

Veitingamaður í Grindavík opnaði veitingastað sinn í fyrsta skipti eftir rýmingu bæjarins í dag. Hann fékk um 150 manns í hádegismat.
25 metra djúp hola sem nær niður í grunnvatn kom í ljós í íbúðargötu í Grindavík í dag. Ljóst er að jarðvegur er enn á hreyfingu í bænum. Greint var frá þessu í kvöldfréttum Stöðvar 2 fyrr í kvöld.
Landsnet tilkynnti rétt í þessu að orkuverið í Svartsengi sé aftur tengt inn á flutningskerfið. Svartsengislína 1, línan á milli Svartsengis og Rauðamels hafði verið tekin út fyrr í dag.
Vegna jarðhræringa í nálægð Grindavíkur hefur áður útgefið flug- og drónabann verið framlengt til 15. desember. Fjölmiðlum verða veittar undanþágur með skilyrðum.
Aðventugleði Grindvíkinga verður haldin fimmtudaginn 7. desember á Ásvöllum í Hafnarfirði. Grétar Örvarsson úr Stjórninni hafði frumkvæði að veislunni.
Formaður verkalýðsfélags Grindvíkinga gefur lítið fyrir yfirlýsingu lífeyrissjóðanna um að unnið sé að farsælli lausn fyrir grindvíska lántakendur. Þrjú verkalýðsfélög hafa boðað til mótmæla við húsnæði samtakanna og lífeyrissjóðs Gildis í dag.
Landssamtök lífeyrissjóða segjast ekki hafa verið höfð með í ráðum þegar kynnt var heildstæð lausn frá lánastofnunum til Grindvíkinga. Unnið sé að lausn með aðkomu lífeyrissjóðanna sem sagt er að þurfi að rúmast innan ramma laga.
Varaaflsvélar Landsnets munu sjá Grindavík fyrir rafmagni í dag þar sem orkuverið í Svartsengi verður tekið út vegna framkvæmda við uppsetningu nýs masturs í Svartsengislínu við varnargarðana.
Grindavíkurhöfn hefur dýpkað eftir jarðhræringar undanfarinna vikna. Bryggjurnar hafa sigið um tuttugu til þrjátíu sentímetra. Hafnarstjóri segir höfnina geta verið viðkvæmari fyrir flóðum en segir dýpkunina líka hafa ýmsa kosti í för með sér. Tekið verður á móti fyrsta skipi til löndunar síðan að bærinn var rýmdur á morgun.
Fulltrúar Veðurstofu Íslands fóru til Grindavíkur í dag að meta aðstæður þar. Jarðeðlisfræðingur segir sláandi að sjá hvernig jarðhræringar hafa farið með heimili Grindvíkinga. Þá segir hann of snemmt að ræða það að hleypa íbúum aftur heim.
Að minnsta kosti um tuttugu hús eru talin ónýt í Grindavík eftir jarðskjálftana. Matsmenn eru enn að störfum og því gætu fleiri hús verið metin óíbúðarhæf. Forstjóri Náttúruhamfaratrygginga Íslands segir um mesta eigntjón að ræða síðan í Suðurlandskjálftunum árið 2008.
Framkvæmdir við sprunguna sem varð til við jarðhræringarnar í Grindavík eru hafnar við Austurveg. Tækja- og vélamaður hjá Grindavíkurbæ segir lagnirnar líta mjög vel út miðað við það sem reiknað var með.
Tómas Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri Arctic Saga, og Jóhann Vignir Gunnarsson sem sér um markaðsmál hjá Þorbirni hf. í Grindavík mættu til vinnu í fiskvinnslu í Grindavík í dag. Þeir segja flesta jákvæða en skjálfta í mörgum.
Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir Grindavík líta mun betur út en hann bjóst við. Nú þurfi Grindvíkingar að laga innviði svo að bærinn verði aftur íbúðarhæfur.
Vinna við að reisa varnargarða til varnar virkjuninni að Svartsengi og Bláa lóninu hefur gengið betur en von var á. Sviðsstjóri hjá Verkís segir ástæðuna þá að betur hafi gengið að nýta jarðveg á svæðinu en búist var við í upphafi.
Bjarki Sigmarsson, sölumaður í verslun Vélsmiðju Grindavíkur, segir það góða tilfinningu að vera mættur aftur til vinnu. Hann segist ekki hafa fundið einn einasta skjálfta í bænum í marga daga.
Framkvæmdir eru hafnar við viðgerð á Austurvegi þar sem stóra sprungan myndaðist sem sést hefur á forsíðum helstu miðla heimsins.
Orkuverið í Svartsengi og Svartsengislína eitt verða tekin úr rekstri á fimmtudagsmorgun á meðan Landsnet reisir nýtt mastur við varnargarðinn sem verið er að reisa í kringum Svartsengi. Áætlað er að aðgerðin taki um það bil tólf klukkutíma.
Klukkan tifar, það styttist í mánaðarmót. Þegar þessi orð eru skrifuð eru tæplega fjögur þúsund sálir frá kyrrlátu þorpi á suðvesturhorni lítils lands í norður Atlantshafi tvístraðar um eyjuna, margar á vergangi, húsnæðislausar og óttaslegnar með lítið í farteskinu annað en helstu nauðsynjar, kvíða og brostna framtíðardrauma.
Stefnt er að því að byrja að pakka saltfiski á ný í vinnslu sjávarútvegsfyrirtækisins Þorbjarnar í Grindavík í dag og er starfsfólk mætt á staðinn. Fyrirtækjum í Grindavík hefur nú verið auðveldað að hefja starfsemi aftur eftir að reglur um viðveru í bænum voru rýmkaðar.
Vélsmiðja Grindavíkur hefur fengið leyfi frá almannavörnum til þess að opna verslun sína á ný. Þetta er fyrsta fyrirtækið sem fær að hefja starfsemi sína í bænum á ný síðan hann var rýmdur föstudaginn 10. nóvember síðastliðinn.
Almannavarnir, Rauði krossinn og íslenska fjarheilbrigðisfyrirtækið Kara Connect hefur komið rafrænu stuðningstorgi á laggirnar. Þar geta Grindvíkingar sótt sérhæfðan stuðning og heilbrigðisþjónustu sér að kostnaðarlausu frá og með deginum í dag.
Forsvarsmenn verkalýðsfélaga í Grindavík segja lífeyrissjóði ekki mæta Grindvíkingum eins vel og bankar og íbúðalánasjóður. Þeir mótmæli við stærstu skrifstofur þar til það verði gert.
Stjórnendur Bláa lónsins hafa tilkynnt um framlengingu lokunar þess til 7. desember. Lónið hefur nú verið lokað síðan 9. nóvember vegna jarðhræringanna við Grindavík.
Útgerðarfélagið Þorbjörn hf. í Grindavík sjósetti nýtt skip, Huldu Björnsdóttur GK-11, á Spáni í gær. Um er að ræða fyrstu nýsmíðina í yfir hálfa öld hjá fyrirtækinu. Stefnt er á að skipið komi siglandi inn í Grindavíkurhöfn fyrir sjómannadag.
Rétt fyrir klukkan sex í morgun mældist stakur skjálfti upp á 3,5 stig í Vatnafjöllum í grennd við Heklu.
Frumvarp félagsmálaráðherra um launagreiðslur til Grindvíkinga var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á Alþingi í dag.
Kvikugangurinn við Grindavík gæti verið breiðari en áður var áætlað og storknun hans gæti tekið mun lengri tíma, miðað við nýjustu líkön. Jarðskjálftafræðingur segir nýjustu jarðskjálftahrinu sýna að enn sé kvikuþrýstingur á svæðinu.
Áfram er mesta jarðskjálftavirknin á Reykjanesskaga nærri Sýlingarfelli og Hagafelli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.
Þorleifur Hjalti Alfreðsson, íbúi í Grindavík og rafvirki, uppgötvaði risastóra holu undir garði heima hjá sér í dag þar sem krakkarnir hans leika sér allajafna í fótbolta. Hann kemur kústi ofan í holuna án þess að ná til botns.