Kjaramál

Félagsmenn Eflingar samþykktu verkföll með miklum meirihluta
Talningu í atkvæðagreiðslu um verkföll hjá tilgreindum hópum félagsmanna í Eflingu lauk um hádegi í dag.

Segir verkföllin leiða til „hamfara í ferðaþjónustunni“
Viðar Þorsteinsson og Jóhannes Þór Skúlason ræddu komandi verkfallsaðgerðir í Sprengisandi í morgun.

Baráttuhugur í kröfugöngu
Hótelþernur í Eflingu lögðu niður störf klukkan tíu í gærmorgun og stóð verkfallið til miðnættis.

Fyrsta degi verkfallsaðgerða lokið
Verkfalli hótelþerna sem eru félagsmenn í Eflingu lauk nú á miðnætti. Þar með er fyrsta degi verkfallsaðgerða félagsins lokið.

„Algjörlega stórkostlegur dagur“
Það verður ekki annað sagt en að Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sé í skýjunum með það hvernig verkfallsaðgerðir félagsins tókust til í dag.

Segir starfsnema ekki mega ganga í störf þeirra sem eru í verkfalli
Margar spurningar hafa vaknað í kringum verkfallið og þá helst hverjir mega ganga í störf þeirra sem eru í verkfalli. Skiptar skoðanir eru meðal Samtaka atvinnulífsins og Verkalýðshreyfingarinnar

Segir hótelin ofurseld VR og Eflingu
Verkfallið í dag og fyrirhugaðar aðgerðir á næstu vikum og mánuðum eru þegar farnar að hafa verulega alvarleg áhrif að sögn Kristófers Oliverssonar, framkvæmdastjóra og eiganda Center Hotels og formanns Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu.

Samstaða og einhugur í hópi verkfallsfólks
Mikill hugur var í þernum um tuttugu hótela á höfuðborgarsvæðinu og víðar þegar verkfall um sjöhundruð félagsmanna Eflingar skall á í morgun.

Viðar segir að eitthvað hafi verið um verkfallsbrot
Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, segir að eitthvað hafi verið um verkfallsbrot í dag en félagsmenn Eflingar sem starfa við þrif á hótelum lögðu niður störf klukkan tíu í morgun og stendur verkfallið til miðnættis.

Hræsni Samfylkingarinnar
Samfylkingin hefur gagnrýnt skattalækkunaráform ríkisstjórnarinnar fyrir að lækkunin skili sér ekki nægilega til lægri tekjuhópa, vitandi að staðgreiðsla hinna lægri launuðu rennur nær öll til sveitarfélaganna og lítið sem ekkert til ríkisins.

Efast um að nokkur maður myndi taka eftir verkfalli hótelforstjóra
Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, efast um að nokkur maður tæki eftir því ef hótelforstjóri færi í verkfall.

SGS ákveður að halda áfram kjaraviðræðum þó staðan sé viðkvæm
Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands hefur samþykkt að halda áfram viðræðum við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning en viðræðum verður haldið áfram eftir helgi.

Eigi skilið virðingu og gott starfsumhverfi sama hversu stutt verkafólkið staldrar við
Anna Marta Marjankowska, stjórnarmaður í Eflingu, segir að það skipti ekki máli hversu stutt verkafólk staldri við á Íslandi því það eigi alltaf skilið virðingu og gott starfsumhverfi.

Trúnaðarkona hótelþerna: „Við værum ekki hér í dag ef við þjáðumst ekki“
Zsófia hefur unnið í fullu starfi sem ræstitæknir í tæp tvö ár en hún var í hálfu starfi þar á undan. Hún er trúnaðarmaður starfsfólks í þrifum á Hótel Borg.

„Fólkið sem skúrar gólfið getur líka dansað á gólfinu og stappað á því“
Elísabet Jökulsdóttir, skáldkona, segir að með því að tala opinskátt um fátækt komist upp um hina raunverulegu glæpamenn í íslensku samfélagi.

Erlend ferðaþjónustufyrirtæki segja ekki svigrúm til hækkana í dýrasta landi í heimi
Erlendir ferðakaupendur hafa miklar áhyggjur af verkfallsaðgerðum í ferðaþjónustunni og telja ekkert svigrúm til launahækkana því landið sé orðið það dýrasta land í heimi. Þetta er mat formanns Samtaka ferðaþjónustunnar sem er stödd á ITB í Berlín stærstu ferðasýning í heimi. Orðspor landsins bíði hnekki með þeim aðgerðum sem séu í gangi og hafa verið boðaðar.

Þerna óttast höfrungahlaup og segir húsnæðiskostnaðinn aðalatriðið
Peter, þerna á City Park hotel, segist óttast höfrungahlaup í launahækkunum í kjölfar verkfallsaðgerða Eflingar.

Flugu níu þúsund kílómetra til að sýna Eflingu samstöðu
Hifumi Okunuki, forseti japanska verkalýðsfélagsins Tozen, ferðaðist frá Tókýó til að sýna þeim sem fara í verkfall á Íslandi samstöðu. Hún segir innflytjendur í Japan glíma við sambærileg vandamál og á Íslandi.

Bauð gestum kvöldmat gegn því að það tékkaði sig fyrr út
Árni Valur Sólonarson, hótelstjóri og eigandi á City Park Hotel, segir allt hafa gengið vel fyrir sig hjá hótelinu í morgun áður en starfsfólk lagði niður störf.

Þernurnar mættu eldsnemma til að hlaupa undir bagga með hótelstjóranum
Ingibjörg Ólafsdóttir hótelstjóri á Hótel sögu kann starfsfólki sínu bestu þakkir fyrir að hafa mætt eldsnemma í morgun og hjálpað til við að þrífa herbergi á hótelinu.

Hótelþernur segja samskipti við yfirmenn streituvaldandi
Vinnueftirlitið hóf vinnuverndarátak á hótelum í lok árs 2017 en skýrsla með helstu niðurstöðum átaksins var birt á vef eftirlitsins í gær.

"Er mjög slæmt að Ísland sé dýrasti áfangastaður í heimi?“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar gefur lítið fyrir fullyrðingar formanns Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu þess efnis að laun Eflingarfólks hafi hækkað um 75 prósent í evrum talið síðustu fimm ár.

Verkfallsvaktin: Hótelstarfsfólk leggur niður störf
Verkfall um sjö hundruð félagsmanna Eflingar á hótelum og gistihúsum skellur á klukkan tíu og stendur til miðnættis í kvöld. Félagsdómur dæmdi aðgerðirnar löglegar í gær.

Mánaðarlaun framkvæmdastjórans hækkuð um 200 þúsund
Í svari NLSH er útskýrt að laun Gunnars Svavarssonar framkvæmdastjóra hafi hækkað í ársbyrjun í samræmi við breytingar á launavísitölu en engar upphæðir nefndar.

Verkföll heilmikið áfall fyrir hótelin
Verkfall hótelþerna í Eflingu mun valda því að þjónusta hótela skerðist. Fólk í hótelgeiranum segir aðgerðirnar þegar hafa valdið tjóni og óttast frekari verkföll. Formaður Eflingar segir þá sem styðja raunverulega kvenréttindabaráttu hljóti að fagna.

Efling gagnrýnir hótelrekendur sem ætla sér að stunda verkfallsbrot
Stéttarfélagið Efling hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir hótelrekendur sem hafa í hyggju að stunda verkfallsbrot eru harðlega gagnrýndir. Verkföllin hefjast á meðal hótelþerna á morgun, 8. mars, sem einnig er alþjóðlegur baráttudagur kvenna.

„Ég er hér, ég er glöð, get used to it“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar stéttarfélags, telur ekki við hæfi að hún sé gagnrýnd fyrir að vera glöð yfir því að þernur á hótelum muni leggja niður störf á morgun.

Formaður Eflingar segir verkfallsbrot ekki verða liðin á morgun
Verkfall um sjö hundruð félagsmanna Eflingar á hótelum og gistihúsum skellur á klukkan tíu í fyrramálið og stendur til miðnættis annað kvöld, eftir að félagsdómur dæmdi aðgerðirnar löglegar í dag.

Hótelstjórnendur búa sig undir morgundaginn: „Áhyggjuefni þegar fólk er farið að leika sér svona að fjöregginu“
Hótelstjórnendur eru nú í óða önn að undirbúa sig fyrir verkfall hótelstarfsfólks sem hefst klukkan 10 í fyrramálið og stendur til miðnættis. Félagsdómur dæmdi í dag Eflingu í hag og úrskurðaði að verkfallsaðgerðirnar teldust lögmætar og því ljóst að af verkfallinu verður.

Æðstu yfirmenn mega ganga í störf þeirra sem eru í verkfalli
Æðstu yfirmenn mega ganga í störf þeirra sem eru í verkfalli en á morgun klukkan 10 hefst verkfall þeirra félagsmanna Eflingar sem starfa við ræstingar á hótelum og gistiheimilum á höfuðborgarsvæðinu, í Grímsnes- og Grafningshreppi, í Hveragerði og Ölfusi.