
Belarús

Enn bæta Rússar í við landamæri Úkraínu
Gervihnattamyndir sýna að Rússar halda enn áfram að byggja upp herstyrk í grennd við landamæri Úkraínu. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að innrás Rússa gæti verið yfirvofandi á næstum dögum og vikum.

Rússar og Hvítrússar hefja tíu daga sameiginlega heræfingu
Sameiginleg æfing herja Rússlands og Hvíta-Rússlands hófst í Hvíta-Rússlandi í morgun og er áætlað að hún standi í tíu daga. Æfingin fer fram á sama tíma og áhöld eru um hvort að rússneski herinn hyggi á innrás inn í Úkraínu.

Í skyndiferð til Úkraínu til að sýna stuðning
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, mun fara til Úkraínu á morgun. Þar mun hann hitta Volodímír Selenskí, forseta Úkraínu, og ræða við hann um spennuna á landamærum Úkraínu annars vegar og Rússlands og Hvíta-Rússlands hins vegar.

Rússneskar hersveitir komnar inn í Hvíta-Rússland
Spennan í Austur-Evrópu fer nú vaxandi dag frá degi en rússneskar hersveitir eru nú komnar inn í Hvíta-Rússland þar sem til stendur, að sögn Rússa, að hafa heræfingu með Hvít-Rússum við landamæri Úkraínu.

Segja hvítrússnesk stjórnvöld hafa eyðilagt Ólympíudrauminn fyrir þeim
Tvær hvítrússneskar skíðagöngukonur segja að þeim hafi verið meinað að keppa á Vetrarólympíuleikunum í Peking eftir að þær gagnrýndu stjórnvöld í heimalandinu.

Leiðtogi stjórnarandstöðunnar dæmdur í átján ára fangelsi
Dómstóll í Hvíta-Rússlandi dæmdi í dag leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu, Sergei Tikhanovsky, í átján ára fangelsi fyrir að hafa skipulagt óeirðir og mótmæli gegn forsetanum Alexandr Lúkasjenka.

Úkraínumenn og Rússar halda heræfingar á landamærum
Spennan í Austur-Evrópu magnast enn en bæði Rússar og Úkraínumenn hafa verið að halda heræfingar á landamærum sínum. Staðan á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlans fer þá versnandi.

„Auðvitað er þetta svikamylla“
Sérfræðingur í málefnum Austur-Evrópu segir Hvít-Rússa beita „nýju vopni“ í átökum á landamærunum. Dr. Hilmar Þór Hilmarsson var í viðtali á Sprengisandi í morgun og segir ástandið slæmt. Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands, hefur verið sakaður um að nota flótta- og farandfólk sem „peð“ í deilum við Evrópusambandið.

Saka Lúkasjenka um að flytja fólk aftur að landamærunum
Yfirvöld í Póllandi segja Hvít-Rússa flytja farand- og flóttafólk í trukkum aftur að landamærum ríkjanna. Verið sé að reyna að þvinga fólkið til að gera tilraun til að fara yfir landamærin. Það gerðist nokkrum klukkustundum eftir að Hvít-Rússar rýmdu búðir fólks nærri landamærunum í gær og virtust flytja fólkið á brott.

Evrópusambandið sendir flóttamönnum við landamæri Hvíta-Rússlands nauðsynjavörur
Evrópusambandið ætlar að senda matvörur, fatnað og aðrar nauðsynjavörur til farenda, sem eru fastir á landamærum Hvíta-Rússlands. Sambandið boðaði þessar aðgerðir eftir að hafa verið harðlega gagnrýnt fyrir að gera of lítið fyrir fólkið sem hefur verið fast þarna í nístingskulda.

Leggja gaddavír á landamærin til að æfa viðbrögð við flóttamannastraumi
Eistnesk stjórnvöld kölluðu hátt á annað þúsund varaliðshermenn út á fyrirvaralausa æfingu þar sem þeir eru látnir leggja gaddavír yfir tugi kílómetra af landamærum landsins að Rússlandi. Æfingin tengist flóttamannavanda sem Hvítrússar eru sakaðir um að valda.

Beittu háþrýstidælum á farandfólk á landamærunum
Pólskar öryggissveitir beittu háþrýstidælum á farandfólk sem henti steinum að þeim við landamæri Póllands og Hvíta-Rússlands í dag. Lík ungs Sýrlendings var grafið í Póllandi í gærkvöldi.

Pútín svarar hótunum Lúkasjenka
Yfirvöld í Hvíta-Rússlandi hótuðu að skrúfa fyrir gasleiðslur sem liggja til ríkja Evrópusambandsins í vikunni. Vladimir Pútín, forseti Rússlands, tekur hótununum Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands, ekki af léttúð.

Sýrlendingur fannst látinn á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlands
Lík ungs sýrlensks karlmanns fannst í dag í skóglendi á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlands. Ófremdarástand ríkir á landamærunum þar sem gríðarlegur fjöldi flóttamanna hefur verið sendur þangað af hvít-rússneskum stjórnvöldum.

Hvít-Rússar hóta að skrúfa fyrir gasið
Yfirvöld í Hvíta-Rússlandi hafa hótað að skrúfa fyrir gasleiðslur sem liggja til ríkja Evrópusambandsins muni það beita ríkinu þvingunum vegna deilu um farendur á landamærum Hvíta-Rússlands og Póllands.

UNICEF fordæmir ástandið á landamærum Hvíta-Rússlands og Póllands
Skýrt brot á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna segir yfirmaður flóttamannahjálpar UNICEF.

Lúkasjenka óskar eftir hernaðaraðstoð frá Rússlandi
Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands, hefur óskað eftir því að fá lánaðar sprengjuflugvélar, sem geti borið kjarnorkuvopn, frá Rússum. Samkvæmt talsmanni Kreml er Vladímír Pútín, forseti Rússlands, í stöðugu sambandi við Lúkasjenka vegna ástandsins á landamærunum.

Tveir hópar farenda fóru yfir landamæri Póllands í nótt
Tveim hópum farenda tókst að komast frá Hvíta-Rússlandi og yfir til Póllands í nótt. Allir eru þeir nú í haldi landamæravarða í Póllandi.

Sakar „höfuðpaur í Moskvu“ um að standa að baki flóttamannakrísunni
Mateusz Morawiecki, forsætisráðherra Póllands, hefur sakað Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að vera á bak við flóttamannakrísuna sem hefur myndast á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlands.

Ákærður fyrir árásina á þinghúsið og leitar hælis í Hvíta-Rússlandi
Bandarískur karlmaður sem ákærður er fyrir hlutdeild í árásinni á bandaríska þinghúsið þann 6. janúar á þessu ári hefur sótt um hæli í Hvíta-Rússlandi, að því er hvítrússneskir ríkisfjölmiðlar greina frá.

ESB segir Lúkasjenka haga sér eins og glæpamaður
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands, um að laða flótta- og farandfólk til landsins og nota það í pólitískum tilgangi. Hegðun hans sé ómannúðleg og glæpsamleg.

Óttast vopnuð átök á landamærum Hvíta-Rússlands og Póllands
Pólverjar vara við því að til vopnaðra átaka gæti komið á landamærum Póllands og Hvíta-Rússlands, þar sem fjöldi flóttamanna freistar þess að komast yfir landamærin.

Pólverjar saka Hvítrússa um að smala fólki að landamærunum
Pólverjar sökuðu í morgun stjórnvöld Hvíta-Rússlands um að undirbúa umfangsmikla ögrun með því að smala stórum hópi flótta- og farandfólks að landamærum Póllands. Fjöldi hermanna hafa verið sendir að landamærunum.

Lögregla rak vopnaða öfgamenn frá landamærum Þýskalands og Póllands
Lögregluyfirvöld í Þýskalandi segjast hafa stöðvað fleiri en 50 öfgahægrimenn sem hugðust taka lögin í eigin hendur við landamærin að Póllandi til að hindra för flóttamanna.

Landamæravörðum veitt heimild til að vísa fólki frá án málsmeðferðar
Pólska þingið hefur samþykkt ný lög sem gefa landamæravörðum heimild til að vísa flóttafólki frá landinu nær samstundis og án nokkurrar málsmeðferðar. Þetta á bæði við um farandverkamenn og þá sem óska formlega eftir hæli í Póllandi.

Vilja draga Lúkasjenka fyrir Alþjóðadómstólinn
Evrópuþingið mun mögulega samþykkja á morgun þingsályktunartillögu um að ákæra ætti Alexander Lúkasjenka, einræðisherra Hvíta-Rússlands, fyrir pyntingar og bælingu.

Vill breyta stjórnarskrá til að útiloka stjórnarandstöðuna
Alexander Lúkasjenka, forseti Hvíta-Rússlands, talar nú fyrir breytingum á stjórnarskrá landsins til að koma í veg fyrir að stjórnarandstaðan geti komist til valda. Hann boðar þjóðaratkvæðagreiðslu um breytingarnar eigi síðar en í febrúar.

Hvítrússneskir stjórnarandstæðingar fangelsaðir í áratug
Tveir áberandi stjórnarandstæðingar í Hvíta-Rússlandi, sem mótmæltu umdeildum forsetakosningum harðlega, hafa verið dæmdir í margra ára fangelsi fyrir að hafa ógnað þjóðaröryggi og reynt að ræna völdum.

Hópur afgansks flóttafólks fastur við landamæri Póllands og Hvíta-Rússlands
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur beðið pólsk og lettnesk stjórnvöld um að hjálpa flóttafólki, sem er fast á landamærunum, við að komast í öruggt skjól. Flestir flóttamannanna eru frá Afganistan og Írak.

Ritstjóra saknað eftir húsleit í Minsk
Ekkert hefur spurst til Irinu Levshynu, ritstjóra helstu sjálfstæðu fréttastofu Hvíta-Rússlands, eftir að lögregla gerði húsleit heima hjá henni í nótt. Samtök blaðamanna í landinu segja að í það minnsta þrjátíu blaðamenn sitji nú í fangelsi.