Kjaramál

Fréttamynd

Fundi frestað til morguns

Fundi hjá Ríkissáttasemjara í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hefur verið frestað til klukkan tíu í fyrramálið. Deilan virðist í nokkrum hnút og viðræður þokast lítið áfram að sögn sáttasemjara.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vilja verja pláss ís­lenskra sjó­manna

Hásetar og bátsmenn í Sjómannafélagi Íslands hófu á mánudag ótímabundið verkfall á þremur skipum Eimskips sem stendur enn. Eimskip segir það miður að ekki hafi náðst samningar og ekki liggi fyrir umfang tjóns af aðgerðum. Unnið hafi verið að því að lágmarka áhrif verkfallsins á viðskiptavini.

Innlent
Fréttamynd

Þögull sem gröfin

Ríkissáttasemjari er þögull sem gröfinn um framhaldið í dag þegar fulltrúar flugmanna og Icelandair funda vegna kjarasamningsviðræðna. Hann vill ekki veita fréttastofu viðtal vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Fram­kvæmda­stjóri Ís­lands­sjóða segir flug­menn taka Icelandair „í gíslingu“

Framkvæmdastjóri Íslandssjóða segir flugmenn Icelandair hafa tekið félagið í „gíslingu“ og að það stefni að óbreyttu „aftur í gjaldþrot“ eftir tugmilljarða tap á undanförnum árum. Hann segir að engir fjárfestar muni leggja fyrirtæki til fjármuni sem er ósamkeppnishæft út af „legacy“ samningum við flugstéttir sem séu að eyðileggjar rekstur félagsins.

Innherji
Fréttamynd

Icelandair og flug­menn komnir í fjölmiðla­bann

Boðað hefur verið til fundar í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hjá ríkissáttasemjara klukkan tíu á morgun. Ríkissáttasemjari segir enn langt í land og hefur beint því til samningsaðila að þeir tjái sig ekki um efni viðræðnanna við fjölmiðla.

Innlent
Fréttamynd

Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga

„Stjórnin ber fullt traust til Boga og stjórnenda,“ segir Guðmundur Hafsteinsson, formaður stjórnar Icelandair, þegar hann er spurður út í frétt Viðskiptablaðsins þar sem haft er eftir heimildarmönnum að stjórn Icelandair standi þétt að baki Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vilja að frítekjumörk ör­orku­líf­eyris verði endur­skoðuð

Viðskiptaráð telur að bæta ætti hvata innan örorkulífeyriskerfisns fyrir endurmat og endurhæfingu. Viðskiptaráð telur að endurskoða ætti frítekjumörk og samspil örorkutengdra bóta svo skýrari hvati sé til þátttöku á vinnumarkaði. Fólk eigi ekki að vera betur fjárhagslega sett á bótum samanborið við að vera á vinnumarkaði. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hafni hundruðum þúsunda fyrir frí­daga í fyrsta sinn frá 2014

Icelandair hafnar því að aflýsingar félagsins megi rekja til vanmannaðrar eða ófullnægjandi álagsprófaðrar flugáætlunar. Félagið segir vandann stafa af samstilltum aðgerðum flugmanna sem hafi skyndilega hætt að selja frídaga. Félagið hafi keypt 187 frídaga í maí í fyrra, en nú hafni flugmenn hundruðum þúsunda fyrir frídaga sem hafi ekki gerst síðan 2014, þegar flugmenn voru í kjaradeilum við félagið. 

Innlent
Fréttamynd

Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi

Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir aflýsingar Icelandair á áætlunarferðum sýna að flugáætlun félagsins standist ekki álagspróf með tilliti til mönnunar. Það sé á ábyrgð Icelandair að tryggja að áætlunin sé mönnuð með sjálfbærum hætti.

Innlent
Fréttamynd

Reynir á þolmörk flug­manna og svig­rúm Icelandair

Kjaradeila Icelandair og flugmanna snýst nú um það hversu langt flugmenn eigi að ganga til að liðka fyrir rekstri félagsins. Þeir gáfu verulega eftir í endurreisn Icelandair árið 2020, en félagið sækist nú eftir auknu svigrúmi til að bregðast við taprekstri, harðnandi samkeppni og breyttu flugrekstrarumhverfi. Fundur deiluaðila hjá ríkissáttasemjara í dag snerist meðal annars um flugtíma, hvíld, vaktir og frí; veigamikil atriði í deilunni sem ráða miklu um bæði vinnuskilyrði flugmanna og framleiðni Icelandair.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ís­land sé orðið dýrasta land í heimi

„Ísland er orðið dýrasta land heims í dag. Það er orðið nær tvöfalt dýrara en Evrópa að meðaltali og hefur aldrei verið eins dýrt og akkúrat núna. Við erum orðin miklu dýrari heldur en dýrustu lönd heims sem við berum okkur iðulega saman við.“

Innlent
Fréttamynd

Launa­stefna Seðla­bankans: Hverjir sitja eftir?

Stöðugleiki má ekki byggja á því að menntun borgi sig sífellt verr. Í nýrri rammagrein Seðlabanka Íslands er því haldið fram að almennar umsamdar launahækkanir ættu til lengri tíma að vera um 2% á ári til að samrýmast verðbólgumarkmiði bankans. Afgangurinn af „svigrúminu“ eigi að fara í launaskrið og sértækar hækkanir lægstu launa.

Skoðun
Fréttamynd

„Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“

Seðlabankastjóri segir verðbólgu allt of mikla og að peningastefnunefnd hafi ákveði að hækka vexti í 7,75 prósent til þess að koma í veg fyrir að hún aukist enn meira. Framhaldið muni ráðast af því hvað gerist í haust, þegar forsenduákvæði kjarasamninga mun virkjast, miðað við verðbólguspá Seðlabankans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð

Ekki tókst í tæka tíð að manna flug Icelandair til Rómar í fyrramálið og hefur því verið frestað um hið minnsta einn og hálfan tíma. Icelandair hefur í síðustu vikum átt í vandræðum við að manna flugvélar.

Innlent
Fréttamynd

Sjó­menn hjá Eim­skip boða verk­föll

Hásetar og bátsmenn á skipum Eimskips hafa boðað ótímabundið verkfall á mánudaginn í næstu viku, 25. maí, náist samningar ekki milli skipafélagsins og Sjómannafélag Íslands. Hafnarstarfsmenn munu svo að óbreyttu leggja niður störf degi síðar. Aðgerðirnar geta haft veruleg áhrif á afköst í Sundahöfn og siglingaráætlun Dettifoss, Brúarfoss og Selfoss.

Innlent
Fréttamynd

Varar við „al­var­legri stöðu“ sem geti haft ófyrir­sjáan­legar af­leiðingar fyrir fé­lagið

Forstjóri Icelandair fer hörðum orðum um „ólögmætar […] samstilltar aðgerðir“ flugmanna félagsins síðustu vikur, sem hafa orðið þess valdandi að aflýsa hefur þurft fjölda flugferða, og segir alvarlega stöðu vera að teiknast upp sem geti haft „ófyrirsjáanlegar afleiðingar“ með tjóni sem hluthafar hafi engan áhuga á að taka á sig. Þá fullyrðir hann að þrátt fyrir bætta nýtingu undanfarin ár þá sé flugmannakostnaður Icelandair orðinn ósamkeppnishæfur.

Innherji
Fréttamynd

Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós

Aflýst flugferð Icelandair til Seattle í síðustu viku hafði mest áhrif á eldra fólk og farþega sem treystu á beint flug vestur um haf. Þetta segir Magnús Halldórsson, ráðgjafi hjá Business Iceland, sem dáist að þremur pólskum konum á þjónustuborði Icelandair sem fóru á kostum við að hjálpa strandaglópum.

Neytendur
Fréttamynd

Icelandair enn og aftur í vand­ræðum

Icelandair aflýsti í kvöld fraktflugi frá Keflavíkurflugvelli til Liege í Belgíu vegna skorts á flugmönnum. Boeing 767 fraktþotan átti að fara í loftið klukkan 20:20 í kvöld. Þetta er í þriðja sinn á rúmri viku sem ferð flugfélagsins er aflýst vegna áhafnarskorts og þá hefur öðru áætlunarflugi verið seinkað af sömu ástæðu.

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hluti launa­fólks með reglu­leg laun undir meðal­tali

Regluleg laun voru að meðaltali 816 þúsund krónur á mánuði árið 2025 samkvæmt greiningu Hagstofunnar. Sé eingöngu horft til launafólks í fullu starfi voru regluleg laun að meðaltali 913 þúsund krónur og miðgildið 826 þúsund krónur. Um 64 prósent fullvinnandi launafólks er með regluleg laun undir meðaltali.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þarf Icelandair að skipta um nafn?

Undanfarnar vikur hafa birst fréttir af áhuga stjórnenda Icelandair á kaupum á 49% hlut í félaginu Fly Play Europe, maltnesku félagi með flugrekstrarleyfi. Ekki er um neinar getgátur að ræða. Icelandair hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis til kauphallar og undirritað viljayfirlýsingu (LOI) um verkefnið. Jafnframt hefur forstjóri félagsins nú kallað til fundar með flugmönnum og flugstjórum, reyndar í miðri kjaradeilu, til þess meðal annars að ræða þessi áform.

Skoðun
Fréttamynd

Segir Icelandair ætla að færa störf frá Ís­landi

Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna gagnrýnir fyrirhuguð áform Icelandair um að kaupa nær helmingshlut í maltneska félaginu Fly Play Europe. Hann segir áform flugfélagsins vera að færa hluta starfsemi flugfélagsins út fyrir íslenska kjarasamninga.

Innlent
Fréttamynd

Spá 4,9 prósenta verð­bólgu í maí

Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs muni lækka um 0,13 prósent í maí, á milli mánaða. Gangi það eftir muni verðbólga lækka úr 5,2 prósentum í 4,9. Í nýjustu Hagsjá hagfræðideildarinnar segir að mest vegi lækkun eldsneytisverðs vegna lækkunar á virðisaukaskatti og lækkunar flugfargjalda.

Viðskipti innlent