Kjaramál

Heimaverkefni lagt fyrir og nýr fundur boðaður fyrir hádegi
Sáttafundur forystu samninganefnda BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga stóð til klukkan átta í gærkvöldi en fólk hafði þá setið á fundi frá klukkan eitt eftir hádegi í gær. Strax hefur verið boðað til annars fundar í karphúsinu klukkan tíu fyrir hádegi.

Hafa BHM, fjármálaráðuneytið og Seðlabankinn öll rangt fyrir sér?
Undanfarið hafa Samtök iðnaðarins (SI) farið mikinn í fjölmiðlum um meinta bága stöðu í byggingariðnaði. Er spjótunum helst beint að lækkun á endurgreiðsluhlutfalli virðisaukaskatts til byggingaraðila í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar.

Kippa sér hvorki upp við dræma mætingu né beiðni leiðsögumanns
Skipuleggjendur mótmæla á Austurvelli í dag vegna ástandsins í þjóðfélaginu ætla að halda ótrauðir áfram þrátt fyrir dræma mætingu. Íslenskur leiðsögumaður á flakki með erlenda ferðamenn bað mótmælendur um að lækka róminn.

„Klárlega verði að sýna samningsvilja á báða bóga“
Samninganefndir BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga funduðu fram á nótt í húsakynnum ríkissáttasemjara og nýr fundur hófst klukkan eitt. Formaður BSRB segir að samningsvilji sé fyrir hendi en að það sé tvennt sem bandalagið geti ekki hvikað frá.

Ákvörðunin skiljanleg en breyti ekki viðfangsefninu
Formaður VR telur að afsögn Aðalsteins Leifssonar, fyrrverandi ríkissáttasemjara, muni ekki hafa áhrif á komandi kjaraviðræður. Enginn þrýstingur hafi verið frá hans armi verkalýðshreyfingarinnar um afsögn.

„Það eru allir foreldrar eins og hauslausar hænur“
Tvær mæður sem eiga börn í Kópavogi segja verkföllin hafa raskað lífi þeirra og barnanna þeirra. Umræða um verkföllin hefur ekki verið nógu mikil að þeirra mati. Þær styðja félagsfólk BSRB í verkföllunum.

Fundi slitið um nótt en verður fram haldið klukkan eitt
Samningafundi forrystufólks BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hjá ríkissáttasemjara lauk laust fyrir klukkan tvö liðna nótt.

Segir ákvörðunina alfarið hans eigin
„Eftir að hafa verið vakinn og sofinn yfir á þessu verkefni langar mig einfaldlega að breyta til,“ segir Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari sem lætur nú af embættinu. Tvö ár eru eftir af skipunartíma Aðalsteins en ákvörðunina segir hann alfarið hans eigin.

Aðalsteinn hættir tveimur árum á undan áætlun
Aðalsteinn Leifsson lætur af embætti ríkissáttasemjara frá og með morgundeginum, 1. júní. Embættið verður auglýst til umsóknar á næstu dögum. Hann segist hafa átt frumkvæðið að því að hætta sjálfur. Aðalsteinn var skipaður ríkissáttasemjari til fimm ára í febrúar árið 2020.

Deiluaðilar funda í Karphúsinu í kvöld
Forystumenn samningsaðila BSRB og Samtaka íslenskra sveitarfélaga koma saman í Karphúsinu í kvöld, að beiðni aðstoðarríkissáttasemjara, sem sér um deiluna.

Ætla að áfrýja launamáli dómara beint til Hæstaréttar
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hyggst óska eftir leyfi til að áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem deilt var um endurgreiðslu launa dómara, beint til Hæstaréttar. Héraðsdómur taldi að ríkið hefði ekki mátt endurskoða laun dómara, lækka þau og krefjast endurgreiðslu á því sem ráðuneytið taldi ofgreidd laun.

Ruddust inn á bæjarskrifstofurnar þegar enginn kom til að ræða við þau
Mikill fjöldi fólks ruddist inn á bæjarskrifstofur Kópavogsbæjar skömmu fyrir hádegi eftir að það hafði komið saman, staðið og mótmælt fyrir utan skrifstofur sveitarfélagsins klukkan 11 til að sýna leikskólastarfsmönnum stuðning.

Efling samdi við ríkið
Samninganefnd Eflingar skrifaði undir kjarasamning við ríkið seint í gærkvöldi. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, greindi frá þessu á samfélagsmiðlum á tólfta tímanum.

Útilokar ekki breytingar á fyrirhuguðum launahækkunum
Það kemur til greina að víkja frá fyrirhuguðum launahækkunum æðstu ráðamanna landsins með einhverjum hætti.

Þingmenn eigi ekki sjálfir að vasast í eigin kjörum
Tekist var á um fyrirhugaðar launahækkanir æðstu embættismanna á Alþingi í dag. Áformin hafa fallið í grýttan jarðveg hjá forystumönnum verkalýðshreyfingarinnar sem vinna nú að gerð nýrra kjarasamninga til langs tíma. Þingmaður VG segist skilja gremjuna og þingmaður Viðreisnar segir sjálfsagt að endurskoða áformin en ekki sé meirihluti fyrir því á þingi.

Segir launahækkun æðstu embættismanna vera raunlaunalækkun
Ráðherrar skilja gremju almennings vegna launahækkana æðstu embættismanna ríkisins en segja þær í samræmi við lög. Forseti Alþýðusambands Íslands segir engin lög yfir það hafin að ekki megi endurskoða þau. Nauðsynlegt sé að skoða ástandið í samfélaginu að hverju sinni.

Kristrún vill að launahækkanir æðstu embættismanna fylgi markaðnum
Formaður Samfylkingarinnar segir eðlilegt að laun æðstu embættismanna hækki ekki meira en laun á almennum markaði, enda væri það markmið laga um laun þeirra að þeir leiddu ekki launahækkanir í landinu. Hún og aðrir viðmælendur í Pallborðinu í dag voru sammála um að þörf væri á víðtæku samstarfi um vinnumarkaðinn en á mjög ólíkum forsendum.

Launahækkunin sé blaut tuska í andlit þjóðarinnar
Flokkir fólksins gagnrýnir laumahækkum æðstu ráðamanna harðlega. Hækkunin er sögð vera sem blaut tuska í andlit þjóðarinnar. Er þess krafist að öllum launahækkunum æðstu ráðamanna sé frestað.

Þorsteinn segir íslenskt samfélag ekki rotið, ömurlegt og spillt
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR er afar svartsýnn á að samningaviðræður verkalýðshreyfingarinnar og vinnuveitenda muni ganga vel í haust.

Aðgerðir hafi áhrif á sumarnámskeið barna
Formaður BSRB segir að skref hafi verið tekið aftur á bak í deilu bandalagsins og Sambands íslenskra sveitarfélaga á óformlegum fundi með ríkissáttasemjara í gær. Í vikunni leggja starfsmenn niður störf í ellefu sveitarfélögum og munu aðgerðir sem hefjast í næstu viku hafa áhrif á sumarnámskeið barna.

Vopnin kvödd
Fyrir tveimur árum tók ég við embætti formanns BHM og talaði fjálglega um markmið næstu 20 mánaða. Það var ekki allt sem náðist en margt. Hafin var vegferð innri endurbóta og stefnumörkunar, en hvernig til tókst læt öðrum eftir að meta.

Geðþóttaákvarðanir valdhafanna
Það er orðin brýn samfélagsleg spurning hvort Seðlabankinn og seðlabankastjóri valdi hlutverki sínu. Þrettánda stýrivaxtahækkunin í röð skall á þjóðinni í síðustu viku og ef rýnt er í spilin þá má skilja að enn frekari stýrivaxtahækkanir séu fram undan.

Laun ráðamanna hækka um allt að 156 þúsund: „Þetta er svo mikil hræsni“
Laun æðstu ráðamanna munu hækka um 6 til 6,3 prósent þann 1. júlí næstkomandi. Laun forsætisráðherra hækka um 156 þúsund krónur. Formaður Starfsgreinasambandsins gagnrýnir harðlega að laun ráðamanna hækki ekki um krónutölu líkt og samið var um á almennum markaði.

Sundlaugar lokaðar á langþráðum sólskinsdegi
Skellt var í lás í mörgum sundlaugum úti á landi í morgun vegna verkfalla starfsmanna BSRB sem starfa í íþróttamiðstöðvum og sundlaugum. Lokað verður fram á þriðjudag en að óbreyttu hefjast ótímabundin verkföll mánudaginn 5. júní.

„Ég get ekki skilið þriggja ára barn eftir eina heima“
Verkföll hófust í sundlaugum og íþróttahúsum víða um land í dag. Formaður BSRB segir að enn sé ekki búið að bjóða til annars fundar með ríkissáttasemjara. Foreldri barns á leikskóla og starfsmaður Kópavogsbæjar furðar sig á því að viðræðurnar séu ennþá í hnút.

Þorsteinn Víglundsson á villigötum
Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri samtaka atvinnurekenda og núverandi forstjóri kennir verkalýðshreyfingunni bæði um verðbólguna sem nú geisar og vaxtahækkanir Seðlabankans, í nýlegri grein í Vísi. Málflutningur hans er í senn hrokafullur og algerlega á skjön við staðreyndir.

Kennarar undirrituðu kjarasamninga
Félag grunnskólakennara og Félag leikskólakennara skrifuðu nú undir kvöld undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Um er að ræða skammtímasamninga til eins árs.

Íhugar að flytja úr landi vegna hækkananna
Formaður VR segir galið að Seðlabankastjóri skuli skella skuldinni á verkalýðshreyfinguna þegar kemur að verðbólgu í landinu. Hann segir endalausar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar vera óskiljanlegar. Öryrki íhugar að flytja úr landi vegna stýrivaxtahækkana.

Birtir launaseðla leikskólaleiðbeinenda
Töluverður munur er á launum leikskólaleiðbeinenda sem vinna í Reykjavík og í Kópavogi. Samkvæmt launaseðlum sem formaður BSRB birtir í dag fær leiðbeinandi í Kópavogi um 45 þúsund krónum minna í heildarlaun fyrir skatt.

Vaxtahækkanir og verðbólga í boði verkalýðshreyfingarinnar
Viðbrögð við mikilli vaxtahækkun Seðlabankans í gær voru æði kunnugleg. Forysta verkalýðshreyfingarinnar sakaði bankann um að rústa íslenskum heimilum og sagði komandi kjarasamninga í algjöru uppnámi. Þar er um endurtekið efni að ræða frá þeim 12 vaxtahækkunum Seðlabanka sem á undan hafa komið.