Kjaramál

Hvetur deiluaðila til sátta enda ótækt að ástandið vari lengi
Viðbúið er að senda þurfi nýbakaðar mæður fyrr heim en áður eftir að sjálfstætt starfandi ljósmæður hættu að sinna heimahjúkrun. Líklegt að rými kvennadeildar Landspítalans fyllist og að grípa verði til forgangsröðunar.

Undirrituðu kjarasamning eftir 17 tíma fund
Samninganefndir flugvirkja og ríkisins undirrituðu nýjan kjarasamning í húsakynnum Ríkissáttasemjara um klukkan 06:30 í morgun.

ASÍ og SA gera samkomulag um breytingar á kjarasamningi
Í samkomulaginu felst breyting á stjórnkerfiskafla kjarasamningsins sem fjallar um fulltrúaráð,ársfundi og stjórnir lífeyrissjóðanna á samningssviði aðila.

Lögreglumenn lýsa yfir stuðningi við ljósmæður
Landssamband lögreglumanna hefur sent frá sér yfirlýsingu varðandi kjaradeilu ljósmæðra.

Aðeins pláss fyrir tuttugu konur á sængurlegudeild Landspítala
Ljósmóðir á Landspítalanum og sjálfstætt starfandi ljósmóðir í heimaþjónustu segir að hjúkrunarfræðingar heimaþjónustu geti ekki gengið í öll störf ljósmæðra.

Landspítalinn segir að aðgerðir ljósmæðra muni skapa „mikinn vanda“
Aðgerðir ljósmæðra sem sinna heimaþjónustu við nýbakaða foreldra og nýbura munu skapa mikinn vanda sem bætist við þá alvarlegu stöðu sem blasir við vegna kjaradeilu ljósmæðra við ríkisvaldið.

Ljósmóðir efast um að spítalinn komi til með að þola álagið
Heilbrigðisráðherra hefur falið Landspítala og öðrum heilbrigðisstofnunum að sinna þjónustu við sængurkonur og börn sem hefur verið í höndum ljósmæðra sem sinna heimaþjónustu.

Buðu kennurum eingreiðslu gegn „friðarskyldu“ fram yfir kosningar
Kennurum voru boðnar 124.000 krónur en í tilboðinu fólst einnig að þeir gripu ekki til aðgerða fram að 30. júní.

Framhaldsskólakennarar undirrita kjarasamning: „Ég tel að þetta sé mjög ásættanlegur samningur“
Kjarasamningur milli ríkis og Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum var undirritaður seint í gærkvöldi.

Neyðaráætlun á Landspítalanum vegna uppsagna ljósmæðra
Tuttugu ljósmæður hafa sagt upp. Landspítalinn vinnur að neyðaráætlun sem á að vera tiltæk ef af uppsögnunum verður.

Kjaradeila ljósmæðra og ríkisins áfram í hnút eftir fund dagsins
Ekkert nýtt kom fram á fundinum, að sögn formanns Ljósmæðrafélagsins, en honum lauk án niðurstöðu.

Ljósmæður ætla ekki að draga úr kröfum sínum á fundinum í dag
Áslaug Valsdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, segist ekki viss um hvort sjái fyrir endann á deilu ljósmæðra og ríkisins, það fari eftir því hvort eitthvað nýtt komi fram í dag.

Kjarabarátta ljósmæðra afleiðing kerfislægs misréttis
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, fór yfir kjarabaráttu ljósmæðra í Sprengisandi í dag.

Fjármálaráðherra bjartsýnn á lausn kjaradeilu ljósmæðra
Fjármálaráðherra er bjartsýnn á að samningar náist við ljósmæður þótt kröfur þeirra um launahækkanir séu langt umfram það sem samið hafi verið um við aðra að undanförnu.

Færðu fjármálaráðherra köku með áskorun um að bæta kjör ljósmæðra
Bjarni tók glaður við kökunni sem verðandi mæður færðu honum og hafði á orði að blái liturinn á kökunni væri fallegur.

Formaður Ljósmæðrafélagsins vísar í ýmsar hækkanir kjararáðs
Áslaug Valsdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, segir að sér finnist það skrýtin harka af hálfu ríkisins að segja kröfur ljósmæðra óaðgengilegar í ljósi hækkana sem aðrir hafa fengið.

Með rúmlega tvær milljónir á mánuði
Stefnir borgar hæstu launin á meðal stærstu sjóðastýringarfyrirtækja landsins og voru laun starfsmanna að meðaltali um 2.083 þúsund á mánuði í fyrra. Launin hækkuðu hins vegar mest á milli ára hjá GAMMA, eða að meðaltali um nærri 330 krónur á mánuði.

Bjarni sagði kröfur ljósmæðra algerlega óaðgengilegar
Sagðist ekki ætla í keppni um hverjum þyki vænst um ljósmæður.

Laun bæjarstjórnar Hafnarfjarðar hækkuðu um 22 milljónir króna
Sú ákvörðun meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í janúar 2017 að láta laun bæjarfulltrúa fylgja umdeildri hækkun kjararáðs olli því að kostnaður vegna launa og launatengdra gjalda bæjarstjórnarinnar hækkaði um rúmar 22 milljónir milli ára.

Lýsa undrun og vanþóknun á ummælum heilbrigðisráðherra
Félag ljósmæðra og Bandalag Háskólamanna segja ummæli Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, í óundirbúnum fyrirspurnartíma í gær benda til þess að hún telji kjör ljósmæðra þeim sjálfum að kenna vegna þess hvaða stéttarfélagi ljósmæður tilheyra.

Alvarlegt ástand skapast á Landspítalanum hætti ljósmæður í sumar
Nítján af þeim þrjátíu ljósmæðrum sem þegar hafa sagt upp störfum, starfa á Landspítalanum

Segir að meta eigi ljósmæður að verðleikum
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að meta eigi vinnuframlag ljósmæðra til launa og til samfélagslegrar virðingar.

Sanngjarnar launakröfur ljósmæðra eða ógn við stöðugleika á vinnumarkaði?
Það er stál í stál í kjaradeilu ljósmæðra og ríkisins og næsti samningafundur er ekki fyrr en rúma viku. Óljóst er hverjar kröfur ljósmæðra nákvæmlega eru en þó er ljóst að þær vilja meiri hækkun en önnur aðildarfélög BHM sömdu um við ríkið fyrr á árinu.

Neyðarástand gæti skapast á fæðingardeildum í sumar
Nokkrar af þeim ljósmæðrum sem hafa sagt upp störfum sínum hafa þegar ráðið sig til annarra starfa að sögn formanns kjaranefndar ljósmæðra. Ef ekki takist að semja í kjaradeilunni á næstu mánuðum gæti skapast neyðarástand á fæðingardeildum í sumar.

Fundi í kjaradeilu ljósmæðra og ríkisins lokið án niðurstöðu
Fundi samninganefndar Ljósmæðrafélags Íslands og samninganefndar ríkisins sem hófst klukkan 13 í dag var slitið á þriðja tímanum.

Þungt hljóð í ljósmæðrum fyrir fund hjá sáttasemjara
Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður samninganefndar Ljósmæðrafélags Íslands, kveðst ekkert alltof bjartsýn fyrir fund með samninganefnd ríkisins í dag.

Ljósmæður að bugast
Léleg kjör og mikið álag veldur flótta út stéttinni. Samstöðufundur boðaður á morgun

Þreyta er komin í framhaldsskólakennara
Þreyta er komin í framhaldsskólakennara vegna stöðunnar í kjaraviðræðum þeirra við ríkið. Formaður Félags framhaldsskólakennara segir það ekki í boði að stéttin sé samningslaus svo mánuðum skiptir án þess að gripið sé til aðgerða.

„Ég hef ekki efni á að starfa sem ljósmóðir“
Ella Björg Rögnvaldsdóttir sagði upp starfi sínu sem ljósmóðir og segir viðhorfið í kjaradeilunni vera vonbrigði.

Engin ofurlaun í Bankasýslunni
Laun forstjóra Bankasýslunnar eru töluvert lægri en ritað var um á vefsíðu Hringbrautar á dögunum.