolta í kvöld.

Ævintýraleg helgi að baki hjá Þorbirni: „Þetta var bara endalaust“
Steinar Þór Kristinsson, frá björgunarsveitinni Þorbirni á Grindavík, telur að fjölmargir ferðamenn hafi misst af flugferðum af landi brott um helgina. Fleiri hundruð manns var komið til bjargar. „Þetta var bara endalaust,“ segir Steinar Þór.

„Löng helgi hjá björgunarsveitum á Suðurnesjum“
Björgunarsveitarfólk á Suðurnesjum var kallað út snemma í morgun til að sinna ýmsum verkefnum tengdu óveðrinu sem nú gengur yfir landið.

Hellisheiði og Reykjanesbraut báðar lokaðar
Óveður gengur nú yfir landið og eru gular viðvaranir í gildi víða og appelsínugul viðvörun í gildi á Suðausturlandi.

Pólverjar um þriðjungur útskriftarnema frá Fisktækniskólanum
Tæplega þriðjungur nemenda sem útskrifuðust úr Fisktækniskóla Íslands í vikunni sem leið eru Pólverjar. Rekstrarstjóri fiskvinnslu í Grindavík segir fiskvinnsluna ekki geta verið án erlends vinnuafls. Pólverjarnir eru hæstánægðir með námið sem að hluta var kennt á pólsku.

Garðvegur lokaður: Færð um Ásbrú og Innri-Njarðvík mjög slæm
Færð um Ásbrú og Innri-Njarðvík er mjög slæm. Garðvegur verður lokaður í einhvern tíma vegna snjómoksturs. Á svæðinu er enn mjög þungfært.

Tólf hundruð veðurtepptum ferðalöngum bjargað af Grindavíkurvegi í nótt
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík vann mikið þrekvirki í nótt þegar hún kom rúmlega þúsund manns, sem höfðu setið fastir á Grindavíkurvegi vegna veðurs í hálfan sólarhring, til byggða. Björgunarsveitir biðla til fólks að huga vel að veðurspám en gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir mánudag og þriðjudag.

Um þrjú hundruð bílum komið af Grindavíkurvegi í nótt
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík stóð í ströngu, ásamt Lögreglunni á Suðurnesjum og Vegagerðinni, við að létta á umferð og gera Grindavíkurveg færan. Áætlað er að um þrjú hundruð bílar hafi verið ferjaðir af veginum í bílalestum.

Búið er að opna veginn um Þrengslin og Grindavíkurveg
Víða er enn ófært en Vegagerðin tilkynnti í morgun að búið væri að opna veginn um Þrengslin og Grindavíkurveg. Varað er við mannlausum bifreiðum á hægri akrein Grindavíkurvegar, á tvöfalda kaflanum.

Ferðamenn streyma í Bláa lónið en Grindavíkurvegur lokaður
Lögregla og björgunarsveitarfólk á Suðurnesjum hefur ekki undan við að vísa ferðamönnum frá Grindavíkurvegi sem nú er lokaður vegna ófærðar. Lögregla hvetur fólk til að vera ekki á ferð á Suðurnesjum að ástæðulausu.

Þrjátíu bílar fastir á Grindavíkurvegi
Verið er að kalla út allar björgunarsveitir á Suðurnesjum og ræsa þar aðgerðarstjórn vegna þrjátíu bíla sem fastir eru á Grindavíkurvegi.

Ótrúlegur sigur Vals | Keflavík vann í Grindavík
Valur vann hreint út sagt ótrúlegan sigur á Fjölni í Subway deild kvenna í körfubolta í kvöld. Lokatölur 63-122 í Grafarvogi í kvöld. Þá vann Keflavík góðan sigur á Grindavík.

Grindavík Íslandsmeistari í pílukasti
Grindavík varð um helgina Íslandsmeistari félagsliða í pílukasti. Átta lið voru skráð til leiks.

Leituðu í alla nótt og fara nú yfir gögnin
Leit með neðansjávarfari að skipverjanum á Sighvati GK-57 hélt áfram í alla nótt og var leit hætt nú skömmu fyrir klukkan tíu í morgun. Farið verður yfir gögnin og staðan tekin aftur síðar í dag.

Öryggismyndavélar um borð en engin upptaka af slysinu
Leitin að skipverjanum sem féll frá borði við Garðskagavita á laugardag hefur enn engan árangur borið. Lögreglan á Suðurnesjum segir að öryggismyndavélar hafi verið um borð en myndbandsupptaka sé ekki til af slysinu.

Skipverjinn þriggja barna faðir sem flutti til Íslands ungur
Skipverjinn á Sighvati GK-57 í Grindavík sem leitað hefur verið að frá því á laugardag heitir Ekasit Thasaphong og er fæddur árið 1980. Hann býr í Grindavík ásamt eiginkonu og þremur börnum.

Leitin að skipverjanum ekki enn borið árangur
Leitinni að karlmanni, sem féll frá boði línuskipsins Sighvats GK-57 í Faxaflóa á laugardag var haldið áfram í dag. Hún hefur þó ekki borið árangur og henni hætt í kvöld. Leit hefst aftur í morgunsárið með varðskipi Landhelgisgæslunnar en óákveðið er hvort þyrlan verði kölluð út.

Skýrsla tekin af skipstjóranum í morgun
Lögreglan á Suðurnesjum tók skýrslu af skipstjóra Sighvats GK-57, sem er í eigu Vísis hf. í Grindavík, í morgun. Skipverji féll frá borði Sighvats síðdegis á laugardag í Faxaflóa og stendur leit að honum enn yfir.

Samfélagið í Grindavík í sárum og bíður þess að skipverjinn finnist
Samfélagið í Grindavík er í sárum eftir að sjómaður, búsettur í bænum, féll frá borði línuskipsins Sighvats GK-57 í Faxaflóa. Þetta segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík.

Reykjanesbraut opnuð tímabundið vegna óveðurs
Hlé hefur verið gert á malbikunarframkvæmdum á Reykjanesbraut vegna veðurs.

Reykjanesbraut lokuð í sólarhring
Reykjanesbraut verður lokað í kvöld á kaflanum frá Grindavíkurvegi og í átt að Hafnarfirði vegna malbiksframkvæmda. Veginum verður lokað klukkan 20 í kvöld og er áætlað að opnað verði á ný klukkan 20 annað kvöld.