Kópavogur

Píratar birta framboðslista í Kópavogi
Píratar hafa birt framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar í Kópavogi í vor. Oddviti er Sigurbjörg Erla Egilsdóttir en hún hefur setið í bæjarstjórn fyrir Pírata í Kópavogi undanfarin fjögur ár.

Ók á móti umferð frá Garðabæ að Kópavogi og olli slysi
Nokkur ölvunarmál komu á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Tilkynnt var um ökumann sem ók á röngum vegarhelmingi og var grunaður um akstur undir áhrifum áfengis, ölvaðan ferðamann sem var til ama á veitingastað, eld í undirgöngum við íbúðarhúsnæði í miðbænum og slys við veitingahús.

Mikil spenna á markaði þrátt fyrir að sveitarfélög eigi þúsundir lóða
Þótt sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafi samþykkt þúsundir lóða til íbúðabygginga er skortur á húsnæði og mikil spenna á markaðnum. Mögulega þurfi að setja kvaðir á byggingatíma við úthlutun lóða.

Geir Ólafs í framboði fyrir Miðflokkinn
Stórsöngvarinn Geir Ólafsson skipar annað sæti á lista Miðflokksins og óháðra í Kópavogi í komandi sveitastjórnarkosningum.

Kosningaréttur námsmanna erlendis skertur
Í ljósi þess hvernig til tókst við síðustu kosningar hefði mátt ætla að mikil metnaður yrði lagður í að næstu kosningar þann 14. maí gengju sem allra best. Nú þegar eru komnar fram alvarlegar brotalamir og fyrirséð að þeim fjölgi.

Tveir handteknir vegna líkamsárásar í Kópavogi
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna ýmissa mála í gærkvöldi og í nótt. Tilkynnt var um líkamsárás í hverfi 201 í Kópavogi þar sem tveir voru handteknir grunaðir um verknaðinn.

Karen yfirgefur Sjálfstæðisflokkinn og leiðir lista Miðflokksins
Karen Elísabet Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi, er nýr oddviti Miðflokksins og óháðra í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Karen hefur verið bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn síðastliðin átta ár og varabæjarfulltrúi í fjögur ár.

Níu ára fréttamaður tók bæjarstjórann í viðtal
Barnamenningarhátíð hófst víða um land í dag þar sem fjölbreyttri menningu barna er fagnað. Hátíðin nær hámarki á laugardag með tónleikum og danspartýi.

Ásdís Kristjánsdóttir leiðir Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi
Ásdís Kristjánsdóttir leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hördís Ýr Johnson fylgir henni í öðru sæti á listanum.

Reykjanesbrautin í stokk – lífsgæðabylting fyrir íbúa Kópavogs
Nú hefur verið kynnt niðurstaða úr hugmyndasamkeppni um nýja sýn fyrir næsta uppbyggingaráfanga Glaðheimasvæðisins. ASK arkitektar báru sigur úr býtum en vinningstillagan gerir ráð fyrir nútímalegu og sjálfbæru hverfi með áherslu á mannvænt og spennandi miðbæjarumhverfi fyrir Kópavog.

Raunhæft að svæðið við Smáralind verði gjörbreytt eftir tíu ár
Bæjarstjórinn í Kópavogi telur raunhæft að hefja framkvæmdir á þessu ári við nýjan miðbæ sem gjörbreyti ásýnd bæjarins. Rúmlega níu þúsund íbúar gætu verið fluttir í hverfið eftir fimmtán ár.

Kópavogur á að gera okkur auðveldara að lifa umhverfisvænum lífsstíl
Umhverfisvitund fólks hefur vaxið hratt undanfarin ár. Við viljum gera betur í flokkun. Við viljum minnka kolefnislosun. Við viljum minnka sóun.

Líkamsárás í Kópavogi eldsnemma í morgun
Töluverður erill var hjá lögreglu í dag, til að mynda var tilkynnt um líkamsárás í Kópavogi klukkan fimm í morgun. Árásarþoli var fluttur á bráðamóttöku.

Breyta Strætóleiðum sem aka nú styttra eða með lengra millibili
Breytingar hafa verið gerðar á kvöldferðum Strætóleiða númer 7, 11, 12, 15, 19, 22, 23, 28, 35 og 36. Breytingarnar spara rúmlega 200 milljónir í rekstri Strætó sem hefur verið mjög þungur á tímum heimsfaraldurs.

Létu ekki duga að flýja lögreglu á bíl
Lögreglumenn hófu stutta eftirför á þriðja tímanum í nótt þegar ökumaður í miðbæ Reykjavíkur hlýddi ekki stöðvunarmerkjum lögreglu.

Kölluð út vegna kaffihúsagests sem neitaði að fara af salerninu við lokun
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu sinnti talsverðum fjölda ólíkra verkefna í gærkvöldi og í nótt. Lögregla var meðal annars kölluð út vegna manns sem var sofandi í leigubíl, hunds sem hafði bitið vegfarenda, manns sem var á gangi með umferðarskilti, samkvæmishávaða víða um borg og manna sem voru að ganga á bílum.

Reykjanesbraut í stokk og nýr miðbær við Smára
Reykjanesbraut verður lögð í stokk, Fífuhvammsvegur og Skógarlind færast upp á yfirborðið og mannvænt og spennandi miðbæjarumhverfi myndast við Smárahverfi í Kópavogi. Þetta mun allt gerast á svæðinu samkvæmt vinningstillögu hugmyndasamkeppni um uppbyggingu Kópavogs sem kynnt var í dag.

Bless skaflar - halló vistvænni samgöngur
Það er lítill söknuður að löngu gránuðum snjósköflunum og flughálum stéttunum. Auðar stéttir og elsku sólin eru ánægjuleg sjón eftir þungan vetur. Börn á leið í skólann, foreldrar með barnavagna, eldri borgarar í heilsubótargöngu og öll hin sem ganga, taka almenningssamgöngur eða hjóla geta nú gert það að vild.

Frían mat í grunnskóla Kópavogs
Viðreisn í Kópvogi vill að börn fái frían mat í grunnskólum. Heitur matur í hádeginu, ávextir og grænmeti er mikilvægt lýðheilsumál og mikilvæg forgangsröðun í þágu velferða. Það kostar hins vegar peninga og hvar ætlum við að fá þá?

Freyja flytur í Hveragerði
Öll starfsemi Sælgætisgerðarinnar Freyju verður flutt úr Kópavogi til Hveragerðis en fyrirtækið hefur fengið úthlutað um sautján þúsund fermetra lóð í bæjarfélaginu. Fimmtíu ný störf verð til í Hveragerði með flutningnum.

Sveitarfélögin eiga að vera jöfnunartæki
Velferðarsjóður barna á Íslandi hélt málþing tileinkað minningu Valgerðar Ólafsdóttur s.l. laugardag. Yfirskriftin var spurningin “Höfum við efni á barnafátækt”. Hið augljósa svar við henni er: Nei.

Biðu í röð á meðan Louis Tomlinson skellti sér í Sky Lagoon
Louis Tomlinson, fyrrverandi meðlimur strákasveitarinnar frægu One Direction, heldur fjölmenna tónleika í Origo-höllinni í kvöld. Aðdáendur söngvarans höfðu sumir staðið í röð fyrir utan höllina í þrjá daga. Tónlistarmaðurinn ákvað að undirbúa sig fyrir tónleikanna með því að skella sér í Sky Lagoon.

Ekki kominn í leitirnar mánuði síðar
Leitin að Sigurði Kort Hafsteinssyni, 65 ára gömlum karlmanni sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir þann 21. febrúar, hefur ekki enn borið árangur. Þetta staðfestir Heimir Ríkarðsson, lögreglufulltrúi í Kópavogi, í samtali við Vísi en hann vildi lítið tjáð sig um stöðu málsins.

Theodóra leiðir lista Viðreisnar í Kópavogi
Theodóra S. Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi, mun leiða lista Viðreisnar í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem fram fara 14. maí næstkomandi. Listinn var samþykktur á félagsfundi í gærkvöldi.

Kópavogur-Kharkiv
Stríðið í Úkraínu hefur fært okkur átakanlegar myndir af þjáningum venjulegs fólks, nágranna okkar, sem hafa orðið að þola ólýsanlegar hörmungar. Dag eftir dag fáum við fréttir af árásum á íbúðahverfi, skóla, heilbrigðisstofnanir, menningarstofnanir og aðra innviði, fæsta hernaðarlegs eðlis.

Ólafur Þór leiðir VG í Kópavogi
Ólafur Þór Gunnarsson, læknir og fyrrverandi Alþingismaður, mun leiða lista Vinstri Grænna í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í vor.

Loka í Kópavogsskóla vegna myglu
Hluta Kópavogsskóla verður lokað frá og með morgundeginum vegna myglu. Nemendur skólans í 6. og 7. bekk verða heima á morgun en aðrir nemendur mæta í skólann. Í kjölfarið verður húsnæði sem áður hýsti bæjarskrifstofur Kópavogsbæjar nýttur undir kennslu.

Alvarleg bilun hjá Vatnsveitu Kópavogs
Alvarleg bilun kom upp í dælustöð vatnsveitu Kópavogs í nótt líklega í tengslum við veðrið sem gekk yfir. Unnið er að viðgerð.

Slökkvilið ítrekað kallað út vegna vatnsleka
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast síðasta sólarhringinn þegar vatnsveður gekk yfir borgina. Mikið var um vatnsleka og samtals voru dælubílar slökkviliðsins kallaðir tólf sinnum út til að sinna slíkum verkefnum.

Míglak inn í Tennishöllina í óveðrinu
Mikið vatn lak inn í Tennishöllina í Kópavogi í óveðrinu sem reið yfir höfuðborgarsvæðið í dag.